Morgunblaðið - 12.03.1991, Page 22
22
rppr xr, mj, vt srr.rr&httíirr>id '.iií+í. ístt/.t i’iQfm
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
- segir Asmundur Stefánsson, forseti ASI
ALÞÝÐUSAMBAND íslands fagnar 75 ára afmæli í dag. Ásmund-
ur Stefánsson, forseti Alþýðusambandsins, segir að hlutverk þess
sé enn sem fyrr að bæta hag og auka réttindi félagsmanna sinna.
„Verkalýðshreyfingin rækir það hlutverk í kjarasamningum og í
samskiptum við sljórnvöld, því fjölmargt sem snertir aðstöðu fólks,
verður ekki ákveðið í kjarasamningum heldur með ýmsum aðgerð-
um stjómvalda. Til að geta unnið að þessum málum er mikilvæg-
ur þáttur í starfinu að efla innra starf og auka virkni félags-
manna,“ segir Ásmundur í viðtali við Morgunblaðið í tilefni þess-
ara tímamóta. Innan Alþýðusambands íslands eru nálægt 70 þús-
und félagsmenn, samkvæmt nýjustu tölum, í 245 verkalýðsfélögum
og deildum, sem starfa innan 9 landssambanda.
Ásmundur segir mikinn mun
vera á vinnubrögðum innan verka-
lýðshreyfmgarinnar og í stjóm-
málabaráttunni. „Verkalýðshreyf-
ingin er ekki byggð á þeirri verka-
skiptingu sem er á milli kjörinna
. fulltrúa og kjósenda innan stjóm-
málaflokkanna. Allar helstu
ákvarðanir í okkar hreyfingu em
teknar á félagsfundum eða í al-
mennum atkvæðagreiðslum. Fé-
lagsfólkið tekur þátt í ákvörðunum
og forystan er ekki í aðstöðu til
að gera stóra hluti ef ekki er byggt
á vilja félagsmanna. í stjórnmála-
flokkunum virðast forystumenn-
imir ekki þurfa mikið á sínu fólki
að halda á milli kosninga," segir
Ásmundur.
Pólitísk hreyfing
— Alþýðusambandið var öðrum
þræði flokkspólitísk samtök fyrstu
áratugina en síðan rofnuðu þau
tengsl. Er hreyfingin pólitísk í
dag?
„Aðvitað hlýtur verkalýðshreyf-
ingin að vera pólitískt afl því fjöl-
margt sem snertir kjör okkar og
aðstöðu er ákveðið með opinberum
aðgerðum. Við hljótum því alltaf
að beita okkur gagnvart stjórn-
völdum og höfum sjaldan gert það
með jafn víðtækum hætti og í febr-
úarsamningunum á síðasta ári.
Afskipti samtakanna af almennum
þjóðmálum, efnahagsmálum og
félagsmálum hafa alla tíð verið
mikil og eru síst minni í dag en
áður.“
Þingmenn ekki úr
atvinnulífinu
— Nú hafa margir forystumenn
í verkalýðshreyfíngunni komið
með sjónarmið verkalýðshreyfing-
arinnar inn í stjómmálabaráttuna.
Upp á síðkastið hefur þeim fækk-
að sem skipa efstu sæti framboðs-
listanna. Hver er skýringin?
„í dag eru fjórir þingmenn á
Alþingi sem hafa starfað í forystu
verkalýðshreyfíngarinnar. Samt
sem áður er það rétt að nokkuð
er um þetta og það á ekki ein-
göngu við um verkalýðshreyfing-
una. Ef framboðslisti Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík er skoðaður
má spyija hversu margir þar hafa
verið í forystuhlutverki í atvinnu-
lífínu. Ég fæ ekki betur séð en
það sé aðeins einn frambjóðandi í
hópi efstu manna.
Þessi breyting í stjómmála-
flokkunum endurspeglar fyrst og
fremst þá staðreynd að til að verða
forystumaður í stjómmálaflokki í
dag, þarftu að hafa starfað í
flokknum og hugsanlega er það
einnig kostur að hafa ekki tekið
þátt í praktísku starfí. Þú þarft
helst að hafa verið að tala en ekki
að gera neitt til að ná árangri í
stjórnmálaflokkunum. Þetta er
mjög óheppileg þróun. Ekki aðeins
fyrir þær sakir að það skuli vera
færri úr verkalýðshreyfingunni í
stjórnmálabaráttunni, heldur líka
að ekki skuli vera þar fleiri úr
hópi atvinnurekenda en raun ber
vitni. Forystumenn flokkanna
koma í sífellt ríkari mæli úr hópi
þeirra sem hafa alla tíða starfað
að stjómmálum og þekkja þess
vegna hið daglega líf, sérstaklega
atvinnulífið, afar takmarkað.“
Pólitísk afskipti aldrei meiri
— Felst ekki ákveðin þversögn
í því, að á sama tíma og verkalýðs-
hreyfingin færist frá flokkunum
og stjórnmálabaráttunni, skuli
áhrif hennar á landsstjómina stöð-
ugt færast í aukana?
