Morgunblaðið - 12.03.1991, Qupperneq 34
34
MOkGUttliLÚjlÐ ÞRÍÐjtíDÁ'GUIÍ' í&'. MAtíZ 1Ö9Í
Verslun
Bílanaust
færir út
kvíamar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
PARKET — Ib Möller, eigandi Trip-Trap í Danmörku kom hing-
að til lands í tilefni þess að Samnor-Samnorræna hefur hafið innflutn-
ing og sölu á Trip-Trap parketi. Ib Möller á vinstri hönd stendur Reyn-
old Jónsson, framkvæmdastjóri Samnor.
Verslun
Samnor hefur sölu
á Trip-Trap parketi
SAMNOR-Samnorræna hefur
síðastliðin tíu ár sérhæft sig í
sölu Alno-eldhúsinnréttinga.
Fyrirtækið hefur nú aukið um-
svif sín og opnað sérstaka versl-
un og sýningarsal þar sem boðið
verður upp á svokallað Trip-
Trap parket frá samnefndu fyr-
irtæki í Danmörku.
Reynold Jónsson, framkvæmda-
stjóri Samnor, sagði að Trip-Trap
parketið væri þekkt fyrir endingu
og gæði og mjög eftirsótt á gólf
sem mikið mæddi á, t.d. í dans- og
íþróttahúsum'og öðrum fjölsóttum
opinberum byggingum. Hann sagði
að styrkur og ending parketsins
byggðist á því að hægt væri að fá
það í gegnheilum plönkum, en það
fæst líka samanlímt.
Samnor býður uppá fjölmargar
viðartegundir í Trip-Trap parket-
inu, s.s. eik, tekk, mahogny, lerki,
birki, beyki, ask, furu og vengi, en
viðurinn sem er notaður kemur frá
nánast öllum heimshornum. Parket-
ið er framleitt í mörgum gerðum,
litaafbrigðum og munstrum.
í Trip-Trap parketinu fæst líka
sérstakt lútað furuparket sem að
sögn Reynolds er nýjung hér á
landi. Þetta lútaða parket gefur
gólfinu gamaldags áferð og sagði
Reynold að það væri vinsælt í ný-
byggingar á Norðurlöndum. Þá
hafa arkitektar og byggingarmeist-
arar víða í Evrópu valið það við
endurbyggingu gamalla húsa þar
sem þarf að skipta um gömul tré-
og parketgólf og færa þau sem
mest í sitt upprunalega horf.
Samnor-Samnorræna hefur einn-
ig hafið innflutning og sölu á Mill
Due baðinnréttingum frá Ítalíu.
Reynold sagði að þær innréttingar
væru ólíkar því sem fyrir er á mark-
aðnum, enda ítalir þekktir fyrir
glæsilega hönnun.
Opnar pústkerfa- og
rafgeymamiðstöð
BÍLANAUST hf. hefur opnað
nýja sjálfstæða deild, þar sem
bíleigendum er boðin sérhæfð
þjónusta á sviði pústkerfa og
rafgeyma. Deildin er í nýrri
byggingu á lóð fyrirtækisins við
Borgartún, með sérinngangi frá
bílastæðum á baklóð. Tilangur-
inn með þessari deild er að auka
þjónustu við viðaskiptavini m.a.
hraða afgreiðslu, að þvi er segir
í frétt frá fyrirtækinu.
Púst- og rafgeymadeildin er
tölvuvædd. Sérstakt rekkakerfi og
innréttingar eru frá Electroloux í
Svíþjóð, m.a. vélknúinn 5 metra hár
hillurekki með 70 fermetra hillu-
rými. Rekkanum er ijarstýrt þannig
að eftir að pústhluturinn hefur ver-
ið valinn flytur rekkinn hann til
afgreiðslumannsins.
Að því er segir í fréttinni eru
pústkerfin frá Bosal í Belgíu,
Stuðlabergi á Hofsósi og Walker í
Bandaríkjunum. Rafgeymar eru frá
Noack, Hagen, Hella og Autosi.
Einnig segir að innan tíðar verði
boðið upp á nýja þjónustu á sviði
rafgeyma, þar sem gamlir geymar
verða teknir upp í nýja. Með þess-
ari þjónustu vilji Bílanaust leggja
ákveðinn skerf af mörkum í þágu
umvherfisverndar. Bílanaust mun
safna gömlu rafgeymunum saman
og tryggja að eyðing þeirra valdi
ekki mengun.
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
NY VERSLUN — í hinni nýju sérverslun Bílanausts. Tölvuv-
æddum rekka á lager er fjarstýrt þannig að eftir að t.d. pústhlutur
hefur verið valinn flytur rekkinn hann til afgreiðslumannsins.
Hlutafélög
Litlum og stórum
fyrirtækjum verði gert
jafn hátt undirhöfði
Félagísl. stórkaupmanna átelur vinnubrögð
stjórnvalda vegna breytinga á hlutafjárlögum
FÉLAG íslenskra stórkaupmanna hefur beðið Morgunblaðið að birta
eftirfarandi athugasemd vegna frétta að undanförnu um breytingar
á lögum, sem heimila frádrátt frá tekjum manna og kaup á hluta-
bréfum í ákveðnum hlutafélögum:
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Endurmenntunamefnd
SKIPULAGNING OG FRAMKVÆMD
FRAMLEIÐNIAUKANDI AÐGERÐA
í FYRIRTÆKJUM OG STOFNUNUM
ÞÁITI AKENDUR: Þetta námskeið á erindi til allra stjómenda í fyrirtækjum og stofnunum, hvort
sem um er að ræða framleiðslu- eða þjónustufyrirtæki eða opinberar stofnanir.
