Morgunblaðið - 12.03.1991, Qupperneq 29
'MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAQUR 12.'MARZ’ 1991
29
Kúrdar treysta tök-
in í norðurhluta Iraks
Leiðtogar íraskra kúrda í leynilegum
viðræðum við tyrknesk stjórnvöld
Diyarbakir, Ankara, London. Reuter, The Daily Telegraph.
UPPREISNARMENN úr röðum Kúrda náðu í gær borginni Irbil í
norðurhluta íraks á sitt vald eftir mjög harða bardaga við hersveit-
ir hliðhollar Saddam Hussein forseta, að sögn kúrdískra útlagasam-
taka. Sömuleiðis sögðust uppreisnarmenn hafa treyst tök sín i
Sulaimaniya og hafa nokkrar borgir til viðbótar á valdi sínu.
tals eru Kúrdar í þessum löndum
um 25 milljónir.
Hermt er að tugþúsundir pes-
hmerga - kúrdískra andspymu-
manna, sem flýðu til Tyrklands
eftir eiturvopnaárás heija Sadd-
ams á Kúrdabyggðir í Irak árið
Þá skýrði Turgut Ozal Tyrk-
landsforseti frá því í gær að tyrk-
neskir embættismenn hefðu átt
leynilegar viðræður í síðustu viku
við Jalal Talabni, leiðtoga þjóðern-
isbandalags Kúrdistans (PUK) og
sendifulltrúa Masouds Barzani,
leiðtoga Lýðræðisflokks Kúrdist-
ans (KDP). Er það í fyrsta sinn
sem tyrknesk stjórnvöld eiga við-
ræður við fulltrúa Kúrda, en und-
anfarin sjö ár hafa þau átt í átök-
um við kúrdíska aðskilnaðarsinna
sem byggja suðausturhluta Tyrk-
lands. Um 10 milljónir Kúrda búa
í Tyrklandi og 5 milljónir í norður-
hluta Iraks. Ennfremur era Kúrda-
byggðir í Sýrlandi og íran en sam-
1988 - vilji fara til íraks til aðstoð-
ar uppreisnarmönnum. Það geta
þeir ekki án leyfist stjórnvalda í
Ankara, höfuðborg Tyrklands.
Hermt er að þúsundir Kúrda
sem kallaðir hafa verið í heri Sadd-
ams hafi gerst liðhlaupar og geng-
ið til liðs við uppreisnarmenn í
norðurhluta íraks. Salih Huseyin,
talsmaður uppreisnarmanna, sagði
Kúrda efins um að barátta þeirra
fyrir sjálfsforræði skilaði árangri
fyrr en stjórn Saddams hefði verið
steypt. „Það er okkur ekki kapps-
mál að breyta landamærum íraks,
við viljum einungis koma á lýðræði
innan þeirra,” sagði hann.
Frelsinu fagnað
Reuter
Kúveisk kona gengur með fána Bandaríkjanna á götu í Kúveitborg
í gær. Hundruð Kúveita koma saman á degi hveijum við bandaríska
sendiráðið í borginni til að fagna nýfengnu frelsi eftir hernám íraka.
Arafat segir 6.000 Palestínu-
menn í fangelsum í Kúveit
Linares-mótið:
Kamskíj
tapar enn
Linares. Reuter.
SOVÉSKI stórmeistarinn Val-
eríj Salov sigraði Gata
Kamskíj, 16 ára gamlan
bandarískan stórmeistara, í
10. umferð alþjóðaskákmóts-
ins í Linares á sunnudag. Tók
það Salov 90 leiki að knýja
fram sigur.
Var þetta fyrsta sigurskák
Salovs á mótinu en ásamt breska
stórmeistaranum Jonathan Spe-
elman hefur hann gert flest jafn-
'tefli, eða samtals sex.
Hins vegar var þetta áttunda
skákin sem Kamsky tapar en
hann er í neðsta sæti með 1,5
vinninga. Er hann yngsti stór-
meistari heims.
