Morgunblaðið - 12.03.1991, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
85
Bankamál
„Danska veikin“dreg-
ur úr lánstrausti Svía
SVÍAR og Danir njóta nú jafn mikils lánstrausts á alþjóðavettvangi
en sá er þó munurinn, að Svíar hafa verið á niðurleið en Danir á
uppleið. Voru Svíar áður í AAA-flokki en hafa verið settir skör
lægra eða í AAl-flokk.
Ástæðan íyrir þessu er sú, að
sænskt efnahagslíf þjáist af því,
sem kallað hefur verið „danska
veikin“, en sjúkdómseinkennin eru
mikil verðbólga, erfið greiðslustaða
og vaxandi skuldabyrði. Með
minnkandi lánstrausti verður svo
aftur dýrara að taka erlend lán,
jafnt fyrir ríki sem bankastofnanir.
Það er bandaríska ráðgjafarfyrir-
tækið Moody’s Investors Service,
sem gefur Svíum þessa nýju ein-
kunn, og í rökstuðningi sínum bend-
ir það á lítinn hagvöxt en mikinn
tilkostnað ' í framleiðslu, á efna-
hagssamdrátt víða um lönd, sem
gerir Svíum erfitt fyrir, og síðast
en ekki síst á mikinn halla á
greiðslujöfnuðinum. Þá hafa erlend-
ar skuldir Svía aukist vei-ulega á
síðustu þremur árum þótt á móti
komi að vísu miklar fjárfestingar
þeirra erlendis, einkum í.aðildarríkj-
um Evrópubandalagsins. Moody’s
telur hins vegar, að óvissa ríki um
arðsemi þessara fjárfestinga á
næstunni vegna hægari hagvaxtar
almennt.
Sérfræðingar Moody’s segja, að
í Svíþjóð virðist raunar vera pólitísk
samstaða um ráðast til atlögu við
vandann en þeir telja, að væntan-
legar aðgerðir muni óhjákvæmilega
leiða til verulegs atvinnuleysis. Þá
segja þeir einnig, að hið alltumlykj-
andi sænska velferðarkerfí eigi ekki
framtíð fyrir sér í núverandi mynd.
Bankar
BankAmerica fyrsti
„landsbankinn“ vestra?
LÍKLEGT er, að BankAmerica Corp. verði fyrsti stórbankinn í Banda-
rikjunum, sem rís undir því nafni jafnt á austur- sem vesturströnd-
inni. Mun það þó ráðast af því hvort hann kaupir upp nokkur dóttur-
fyrirtæki Bank of New England, sem nú er gjaldþrota.
Talsmenn BankAmerica segja,
að af kaupunum geti því aðeins
orðið, að Tryggingastofnun bank-
anna, sem er opinber stofnun, greiði
fyrirþeim með verulegum fjárfram-
lögum eða með öðrum orðum, að
hún taki á sig skuldir dótturfyrir-
tækjanna að einhveiju leyti. Þeir
leggja hins vegar áherslu á, að
kaupin séu mjög vænlegur kostur
fyrir BankAmerica vegna þess hve
Bank of New England hafði mikil
viðskipti við verslunar- og atvinnu-
fyrirtæki á austurströndinni.
BankAmerica er með höfuðstöðv-
ar sínar í San Francisco og stendur
mjög vel, jafnt ijárhagslega sem
stjórnunarlega. Með því að sækjast
eftir dótturfyrirtækjum Bank of
New England eru eigendur hans
vafalaust að búa sig undir nýja tíma
en bandaríska bankaeftirlitið
hyggst ryðja úr vegi þeim hömlum,
sem hingað til hafa verið á banka-
starfsemi á landsvísu.
Þeir eru þó til, sem telja, að erf-
itt verði að stunda bankastarfsemi
á báðum ströndum þessa stóra
lands. Ástandið í efnahagsmálum
Nýja Englands er erfitt en allar
meiriháttarákvarðanir um starf-
semina þar yrði hins vegar að taka
í San Francisco, í 3.000 mílna ijar-
lægð frá vettvangi.
Af fjarritanum
Unilever undirbýr 1992
Lundúnuin, Reuter.
Unilever hefur lagt 195 milljónir
Sterlingspunda (21 milljarð króna)
í sjóð sem ætlað er að búa fyrirtæk-
ið undir sameiginlegan innri mark-
að Evrópubandalagsins (EB) í árs-
lok 1992. Unilever er fyrsta breska
niatvælafyrirtækið sem leggur út í
sérstaka endurskipulagningu vegna
innri markaðarins. Endurskipu-
lagningin nær til allrar starfsemi
Unilever í Evrópu. Rekstrarkostn-
aður verður minnkaður og mark-
aðssókn efld.
Unilever er þriðji stærsti mat-
vælaframleiðandi heims. Um
110.000 manns starfa í 240 verk-
smiðjum fyrirtækisins í Evrópu.
Haft var eftir stjórnarformanni
Unilever að einhverjum verksmiðj-
um yrði sennilega lokað og starfs-
mönnum fækkað um allt að sex
þúsund. Endurskipulagningin fylgir
ekki í kjölfar rekstrarerfiðleika. Á
síðasta ári varð hagnaður Unilever
fyrir skatta 1,8 milljarðar Sterlings-
punda (190 milljarðar króna) og
spáð er enn meiri hagnaði á þessu
ári.
S
s
3 ODY
Nú eru aðeins nokkrir tímar lausir
á virkum dögum
Vertu ekki of seinn
allt að verða upp
Ljósmyndastofumar:
Bama og fjölskylduljósmyndir
sími: 1-26-44
Ljósmyndstofa Kópavogs
sími 4-30-20
Ljósmyndastofan Mynd
sími 5-42-07
TÖKUM
HONDUM
SAMAK
Tökum höndum saman, leggjum grunn
aö framtíö fermingarbarnsins.
Gefum því íslensku alfræðiorðabókina
— háskóla heimilanna, bók sem
byggjandi er á.
Hugmynd að
fe rmingar gj öf
ORN OG ORLYGUR
Síðumúla 11 * Sími 84866
jk VNNVHWI3H HOHSVH - NIMQ8VQH0l03fifd1V VNSN31SI VNNV1IWI3H IIQNSVH • NINQSVGNOIOBfHJ1V VNSN31SI *
HÁSKÓLI HEIMILANNA tL
fSLENSKA ALFRÆOIORÐABÓKIN
HÁSKÓLi HEIMILANNA
ÍSLENSKA ALFRÆOIORDABÓKIN
• •
v r.
TOLVll- OC
l’rt \T1 IÍAR0RII
Prentaraborð, 20 371 010,
verðfrákr. 11.025.-
Þýsk gæðavara á
lágmarksverði fyrir
heimilið og skrifstofuna.
FAXAFENI 9 SIMI 679399 BREFASIMI 679344
c
c
r
L ,
i