Morgunblaðið - 12.03.1991, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
Kaupmenn,
innkaupastjórar
SÓL-
GLERAUGU
Ótrúlegt úrval
af dömu-, herra-,
unglinga- og
barnasólgleraugum.
Einnig skíðasólgleraugu.
Frábært verð
HOLLENSKA
VERSLUNARFÉLAGIÐ
Borgartúni 18
Simi 6188 99 Fax 62 63 55
Málningar-
límbönd
ÁRVÍK
ÁRMÚLI 1 -REYKJAVÍK-SfM! 687222 -TELEFAX 687295
öfiug ryksugg!
VS91153
Stillanlegur sogkraftur
(250- 1100 W).
4 fylgihlutir í inn-
byggðu hólfi.
Fjórföld sýklasía í
úlblæstri.
Sjálfinndregin snúra
og hleðsluskynjari.
SIEMENS framleiðsla J
tryggir endingu og gæði.
Verð kr. 17.400,- '
SMTTH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Óraunhæf lánabarátta?
eftirÁslaugu
Magnúsdóttur
í dag þriðjudaginn 12. mars
ganga stúdentar við Háskóla íslands
til kosninga. Kosnir verða 15 menn
og konur, til að sitja í Stúdentaráði
næstu tvö árin. Valið stendur á milli
tveggja fylkinga: Vöku, félags lýð-
ræðissinnaðra stúdenta, sem farið
hefur með stjórn Stúdentaráðs sl.
þijú ár, og Röskvu,,samtaka félags-
hyggjufólks í Háskóla íslands. í
kosningabaráttunni sem staðið hefur
yfir hafa Röskvumenn ítrekað sakað
Vökumenn um slæleg og óvönduð
vinnubrögð innan Stúdentaráðs.
Rangfærslur þeirra og útúrsnúning-
ar varðandi stefnu og starf Vöku-
manna í málefnum Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna eru sláandi
dærni um þetta.
í nýlegu fréttabréfi sínu halda
Röskvumenn því fram að Vökumenn
hafí sýnt ábyrgðarleysi í lánabarát-
tunni og að hugmyndir Vöku varð-
andi tekjumeðferð myndu þýða út-
gjaldaaukningu fyrir Lánasjóðinn
um a.m.k. einn milíjarð. Ekki er ljóst
hvaðan Röskvumenn hafa þessa
tölu, en eitt er víst að útreikningar
þeirra byggjast á forsendum um
stefnu Vöku sem Vökumönnum
sjálfum eru alls ókunnar.
Stefna Vöku
í stefnuskrá Vöku kemur fram
að Vökumenn telja að námsmenn
eigi að geta haft eðlilegar tekjur í
leyfi án þess að til skerðingar láns
komi. Þar bendir Vaka á þijár mis-
munandi leiðir sem hver um sig get-
ur leitt tíl þess að þessu markmiði
verði náð. Þessar þijár leiðir eru:
1. Lækkun tekjutillits, t.d. í 35%
2. Tvöfajf tekjusvigrúm í leyfi.
3. Fast frítekjumark fyrir alla,
t.d. 300.000 krónur.
í fréttabréfi sínu snúa Röskvu-
menn á undarlegan hátt út úr stefnu
Vökumanna með því að sameina
tvær þessara leiða í eina og halda
því þannig fram að Vökumenn vilji
bæði, hafa 300.000 króna frítekju-
mark og 35% tekjutillit. Með því
móti hafa þeir sennilega komist að
þeirri niðurstöðu að hugmyndir Vök-
umanna myndu kosta sjóðinn a.m.k.
1 milljarð, fimmtung af heildarfjár-
þörf sjóðsins eins og hún er nú.
En hvað myndu hugmyndif Vöku-
manna raunverulega kosta Lána-
sjóðinn? Sú tillaga sem Vökumenn
hafa lagt mesta áherslu á er að fá
tekjutillit lækkað niður í t.d. 35%
Að sögn Guðmundar Ólafssonar,
fulltrúa fjármálaráðherra í stjórn
Lánasjóðsins, myndi lækkun tekjut-
illits úr 75%, eins og það er nú, nið-
ur í 35%, í mesta lagi hafa í för
með sér útgjaldaaukningu hjá sjóðn-
um upp á 200 milljónir. Hann telur
þó raunhæfara að útgjöld myndu
einungis aukast um 100 milljónir
vegna þess að um leið og tekjutillit
lækkar hafa námsmenn tilhneigingu
til að vinna meira og þannig yrðu
það hærri tekjur sem frádrátturinn
reiknaðist af.
