Morgunblaðið - 12.03.1991, Qupperneq 27
'MÖRGUNBLAÐIÍ) ÞRIÐJUDÁGUR l^. A'lARZ' 1991
'27
Ítalía:
Vonsviknir flóttamenn hrekj-
ast aftur heim til Albaníu
Albanskir flóttamenn hrópa í kór „Lifi Albanía" skömmu áður en
þeir héldu frá Brindisi á sunnudag.
Brindisi. Reuter, The Daily Telegraph.
UM 2.000 þeirra 20.000 Albana
sem flúðu yfir til Italíu í síðustu
viku héldu aftur til síns heima á
sunnudag. Flestir þeirra sem eft-
ir urðu hafa nú verið fluttir í
flóttamannabúðir eftir að hafa
mátt þola ömurlega vist á götum
úti í hafnabænum Brindisi í roki
og rigningu. Af hálfu ítalskra
yfirvalda liggur fyrir að flestir
þeirra verða fluttir aftur til Al-
baníu en í gær komu fulltrúar
ítalskra og albanskra stjórnvalda
saman til fundar til að ræða flótt-
amannavandann.
Um 2.000 Albanir þustu um borð
í albanska flutningaskipið „Tirana“
síðdegis á sunnudag en áður höfðu
ítölsk stjórnvöld neitað fólkinu um
fararleyfi á þeirri forsendu að
ástand skipsins gæfi tæpast tilefni
til að ætla að það gæti náð aftur
til hafnar í Albaníu með þúsundir
manna innanborðs. Um 5.000 flótt-
amenn voru um borð í skipinu ér
það kom til Brindisi á fimmtudag.
Yfirvöld reyndu þó ekki að hefta
heimför flóttafólksins, sem hrópaði
í kór: „Lifi Albanía" er skipið lét
úr höfn. Þótti greinilegt að viðtökur
ítala og ömurlegur aðbúnaður í
Brindisi hefðu nægt til að sannfæra
þetta fólk um að þess biði ekkert
betra á Vesturlöndum. „Tirana"
kom til hafnar í Durres í Albaníu
í gærdag. Þar hafa hermenn haldið
uppi gæslu frá því síðustu viku og
hermdu fréttir í gær að þrír menn
hið minnsta hefðu fallið á laugardag
er öryggissveitir létu til skarar
skríða gegn flóttafólki sem komist
hafði um borð í skip eitt og hugðist
sigla því yfir til Ítalíu.
Erlendir fréttamenn í Brindisi
kváðu viðtgögð ítalskra yfirvalda
við flóttamannastraumnum hafa
verið ósannfærandi. Fólkinu hefði
t.a.m. ekki verið komið í skjól og
hefðu margir orðið að halda til á
hafnarbakkanum í roki og úrhellis-
rigningu. Aðrir leituðu inn í bæinn
og mátti um helgina víða sjá sárs-
vanga og hrakta flóttamenn leita
skjóls í görðum húsa, við útidyr og
í húsasundum. Margir höfðu gripið
til þess ráðs að sveipa sig plastrenn-
Taka Færey-
ingar upp
atvinnu-
leysisbætur?
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
FÆREYSKA landsstjórnin hefur
ákveðið að skipa nefnd til þess
að kanna möguleikana á því að
stofnsetja atvinnumiðlun og taka
upp bótagreiðslur fyrir atvinnu-
lausa Færeyinga.
Efnahagskreppa hefur leitt til
aukins atvinnuleysis í Færeyjum en
þar í landi er ekki að finna neina
vinnumiðlunarskrifstofu og launa-
fólki eru ekki greiddar bætur missi
það vinnu sína.
Hingað til hefur verið mikil pólit-
ísk andstaða við að taka upp atvinn-
uleysisbótagreiðslur. Margur
stjórnmálamaðurinn hefur haldið
því fram að það yrði einungis til
þess að auka á atvinnuleysi.
Færeyskir atvinnuleysingjar hafa
átt þann kostinn einan að fá fram-
færsluhjálp hjá félagsmálastofnun-
inni en þangað hafa menn einungis
leitað í sárustu neyð, samkvæmt
upplýsingum stofnunarinnar. Á síð-
ustu tveimur til þremur misserum
hefur fjöldi þeirra sem þar hefur
beðið um. hjálp þó aukist stórum.
