Morgunblaðið - 12.03.1991, Side 31
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
jltargftiiiftfnMfe
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
HaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Að loknum
landsfundi
T andsfundur Sjálfstæðisflokks-
I j ins hefur kveðið upp sinn úr-
skurð í þeim átökum um formanns-
embætti flokksins, sem staðið hafa
síðustu vikur. Davíð Oddsson hefur
verið kjörinn formaður Sjálfstæðis-
flokksins til næstu tveggja ára og
Friðrik Sophusson, varaformaður.
Þetta er niðurstaða tæplega 1400
landsfundarfulltrúa úr öllum lands-
hlutum. Þetta er niðurstaða í lýð-
ræðislegri kosningu og við hana
hljóta allir Sjálfstæðismenn að una.
Hinn nýkjörni formaður Sjálf-
stæðisflokksins á að baki glæstan
stjórnmálaferil. Hann tók við for-
mennsku borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðismanna eftir að flokkur-
inn hafði í fyrsta sinn í sögu sinni
misst meirihluta í borgarstjórn
Reykjavíkur. Davíð Oddsson leiddi
Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í borg-
arstjórnarkosningunum 1982, þeg-
ar flokkurinn endurheimti meiri-
hluta sinn í borgarstjórn, hann hélt
þeim meirihluta í kosningunum
1986 og fyrir tæpu ári vann Sjálf-
stæðisflokkurinn undir hans forystu
mesta sigur, sem sögur fara af í
borgarstjómarkosningum, þegar
flokkurinn fékk yfír 60% greiddra
atkvæða í Reykjavík. Á landsfund-
inum nú var Davíð Oddsson kosinn
formaður með rúmlega helmingi
atkvæða.
Friðrik Sophusson var kjörinn
varaformaður Sjálfstæðisflokksins
á ný, eftir að hafa látið af því starfi
haustið 1989. Þá dró hann sig í hlé
er Davíð Oddsson hafði tilkynnt
framboð sitt til varaformanns. Sú
staðreynd, að Friðrik Sophusson er
kjörinn í þetta embætti á nýjan leik
er augljóslega vísbending um, að
landsfundarfulltrúar telja hann
hafa stöðu til þess að gegna sér-
stöku hlutverki í því að tryggja
sættir og samstöðu í flokknum í
kjölfar harðra átaka á þessum
landsfundi um formannsembættið.
Aðdragandi þessara átaka á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins hef-
ur verið umdeildur og verður um-
deildur. Sjálfstæðismenn hafa löng-
um horft til formennsku í flokki
sínum með sérstökum hætti. Þegar
mótframboð kom við formannskjör
í fyrsta sinn í sögu flokksins árið
1979 töldu margir flokksmenn það
brot á óskráðum starfsreglum
flokksins. Ljóst er, að fjölmargir
Sjálfstæðismenn telja, að framboð
varaformanns Sjálfstæðisflokksins
gegn formanni flokksins hafi af
þessum sökum verið álitamál, svo
að ekki sé fastar að orði kveðið.
Þeir hinir sömu telja nauðsynlegt
fyrir velferð flokksins sjálfs, að
þeir, sem gegna formennsku í Sjálf-
stæðisflokknum geti gengið frá því
starfi með reisn, þótt þeir verði
óhjákvæmilega fyrir miklum ágjöf-
um meðan þeir sitja á formanns-
stóli. Úrslitin í formannskjörinu nú
munu engu breyta um þessa skoðun
fjölmargra Sjálfstæðismanna, þótt
hitt sé ljóst, að fjölmennir hópar
telja ekkert athugavert við framboð
og kosningu af þessu tagi og raun-
ar eðlilegan þátt í stjórnmálabar-
áttu nýrra tíma.
Þegar Þorsteinn Pálsson var kjör-
inn formaður Sjálfstæðisflokksins á
landsfundi haustið 1983 sagði hann
m.a.: „Mikill vandi fylgir þessu
starfi og það er undirorpið miklu
miskunnarleysi.“ Það fer ekkert á
milli mála, að á tæplega átta ára
formannsferli hefur Þorsteinn Páls-
son fundið fýrir þessu miskunnar-
leysi. Hann tók við formennsku í
Sjálfstæðisflokknum eftir tímabil
mikiila átaka. Hann stóð frammi
fyrir alvarlegum klofningi í flokkn-
um fjórum árum seinna. Hann tók
á þeim vandamálum af manndómi
og leysti þau. Hann getur glaðst
yfir því, að þegar hann stendur nú
upp úr formannsstól skilar hann
Sjálfstæðisflokknúm sameinuðum
til eftirmanns síns og staða flokks-
ins í skoðanakönnunum er betri en
hún hefur verið um langt árabil.