EFNI: 1. Framleiðni fyrirtaekja og framleiónimælikvaröar.
2. Nýjar og hagnýtar aöferðir við framleiðnimælingar.
3. Skipulagning og framkvæmd framleiðniaukandi aögerða.
UMSJÓN: Páll Kr. Pálsson, forstöðumaður, Iðntæknistofnunar íslands.
TÍMI, STAÐUR OG VERÐ:
18. og 19. mars, kl. 8.30-12.30, í Tæknigarði. Þátttökugjald er kr. 8.500,-.
Skráning fer fram í móttöku Tæknigarðs, í síma 694940, en nánari upplýsingar cra veittar á skrif-
stofu endurmenntunarnefndar í símum 694923, 694924 og 694925.
„Einu breytingamar sem félagið
telur réttlætanlegar að gerðar verði
á umræddum lögum, að svo stöddu,
er að sú mismunum á milli stórra
og smárra fyrirtækja sem í lögunum
felast verði eytt. Mismunun þessi
kemur þannig fram, að aðeins er
heimilt að draga frá tekjum kaup
á hlutabréfum í stærstu fyrirtækj-
um landsins.
Nauðsynlegt er að þessu órétt-
læti verði þegar hætt og litlum og
stórum fyrirtækjum gert jafn hátt
undir höfði. FÍS bendir á í þessu
sambandi, að þa er viðurkennd stað-
reynd um allan heim, að framfarir
og nýsköpun verða oftast til í
smærri fyrirtækjum. Þar eru vaxta-
möguleikar atvinnulífsins mestir og
tækifærin til atvinnusköpunar flest.
Af ofangreindum ástæðm eru
einu eðlilegu breytingarnar á um-
ræddum lögum þær að breika þann
hþ hlutafélaga sem umrædd heimild
til frádráttar á tekjum nær til.
Náist ekki samstaða um það telulr
FÍS rétt að heimildinni verði breytt
þannig, að hún nái eingöngu til
smærri fyrirtækja, t.d. fyrirtækja
með veltu undi r500 milljónum
króna á árinu 1990. Með því móti
mundi mismununinni í núverandi
loöggjöf verða eytt og smáum fyrir-
tækjm gefin sami möguleiki til öfl-
unar eigin fjár og stórum fyrirtækj-
um hefur verið veitt undanfarin ár.
Félagið átelur jafnframt þau
vinnubrögð stjórnvalda að breyta
svo veigamiklulm lögum, nánast
eins og hendi væri veifað, og skaða
þar með fjárfestingaáform fjölda
fyrirtækja. Bendir félagið á, í því
sambandi, tengslinh eru eru á milli
ijármagnskostnaðar og hlutafalls
eiginfjár í framkvmædum og rekstri
fyrirtækja.
Nauðsynelgt er að stjórnvö-ldi
temji sér ný vinnubrög í viðkvæum
fjárhagslegum málum er varða
langtíma ákvarðanir fyrirtækja, líkt
og þau lög sem hér um ræðir.
Að lokum vill Félag íslenskra
stórkapmanna árétta nauðsyn þess
að ákvörðun verði tekin sem fyrst
í þess máli, svo þeirri óvissu sem
það er komið í verði eytt.“
Fundur
lilvalift li'
ietmii
TA Gábriele 100
Vel útbúinn vinnuhestur fyrir
námsmanninn sem velur gæði og gott verð.
VERÐ AÐEINS KR. 19.800,- s.gr
Komdu við hjá okkur eða hringdu og
fáðu frekari upplýsingar, það borgarsig örugglega.
EinarJ. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 686933
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
Armstrong
fundar á
*
Islandi
GOLFDUKAFRAMLEIÐAND-
INN Armstrong hélt árlegan
samráðsfund sinn hér á landi í
liðini viku fyrir norræna sam-
starfsaðila. Fundinn sóttu um 20
aðilar frá Frinnlandi, Svíþjóð,
Noregi, Danmörku og Islandi.
Einnig sóttu fundinn Howard
Pike aðalhönnuður Armstrong
og Andy Evans, vörustjóri, báðir
frá Englandi.
Að sögn Jóns H. Karlssonar
framkvæmdastjóra Teppabúðarinn-
ar, sem hefur umboð fyrir Arm-
strong, bera söluaðilar saman bæk-
ur sínar á þessum árlegu fundum
og leggja dóm á nýja gólfdúkalínu,
sem hönnuðir Armstrong kynna
hveiju sinni. Línan sem nú er kynnt
kemur á markað í haust.
Söluaðilar á Norðurlöndum taka
beinan þátt í hönnun dúkanna og
litavali frá byijun. „Þannig er talið
líklegast að takist að framleiða vöru
sem kaupandinn helst vill, því eng-
inn er í betri tengslum við hann en
einmitt seljandinn hveiju sinni,“
sagði Jón.
Fundurinn var haldinn dagana
6. og 7. mars. Laugardaginn 8.
mars heimsóttu gstirnir Þingveli,
Gullfoss, Geysi og Heklu í boði
Teppabúðarinnar :hf.'