Morgunblaðið - 12.03.1991, Qupperneq 33
kÓRÖÚNBLAÐIÐ ÞRIÐJUÚAGÚR 12. MARZ 1991
33
ALMANNATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar
1.febrúar1991 Mánaðargreiðslur
Elli / örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) .................. 11.497
'k hjónalífeyrir .:.................................... 10.347
Full tekjutrygging ..................................... 21.154
Heimilisuppbót ......................................... 7.191
Sérstök heimilisuppbót .................................. 4.946
Barnalífeyrirv/1 barns .................................. 7.042
Meðlag v/ 1 barns ....................................... 7.042
Mæðralaun/feðralaun v/1 barns ............................4.412
Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja barna ...................... 11.562
Mæðralaun/feðralaun v/ 3ja barna eða fleiri ............ 20.507
Ekkjubætur/ekkilsbætur6mánaða .......................... 14.406
Ekkjubætur/ekkilsbætur12mánaða .........'.............. 10.802
Fullurekkjulífeyrir ................................... 11.497
Dánarbætur í 8 ár (v/slysa) ............................ 14.406
Fæðingarstyrkur ........................................ 23.398
Vasapeningar vistmanna .................................. 7.089
Vasapeningar v/sjúkratrygginga .......................... 5.957
Daggreiðslur
Fullirfæðingardagpeningar .............................. 981,00
Sjúkradagpeningareinstaklings .......................... 490,70
Sjúkradagpeningarfyrirhvertbarnáframfæri ............... 133,15
Slysadagpeningareinstaklings ..........•............... 620,80
Slysadagpeningarfyrir hvert barn á framfæri ............ 133,15
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
11. mars.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 92,00 81,00 84,77 91,911 7.791.626
Þorskur(óst) 94,00 79,00 85,58 8,325 712.477
Ýsa 129,00 80,00 105,31 3,595 378.612
Ýsa (ósl.) 106,00 100,00 100,38 0,700 70.264
Karfi 38,00 30,00 34,82 2,738 95.355
Ufsi 39,00 29,00 37,87 2,743 103.893
Ufsi (ósl.) 29,00 29,00 29,00 0,160 4.640
Steinbítur 41,00 34,00 38,36 0,274 10.521
Steinbítur(ösL) 41,00 38,00 40,17 5,160 207.293
Langa 58,00 58,00 58,00 0,361 20.919
Lúða 395,00 270,00 339,52 0,558 189.620
Koli 78,00 35,00 47,93 0,600 . 28.757
Keila (ósl.) 25,00 25,00 25,00 0,125 3.126
Rauðm/gr. 90,00 90,00 90,00 0,009 810
Skötubör. 195,00 195,00 195,00 0,014 2.730
Skötuselur 200,00 200,00 200,00 0,072 14.400
Hrogn 200,00 20,00 192,62 2,445 470.871
Bland. sv. 64,00 64,00 64,00 0,288 18.432
Samtals 84,31 120.078 10.124.346
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 102,00 69,00 89,78 31,361 2.815.680
Þorskur (ósl.) 94,00 58,00 86,46 15,157 1.310.512
Smáþorskur 83,00 75,00 78,58 3,380 265.612
Ýsa 138,00 90,00 100,91 5,801 585.399
Ýsa (ósl.) 129,00 85,00 100,80 0,995 100.292
Karfi 37,00 20,00 32,44 60,634 1.967.082
Ufsi 46,00 46,00 46,00 0,681 31.326
Ufsi (ósl.) 45,00 45,00 45,00 2,462 110.790
Steinbítur 38,00 25,00 34,66 4,128 143.069
Langa 45,00 33,00 42,19 0,697 29.403
Lúða 560,00 400,00 441,14 0,271 119.550
Skarkoli 62,00 54,00 54,98 0,915 50.306
Keila 26,00 26,00 26,00 0,139 3.614
Skata • 115,00 115,00 115,00 0,038 4.370
Skötuselur 205,00 205,00 205,00 0,262 53.710
Lýsa 46,00 46,00 46,00 0,020 920
