Morgunblaðið - 12.03.1991, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
Veijandi Winnie Mandela:
Vitni ákæranda
sakað um lygar
Jóhannesarborg. Reuter.
VERJANDI Winnie Mandela, eiginkonu blökkumannaleiðtogans
Nelsons Mandela, sakaði í gær eitt aðalvitni ákæranda um að lifa
í draumaheimi og skrökva til að varpa sök á hina ákærðu. Vitnið,
Kenneth Kgase, hefuir viðurkennt að hafa leitt dómara á villigötur
í sumum atriðum en heldur að öðru leyti fast við fyrri framburð
sinn þar sem Mandela er sökuð um aðild að mannránum og Iík-
amsárásum.
Vetjandinn, George Bizos, dró
fram grein í breska blaðinu Sunday
Telegraph þar sena Kgase lýsir
afbrotum Mandela og lífvarða
hennar með öðrum hætti en hann
hefur gert fyrir réttinum. „Viður-
kennir þú að hafa lifað í drauma-
heimi?,“ spurði Bizos. „Ekki full-
komlega," svaraði Kgase. Hann
sagðist ekki geta skýrt hvers vegna
hann hefði sleppt ýmsum mikil-
vægum atriðum úr frásögninni er
hann bar vitni. Hann neitaði því
að annar maður hefði ritað grein-
ina í Sunday Telegraph fyrir hann
en var þó sammála fullyrðingu
Bizos er taldi Kgase vart færan
um að rita skiljanlega ensku.
Kgase neitaði lengi vel að bera
vitni og benti á að annað lykilvitni
hefði horfíð. Afríska þjóðarráðið
(ANC) þar sem Nelson Mandela
er í forystuliði, hefur verið bendlað
við mannshvarfið sem er þó enn
óupplýst. Kgase og fleiri vitni segj-
ast óttast hefndaraðgerðir og telja
líf sitt í hættu.
Mandela og samstarfsmenn
hennar eru sökuð um að hafa rænt
Kgase og þrem öðrum ungum
EFTA fær að-
ild að gagna-
neti um sam-
starfsverkefni
Brussel. Frá Kristófer M. Kristins-
syni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
SAMNINGUR á milli Evrópu-
bandalagsins (EB) og Frí-
verslunarbandalags Evrópu
(EFTA) um aðild EFTA-ríkj-
anna að gagnaneti, sem ætl-
að er að hvelja til samstarfs-
verkefna á milli fyrirtækja,
var undirritaður í Brussel í
síðustu viku.
Gagnanetið hefur verið
starfrækt innan EB síðan 1988.
Um þessar mundir nær netið
til um 600 aðila. Gagnanetið
(Business Cooperation Net-
work) byggist á þátttöku ráð-
gjafarfyrirtækja, banka, versl-
unarsamtaka og einkafyrir-
tækja jafnt sem opinberra. Til-
gangur gagnanetsins er að
skapa smáum og meðalstórum
fyrirtækjum möguleika á að
leita sér að samstarfsaðila
hvort heldur á sviði fjármála-,
viðskipta- eða tæknisamvinnu.
blökkumönnum frá gistiheimili
svarts meþódistaprests fyrir tveim
árum, haldið þeim föngnum, barið
þá og hýtt. Einn ungu mannanna
fannst síðar látinn og foringi líf-
varðanna hefur verið dæmdur sek-
ur um morð á honum en áfrýjað
dóminum. Winnie Mandela virtist
í gær áhugalítil er Kgase bar vitni
og í fyrsta sinn frá því réttarhöld-
in hófust voru áheyrendabekkir
aðeins hálfsetnir.
Lögreglumenn í Belgrad, höfuðborg Júgóslavíu og Serbíu, draga í burtu særðan námsmann eftir að
lögreglan hafði skotið táragashylkjum á hóp mótmælenda í borginni í gærmorgun. Reuter
Tugþúsundir Belgrad-búa mótmæla stjórn kommúnista í Serbíu:
Mestu mótmæli í Júgóslavíu
frá seinni heimsstyriöldinni
Belgrad. Reuter.
