Morgunblaðið - 12.03.1991, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGÚR 12. MARZ 1991
29. landsfundur Sjálfstæðisflokksins:
'
Ályktun um sj ávarútvegsmál
Næstu ríkisstjórnar bíður að
marka sjávarútvegsstefnu
Fullri andstöðu lýst við skattastefnu ríkissljórnarinnar
í ÁLYKTUN landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins um sjávarútvegs-
mál segir, að sjávarútvegsstefna
sem taki tillit til allra þátta, hafi
ekki enn verið mörkuð og næstu
ríkisstjórnar bíði þar inikið og
vandasamt verk. Hins vegar er
ekki fjallað um helstu ágrein-
ingsefnin, sem verið hafa í sjáv-
arútvegsmálunum, svo sem af-
nám kvótakerfisins eða veiðileyf-
asölu og felld var út grein úr
upphaflegum ályktunardrögum,
þar sem lagt var til að takmarka
fijálsa verslun með veiðiheimild-
ir þannig, að einungis opin hluta-
félög gæti aflað sér veiðiheimilda
umfram ákveðið hlutfall af heild-
arafla landsmanna.
Þá var felld út tillaga um sjálf-
stæða sjávarútvegsstofnun, sem
ætti meðal annars að taka við hlut-
verki Fiskifélags íslands og veiði-
eftirlits sjávarútvegsráðuneytisins.
Loks var felldur kafli úr ályktunar-
drögum um skattamál, þar sem
hafnað var hugmyndum um auð-
lindaskatt eða sölu veiðileyfa.
í ályktuninni segir m.a. að við
mótun fiskveiðistefnunnar eigi að
hafa í huga að tryggja forkaupsrétt
aðila innan sveitarfélags við sölu á
veiðiheimildum, að ströngum viður-
lögum verði beitt við hvers konar
misferli eða brotum á lögum og
reglum um fiskveiðar, Hagræðing-
arsjóður sjávarútvegsins verði lagð-
ur niður og við hlutverki Úrelding-
arsjóðs sjávarútvegsins taki Aldurs-
lagasjóður. Þá verði fiskvinnslunni
heimilað að mynda eigin sveiflujöfn-
unarsjóði án þátttöku launþega, en
Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins
verði lagður niður.
Eftir reynslu af síðasta lands-
fundi, þar sem umræður í sjávarút-
vegsnefnd drógust mjög á langinn,
var nú ákveðið að takmarka þar
bæði fjölda og lengd ræðna. Mál-
efnahópurinn um sjávarútvegsmál
lauk störfum á tilsettum tíma, þrátt
fyrir að haldnar væru yfir 40 ræður
á þeim tveimur fundum sem hópur-
inn hélt, að því er Arnar Sigmunds-
son formaður hópsins upplýsti á
landsfundinum. Arnar sagði, að
ekki hefðu allir verið sammála á
þeim fundum, en eftir að fulltrúar
andstæðra sjónarmiða höfðu verið
tilnefndir til að ganga frá endan-
legri tillögu hefði náðst sæmileg
sátt um niðurstöðuna.
Markús Möller hagfræðingur,
sem verið hefur einn af helstu tals-
mönnum veiðileyfasölu innan
flokksins, sagði að þessi tillaga
væri ekki um stórar breytingar,
enda væri ekkert sem ræki menn
til þess að heija stóraðgerðir í sjáv-
arútvegi nú.
Hann sagði að spurningin um
veiðileyfagjald hefði ekki komið upp
að þessu sinni, en á því máli yrði
að bijóta á landsfundi. Það þyrfti
þá að koma fullundirbúið fram á
landsfundinum sjálfum en ekki að
taka það fyrir í fámennri sjávarút-
vegsnefnd.
Barátta Vestfirðinga gegn kvóta-
kerfinu var ekki mjög áberandi á
landsfundinum sjálfum að þessu
sinni. Á sjávarútvegsnefndarfund-
unum lögðu þeir þó fram fullbúna
tillögu, þar sem sagði meðal ann-
ars, að Sjálfstæðisflokkurinn yrði
að taka forustu í mótun annarar
fiskveiðistefnu sem taki við í árslok
1992, þar sem koma þurfi í veg
fyrir sífellt aukinn eftirlits- og
stjórnunarkostnað vegna fiskveið-
anna. Afleggja bæri sölu óveidds
fisks í sjó og tryggja rétt byggðar
til sjávarfangs og atvinnu.
