Morgunblaðið - 12.03.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
17
Ályktað um skóla-, umhverf-
is, jafnréttis- og orkumál
HÉR fer á eftir útdráttur úr ályktununi landsfundar um skóla- og
fræðsiumál, umhverfismál, jafnréttis- og fjölskyldumál og orkumál.
Lausaganga búfjár verði
almennt óheimii
í ályktun um umhverfismál mótar
landsfundur stefnu sína með tilliti
til hinna sérstæðu aðstæðna íslands:
Náttúra landsins sé viðkvæm fyrir
hvers kyns raski, þ.m.t. ógætilegri
umgengni og mengun. Gróðurlendi
landsins sé aðeins lítill hluti þess sem
var. Náttúrulegar aðstæður bjóði upp
á mikla möguleika til að efla land-
kosti og fegra umhverfið.
Lífríki hafsins sé mikilvægasta
auðlind þjóðarinnar. Varnir gegn
mengun hafsins og sjálfbær nýting
auðlinda þess eigi að njóta forgangs
í umhverfismálum. ímynd hreinleika
ytra umhverfís og bætt umgengni
við landið sé meðal undirstöðuatriða
fyrir öflugri stöðu matvælafram-
leiðslu og ferðaþjónustu í landinu.
Meðal þess sem sérstaklega er til-
tekið er að skógrækt, landgræðsla
og gróðui’vernd verði aukin. Ein-
staklingar og samtök verði styrkt
með beinum framlögum til land-
græðslu og skógræktar; mótuð verði
stefna um raunhæfa nýtingu lands
og eðlilega endurheimt landkosta,
þar- sem sameinuð verði náttúru-
verndarsjónarmið og þjóðhagsleg
hagkvæmni. Viðkvæm landsvæði
verði friðuð fyrir ágangi búfjár. Al-
mennt gildi sú regla að lausaganga
búfjár verði óheimil nema á þeim
stöðum og á þeim tíma þegar sýnt
þykir að hún rýri ekki landgæði.
Framlög til umhverfisrannsókna
verði aukin. Gert verði stórátak í
frárennslismálum og sorphirðu og til
þess nýttir kostir einkaframtaksins
án ofstýringar opinberi'a aðila. Is-
lendingar taki aukinn og virkan þátt
í samstarfi ríkja á alþjóðavettvangi
tit verndar umhverfinu. Sjálfstæði
sveitarfélaga og samtaka þeirra í
umhverfismálum verði eflt og þeim
gert kleift að annast þessi mál í enn
meira mæli en nú er.
Sveitarstjórnum verði falin
málefni grunnskólans
„Stefna Sjálfstæðisflokksins í
skóla- og fræðslumálum byggist á
því megininntaki sjálfstæðisstefn-
unnar að einstaklingurinn skuli móta
þjóðfélagið og að foreldrar eða for-
ráðamenn beri ábyrgð á mótun ein-
staklinganna þar til þeir verða sjálf-
ráða,“ segir í ályktun um skóla- og
fræðslumál. „Það er stefna Sjálf-
stæðisflokksins að hið opinbera
tryggi að allir eigi kost á menntun
við sitt hæfí og hafí jafnan rétt til
menntunar án tillits til efnahags,
búsetu eða fötlunar. Fræðsluskylda
hins opinbera skal framkvæmd með
þeim hætti að skólar þess og einka-
skólar geti starfað hlið við hlið,“ seg-
ir ennfremur.
Þá segir að frumkvæði einstakl-
ingsins sé ekki síður mikilvægt í
skólastarfínu en í öðrum greinum
þjóðlífsins. Það að draga úr miðstýr-
ingu menntakerfisins hvað varði
rekstur, fjármagn, stjórnun, hug-
myndir, námskrá, kennsluefni og
kennsluaðferðir sé forsenda þess að
starfskraftar skólastjórnenda og
kennara nýtist sem skyldi. Megin-
hlutverk menntamálaráðuneytis eigi
að vera að leggja stjórnendum og
kennurum til upplýsingar en ekki að
stjórna störfum þeirra.
Sjálfstæðisflokkurinn vill fela
sveitarstjómum alfarið málefni
grunnskólans enda megi ætla að með
þeim hætti verði kröfum samtímans
um einsetinn grunnskóla, samfelldan
skóladag og lengingu skólatíma
yngstu nemendanna best sinnt.