Þessi hugmynd Vökumanna er því
alls ekki óraunhæf, sérstaklega í
ljósi þess að Vökumenn vilja beita
sér fyrir hertum endurgreiðslum
námslánanna. í dag skila um 85%
útlána sér aftur inn í sjóðinn með
endurgreiðslum, en Vökumenn telja
15% útlánatap vera of mikið. Við
teljum sanngjamt að lánþegar greiði
lán sín að fullu til baka, þó þannig
að sveigjanleiki sé í endurgreiðslu-
kerfinu ef um er að ræða óvænt
áföll eða sérstakar félagslegar að-
stæður.
Hugmynd Röskvu
í fyrrnefndu fréttabréfí sínu
benda Röskvumenn á eina leið sem
þeir telja heppilegustu leiðina til að
breyta tekjumeðferð. Hugmynd
þeirra er svohljóðandi: „Það sem
fólk þénar umfram núgildandi frí-
tekjumark og upp að ca. 300 þúsund
krónum kemur þá einungis 35% til
frádráttar á námsláni viðkomandi.
Það sem fólk þénar umfram 300
þúsund kemur eins og nú 75% til
Áslaug Magnúsdóttir
„En hvort er alvarlegra
að nokkrir einstakling-
ar sem þurfa ekki á lán-
um að halda, taki þau
samt, eða að þeim sem
virkilega þurfa að geta
unnið með náminu sé
nánast meinað að afla
sér þess aukafjár sem
þeim er nauðsynlegt?“
frádráttar“.
Að sögn Guðmundar Ólafssonar
gæti þessi leið Röskvumanna að
hámarki aukið svigrúm sjóðsins um
75 milljónir miðað við ef tekjutillit
væri 35% fyrir alla tekjuhópa. Þess-
ar 75 milljónir eru vel innan við 2%
af heildarfjárþörf sjóðsins á þessu
ári og hafa þannig óveruleg áhrif á
fjárhagsstöðu hans.
Hver hefur rétt fyrir sér?
En skiptir þá einhveiju máli hvort
við höfum 35% tekjutillit eða tekjutil-
lit í þrepum samkvæmt hugmyndum
Röskvu? Hér verðum við að hafa það
í huga að það eru ekki endilega
þeir sem hafa það best sem eru með
yfir 300 þúsund krónur í tekjur yfir
sumarið. Þeir sem búa við erfíðar
aðstæður og geta ekki leitað stuðn-
ings hjá öðrum aðilum lenda verst
í stighækkandi tekjutilliti. Möguleik-
um þeirra til að afla sér nauðsynlegs
aukafjár til að mæta áföllum eru
þannig þröngar skorður settar.
Að sjálfsögðu má benda á það á
móti að kerfi þar sem er 35% tekju-
tillit fyrir alla tekjuhópa hefur sína
galla. Einstaklingar sem hafa háar
tekjur og hafa það gott geta misnot-
að kerfið og fengið einhver lán. En
hvort er alvarlegra að nokkrir ein-
staklingar sem þurfa ekki á lánum
að halda, taki þau samt, eða að þeim
sem virkilega þurfa að geta unnið
með náminu sé nánast meinað að
afla sér þess aukafjár sem þeim er
nauðsynlegt? Tilgangur Lánasjóðs-
ins er að tryggja jafna möguleika
til náms. Þannig er svarið augljóst.
Hagsmunir stúdenta
í fyrirrúmi
Vaka hefur nú í tvö ár farið með
málefni Lánasjóðsins fyrir hönd
stúdenta. Starfið hefur verið mikið
og oft hefur verið við ramman reip
að draga þar sem fjárveitingavaldið
hefur verið annars vegar. En náms-
menn geta vel unnt sínum hag, auð-
vitað viljum við bæta kerfið og
tryggja það í sessi. En það yerður
að gera af festu og ábyrgð. Það sem
Vaka býður er áframhaldandi og
stöðug vaka fyrir hagsmunum stúd-
enta. Kosningaloforð og gífuryrði
mega ekki einkenna lánabaráttuna,
hún er barátta allra námsmanna.
Vaka fer því í dag fram á endurnýj-
un á umboði sínu frá ykkur, stúdent-
um við Háskóla íslands.
Höfundur er í Stúdentaráðsliði
Vöku og varafulltrúi Stúdentaráðs
í stjórn Lánasjóðs íslenskra
námsmanna.