Kinnar 75,00 75,00 • 75,00 0,044 3.300
Gellur 280,00 280,00 280,00 0,047 13.020
Hrogn 260,00 120,00 134,55 1,329 178.820
Blandað 29,00 10,00 11,09 1,112 12.336
Undirmál 75,00 10,00 59,43 2,578 153.203
Samtals 60,22 132,050 7.952.315
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 90,00 73,00 85,49 77,900 6.660.003
Þorskur (ósl.) 114,00 75,00 96,60 37,561 3.628.408
Þorskur (dbl.) 81,00 69,00 75,33 15,500 1.167.600
Ýsa 130,00 101,00 122,81 4,089 502.161
Ýsa (ósl.) 100,00 65,00 97,14 4,516 438.703
Karfi 35,00 29,00 34,66 7,447 258.071
Ufsi 40,00 24,00 37,63 60,318 2.269.604
Steinbítur 47,00 27,00 45,41 6,739 306.017
Hlýri/steinb. 49,00 46,00 48,06 0,540 25.953
Langa 60,00 30,00 58,35 3,665 213.838
Blálanga/langa 64,00 64,00 64,00 0,747 47.808
Blálanga 60,00 60,00 60,00 0,528 31.680
Lúða 515,00 375,00 434,38 0,529 229.785
Skarkoli 59,00 20,00 50,90 0,513 26.112
Hrognkelsi 15,00 15,00 15,00 0,013 195
Keila 33,00 10,00 30,21 8,593 259.556
Rauðmagi 100,00 100,00 100,00 0,090 9.000
Skata 74,00 50,00 68,97 0,037 , 2.552
Háfur 5,00 5,00 5,00 0,106 530
Náskata 5,00 5,00 5,00 0,028 140
Lýsa 18,00 5,00 14,49 0,074 1.072
Kinnar 69,00 69,00 69,00 0,073 5.037
Gellur 100,00 100,00 100,00 0,033 3.300
Undirmál 26,00 26,00 26,00 0,020 520
Samtals 70,05 229,671 16.087.705
Selt var úr Skarfi, Sighvati, Sigríði Þorleifs . o.fl. í dag verður selt úr dagróðra-
bátum o.fl.
Jón Baldvin Hannibalsson:
I Alþýðuflokknum blundar
vilji tfi að endurvekja viðreisn
Rætt við forystumenn stjórnmálaflokka
að loknum landsfundi Sjálfstæðisflokksins
„ÉG ÓSKA _ nýjum formanni til
hamingju. Ég hef alltaf getað
starfað með Davíð Oddssyni,"
sagði
Steingrímur
Hermannsson
formaður Fram-
sóknarflokksins
þegar leitað var
álits hans á
breytingum á
forystu Sjálfstæðisflokksins. Rætt
var við formenn stjórnmálaflokk-
anna um áhrif forystuskiptanna,
kosningabaráttuna og viðhorf til
stjórnarsamstarfs með Sjálfstæð-
isflokknum eftir kosningar. Jón
Baldvin Hannibalsson sagði að
erfitt væri að greina pólitísk áhrif
formannsskiptanna, þau hefðu
gnæft svo yfir annað á landsfund-
inum að lítið hefði frést um mál-
efni. Hins vegar ættu málefni fyrst
og fremst að gefa líkur á sam-
starfi flokka eftir kosningar. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson sagði að
hörðustu hægri öflin í Sjálfstæðis-
flokknum hefðu verið baklijarl
Davíðs og Júlíus Sólnes sagðist
þeirrar skoðunar að flokkurinn
hafi tekið afdrifaríka stefnu til
hægri. Málmfríður Sigurjónsdótt-
ir sagðist ekki sjá að þetta breytti
miklu.
„Ég skal ekki segja til um hvaða
breytingar verða. Þorsteinn Pálsson
segir að það verði harðari stefna.
Hann þekkir það eflaust miklu betur
en ég. Ég vona samt að hún verði
ekki svo 'hörð að samstarf reynist
erfitt," sagði Steingrímur Hermanns-
son.
Hann sagðist ekki eiga von á
breýttu yfirbragði kosningabarátt-
unnar. „Hún byggist á störfum nú-
verandi ríkisstjórnar og á því sem
gerst hefur hjá þeim ríkisstjórnum
sem starfað hafa á þessu kjörtíma-
bili. Því verður ekki breytt þó þarna
breytist formennska,“ sagði
Steingi'ímur. Hann sagðist ekki geta
metið það nú hvort auðveldara eða
erfiðara yrði að mynda stjórn með
Sjálfstæðisflokknum undir forystu
Davíðs en Þorsteins. „Ég hef átt
ágætt samstarf við Davíð Oddsson.