I endanlegri tillögu er samsvar-
andi kafli hins vegar orðaður þann-
ig: Höfuðmarkmið fiskveiðistefn-
unnar er að stuðla að verndun og
uppbyggingu fiskistofna og hag-
kvæmari nýtingu þeirra, jafnframt
því að tryggja rétt byggða til sjávar-
fangs og atvinnu. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur ekki farið með stjórn
sjávarútvegsmála sl. 13 ár. Telja
verður eðlilegt að stærsti stjórnmál-
aflokkur landsins fái þetta mik-
ilvæga ráðuneyti í sinn hlut í næstu
ríkisstjórn og hafi forustu um mat
á árangri þeirrar fiskveiðistefnu
sem nú er fylgt samfara endurskoð-
un og einföldum fiskveiðistefnunn-
ar á næsta ári.
Guðmundur Sævar Guðjónsson
frá Bíldudal kom með breytingartil-
DANSHÖGSKOLAN 0
DANSHÁSKÓLINN
auglýsir - að því tilskiidu að viðhlítandi leyfi fáist - stöðu
PRÓFESSORS í AÐ SEMJA DAIMSA („koreografi")
og hefji störf 1. júlí 1992.
Ríkisstjórnin skipar í stöðuna til fimm ára fyrst um sinn.
Veitinguna má endurnýja án þess að staðan sé auglýst. gtöð-
unni má gegna í hæsta lagi í 10 ár.
Laun: Staðan er launuð sem yfirmannsstarf.
Umfang stöðunnar: Fullt starf.
í starfinu er innifalið 200 klt. kennslustundir á námsári.
í starfinu eru sameinaðar rannsóknir og listræn þróunarstörf
í samningu dansa. Prófessorinn á einnig að stjórna rannsókn-
um og listrænu framfarastarfi í samningu dansa við DH og
leiðbeina nemendum í þessari grein í samvinnu við námsstjó-
rann.
Starfið krefst bæði fræðilegrar og hagnýtrar þekkingar á
þessu sviði.
Umsækjandi þarf að geta sannað listræna starfsemi við
uppsetningu dansa. Vlð tökum mikið tillit til hugkvæmni og
nýsköpun og lagni við kennslu. Vegna mikilla alþjóðlegra
samskipta DH er mjög góð enskukunnátta nauðsynleg.
Hæfniskröfur að öðru leyti, ráðningarmáti m.m., má finna í
19. kafla háskólareglugerðarinnar.
Ásamt umsókninni á umsækjandi að bæta við eftirfarandi í
fjórum eintökum:
- Stuttri, skriflegri skýrslu um listræna starfsemi og kennslu-
störf. í skýrslunni á að koma fram hvert af störfunum honum
sjálfum finnst að ætti að leggja mesta áherslu á þegar dæmt
er um ráðningu.
- Vottfestri náms- og starfsskrá og skrá yfir verk þau og
störf sem vitnað er til. Myndþandsspólur má senda með.
Upplýsíngar um stöðuna gefa:
Rektor Lena Malmsjö - Sími 8-6663603.
Kansliehef Gunnel Gustafsson - Sími 8-6663604.
Umsóknir - á ensku eða sænsku - á að stíla til ríkisstjórnarinn-
ar og skulu hafa borist DANSHÁSKÓLANUM, Box. 270 43,
S-102 51 Stockholm, Sverige, í síðasta lagi 15. apríl 1991.
lögu við lokasetninguna, þannig að
hún endaði: samfara endurskoðun
og mótun nýrrar einfaldari sjávar-
útvegsstefnu á næsta ári. Kristján
Ragnarsson framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra útvegs-
manna sagði að slík tillaga hefði
einnig komið fram í nefndinni og
verið hafnað, enda væri það ekki
gott veganesti af þessum lands-
fundi, að álykta um að taka ætti
upp nýja fiskveiðistefnu en ekki um
hvernig hún ætti að vera. Kristján
mótmælti éinnig hugmyndum um
auðlindaskatt, og sagði að með því
væri verið að skattleggja það hag-
ræði sem fengist með fækkun í fisk-
veiðiflotanum. Tillaga Guðmundar
var síðar felld með nokkrum mun.