Átök á borð við þau, sem staðið
hafa í Sjálfstæðisflokknum síðustu
vikur skilja alltaf eftir sig einhver
sár. Nú reynir á hina nýju forystu
flokksins að halda þannig á málum,
að samstaða takist á milli manna.
Með málflutningi sínum að undan-
fömu hefur hinn nýi formaður Sjálf-
stæðisflokksins vakið vonir hjá
stuðningsmönnum flokksins um
breiðan og sterkan flokk. Þess
vegna ekki sízt verða gerðar til
hans miklar kröfur.
Alþýðusam-
band Is-
lands 7 5 ára
álþýðusamband Islands á 75 ára
afmæli í dag. Mikið vatn er
v ivar runnið síðan þessi heildar-
samtök launafólks í landinu voru
stofnuð. Áratugum saman stóð um
þau pólitískt stríð enda var Alþýðu-
sambandið lengi beinn eða óbeinn
aðili að stjórnmálabaráttunni í
landinu.
Alþýðusamband íslands hefur
breytzt með sama hætti og þjóðfé-
lagið sjálft. Heildarsamtök launa-
fólks eru eftir sem áður mikilvægur
aðili að ákvörðunum, sem geta skipt
sköpum fyrir þjóðina alla. En Al-
þýðusambandið er ekki lengur aðili
að stjómmálabaráttunni með bein-
um eða óbeinum tengslum við
stjórnmálaflokka og verður vonandi
aldrei aftur.
Þótt lífskjör almennings hafi
batnað mikið á þeim 75 árum, sem
liðin eru frá stofnun Alþýðusam-
bandsins er enn mikið verk að
vinna. Margt bendir til þess, að
Iífskjaramunur í landinu hafi stór-
vaxið á síðustu áratugum. Spyrja
má, hvort bryddi á fátækt á ný á
íslandi. Alþýðusambandið hefur
veigamiklu hlutverki að gegna í því
að stöðva slíka þróun.
)
29. landsfundur Sjálfstæðisflokksins:
Ekkert annad í huga fólks en
að flokkurinn snúi sér sam-
einaður að andstæðingunum
- segir Davíð Oddsson nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins
Friðrik Sophusson varaformaður Sjálfstæðisflokksins og Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins
ræða saman á landsfundi flokksins.
DAVÍÐ Oddsson nýkjörinn for-
maður Sjálfstæðisflokksins telur
enga hættu á að formannskjörið
milli hans og Þorsteins Pálssonar
hafi í för með sér deilur eða klofn-
ing í flokknum. Hann segist heita
því, að allir landsmenn muni sjá
það í stprfum þeirra Friðriks
Sophussonar varaformanns
flokksins, að þeir séu forustumenn
flokksins alls.
„Ég fann það mjög glöggt á lands-
fundinum, og eins í fjölmennu og vel
heppnuðu samkvæmi sem flokkurinn
hélt að fundinum loknum, að það er
ekkert annað í huga fólks en að Sjálf-
stæðisflokkurinn snúi sér sameinað-
ur að andstæðingunum, og þetta er
afskaplega góður tími til að láta sár
gróa, þegar glíma þarf við verðug
verkefni eins og það að velta vinstri-
stjórnarokinu af Iandinu,“ sagði
Davíð Oddsson þegar hann var
spurður hvort hann teldi hættu á að
formannskjörið hefði í för með sér
átök og deilur milli forustumanna
og fylkinga í flokknum.
„Áuðvitað eru menn nokkuð móðir
en ekki sárir, og sá móður rennur
fljótt af mönnum þegar þeir snúa sér
að því verkefni að eiga við andstæð-
ingana. Og þar sem kosningabarátt-
an milli okkar Þorsteins fór fram
málefnalega og heiðarlega, þá er
enginn vafi á því í mínum huga að
þau sár sem kunna að hafa opnast,
gróa fljótt, og flokkurinn verður
sterkari en nokkru sinni fyrr,“ sagði
Davíð.