En það kann að breytast ef mál-
efnaáherslur breytast hjá flokknum
undir hans stjórn í kosningabarátt-
unni,“ sagði Steingrímur.
Málefni ráða hugsan-
legu stjórnarsamstarfi
Jón Baldvin Hannibalsson for-
maður Alþýðuflokksins kvaðst vilja
byrja á að óska nýkjörnum formanni
til hamingju með
kjörið og láta í
ljós þá ósk að þau
áhrif sem hann í
vaxandi mæli
mun hafa á
landsmál verði
þjóðinni til góðs.
„Ég vil líka nota tækifærið til að
láta í ljós þá skoðun að Þorsteinn
Pálsson hafí brugðist við þessum
úrslitum af karlmennsku og æðru-
leysi sem er honum til sóma og
kannski öðrum til eftirbreytni þegar
á reynir í stjómmálum almennt.“
Jón Baldvin sagði enn sem komið
er vera erfitt að greina pólitísk áhrif
formannsskiptanna, þau hefðu gnæft
svo yfir annað á landsfundinum að
lítið hefði frést um málefni. Hins
vegar ættu málefni fyrst og fremst
að gefa líkur á samstarfi flokka eft-
ir kosningar. Þar væru stórir mál-
efnaflokkar sem hæst bæru, viðræð-
ur við Evrópubandalagið, opnun
þjóðfélagsins og fijálsari viðskipta-
hættir, endurskipulagning í átt til
markaðsvæðingar í landbúnaði og
sjávarútvegi og ráðstafanir til að
auka hér hagvöxt og bæta lífskjör.
„Margt í stefnumálum okkar jafn-
aðarmanna á skylt við grundvallar-
viðhorf í Sjálfstæðisflokknuin fyrr á
tíð og það hlýtur að vera einn af
þeim kostum sem við tökum til at-
hugunar að kosningum loknum hvort
þessir flokkar starfi saman,“ sagði
Jón Baldvin. Ilann sagði það hvemig
forystumönnum þessara flokka lynd-
ir saman einnig hafa áhrif á hugsan-
legt stjórnarsamstarf.
„Það er ekkert launungarmál að
í Alþýðuflokknum blundar alltaf vilji
til að endurvekja Viðreisn,“ sagði
hann, en benti jafnframt á að menn
gerðu sér grein fyrir að tímamir
hefðu breyst síðan sú stjórn var við
lýði. „Það liggur ekkert fyrir um það
fyrir kosningar hvaða flokkar stefna
að samstarfi og þess er ekki að vænta
nema mglin skýrist við munnlegan
málflutning í kosningabaráttunni."
Hörðustu hægriöflin voru
bakhjarl Davíðs
Ólafur Ragnar Grímsson formaður
Alþýðubandalagsins sagði kjör
Davíðs Oddssonar skapa miklar
breytingar. „Um
leið og honum er
persónulega óskað
til hamingju, þá er
ljóst að hörðustu
hægriöflin í Sjálf-
stæðisflokknum
voru bakhjarlinn í
liðssveit Davíðs. Þorsteinn Pálsson
höfðaði til miðjunnar í sinni setning-
arræðu. Þeim boðskap var hafnað í
formannskjörinu," sagði Ólafur.
Hann sagði línumar í íslenskum
stjórnmálum hafa orðið skarpari við
formannsskiptin. „Þegar fulltrúi
hörðustu hægriaflanna í Sjálfstæðis-
flokknum tekur við formennskunni
duga engin vettlingatök hjá vinstri
mönnum á Islandi. Nú þarf hver og
einn vinstri sinni að meta hveijum
sé best trystandi til að vera það
mótvægi sem þarf.
Á fundi frambjóðenda Alþýðu-
bandalagsins, sem haldinn var um
síðustu helgi, þar sem við gengum
frá kosningastefnuskrá okkar, var
ákveðið að við erum reiðubúin að
veita öljum okkar kröftum til að vera
þetta mótvægi. Það þarf að koma í
veg fyrir það að harða hægri klíkan
í Sjálfstæðisflokknum fái að leika sér
með ísland," sagði Ólafur Ragnar
Grímsson.