Madrid, Lundúnum, Amman. Rcuter.
YASSER Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO),
sagði í viðtali, sem spænska dagblaðið E1 Pais birti í gær, að 6.000
Palestínumenn hefðu verið hnepptir í fangelsi í Kúveit. Aðrir hefðu
verið drepnir og flestum Palestínumönnum væri neitað um atvinnu
í landinu.
„Við látum það ekki viðgangast
að Kúveitar hefni sín á Palestínu-
mönnum,” sagði Arafat. „Við höf-
um sent bréf til Sameinuðu þjóð-
anna, leiðtoga arabaríkja og Rauða
krossins. Þetta er okkar þjóð. Við
verðum að vernda hana,“ bætti
hann við.
Um 400.000 Palestínumenn
bjuggu í Kúveit fyrir innrás íraka
í landið 2. ágúst. Rúmur helmingur
þeirra fór fljótlega úr landinu, en
nokkrir þeirra sem voru þar áfram
hafa verið sakaðir um að hafa að-
stoðað íraska hernámsliðið. Leið-
togar PLO, sem studdu Saddam
Hussein íraksforseta í stríðinu fyrir
botni Persaflóa, hafa áður varað
við því að Palestínumenn kynnu að
sæta ofsóknum í Kúveit.
Saad al-Abdulla al-Sabah, for-
sætisráðherra Kúveits, hefur vísað
því á bug að Palestínumenn hafi
verið handteknir eða pyntaðir eftir
að stríðinu lauk.
Michael Weston, sendiherra
Bretlands í Kúveit, sagði hins vegar
í gær að kúveiska öryggislögreglan
hefði farið illa með Palestínumenn,
sem grunaðir eru um að hafa að-
stoðað íraska hernámsliðið. Hann
sagði að þótt enginn vafi léki á því
að einhveijir Palestínumenn hefðu
unnið með írökum hefði mikill
meirihluti þeirra sýnt Kúveit holl-
ustu.
Mörgum Palestínumönnum, sem
flúðu til Jórdaníu, er mjög í mun
að komast aftur til Kúveits þrátt
fyrir viðvaranir um að þeir kynnu
að sæta þar ofsóknum. Palestínu-
menn koma saman á degi hveijum
við kúveiska sendiráðið í Amman
og veifa þar fána Kúveits til að
fagna frelsun landsins. Talsmenn
sendiráðsins segja hins vegar að
engum sé leyft að snúa aftur til
Kúveits, ekki einu sinni kúveiskum
borgurum.
Reuter
James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heilsar Hosni Mubar-
ak, forseta Egyptalands, í Kairó í gær.
Esmat Abdel-Maguid, kvað engar
nýjar hugmyndir um hvernig leysa
mætti deilu ísraela og Arabaríkj-
anna hafa komið fram á fundinum
með Baker en lagði hins vegar
áherslu á að viljann vantaði ekki.
Menn væru sannfærðir um gildi
þess að reyna að miðla málum og
nú væri lag þar sem ný staða væri
komin upp í Mið-Austurlöndum eft-
ir ósigur Iraka í Persaflóastyijöld-
I / i | i ' ) I I / * r / /
JJjn wmJSJ WzJJWmZJ
Fáðu sendan bækling Veraldar og verðskrá yfir málaskóla.
Á einum stað getur jbú nú fundið allar upplýsingar um
marga þekktustu málaskóla heimsins.
^ ÉOaoO Spánn
^ CeWífci Malaga — Madrid — Barcelona — Salamanca
I
INTERNATIONAL
^ NORD ANGLIA
I
Bournemouth —Oxford — Cambridge
flofi
England
London — Brighton
Þýskaland
Köln — Konstanz — Munchen
Frakkland
París — Nice — Montpellier
íialla
Florence
Bandaríkin
New York — San Francisco — Washington — Miami
momDsmiN
~r
mm
AUSTURSTR&TI 17, SIMI 62 22 00
I