LÖGREGLAN í Belgrad átti í hörðum átökum við tugþúsundir-
manna sem tóku þátt í mótmælum gegn stjórn kommúnista i Serb-
íu, stærsta lýðveldi Júgóslavíu, um helgina og í gær. Tveir menn
biðu bana og að minnsta kosti 76 særðust á laugardag, er mótmæl-
in hófust. Þetta eru mestu mótmæli í Júgóslavíu frá seinni heims-
styrjöldinni og var her og lögregla með mikinn viðbúnað á
götum borgarinnar.
Lögreglan beitti í gærmorgun sökuðu þá um morð og fasisma.
táragasi og bareflum gegn tugþús- Að minnsta kosti átta manns særð-
undum mótmælenda, sem hrópuðu ust í átökunum.
vígorð gegn valdhöfunum í Serbíu, Tveir menn biðu bana, lögreglu-
E1 Salvador:
Hermaður á verði við kjörstað í San Salvador er sveitarstjórna- og
þingkosningar fóru fram í E1 Salvador á sunnudag. Þetta eru fyrstu
kosningarnar í 11 ár sem vinstrisinnaðir skæruliðar reyna ekki að
spilla með árásum á stjómarherinn en til átaka kom þó á fáeinumum
stöðum í landinu.
Hægrimenn hrósa sigri í kosningnm
San Salvador. Reuter.
ARENA, stjórnarflokkur hægri-
manna í Mið-Ameríkuríkinu EI
Salvador, lýsti yfir sigri í sveitar-
stjórna- og þingkosningum sem
fram fóru í landinu á sunnudag.
ARENA sagðist hafa tryggt sér
43 af 84 þingsætum en opinberar
tölur lágu ekki fyrir. Þetta voru
fyrstu kosningar í 11 ár sem
vinstrisinnaðir skæruliðar Þjóð-
frelsishreyfingar Farabundo
Marti (FMLN) reyna ekki að
spilla með árásum á stjórnarher-
inn en til átaka kom þó á fáein-
umum stöðum og féllu tólf
manns, þar af níu skæruliðar.
FMLN hafði lýst yfír þriggja
daga vopnahléi vegna kosninganna
en skæruliðar sögðust þó myndu
veija sig ef stjórnarherlið færi inn
á landsvæði sem skæruliðar telja
sig ráða.
Um 2.2. milljónir manna voru á
kjörskrá og auk þingmanna voru
kosnir borgarstjórar og sveitar-
stjórnir. Leiðtogi ARENA, Ar-
mando Calderon Sol, borgarstjóri í
höfuðborginni San Salvador, hélt
sæti sínu og sagði kosningarnar
„mikla hátið borgaranna". Alfredo
Cristiani forseti, sem er hægrimað-
ur, sagði að kosningarnar væru sig-
urhátíð lýðræðis. „Þetta eru senni-
lega lýðræðislegustu kosningar sem
við höfum haldið," sagði hann.
Kristilegir demókratar, flokkur Jose
-------- \ ‘t'- -..................
Napoleons Duarte fyrrverandi for-
seta, sem nú er látinn, virtist hafa
komið næst ARENA og samband
vinstriafla, Lýðræðisfylkingin, orðið
í þriðja sæti. Ruben Zamora, leið-
togi Lýðræðisfylkingarinnar, sagð-
ist himinlifandi yfir úrslitunum.
„Við stefndum að því að verða
þriðja sterkasta aflið og það tókst.“
Talsmenn vinstrimanna gáfu í
skyn að um kosningamistök og
jafnvel svik hefði verið að ræða í
sumum tilvikum í vestur- og norður-
hluta landsins. Nokkrir erlendir eft-
irlitsmenn tóku undir þetta og
sögðu að nöfn sumra kjósenda
hefðu verið ijarlægð af kjörskrám
en bein svik virtust ekki hafa verið
ufnfangsmikil.
maður og mótmælandi, á Iaugar-
dag er lögreglan skaut gúmmíkúl-
um og táragashylkjum til að dreifa
70.000 mótmælendum, sem komu
saman í miðborginni. Herinn var
kallaður á vettvang og var skrið-
drekum ekið um götur Belgrad,
sem er í senn höfuðborg Júgóslvav-
íu og Serbíu. Skriðdrekamir fóru
af götunum á sunnudagskvöld en
lögreglan hélt uppi eftirliti í bryn-
vörðum bifreiðum og lokaði götum
að miðborginni í gær. Tugþúsundir
stuðningsmanna kommúnista-
stjórnarinnar efndu síðan til mót-
mæla skammt frá miðborginni.