Stúdentar:
Höldum Vöku okkar
eftir Andra Þór
Guðmundsson
í dag ganga stúdentar í Há-
skóla Islands að kjörborðinu og
gera upp á milli tveggja and-
stæðra fylkinga sem í framboði
eru. Eins og endranær bítast um
laus sæti í Stúdenta- og háskólar-
áði, Vaka og Röskva, samtök fé-
lagshyggjufólks. Valið stendur um
áframhaldandi uppbyggingu og
faglega hagsmunavinnu í þágu
stúdenta eða að Stúdentaráði verði
breytt í fyrra horf pólitískrar um-
ræðu um allt milli himins og jarð-
ar, en hagsmunamál látin mæta
afgangi.
Vaka hefur nú fárið með stjórn
Stúdentaráðs í samfellt þijú ár. Á
þeim tíma hefur gríðarlega margt
áunnist. Vökumenn þakka það
fyrst og fremst að pólitísku dæg-
urþrasi var útrýmt úr Stúdenta-
ráði og ráðsliðar hafa einbeitt sér
að hagsmunavinnu í þágu stúd-
enta. Það er af sem áður var þeg-
ar fundir Stúdentaráðs fóru í það
að karpa um málefni Suður-Afríku
og veru íslands í NATO. Vöku-
menn eru allir vel sjóaðir í vinnu
að félagsmálum innan Háskólans
sem utan. Þessi reynsla er mikil-
væg vegna þess að hagsmunamál
stúdenta eru flókin og margbreyti-
le&
Margvíslegur árangur hefur
náðst í hinum ýmsu málaflokkum
sem varða stúdenta undir stjórn
Vöku bæði í Stúdentaráði og Fé-
lagsstofnun stúdenta. Húsnæðis-
miðlún stúdenta hefur tífaldað
veltu sína á húsnæði, Atvinnumiðl-
un hefur verið efld, þjónusta skrif-
stofu Stúdentaráðs hefur verið
bætt til muna, hallarekstri á blað-
aútgáfu snúið við, gæðamati á
kennslu komið á, desemberpróf
staðreynd, samningaviðræður við
Reykjavíkurborg um byggingu nýs
dagheimilis fyrir börn stúdenta,
framkvæmdir að hefjast við bygg-
ingu nýs stúdentahverfis sem reisa
á fyrir árið 2000 og svona mætti
lengi telja. Ég hvet stúdenta í
Háskóla íslands til að kynna sér
rækilega stefnu Vöku í hinum
ýmsu málaflokkum sem allir
Andri Þór Guðmundsson
„Ég hvetstúdenta í
Háskóla Islands til að
kynna sér rækilega
stefnu Vöku í hinum
ýmsu málaflokkum sem
allir snerta hagsmuni
þeirra og velferð áður
en þeir gera upp hug
sinn í dag. Höldum
Vöku okkar!“
snerta hagsmuni þeirra og velferð
áður en þeir gera upp hug sinn í
dag. Höldum Vöku okkar!
Höfundur er formaður Vöku og
fráfarandi Stúdentaráðsliði.
Þrjár bækur frá Kiljuklúbbnum
ISLENSKI kiljuklúbburinn hefur
sent frá sér þijár bækur:
Meðan nóttin líður er skáldsaga
eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur sem
vakið hefur mikla athygli og hlaut
höfundur bæði íslensku bókmennta-
verðlaunin 1990 og Menningarverð-
laun DV fyrir bókina. Sagan segir
frá konu er situr við rúm deyjandi
móður sinnar. Þetta er giæsileg og
örugg nútímakona að því er virðist,
en á meðan nóttin líður vakna spurn-
ingar, efí og gamlar sögur og mynd-
ir bijóta sér leið þó að hún reyni að
bægja þeim frá sér. Bókin er 194
bls., prentuð í Englandi. AUK
hf./Magnús Jónsson hannaði kápu.
Að breyta fjalli var næstsíðasta
bók Stefáns Jónssonar sem lést á
síðasta ári. í bókinni rekur hann
minningar frá uppvaxtarárum sínum
á Austur- og Norðurlandi á árunum
fyrir stríð en víða er skírskotað til
nútímans. Bókin er 281 bls., prentuð
í Skotlandi. Næst hannaði kápu, en
Þrjár bækur frá Kiljuklúbbnum.
ljósmynd á kápu er eftir Guðmund
P. Ólafsson.
Bættur skaði er ný spennusaga
eftir Söru Paretsky. Maður sem
kynnir sig sem aðstoðarbankastjóra
stærsta bankans í Chicago ræður
kvenspæjarann V.í. Warshawski til
að hafa uppi á syni sínum. Brátt
kemur í ljós að maðurinn er annar
en hann læst vera. Guðlaugur Berg-
mundsson þýddi bókina sem er 247
bls., prentuð í Skotlandi. Hvíta hús-
ið hannaði kápu, en ljósmynd á kápu
tók Sigurður Stefán Jónsson.