Morgunblaðið - 12.03.1991, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
Skattafrumvarp:
Skattfrádráttur vegiia hluta-
bréfakaupa takmarkaður
Fækkun frádráttarliða - lægra skatthlutfall
ÓLAFUR Ragnar Grímsson fjármálaráðherra mælti á 74. fundi efri
deildar í gær fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um tekju- og
eignarskatt. I frumvarpinu eru breytingar sem félast í því að fækka
frádráttarliðum og undanþágum frá skatti, auk þess að breikka
skattstofninn en lækka jafnframt skatthlutfallið, m.a. er gert ráð
fyrir að hámark frádráttar vegna hlutabréfakaupa iækki úr Í25.925
krónum í 86.000 krónur.
í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að skatthlutfall fyrirtækja lækki úr
50% í 45%. Þá er gerð tillaga um
að verðbreytingarfærsla taki breyt-
ingum. Auk þess sem tillaga er
gerð um að lækka heimildir til að
leggja hluta af hagnaði í sérstakan
fjárfestingarsjóð úr 15% í 10%. í
frumvarpinu eru jafnframt gerðar
breytingar varðandi frádrátt vegna
hlutabréfaviðskipta og krafa gerð
um að viðkomandi eigi hlutabréfín
í minnst tvö ár áður en þau geti
nýst til skattafrádráttar.
í ræðu Ólafs Ragnars Gríms-
sonar fjármálaráðherra kom fram
að frumvarpið væri þáttur í þeirri
breytingu sem væri verið að gera
á íslenska skattkerfinu með hliðsjón
annars vegar af alþjóðlegri aðlögun
og hins vegar hjöðnun verðbólgu.
Ólafur Ragnar sagðist telja það
nauðsynlegt að breyta lögum um
skattlagningu fyrirtækja til að
minnkandi verðbólga kæmi ekki
fram í aukinni skattbyrði fyrirtækj-
anna.
Eyjólfur Konráð Jónsson
(S-Rv) sagðist fagna því að víðtækt
samkomulag væri orðið um þá
hugsun að hvetja fólkið í landinu
til að eiga hiutdeild í atvinnuvegun-
um. Eyjólfur Konráð gerði athuga-
semd við það að hámark frádráttar
vegna hlutabréfakaupa væri lækk-
að.
Danfríður Skarphéðinsdóttir
(SK-VI) sagðist heldur hefði kosið
að sjá frumvarp um hækkun skatt-
leysismarka eða frumvarp um ann-
að tekjuskattsþrep í stað umrædds
frumvarps. Hún sagði frumvarpið
lýsa því að atvinnulífið og fyrirtæk-
in gengju fyrir hjá ríkisstjórninni.
Einkavæðing í skógrækt:
Bændur vinni verkið
Þingsályktunartillaga Margrétar Frímannsdóttur
Þingsályktunartillaga Margrétar Frímannsdóttur (Ab-SI) um auk-
inn þátt bænda í landgræðslu- og skógræktarstarfi var samþykkt
i sameinuðu þingi í gær. „Alþingi ályktar að skora á landbúnaðar-
ráðherra að kanna möguleika á að auka þátt bænda í Iand-
græðslu- og skógræktarstarfi með því að þeir taki að sér verk-
efni sem núna eru unnin af ríkisstofnunum og jafnframt beiti
ráðherra §ér fyrir nauðsynlegum lagabreytingum í því skyni.“
Megintilgangur þessarar tillögu
er að benda á nýjar leiðir til að
styrkja búsetu í sveitum í kjölfar
þess samdráttar sem orðið hefur í
hefðbundnum búgreinum en jafn-
framt að benda á nýjar leiðir til að
bæta gróðurverndarstarfið á vegum
þess opinbera.
Tillögu Margrétar hafði verið vís-
að til atvinnumálanefndar 22. nóv-
ember síðastliðinn. Við síðari um-
ræðu mælti Arni Gunnarsson fyrir
áliti atvinnumálanefndar (A-Nv),
nefndin lagði til að tillagan yrði
samþykkt án breytinga.