„íslensk háskóla-, sérskóla- og
framhaldsmenntun þarf að vera
öflug og í samræmi við alþjóðlegar
kröfur. Sérstaka áherslu ber að
leggja á að styrkja stöðu vísinda og
rannsókna og náið samstarf við at-
vinnulífið. Hafa ber í huga að íslend-
ingar þurfa jafnan að sækja þekk-
ingu til stórþjóða til að fylgjast með
framþróun og til að þjálfa æskufólk
í alþjóðlegum samskiptum," segir í
lok ályktunarinnar.
í ályktun um jafnréttis- og fjöl-
skyldumál segir að Sjálfstæðisflokk-
urinn leggi nú sem fyrr áherslu á
nauðsyn þess að atvinnulífið lagi síg
að þörfum fjölskyldunnar. Margt
megi betur fara í jafnréttis- og fjöl-
skyldumálum. Lögð er áhersla á að
barnabætur fari fram í gegnum
skattakerfið og fari stiglækkandi
eftir því sem börn nálgast skólaald-
ur. Fjölbreytni í rekstri og uppbygg-
ingu dagvistarheimila vei-ði aukin.
Tengsl skóla og heimila verði efld.
Tryggja þurfi áhrif foreldra á stjórn
skóla. Nauðsynlegt sé að koma á
samfelidum skóladegi og aðstöðu
fyrir og aðstoð við heimanám. Lífeyr-
isréttindi verði sameign hjóna. Með-
lagsgreiðslur miðist við raunveruleg-
an framfærslukostnað bama. Hjón á
ellilífeyrisaldri fái ellilífeyri sem tveir
einstaklingar. Sjálfstæðisflokkurinn
telur nauðsynlegt að í íslenskum lög-
um finnist heimildarákvæði um sam-
eiginlega forsjá aðskildra foreldra
yfir börnum en velferð barna verði
ávallt höfð í fyrirrúmi.
Aukin nýting vatnsorku
og jarðhita
í ályktun um orkumál er lögð
megináhersla á aukna nýtingu vatns-
orku og jarðhita til arðbærrar atvinn-
ustarfsemi. Komi til eignarhalds er-
lendra aðila á virkjunum skuli það
vera tímabundið. Lög um fjárfesting-
ar erlendra fyrirtækja skuli miða við
að meðalstór fyrirtæki í orkufrekum
rekstri geti hafið starfsemi án sér-
laga. Eignarréttur á jarðhita skuli
fylgja landareign. Skipulag orku-
veitna verði tekið til endurskoðunar.
Því hlutverki verði létt áf ríkinu að
annast dreifíngu raforku í landinu
enda sé það eðlilegt hlutverk sveitar-
félaga. Stefnt skuli að því að orku-
veitur verði reknar sem almenn hlut-
afélög. Ráðstafanir sem kunna að
verða gerðar til lækkunar á húshitun-
arkostnaði skuli gerðar með beinum
framlögum en ekki brenglun á orku-
verði.
#1116» ÍBðtim Mlt mstMIIT!
Sýndu lit og þú fœrð hann í málningardós.
Sért Jdií með á hreinu hvaða litur fellur þér vel í geð
er það orðið minnsta mál í heimi að útvega slíka
málnjtigu. sterka og endingargóða. - HYGÆA
máiningarkerfið frá Dánmörku sér til þess. Þú
kemur einfaldlega til okkar með einvern handhæg-
an hlut sem ber litinn góða: Bók, umbúðir, skyrtu,
ljósmynd, varalit - hvað sem er - og næmt litgrein-
ingarauga málningarkerfisins greinir samsetning-
una. Eftir augnablik er málningin þín tilbúin!
Og HYGÆA málningarkerfið sér við þeim allra
kröfuhörðustu -það erul2.7 milljónir litbrigða í
boði!
Óskir þú þess gerir tækið tillögu að litum sem falla
við þann upphaflega. Þetta fullkómna málningar-
kerfi varðveitir síðan litauppskrift þína svo þú getur
gengið að henni vísri á morgun eða
eftir 10 ár - hvenær sem er!
Einfalt, ótrúlegt og satt.
- Rétti liturinn!
urinn
friLBOÐÍ
I AUAR HYGAA VORUR:
25%AFSLATTUR
fÍL 24. NVARS
Síðumúla 15, sími 84533
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA