Morgunblaðið - 12.03.1991, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
j-—r i—í-r—-- •i■ '■ ■ ■ ■ -
A
lHfCO REIKNIVÉLAR
ERU ÓDÝRARI OG BETRI
ibico 1232
0
0
0
0
0
12 stafa reiknivél
með minni
Frábær vél á
einstöku verði
Strimill og skýrt
Ijósaborö
Svart og rautt letur
Stærð:
210x290x80 mm
Reykjavík:
Penninn, Hallarmúla, Kringlunni, Austurstraeti.
E.TH.MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUN 10 - HAFNARFIRÐI - SÍMI 651000
SIEMENS
Uppbvottavélar í miklu úrvali!
SIEMENS uppþvottavélar eru velvirkar,
hljóðlátar og sparneytnar.
Breidd: 45 og 60 sm.
Verð frá 57.900,- kr.
SMfflH & NORLAND
NÓATÚNI4 - SÍMI28300
Námskeið
sem hefjast á næstunni.
FUGLASKOÐUN - 8 stundir.
Þú lærir aö þekkja varpfugla, far- og vetrargesti og hvar og
hvernig best er að fylgjast meö þeim. Fuglaskoðunarferð um
Suðurnes í lok námskeiðs.
Leiðbeinandi: Jóhann Óli Hilmarsson.
KRYDDJURTIR - 8 stundir.
Þú lærir að rækta kryddjurtir heima á svölum, I garðinum eða
innanhúss og fræðist um notkun þeirra við matreiðslu og tii
heilsubótar. Leiðbeinandi: Hafsteinn Hafliðason.
AÐ RATA UM PENINGAFRUMSKÓGINN - 6 stundir.
Þú öðlast innsýn í fjármálaheiminn. Fjallað um meðferð og
ávöxtun sparifjár, verðbréfamarkaöinn, lánamál og fjárfestingar.
Fyrirspurnir og umræður. Leiðbeinandi: Friðrik Halldórsson.
PAPPÍRSGERÐ -10 stundir.
Þú lærir að búa til fallegan handgerðan pappír úr gömlum
pappír og öðru afgangsefni. Leiðbeinandi: Helga Pálína
Brynjólfsdóttir.
SAUMANÁMSKEfÐ - 20 stundir.
Endurtekin á seinni hluta vorannar: Fatasaumur, Bútasaumur
og Að sauma yfirhafnir. Leiðbeinendur: Ásta Kristín Siggadóttir
og Ásdts Ósk Jóelsdóttir.
Náríarl upplýslngar um námskeiOin, verö, staö og
tfmasetningu á skrlfstofu okkar.
TÓM5TUNDA
SKOLINN
Skólavörðustig 28 Sími 6214 88
Þj óðhátíðarsaga
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Saga íslands V. bindi. Ritstjóri:
Sigurður Líndal. Hið islenzka bók-
menntafélag. Sögufélag. Reykja-
vík, 1990, 380 bls.
Hinni miklu íslandssögu sem
kennd er við Þjóðhátíðina 1974 mið-
ar jafnt og þétt áfram. Nú fyrir jólin
kom út fimmta bindið og skammt
mun vera í útkomu þess sjötta.
Fimmta bindið má líta á sem eins
konar systurbindi við fjórða bindið
sem út kom í fyrra. Enda þótt það
sé sagt fjalla um fjórtándu öldina,
nær það sums staðar nokkru lengra.
Og eins er með þetta bindi, sem telst
ijalla um fimmtándu öldina. Það nær
sums staðar aftur á þá fjórtándu og
í öðrum tilvikum er frásögn haldið
áfram fram yfir siðaskipti. Þannig
hlýtur þétta auðvitað að vera. Efni
verður að ráða fremur en ströng
tímaskipting.
I þessu bindi eru þrjár ritgerðir:
Enska öldin eftir Bjöm Þorsteinsson
og Guðrúnu Ásu Grímsdóttur með
viðaukum eftir Sigurð Líndal, Bók-
menntasaga eftir Jónas Kristjánsson
og Myndlist á síðmiðöidum eftir
Björn Th. Björnsson.
Fyrsta ritgerðin er langlengst,
raunar heil bók (213 bls.). Björn
Þorsteinsson féll frá áður en hann
fékk lokið ritgerð sinni og tók þá
nemandi hans Guðrún Ása Gríms-
dóttir við verkinu og lauk því ásamt
ritstjóranum Sigurði Líndal. Þykist
ég víða sjá fingraför hans á þessu
skrifí. Ritgerðin hefst á frásögn af
Plágunni miklu 1402-1404. Síðan
segir frá siglinga- og verslunarmál-
um. Koma þar Englendingar og Þjóð-
verjar mest við sögu. Fléttast þetta
mjög saman við frásögn af verald-
legri og andlegri valdsstjórn og af
átökum og eijum á þeim vettvangi.