Þingsályktunartillagan var ekki
frekar rædd við þessa síðari um-
ræðu en það hafði komið kröftug-
lega fram í framsöguræðu Margrét-
ar Frímannsdóttur fyrir tillögunni
í nóvember að hún taldi fátt mæla
á móti því að bændur tækju að
verulegu leyti við verkefnum sem
unnin væru af ríkisstofnunun.
Framsögumaður gerir ráð fyrir því
að bændur komi að ræktunarstarf-
inu sem verktakar en stofnanir rík-
isins sjái um stefnumótun og áætla-
nagerð og hafi faglega umsjón með
verkefnum. „Núna sjá Landgræðsla
ríkisins og Skógrækt ríkisins að
mestu um framkvæmdir í Iand-
græðslu og skógrækt. Það má jafn-
vel segja að Skógrækt ríkisins sé
að stórum hlut plöntuframleiðslu-
og plöntunarfyrirtæki í stað þess
að vera sá faglegi leiðbeinandi sem
gildandi lög um skógrækt gera ráð
fyrir. í dag er engin ástæða til þess
að ríkið sé með allar framkvæmdir
á eigin vegum.“
Skógræktin til endurskoðunar
í framsöguræðu Margrétar Frí-
mannsdóttur kom fram að það fyrir-
komulag sem nú er á á þessum
málum gæti jafnvel verið hemill á
eðlilega þróun. „Ef t.d. tölur um
starfsemi Skógræktar ríkisins eru
skoðaðar bera þær með sér að end-
urskoða þurfi starfshætti þeirrar
stofnunar. Heildarframlög ríkis-
sjóðs til skógræktar hafa aukist
jafnt og þétt síðastliðin 50 ár miðað
við fast verðlag. Framlög til skóg-
ræktar voru t.d. meira en þrefalt
hærri á þessu ári en þau voru fýrir
30 árum. Þessi auknu fjárframlög
virðast þó ekki hafa skilað sér í
aukinni gróðursetningu.“
Margrét Frímannsdóttir segir að
þessi tillaga feli ekki í sér aukin
fjárútlát fyrir ríkissjóð þar sem hér
sé að mestu um að ræða tilfærslu
á störfum og verkefnum sem núna
séu unnin á vegum ríkisins hjá
Landgræðslu ríkisins og Skógrækt
ríkisins. Margrét nefndi í framsögu-
ræðu sinni dæmi af bónda sem
framleiddi 200 þús. asparplöntur
fyrir rannsóknastöðina á Mógilsá,
„og fékk samkvæmt samningi 12
krónur fyrir plöntuna. Þá var opin-
bert verð Skógræktar ríkisins á
sams konar plöntum 18 kr., sem
er 50% hærra en bóndinn fékk, og
á verð Skógræktar ríkisins að vera
kostnaðarverð." Margrét sagði
einnig: „Og ríkissjóður sparaði rúm-
lega eina milljón með því að fá
bóndann til að framleiða í stað þess
að fela ríkisfyrirtækinu verkið.“
Stuttar þingfréttir
Búfjárhald
Frumvarp landbúnaðarráð-
herra um búfjárhaid var samþykkt
í neðri deild í gær sem lög frá
Alþingi. Tilgangur laga þessara
er að tryggja svo sem föng eru á
góða meðferð og aðbúnað búfjár
í samræmi við þarfir og að það
hafi ætíð nægilegt fóður og drykk.
Tilgangur laganna er einnig að
tryggja að við framleiðslu búfjára-
furða sé eingöngu notað hraust
og heilbrigt búfé.
Landbúnaðamefnd neðri deild-
ar lagði til að frumvarpið yrði
til um að nafn Setbergspresta-
kalls fengi að standa óbreytt eins
'og það háfi verið um aldir.
Grunnskólinn og
auglýsingamistök
Afdrif grunnskólafrumvarpsins
eru enn óráðin. Frumvarpið var
til 3. umræðu í neðri deild í gær
en varð ekki útrætt. Sjálfstæðis-
menn vilja enn sem fyrr að frum-
varpið verði endurskoðað en Sva-
var Gestsson menntamálaráð-
herra vill að það verði samþykkt
þessu þingi.