I tillögunni, sem samþykkt var á
fundinum, segir að brýnt sé að
hagsmunir útgerðar og fiskvinnslu
fari saman, og nauðsynlegt sé að
stefna að fullvinnslu se_m flestra
sjávarafurða hér á landi. í því sam-
bandi sé nauðsynlegt að jafna sam-
keppnisstöðu fiskvinnslu á íslandi
til samræmis við fiskvinnslu innan
Evrópubandalagsins, með tilliti til
verndartolla EB.
Þá er í tillögunni sérstakur kafli
um öryggismál sjómanna þar sem
segir að áformum um kaup á nýrri
og stærri björgunarþyrlu með afís-
ingarbúnaði verði að hrinda undan-
bragðalaust í framkvæmd. Þá beri
að efla starfsemi og rannsóknir
Hafrannsóknarstofnunar, sérstak-
lega verði stórauknar rannsóknir á
vistfræði hafsins. Þá segir að nýta
beri sjávarspendýr undir vísinda-
legu eftirliti eins og fiskistofnana.
Hert á skattaályktun
I ályktun landsfundarins um
skattamál er lýst yfir fullri andstöðu
við stefnu núverandi ríkisstjórnar.
Nauðsynlegt sé að hverfa frá
skattahækkunarstefnu og stöðva
þenslu í umsvifum ríkiskerfisins.
Minni ríkisumsvif séu forsenda auk-
innar verðmætasköpunar og þar
með tryggasta leiðin til að létta
skattbyrði og bæta almenn lífskjör.
Þá segir að leita þurfi leiða til að
lækka núverandi skatthlutfall í
35%, m.a. með fækkun frádráttar-
liða, skatthlutfall virðisaukaskatts
í 15% og tekjuskatts fyrirtækja í
30-35%. Einnig er þess krafist að
aðstöðugjald verði afnumið, svo og
sérstakur skattur á skrifstofu- og
verslunarhúsnæði. Loks segir, að í
stað hinna ýmsu kostnaðarskatta
megi innleiða þjónustugjöld, sem
greidd eru af notendum opinberrar
þjónustu þegar unnt sé að koma
því við.
Ályktunin tók nokkrum breyting-
um í meðförum fundarins, frá upp-
haflegum drögum. í upphaflegri til-
lögu var til dæmis talað um að
standa vörð um núverandi skatt-
leysismörk og að núverandi réttur
til yfirfærslu ónýtts persónuafslátt-
ar verði að teljast viðunandi mála-
miðlun milli sérsköttunar og sam-
sköttunar hjóna. I endanlegri álykt-
un segir að stefna skuli að hækkun
skattleysismarka og núverandi rétt-
ur til yfirfærslu ónýtts persónuaf-
sláttar geti ekki talist viðunandi
málamiðlun milli sérsköttunar og
samsköttunar hjóna.
Þá var samþykkt breytingartil-
laga frá Friðrik Árnasyni á Akur-
eyri þar sem segir, að skattbyrði
heimilanna sé nú með þeim hætti
sem ekki verði við unað. Svo mikil
sé skattbyrðin orðin, að alþýðufjöi-
skyldan hafi vart fyrir brýnustu
nauðsynjum. Það sé því frumskylda
Sjálfstæðisflokksins að beita sér
fyrir því í ríkisstjórn að skattlagn-
ingu verði hagað þannig að afkoma
lágtekjufólks batni þegar í stað svo
um muni. Ýmsir urðu til að lýsa
yfir stuðningi við þessa tillögu,
þeirra á meðal Eyjólfur Konráð
Jónsson alþingismaður.
Pálmi Jónsson Sauðárkróki lagði
fram nokkrar breytingartillögur við
ályktunina, sem flestar voru sam-
þykktar, svo sem að afnema skuli
eignaskatt af íbúðarhúsnæði og að
afnema tekjuskatt af launum ungl-
inga 16 ára og yngri.