Þeir héldu á fána Serbíu og mynd-
um af forseta lýðveldisins, Slobod-
an Milosevic.
Mótmælendurnir kröfðust þess
meðal annars að Radmilo Bogd-
anovic, innanríkisráðherra Serbíu,
segði af sér, að yfirmenn ríkissjón-
varpsins í lýðveldinu yrðu reknir
og óháðri sjónvarpsstöð yrði
heimilað að skýra frá mótmælun-
um. Þeir kröfðust þess einnig að
nokkrir leiðtogar stjórnarandstæð-
inga, sem voru handteknir á laug-
ardag, yrðu látnir lausir.
Vaxandi spenna hefur verið í
Júgóslavíu undanfarna mánuði
vegna rígs milli valdhafa í júgó-
slavnesku lýðveldunum sex og
þjóðaólgu. Aðeins Serbía og Svart-
fjallaland eru enn undir stjórn
kommúnista eftir fijálsar kosning-
ar í öllum lýðveldunum í fyrra.
Leiðtogar kommúnista í ijórum
lýðveldum gáfu út yfirlýsingu í gær
þar sem þeir vöruðu við því að
atburðir eins og þeir sem gerðust
í Belgrad kynnu að leiða til borg-
arastyijaldar í landinu.
Stjórnarflokkurinn í Quebec:
Stefnt að nær fullu
sj*álfstæði ríkisins
Montreal. Reuter.
FRJÁLSLYNDI flokkurinn í kanadíska sambandsríkinu Quebec
hefur samþykkt kröfur um nær fullt sjálfstæði ríkisins. Fijáls-
lyndir halda um stjórnvölinn og helsti stjórnarandstöðuflokkur-
inn hefur krafist sjálfstæðis allt frá árinu 1967. Flestir íbúar
Quebec eru frönskumælandi en í hinum sambandsríkjunum níu
er þorri fólks enskumælandi.
Sjálfstæðissinnar voru sterkir á
landsfundi stjórnarflokksins sem
2.800 fulltrúar sátu um helgina.
Til umræðu var m.a. skýrsla sem
kennd er við lögfræðinginn Jean
Allaire og kveður á um að haldin
verði atkvæðagreiðsla 1992 um
sjálfstæði Quebec ef alríkisstjórn
Kanada samþykki ekki róttækar
kröfur um meiri valddreifingu til
einstakra ríkja. Stuðningsmenn
sambandsríkisins reyndu að milda
orðalag skýrslunnar en hún var
samþykkt óbreytt. Um tveir þriðju
Quebec-búa vilja að tengslin við
Kanada verði eingöngu efnahags-
legs eðlis, ef marka má skoðana-
kapnanir. Frönskumælandi
Kanadamenn eru um 6,5 milljónir
og búa flestir þeirra í Quebec.
Robert Bourassa, forsætisráð-
herra Quebecs og leiðtogi fijáls-
lyndra, reyndi á sunnudag að róa
andstæðinga sjálfstæðis og hvatti
til einingar flokksins. „Við leggj-
um megináherslu á að gera Que-
bec kleift að taka framförum og
þróast innan ríkjasambandsins.
Flestir fulltrúar á þinginu vilja'
ekki að einu mesta ríki heims
verði skipt í þrennt; Austur-
Kanada, Quebec og Vestur-
Kanada," sagði ráðherrann. Skoð-
anakannanir í öðrum sambands-
ríkjum gefa til kynna að ekki sé
þar- vilji fyrir því að koma til
móts við kröfur Quebec-búa um
aukið sjálfstæði og er því ekki
útilokað að til klofnings komi.
Kanada er annað víðlendasta ríki
heims, næst Sovétríkjunum.. r,.t.