Morgunblaðið - 12.03.1991, Qupperneq 13
rw:t xiiam .2} atjDAauimsw aiaAjawjonoK
MOHGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991-------------
%
Breski heimspekíngurinn John Papworth:
Möguleikar kannaðir á stofn
un bandalags smáþjóða
„HELSTA ástæðan fyrir því að ég kem til íslands er sú að
mig Iangar til að kanna möguleikana á að stofna alþjóðlegt
bandalag smáþjóða og tel Island, sem á eitt elsta löggjafarþing
veraldar, vera góðan upphafsstað,“ sagði breski heimspekingur-
inn, stjórnmálahugsuðurinn og klerkurinn John Papworth í
samtali við Morgunblaðið. Papworth dvelur hér á landi um
þessar mundir í boði stjórnmálafélagsins Birtingar. Opinn fund-
ur félagsins með Papworth verður haldinn í kvöld á Kornhlöðu-
loftinu á Bernhöftstorfunni og hefst hann kl. 20.30.
John Papworth er kunnastur
sem upphafsmaður hreyfingar-
innar Smátt er fagurt (Small is
beautiful) en hann ritstýrir nú
tímaritinu Fourth World Review,
sem er málgagn svonefndra
Fjórðaheimssamtaka. „Fjórða
heiminn mynda smáþjóðir og
þjóðarbrot sem eiga eftir að
bjarga veröldinni. í þeim er fólg-
in eina vonin um að komið verði
í veg fyrir að stórar þjóðir og
sú samfélagsgerð sem þær
byggja muni tortíma heiminum,“
sagði Papworth.
Hann sagðist lengi _ hafa
dreymt um að koma til íslands
til að sjá litla þjóð sem tekist
hefði vel upp í stórum heimi og
sýnt hefði fram á að raddir sem
oft heyrast, um að litlar þjóðir
eigi sér litla lífsvon, ættu ekki
við rök að styðjast.
„íslendingar eru dæmi um litla
þjóð sem vex og dafnar eftir að
hafa brotist undan oki erlendra
yfirráða og öðlast sjálfstæði. Mig
langar að sjá hvernig hún fór
að því,“ sagði Papworth.
Hann hyggst á meðan á dvöl-
inni hér stendur óska eftir því
við íslenska ráðamenn að þeir
undirriti samning um stofnun
bandalags smáþjóða.
„Þetta yrði alþjóðlegt banda-
lag smáþjóða með íbúafjölda inn-
an við fimm milljónir. Þjóðir
bandalagsins myndu ekki sam-
einast á nokkurn hátt heldur
yrðu samtök þeirra málsvari og
sameiginleg rödd þeirra. Það er
skoðun mín að smáþjóðir aigi
meira til að veita heiminum hvað
varðar frið, hagsæld, stöðugleika
og umburðarlyndi í stjómmálum
heldur en stórar þjóðir. Það þarf
ekki annað en að líta í kringum
sig í Evrópu og í ljós kemur að
þær þjóðir sem eru auðugastar,
veita mesta félagslega aðstoð,
hafa besta húsakostinn, bestu
menntunina og mestu hagsæld-
ina eru allar smáar og þar auki
friðsælar. Það er éðli hlutanna
að því stærri sem þjóðir eru því
líklegri eru þær til að fara í stríð.
Ég tel að sameining Þýskalands
muni því óhjákvæmilega leiða til
annarrar stytjaldar. Við verðum
að átta okkur á því að hið smáa
er ekki aðeins fagurt heldur er
smæðin beinlínis nauðsynleg til
þess að friður haldist og mann-
kynið geti haldið áfram að vera
til,“ sagði Papworth.
„Við munum auðvitað bjóða
stóru þjóðunum aðild að banda-
lagi okkar en einungis með því
skilyrði að þær skipti sér upp í
smærri einingar svo áð fólkið í
landinu fái ráðið því sem er að
gerast, ekki markaðsöfl eða ann-
að. Við munum því ekki bjóða
John Papworth
Bandaríkjunum aðild en Massa-
chusetts getur hins vegar auð-
veldlega gengið í bandalagið. Við
verðum að gera það sem íslenska
þjóðin hefur gert og vinna fylgi
hugmyndinni um fullveldi hinna
smáu,“ sagði Papworth.
Fjórðaheimssamtökin halda
árlega þing_ einhvers staðar í
heiminum. „í ár höldum við þing
í tíunda sinn og munum þar taka
sérstaklega fyrir vandamál þjóð-
emishópa. Við sækjumst ekki
eftir alheimslausnum heldur vilj-
um við lausnir eins og smáríki
líkt og ísland hafa fundið því
hvert samfélag er blóðkorn sið-
menningarinnar og enginn lík-
ami getur verið heilbrigðari en
þau blóðkorn sem hann inniheld-
ur,“ sagði Papworth.
Papworth sagðist hafa litla trú
á ágæti Evrópubandalagsins og
varaði íslendinga við því að
sækja þar um aðild.
„Ég tel að það myndi hafa
mikla ógæfu í för með sér ef
ísland gerðist aðili að Evrópu-
bandalaginu. Þjóðin myndi tapa
því sem hún öðlaðist þegar hún
braust undan oki Dana og hlaut
sjálfstæði. Hún yrði fátækari,
myndi tapa fullveldinu en fá ekk-
ert í staðinn nema skriffinsku
og ósjálfstæði. Allir skipstjórar
vita að helsti óvinur skipsins er
hiða stór haf en vinur þess er
litla höfnin. Á sama hátt eru
smærri einingar stöðugri og
hæfari til að vernda fólkið og
hag þess,“ sagði Papworth.
Hann sagði forsvarsmenn
Evrópubandalagsins einungis
vera að sækjast eftir auknum
miðstýrðum völdum til að geta
haft áhrif á efnahagslega skipan
þjóða og þjóðarbrota.
„Að baki liggur sú hugsun að
við séum öll háð efnahagslegum
forsendum. Við höfum hins veg-
ar fengið nóg af slíkri vitleysu.
Við erum ekki háð neinu nema
guði. Það eina sem er ákveðið
fyrir okkur er það að við munum
deyja, öllu öðru stjórnum við
sjálf,“ sagði Papworth.
NISSAN SUNNY
GJÖRBREYTTUR OG GLÆSILEGUR
Fyrir utan nýja hönnun má nefna
• Nýjar 16 ventla 1,6L og2.0L vélar
• Nýja 4ra þrepa sjálfskiptingu
• Nýja fjöörun og frábæra
hljóðeinangrun
• Verð frá kr. 869.000 stgr.
Nissan Sunny hefur fengið hreint
frábærar viðtökur og hvetjum við
því sem flesta að koma í reynslu-
akstur.
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöföa 2
sími 91-674000