Fyrir landsfundinn sagði Davíð,
að eðlilegt væri að flokkurinn kysi á
milli manna í forustustörf. Þegar
hann var spurður, hvers vegna hann
hefði stungið upp á Friðriki Sophus-
syni sem varaformanni og þar með
í raun komið í veg fyrir kosningu
um það embætti, svaraði hann að
hafa yrði í huga að á fundinum hefði
þegar farið fram erfið kosning. „Og
þó að aðeins einn maður hafi boðið
sig fram í embætti varaformanns,
þá breytir það ekki hinu, að það er
ekkert óeðlilegt að kjósa á milli
manna. Ég hef þó ekki talið að það
sé nauðsynlegt að gera það í hvert
skipti; allt fram að þessum fundi hef
ég til dæmis stutt fyrrverandi form- .
ann til þeirra verka. En það sem ég
sagði, var það að ef menn vildu að
kosið væri á milli manna þá sé það
ekkert óeðlilegt."
— Það er horft til þess að bæði
þú og varaformaðurinn koma úr
Reykjavík og jafnframt er vitnað til
ummæla þinna um að eðlilegast
væri að varaformaður þinn kæmi af
landsbyggðinni. Varstu með þessu
að ganga á bak orða þinna?
„Ég orðaði þetta eitthvað á þá
lund, þegar ég var spurður um vara-
formann, að ég teldi ekki óeðlilegt
að það yrði leitað að varaformanni
í öðru kjördæmi en mínu eigin. Þeg-
ar úrslit í formannsskjörinu lágu fyr-
ir, átti ég viðræður við menn, og það
var alveg ljóst að mest samstaða
yrði um Friðrik Sophusson, þótt
margir aðrir væru inni í myndinni.
Þar kom ekki hvað síst til afstaða
ýmissa forustumanna úti á landi, sem
töldu að með því móti yrði vel skipað
málum. Hitt var hins vegar mín skoð-
un, en þetta varð niðurstaðan og ég
fann ekki annað en það væri mikil
og góð sátt um það á fundinum.
Það breytir þó ekki því, eins og
kom fram hjá Friðriki á landsfundin-
Þorsteinn Pálsson:
Mjög sáttur við þá stöðu Sjálf-
stæðisflokksins sem ég skil við
„ÞAÐ eru fengin úrslit og ég
finn auðvitað til viss söknuð-
ar,“ sagði Þorsteinn Pálsson,
fráfarandi formaður Sjálf-
stæðisflokksins, í samtali við
Morgunblaðið í gær. Rætt var
við hann um niðurstöðu for-
mannskjörs á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins á sunnudag og
hvernig hann meti framtíð sína
og flokksins. „Ég taldi að ég
hefði verið búinn að byggja
flokkinn upp í mjög góða
stöðu, bæði með því að samcina
sundruð öfl og skila um
margra missera skeið bestu
niðurstöðum í skoðanakönnun-
um sem við höfum fengið,
þannig að ég er mjög sáttur
við þá stöðu Sjálfstæðisflokks-
ins sem ég skil við.“
— Verður einhver breyting á
Sjálfstæðisflokknum við form-
annsskiptin?
„Reynslan ein sker úr um það.“
— Rætt' hefur verið um mis-
jafnan stíl ykkar Davíðs, hveiju
breytir hann?
„Ég held að vinnubrögðin í
kring um þetta séu þess eðlis að
Morgunblaðið/RAX
Þorsteinn Pálsson ávarpar landsfund Sjálfstæðisflokksins eftir að
úrslit lágu fyrir í formannskjörinu.
niðurstaðan hljóti að túlkast sem
ósk fundarins um harðara yfir-
bragð á flokknum en er í dag.“
— Geturðu lýst því nánar?
„Nei, ég held að menn skynji
og skilji alveg hvað í því felst.
Ég hef ekki orðið var við neinn
teljandi skoðanaágreining, en
þetta er svolítið önnur sál en við
höfum þekkt í Sjálfstæðisflokkn-
um fram til þessa.“
— Áttu von á að einhver eftir-
mál verði, eða er málinu lokið?
„Kosningunum lauk með niður-
stöðu.“
— Menn hafa velt fyrir sér
hvort af formannskjörinu leiddi
klofningur í flokknum.
„Ekki af minni hálfii.“
— Kom til tals að þú yrðii
varaformaður, varst þú beðinn
um það?