Endurspeglar það vaxandi atvinnu-
leysi en segir þó ekkert um heildar-
fjölda atvinnulausra Færeyinga, en
enginn veit með vissu hversu marg-
ir þeir eru.111
ingum og -pokum sem þeir höfðu
komist yfir til að veijast vosbúð-
inni. Fréttamenn töldu jafnvel
hugsanlegt að yfirvöld á Ítalíu
hefðu fyrirskipað þær kuldalegu
móttökur sem Albanirnir fengu í
þeirri von að þannig mætti draga
úr flóttamannastraumnum.
Á sunnudag var yfirstjórn ítalska
hersins falið að safna saman þeim
þúsundum flóttamanna sem enn eru
í landinu. Voru þeir síðar um dag-
inn fluttir frá Brindisi til nokkurra
herstöðva þar sem þeir munu halda
til þar til þeir verða fluttir aftur
yfir til Albaníu. ítölsk yfirvöld hafa
lýst yfir því að flestum verði gert
að snúa aftur. Einungis pólitískum
flóttamönnum verði veitt hæli en
flestir eru sagðir hafa flúið sökum
dapurlegra lífskjara í Albaníu.
Aðstoðarforsætisráðherra Ítalíu,
Claudio Martelli, hélt í gær til Tir-
ana, höfuðborgar Albaníu, til við-
ræðna við ráðamenn þar og búist
er við fulltrúi albanskra stjómvalda
komi til Rómar á morgun, miðviku-
dag. ítalir hafa sagt að þeir vilji
tryggja að flóttamönnunum verði
ekki refsað snúi þeir heirh og að
leita beri leiða til að koma í veg
fyrir frekari landflótta. *
Hádegisverður á Hótel Holti
Á Hótel Holti verður áfram tilboð í hádeginu, sem
samanstendur af forrétti, aðalrétti og eftirrétti, sem
hver og einn velur af seðli dagsins.
HOLTSVA GNINN
Úr Holtsvagninum bjóðum við
heilsteiktan lambahrygg m/kryddjurtasósu
ásamt forrétti og eftirrétti
Verð kr. 995,-
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur á
viðráðanlegu verði, án þess að slakað sé á í gæðum.
Bergstaðastræti 37, Sími 91-25700
REÍAIS &
CHATHAUX.
SIEMENS -gæði
STÓRGLÆSILEG
NÝ ÞVOTTAVÉL
FRÁ SIEMENS!
SfWWMAr PUJS «DO
? w m
Enn á ný ryður Siemens brautina í þróun
og hönnun heimilistækja.
í þetta skiptið með nýrri þvottavél, sem slegið hefur í
gegn og mun vafalaust verða öðrum þvottavélaframleið-
endum fyrirmynd, því að hér er á ferðinni sannkölluö
tímamótavél í hönnun og notkun tölvustýribúnaðar, sem
býður upp á nýja og betri þvottaaðferð en áður hefur
þekkst.
Mikil fjölbreytni í þvottakerfum, þeytivinding í áföngum og
þrír mismunandi vinduhraðar skapa nánast óendanlegt
svigrúm fyrir allan þvott, sérhvert óhreinindastig hans og
þann hámarkshita sem hann þolir.
Sjálfvirkur magnskynjari skammtar vatn inn á vélina
í samræmi við magn og gerð þvottar og það kerfi sem er
í gangi og aðlagar þannig vatnsnotkunina sjálfkrafa því
sem þvegið er.
Sérþróuð þvottatromla með þremur áföstum vatns-
hripum heldur vatninu á stöðugri
hreyfingu og tryggir þannig jafnt
gegnumstreymi á vatni um
þvottinn. Þessi nýjung sér til
þess að þvotturinn fær bestu
hugsanlegu meðhöndlun.
SIWAMAT PLUS 4200 uppfyllir allar ítrustu kröfur og
óskir sem gerðar eru til þvottavéla nú á dögum. Hún er
mjög þægileg I notkun með aðgengilegt, upplýst
stjórnborð. ítarlegur leiðarvísir á íslensku og greinargóð
tafla yfir öll möguleg þvottakerfi vélarinnar fylgja með.
Þær miklu gæðakröfur sem gerðar voru við þróun hennar
og framleiðslu tryggja auk þess auðvelt viðhald og langa
endingu.
Gæði á gæði ofan frá SIEMENS
K
SMITH&
NORLAND