Við umræðuna í gær gagn-
rýndu sjálfstæðismenn harkalega
auglýsingar um frumvarpið og
birst höfðu í dagblöðum fyrir síð-
ustu helgi. Töldu þeir að mennta-
málaráðuneytið væri þar að aug-
lýsa og borga fyrir kosningaáróð-
ur menntamálaráðherra. Svavar
Gestsson menntamálaráðherra
sagði m.a. að í gangi væri kynn-
ingarátak, m.a. á vegum foreldra-
samtaka, og væri menntamála-
ráðuneytið aðili að þessu átaki.
En það að þessar auglýsingar
hefðu 'birst á sama tíma og Al-
þingi væri að fjalla um málið
hefðu hins vegar verið mistök.
Þær hefðu átt að koma seinna og
með talsvert öðrum hætti. Mennt-
amálaráðherra sagði að ekki væri
við neinn annan að sakast en sig.
Þingmenn ræddu grunnskóla-
frumvarpið nokkuð og Geir H.
Haarde (S-Rv) gerði grein fyrir
breytingartillögum. Málið var ekki
útrætt en með hliðsjón af því hve
skammt er til þingloka og harðri
andstöðu í þinginu er tvísýnt um
að frumvarpið hljóti afgreiðslu.
Vegrið
Þingsályktunartillaga frá Inga
Birni Albertsyni (S-VI) um áætlun
um uppsetningu vegriða var sám-
þykkt í sameinuðu þingi í gær.
„Alþingi ályktar að fela sam-
gönguráðherra að móta hið fyrsta
áætlun um uppsetningu vegriða í
vegakerfi landsins. Áætlunina
skal leggja fyrir Alþingi eigi síðar
en 1. nóvember 1991.“
Héraðsskógar
Frumvarp um héraðsskóga var
í gær samþykkt í efri deild sem
lög frá Alþingi. Tilgangur laganna
er að stuðla að ræktun nytjaskóga
á Fljótsdalshéraði og umhirðu
þess skóglendis sem þar er fyrir
og treysta byggð og efla atvinn-
ulíf á Héraði.
Mannanöfn
Frumvarp til laga um manna-
nöfn var afgreitt frá neðri deild
í gær. Frumvarpið var lagt fram
í efri deild. Það hefur tekið nokkr-
um breytingum í meðförum
beggja deilda. Frumvarpið fer nú
til einnar umræðu í efri deild.
Lækkun
húshitunarkostnaðar
Tillaga til þingsályktunar um
lækkun húshitunarkostnaðar þar
sem hann er hæstur og minnkun
aðstöðumunar var lögð fram í
efri deild í gær. Auknum jöfnuði
skal ná í þremur áföngum á næstu
tveimur árum, þannig að kostnað-
ur við hitun íbúðarhúsnæðis verði
ekki hærri en 5.000 krónur að
jafnaði á mánuði, miðað við verð-
lag í janúar 1991.
samþykkt með þeim breytingum
sem gerðar voru í meðferð efri
deildar. í efri deild höfðu nokkrar
breytingar verið gerðar, m.a. var
kveðið á um að graðhestar skyldu
vera í öruggri vörslu allt árið frá
16 mánaða aldri í stað 18 már.uða
eins og frumvarpið hafði upphaf-
lega gert ráð fyrir.
Setbergsprestakall
Setbergsprestakall í Eyrarsveit
á Snæfellsnesi hefur endurheimt
sitt gamla heiti. I gær var sam-
þykkt sem lög frá Alþingi frum-
varp Friðjóns Þórðarsonar (S-Vl)
um breytingu á lögum nr.
62/1990 um skipan prestakalla
og prófastsdæma og um starfs-
menn þjóðkirkjunnar.
Hinn 1. júlí 1990 gengu í gildi
ný lög um skipan prestakalla og
prófastsdæma og um starfsmenn
þjóðkirkju íslands. Samkvæmt
hinum nýju lögum var nafni Set-
bergsprestakalls breytt í Grundar-
fjarðarprestakall. Þessu vildu
sóknarbörn og sóknarprestur ekki
una, og fóru þess á leit við Frið-
jón Þórðarson að hann hlutaðist