„Nokkrir menn nefndu það. Ég
skynjaði að fundurinn var auðvit-
að á miklum tilfinninganótum
eftir þessi úrslit og ýmsir áttu
erfitt með að ganga út af fundin-
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
31
Friðrik Sophusson kjörinn vara-
formaður Sjálfstæðisflokkins:
Þessi staða kom
mér jafn mikið á
óvart og* öðrum
Tel ekki að stefna flokksins
breytist með formannsskiptunum
FRIÐRIK Sophusson segist telja að stuðningur sein hann fékk í
varaformannskjöri Sjálfstæðisflokksins stafi af því að fólk telji
hann geta hjálpað til að búa um sár seni hugsanlega liafi komið
við formannskjörið.
um, að við gerum okkur ljóst að við
erum forustumenn flokksins alls. Ég
heiti því að allir landsmenn munu
sjá það í störfum okkar tveggja.
Reyndar hefur það oft verið þannig,
að einmitt þeir forustumenn flokks-
ins sem komið hafa úr Reykjavík,
hafa lagt sig í framkróka við að
sanna þetta og sýna. Við vitum að
menn horfa til þessa, og því erum
við ennþá meira vakandi fyrir því,
að ekkert það gerist í okkar störfum
sem gæti bent til þess að við lítum
til þess hluta landsins frekar en ann-
ars,“ sagði Davíð.
Ætla ekki að geysast um
með fyrirgangi
Þorsteinn Pálsson fráfarandi
formaður flokksins sagði eftir for-
mannskosninguna á sunnudag, að
þar hefði verið kosið milli harða og
mjúka stílsins í forustu flokksins.
Þegar Davíð var spurður hvort hann
væri sammála þessari skilgreiningu,
svaraði hann neitandi, og sagðist
raunar hafa hafa heyrt það frá sum-
um talsmönnum Þorsteins í kosn-
ingabaráttunni fyrir formannskjörið,
að hann hefði rekið mestu félagslegu
þjónustu sem nol.kur hefði rekið í
Reykjavík.
„Þannig að ef menn horfa til þess
þá er ég fulltrúi hinna mjúku gilda
umfram aðra menn hvað það snertir.
Ef menn hins vegar eiga við það að
ég vilji að stefna flokksins sé skýr
og skörp, og komist til skila með
ákveðnum hætti, þá má það vera
rétt.“
— Megum við þá eiga von á skarp-
ari kosningabaráttu frá Sjálfstæðis-
flokknum nú en áður?
„Ég skal ekki um það segja. Ég
vona að þetta verði góð kosningabar-
átta og glögg, og menn átti sig á
því hvað sé í húfi. Við munum gera
okkar, sjálfstæðismenn, til að það
liggi ijóst fyrir. Ég sagði hins vegar
í minni ræðu, að við vildum engar
kollsteypur eða byltingar heldur þró-
un, og ég áskil mér rétt til að taka
minn tíma til að setja mark á flokk-
inn; ég ætla ekki að geysast þar fram
með fyrirgangi og gauragangi, held-
ur fara með löndum, njóta krafta og
ráða þeirra sem fyrir eru og vel
þekkja til. Ég vænti þess til dæmis
að þar muni ég njóta stuðnings og
aðstoðar þingflokksins þar sem sitja
menn með mikla reynslu," sagði
Davíð.
Þegar hann var spurður um hvort
um. Ég leit nú á þær óskir í því
ljósi, en mitt svar við þeim var
mjög einfalt. Þegar búið er að
reka skipstjóra, þá er hann ekki
beðinn um að gerast stýrimaður."
— Hvað gerir hann þá, fer
hann í land?
„Nei, hann heldur bara'afram
sínu striki. Nú fæ ég langþráð
tóm til að sinna mínu fólki á
Suðurlandi betur, svo sem það á
skilið og vikurnar framundan fara
fyrst og fremst í það.“
— Hver er þín framtíð í stjórn-
málunum í framhaldi af þessu?
„Ég hef aldrei lagt áætlanir
fram í tímann fyrir sjálfan mig.
Ég hef tekið á verkefnunum eins
og þau hafa blasað við hveiju
sinni. Það sem blasir við núna er
að vinna í kjördæminu og skila
góðum árangri þar í kosningun-
um. Svo tekur næsti kafli við og
hann ræðst auðvitað af því hver
úrslitin verða í kosningunum."
— Ertu þá að breyta um
áherslur og stíl í þínu þingmanns-
starfi?
„Nei, ég er ekki að breyta um
áherslur eða stíl, en þegar maður
er laus við ábyrgð flokksforyst-
unnar þá fær maður meira svig-
rúm til að sinna sínu kjördæmi.