Síðari hluti ritgerðarinnar er svo eig-
inleg kirkjusaga eða kannski öllu
heldur biskupa- og stjórnunarsaga
kirkjunnar á Islandi. Síðustu þættirn-
ir fjalla um Grænland eftir 1410 og
ísland og Nýja heiminn. Er þar tals-
vert rætt um þann möguleika að
Kolumbus muni hafa komið tii ís-
lands sem ungur maður.
Þetta er mikil ritgerð og prýðilega
læsileg eins og vænta mátti. Sumum
kann að þykja efnissvið hennar full-
þröngt, en þá er ekki annað en grípa
fjórða bindið og lesa þar um aðra
efnisþætti yfír nokkurn veginn sama
tímabil eftir sömu höfunda.
Ritgerð þessi hefur marga ágæta
kosti. Hún er skýr og efnismikil, en
útúrdúralaus. Kostur er hversu vel
er bent á hvar frumheimildir þrýtur
og hvar rannsókna er vant. Þessar
aldir eru vissulega myrkar hvað þetta
varðar. Skortir hér svo sannarlega
ekki rannsóknarefni fyrir verðandi
sagnfræðinga.
Mikið er af myndum í þessari rit-
Sigurður Líndal
gerð þ. á m. margar prýðilega gerðar
litmyndir. I mörgum tilvikum fylgja
myndum langir textar. Óþarflega
þykja mér þeir langir stundum, eink-
um þegar hluti þeirra er samhljóða
því sem stendur í aðaltexta.
Enda þótt Bókmenntasaga Jónas-
ar Kristjánssonar sé einungis stutt
ágrip (65 bls.) og gjaldi þess að
nokkru, er hún engu að síður grein-
argott yfirlit og skemmtilegt aflestr-
ar. Þar er fjallað um riddarasögur,
fornaldarsögur, sagnadansa, rímur,
helgikvæði og veraldleg kvæði. Höf-
undur gerir grein fyrir uppruna, stíl-
einkennum og greinir frá einstökum
sögum og kvæðum hvers flokks fyr-
ir sig og verður maður um margt
fróðari.
Lokaritgerðin er Myndlistarsaga
Björns Th. Björnssonar. Hún er söm-
uleiðis stutt ágrip (65 blss). Hún tek-
ur aðallega til kirkjulistar, enda er
um fátt annað að ræða af varð-
veittri myndlist (nema nokkrar hand-
ritalýsingar) — og raunar ekki nema
örlítið brot af því sem sannanlega
hefur verið til. Björn lýsir því vel og
með góðum dæmum hvernig ró-
manskur myndstíll víkur fyrir gotn-
eskum og hvernig hann fer svo á
undanhald þegar líður að lokum
tímabilsins. Mjög góðar listaverka-
myndir eru í þessari ritgerð og þar
eru myndatextar af hóflegri lengd.
Þetta fimmta bindi af Sögu ís-
lands er að öllu leyti ágætlega gert.
Augljóst er að höfúndar hafa afar
gott vald á efni sínu, enda löngu
viðurkenndir fræðimenn og rann-
sóknarmenn hver á sínu sviði. Þá er
það vissulega mikill kostur hversu
ágætlega ritfærir þeir eru. Þessa bók
les maður sér til ánægju.
Hverri ritgerð fylgir vönduð og
rækileg sundurliðuð heimildaskrá
eins og í fyrri bindum. Þegar öll bind-
in verða útkomin verður það ómetan-
legt hjálpargagn fyrir alla þá sem
sagnfræði iðka. Nafnaskrá er í bó-
karlok eins og hlýðir.
Sérstök ástæða er til að minnast
að lokum á myndir bókarinnar. Ber-
sýnilega hefur mikil alúð verið lögð
við útvegun mynda og eru þær víðs-
vegar að. Mjög margar myndir hafa
verið gerðar sérstaklega fyrir þessa
bók. An þess að skugga sé varpað á
aðra vil ég sérstaklega geta þess að
hinn ágæti ljósmyndari Árnastofnun-
ar, Jóhanna Ólafsdóttir, á hér stóran
og merkan hlut.
r h
LÓNIÐ
Hádegisverðarhlaðborð alla daga.
Verð kr. 1395.00
Heilsudiskur kr. 680.-
Pasta dagsins kr. 750.-
Súpa og salatskál kr. 480.-
Borðapantanir í síma 22321.
FLUGLEIÐIR
HÓTEL LOFTLEIBIR
- þegar matarilmurinn liggur í loftinu
l__________________________)