„Afdrifarík stefna til hægri“
Júlíus Sólnes formaður Borgara-
flokksins sagði: „Ég tel að Sjálfstæð-
isflokkurinn hafi þarna eignast mjög
mikilsvirtan og
dugmikinn leiðtoga
og tel að þama
verði mjög sterk
forysta. Hins vegar
er ég þeirrar skoð-
unar að flokkurinn
hafi um leið tekið
afdrifaríka stefnu til hægri í stjórn-
málum og óttast að flokkurinn muni
nú aðhyllast harðneskjulega pen-
ingamálastefnu í pólitík. Maður hlýt-
ur að líta svo á að landsfundurinn
hafi í raun hafnað þeirri hugmynd
fráfarandi formanns að sækja inn
að miðjunni og taka upp stefnu í
meiri átt til fijálslyndis og mannúðar
en verið hefur, en það var reyndar
kjörorð landsfundarins. Við lítum svo
á að það sé þeim mun meiri þörf
fyrir fijálslynda hreyfmgu á hægri
vængnum til þess að veita þessum
nýja hægriflokki visst aðhald.
Það er ljóst að nýi formaðurinn
hefur öðruvísi stíl en sá fyrri og
kann það að hafa áhrif á kosninga-
baráttuna. Það verður líka að taka
mið af þeim straumhvörfum sem
orðið hafa, menn hljóta að hafa skoð-
un á þeirri nýju hægristefnu sem
þarna kemur fram. Þetta er raunar
rnjög í anda þess sem ég hef verið
að spá um þróun íslenskra stjórn-
mála, að hér muni myndast harður
hægriflokkur, stór fijálslyndur flokk-
ur á miðjunni eða hægra megin við
hana og síðan einn jafnaðarmanna-
flokkur,“ sagði Júlíus.
„Davíð óreyndur í
Iandsmálastarfi"
* -
„Ég sé ekki á þessari stundu að
þetta breyti miklu. Okkur finnst
þetta fyrst og fremst vera innanhúss-
mál Sjálfstæðis-
flokksins,“ sagði
Málmfríður Sigurð-
ardóttir þingkona
Samtaka um
kvennalista. „Það
má búast við ein-
hveijum breýting-
um á áherslum. Það hefur ekki reynt
á Davíð Oddsson í landsmálastarfi,
því hann hefur í rauninni verið alls
ráðandi á sínum vettvangi og innan-
um jábræður. Maður spyr sig að því
hvernig honum muni gánga að sætta
sjónarmið innan síns eigin flokks og
hvernig honum muni ganga sam-
starfið við aðra flokka þar sem alltaf
þurfa að koma til málamiðlanir og
samkomulag. Það er líka mikil spurn-
ing hvemig þessi eindregna
Reykjavíkurforysta leggst í fólkið á
landsbyggðinni og fulltrúa þess og
hvernig það samstarf gengur. Burt-
séð frá þessu, hefur það alltaf verið
mér umhugsunarefni hrópið á ein-
hvern sterkan leiðtoga í Sjálfstæðis-
flokknum, ekki síst í ljósi þess að
Sjálfstæðisflokkurinn lítur á sig sem
mikinn lýðræðisflokk. Það er eins og
menn telja hann ekki geta þrifist
nema hafa einhvern sterkan leiðtoga.
Við höfum ekki reynslu af sam-
starfi við þessa nýju forystu. Við
höfðum ekkert nema gott um forystu
Þorsteins Pálssonar að segja í þeim
stjórnarmyndunarviðræðum sem við
áttum við hann. Hann kom drengi-
lega fram við okkur. Við sjáum ekki
ástæðu til að vænta annars af hinni
nýju forystu,“ sagði Málmfríður.
Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur, 28. des. - 8. mars, dollarar hvert tonn
■ Á FUNDI hreppsnefndar
Gerðahrepps 27. febr. 1991 var
samþykkt að senda Alþingi og
ríkisstjórn áskorun um tafarlaus
kaup á björgunarþyrlu fyrir Land-
helgisgæsluna. 20. febrúar sl. varð
mannbjörg þegar Steindór GK frá
Garði strandaði við Krísuvíkur-
bjarg. Atvikið minnti okkur áþreif-
anlega á hve mikilvæg björgunar-
þyrla er fyrir sjómenn okkar og
aðra þá sem í alvarlegum nauðum
geta lent. Væntum að tekið verði
stríix á málinu og jákvæð af-
greiðsla fáist, segir í frgttatilkynn-'
ingu Gerðahrepps.