Því er auðvitað ekki að neita að
formannsstarfið hefur komið nið-
ur á þeim skyldum. Það getur
aldrei farið hjá því. Nú gefst tóm
til að sinna því betur og ég er í
sjálfu sér mjög glaður yfir því,
mér finnst ég skulda mínu fólki
þar,“ sagði Þorsteinn Pálsson.
hann teldi að landsfundur flokksins
hefði markað nægilega skýra stefnu
í mikilvægum málaflokkum, sagði
hann svo vera, og það hefði raunar
komið á óvart hve mikill áhugi hefði
ríkt á málefnastarfi á landsfundinum
og þátttaka í störfum málefnanefnda
verið góð. Aðspurður um sjávarút-
vegsályktun, sagði hann að ekki
hefðu verið gerðar tillögur um stór-
vægilegar breytingar á sjávarútvegs-
stefnu, enda ljóst að hún verðf ekki
endurskoðuð fyrr en á næsta ári.
Hins vegar hefði náðst um ályktun-
ina mikilvæg samstaða.
Um skattamál sagði Davíð, að hjá
honum og öðrum forustumönnum
flokksins hefði komið skýrt fram að
Sjálfstæðisflokkurinn legði höfuðá-
herslu á að stöðva skattahækkanir
ríkisstjórnarinnar. Eftir það væri
næsta skrefið að lækka skattana,
taka útgjaldahækkanir ríkisins fyrir
stig af stigi og jafnframt að skapa
ríkinu tekjur með öðrum hætti, svo
sem þeim að selja ríkisfyrirtæki.
„Við viljum í raun ekki segja neitt
annað en við teljum okkur geta, í
samvinnu við aðra, staðið við. En
þetta er eins og að aka bifreið. Ef
að hún er á rangri leið er fyrsta
skrefið að stöðva hana og síðan beina
henni á aðra braut.“
Samstarf við Alþýðubandalag
ekki útilokað
— í ræðu þinni á landsfundinum
varst þú þungorður í garð ríkisstjórn-
arflokkanna, en menn tóku eftir því
að þú skammaðir Alþýðuflokkinn
minnst. Má lesa úr því hvaða óskir
þú hefur um stjórnarmynstur eftir
næstu kosningar?
„Nei, ég hef ekki látið neitt slíkt
í ljós. Það eina sem ég hef sagt um
þetta er að eftir kosningarnar, ef við
verðum ekki einir á ferð, þá munum
við reyna að eiga samskipti við þann
flokk, sem er tilbúinn til að mæta
okkur best hvað okkar málefni varð-
ar, og hefur þá þau málefni á sinni
könnu sem við getum vel unað við.
Við vitum að í stjórnarsamstarfi og
stjórnarmyndun er það aldrei vilji
eins sem ræður. Þar verða að koma
til samningar og sátt.“
— Kæmi til greina að eiga sam-
starf við Alþýðubandalagið?
„Það er ekkert útilokað. Hins veg-
ar virðast þeir ekki vera á þeim bux-
unum, því þeir hafa sent mér frekar
kaldar kveðjur," sagði Davíð Odds-
son formaður Sjálfstæðisflokksins.
Á landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins voru kosnir 11 menn í mið-
stjórn flokksins. Eftirtaldir náðu
kjöri:
Þorgrímur Daníelsson Tannastöð-
um Hrútafirði, 888 atkvæði, Þuríður
Pálsdóttir Reykjavík, 869, Drífa
Hjartardóttir Keldum Rangárvöllum,
788, Gunnar Ragnars Akureyri, 788,
Sigurður Einarsson Vestmannaeyj-
um, 788, Hildigunnur Högnadóttir
ísafirði, 787, Guðlaugur Þór Þórðar-
son Borgarnesi, 783, Theódór Blön-
dal Seyðisfirði, 710, Björn Jónasson
Siglufirði, 688, Davíð Scheving Thor-
steinsson Garðabæ, 685, Magnús L
Sveinsson Reykjavík, 660.
Þau Þorgrímur, Drífa og Guðlaug-
ur komu ný inn í miðstjórnina. Einar
Guðfinnsson og Hreinn Loftsson
gáfu ekki kost á sér til endurkjörs
en Lilja Hallgímsdóttir náði ekki
kosningu aftur í miðstjórn. 20 manns
fengu atkvæði i kosningum til mið-
stjórnar, en ekki fengust upplýsingar
um hveijir aðrir fengu atkvæði í kjör-
inu.