„Eðli málsins samkvæmt em
þeir sem starfa í atvinnulífinu og
leysa praktísku vandamálin frá
degi til dags með betri yflrsýn og
koma auga á úrlausnir. Því kann
vel að vera að á sama tíma og
forystumenn flokkanna era komn-
ir spöl frá þessum „reynsluheimi“,
svo notað sé orðalag Kvennalist-
ans, sé hlustað á þá sem era að
fást við þessi mál daglega.
Pólitísk afskipti hreyflngarinn-
ar hafa ekki minnkað og hafa trú-
lega sjaldan eða aldrei verið meiri
en þau eru í dag, en þau fara
ekki fram í gegnum ákveðna
stjómmálaflokka. Áður fyrr var
oft skilið á milli faglegrar og pólit-
ískrar baráttu. Að undanförnu
hefur þetta fléttast meira saman
og baráttumálin era nú tekin upp
gagnvart stjórnmálamönnum í
heild en ekki við forystumenn ein-
hverra ákveðinna stjómmála-
flokka.“
Lýðræðisleg hreyfing
— Era bein áhrif samtaka vinn-
umarkaðarins á landsstjómina
ekki til marks um þverrandi lýð-
ræði?
„Ef félagsleg þátttaka í verka-
lýðshreyfíngunni og stjómmála-
flokkunum er borin saman, þá
getur engum blandast hugur um
að aukin afskipti verkalýðshreyf-
ingarinnar hljóta að auka lýðræð-
ið. Okkar skipulag er þannig upp-
byggt, að allar stærri ákvarðanir
era teknar á félagsfundum eða í
almennum atkvæðagreiðslum.“
Þjóðarsáttin
— Markar samráðið í þjóðar-
sáttarsamningunum tímamót í
sögu varkalýðshreyfíngarinnar?
„Þeir samningar marka ekki
síst tímamót fyrir að þar hefur
náðst sá árangur sem að var
stefnt. Aldrei fyrr hefur verið
gerður samningur sem hefur stað-
ist jafn nákvæmlega."
— Ber að þakka samtökum
vinnumarkaðarins þann stöðug-
leika sem náðst hefur fremur en
stjórnvöldum?
„Ég tel að fyrst og fremst megi
skýra þennan árangur með því hve
víðtækur stuðningur hefur verið
við þessa viðleitni. Það era ekki
aðeins forsvarsmenn samtaka á
vinnumarkaði og stjómmálamenn
heldur almenningur í iandinu sem
hefur knúið á.
Engin deilir um að ríkisstjórnin
hefur unnið með, og tók því þakk-
samlega að gerðir vora kjara-
samningar á þessum forsendum
og hún hefur verið reiðubúin til
viðræðna um aðgerðir á samnings-
tímanum til að fylgja málinu eftir.“
Verkföll í haust?
— Era allsheijarverkföll liðin
tíð?
„Verkföll era ekki úr sögunni
vegna þess að ef ekki era annars
úrkostir getur í vissum tilfellum
verið óhjákvæmilegt að komi til
verkfalls. Ég tel ekki raunhæft að
ætla að verkföll heyri til liðinni tíð
og við getum ekkert sagt um
hvemig þessi mál þróast á næst-
unni. Það gætu þess vegna orðið
verkföll í haust.
Við eram ekki í aðstöðu til þess
nú, að segja mikið til um hvernig
næstu kjarasamningar verða. Það
hafa engar ákvarðanir verið tekn-
ar um hvernig staðið verði að
næstu samningum. Við höfum sett
á laggimar hóp sem er sérstaklega
að ræða hvemig bæta megi stöðu
þeirra tekjulægstu.“
Óhugnanleg þróun
— Hópur launafólks býr við
kröpp kjör þótt menn séu ekki á
einu máli um fjöldann. Hefur þetta
fólk gleymst við við gerð kjara-
samninga?
„Þessi hópur er of stór. Það er
ef til vill tilhneiging hjá stóram
hópi fólks að gleyma því að þessi
hópur er til. Þjóðfélagsþróunin
hefur valdið því að stéttaskiptingin
fer vaxandi.
Stærri hópar í þjóðfélaginu en
áður þekkja ekki mikið til að-
stæðna annarra þjóðfélagshópa og
vita lítið um kjör þeirra. Það finnst
mér óhugnanlegast við þróun þjóð-
félagsins á síðari áram. Fólk með
200 þúsund króna fjölskyldutekjur
trúir ekki að til séu fjölskyldur
með undir 100 þúsund króna mán-
aðarlaun.
Auðvitað er þessi ójöfnuður
Morgunblaðið/KGA
„Æskilegt að lífeyrissjóðirnir
komi inn í atvinnurekstur með
beinum hætti.“ Ásmundur Stef-
ánsson, forseti AJþýðusambands
íslands.
Ljósmynd/Sögusafn verkalýðshreyfingarinnar
Samninganefnd verkalýðsfélaganna að störfum árið 1955. F.v. Björn Jónsson, Hermann Guðmundsson,
Benedikt Davíðsson, Eðvarð Sigurðsson, Snorri Jónsson, Björn Bjarnason og Eggert G. Þorsteinsson.
Verkfallsverðir við Lónsbrú í verkfallinu árið 1955.
ALÞYÐUSAMBAND ISLANDS 75 ARA:
Stéttaskiptingin fer vaxandi