Þá kaus þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins fimm fulltrúa úr sínum
hópi í miðstjórn flokksins í gær.
Kosin voru Halldór Blöndal, Matthías
Bjarnason, Pálmi Jónsson, Salome
Þorkelsdóttir og Þorsteinn Pálsson.
Koma þau Þorsteinn, Halldór og
Salome í stað Birgis ísleifs Gunnars-
' sonar, Friðriks Sophussonar og
Matthíasar Á. Mathiesens.
„Það kom í ljós á fundinum að
það virtist vera mjög víðtæk sam-
staða um að ég tæki þetta að
mér. Eftir að hafa hugsað það
mál og borið mig saman við fjöl-
marga af forustumönnunum féllst
ég á að gera það,“ sagði Friðrik
við Morgunblaðið eftir varafor-
mannskjörið.
Þegar hann var spurður hvort
að í ljósi þess að hann vék úr
varaformannsstóli fyrir Davíð
Oddssyni á síðasta landsfundi,
mætti nú líta á að það hafi verið
millileikur Davíðs á leið í form-
annssætið, sagði hann það vera
af og frá.
„Ákvörðun mín á síðasta lands-
fundi byggðist á því að ég taldi
mig eigá að víkja fyrir Davíð
Oddssyni því það væri eðlilegt að
hann tæki við sem varaformaður.
Að þessi staða skuli nú hafa kom-
ið upp er álíka óvænt fyrir mig
og alla aðra og ég býst við því
að sá mikli stuðningur sem ég
hlaut hér sé fyrst og fremst vegna
þess að menn telja að ég, vegna
reynslu minnar og hvað ég þekki
vel til í flokknum, geti hjálpað til
við að búa um þau sár sem
kannski verða að loknu þessu
formannskjöri," sagði Friðrik.
Aðspurður hvort stefna Sjálf-
stæðisflokksins myndi breytast
með formannsskiptunum sagðist
hann ekki telja að svo færi. Það
væri landsfundurinn.sem markaði
stefnu flokksins og henni hlyti
forystan að fylgja.
— En telur þú að niðurstaða
þessa landsfundar verði til þess
að Sjálfstæðisflokkurinn fái
meirihluta í næstu kosningum?
„Ég skal ekkert um það segja,
hvort þessi landsfundur hafi bein
áhrif á úrslit kosninganna. En ég
get fullyrt það, þegar maður finn-
ur fyrir því afli sem er á þessum
fundi, að það sé alveg ljóst að
flokkurinn er á uppleið, hann er
að efla sig og sitt fylgi, þannig
að ég hef mikla trú á því að hann
fái mjög góð kosningaúrslit,"
sagði Friðrik Sophusson.
Þorgrímur Daníelsson
efstur í miðstjómarkjöri
Kjör formanns
og varaformanns
Sjálfstæðisflokksins
á landsfundi 1991
Formaður
Davíð Oddsson 733/ 52,8%
Þorsteinn Pálsson 651/ 46,9%
1388 greiddu atkvæði, tveir fengu eitt atkvæði hvor og tveir seðlar voru auðlr.
Varaformaður
Friðrik Sophusson 998/ 75,9%
H 57/ 4,3% Sigriður A. Þórðardóttir
£40/ 3,0% Einar Oddur Kristjánsson
1314 greiddu atkvæði, 21 fékk 20 atkvæði eða minna.
98 seðlar voru auðlr og 14 ógildir.
í miðsfjörn voru kjörin:
Þorgrímur Daníelsson, Tannastöðum, Hrútafirði
Þuriður Pálsdóttir, Reykjavík
Drífa Hjartardóttir, Keldum, Rangárvallasýslu
p Gunnar Ragnars, Akureyri
Sigurður Einarsson, Vestmannaeyjum
Hildigunnur Högnadóttir, ísafirði
| Guðlaugur Þór Þórðarson, Borgarnesi
Theódór Blðndal, Seyðisfirði
Björn Jónasson, Siglufirði
Davið Scheving Thorsteinsson, Garðabæ
Magnús L. Sveinsson, Reykjavík
888 atkvæði
869 atkvæði
788 atkvæði
788 atkvaeði
788 atkvæði
787 atkvæði
783 atkvæði
710atkvæði
688 atkvæði
685 atkvæði
660 atkvæði