Morgunblaðið - 12.03.1991, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐlÐ l>RH)Jt)DAGUR 12. MÁtö lððl
37
Harkalegar aðgerð-
ir slökkviliðsstjóra
- segir Stefán Sigurðsson um lokun
á Hótel Stefaníu
STEFÁN Sig-urðsson eigandi Hótels Stefaníu telur aðgerðir slökkviliðs-
stjóra, er hann innsiglaði hótelið vegna vanefnda varðandi öryggismál
í síðsutu viku, harkalegar. Unnið hafi verið að úrbótum er hótelinu
var lokað og vantaði einungis herslumuninn á að tækist að ljúka þeim.
Stefán segir að eldvarnir á hótel-
inu hafi verið góðar, viðvörunarkerfí
sé í hverju herbergi og á hverjum
gangi hótelsins sem tengt er beint á
slökkvistöð, þá séu þrjár útgöngu-
leiðir á hverri hæð hússins og ekki
fleiri en 12 herbergi á hverri hæð.
Þá séu að sjálfsögðu bruiiaslöngur á
hverri hæði og froðutæfei.
„Þetta eru ansi harkalegar aðgerð-
ir, manni þykir slæmt að fá ekki einn
sólarhring til að ljúka þessu, en það
var verið að vinna í því að koma upp
hurð og skiltum til að uppfylla kröf-
ur. Þessi lokun skaðaði viðskipti okk-
ar, fólk hélt jafnvel að ekki væri
óhætt að búa á hótelinu, sem er reg-
infirra. Þannig að þetta kom óþægi-
lega við okkur og manni hefði fund-
ist í lagi að bíða einn sólarhring, en
það var sá tími sem við þurftum til
að Ijúka verkinu," sagði Stefán.
Þá benti hann á að á mörgum stöð-
um í bænum væpu eldvarnir síst til
fyrirmyndar, en þó væri ekkert gert
í því, m.a. ætti þetta við um Heima-
vist Menntaskólans á Akureyri sem
rekin væri sem hótel á sumrin.
Byg’gingafyrirtækið Haraldur og
Guðlaugur úrskurðað gjaldþrota
Byggingafyrirtækið Haraldur og Guðlaugur var úrskurðað gjald-
þrota hjá embætti bæjarfógeta á
eigendur fyrirtækisins lögðu fram
sýnt þótti að það gæti ekki staðið
Hlutafélagið Haraldur og Guð-
laugur hf. var stofnað árið 1987, en
hafði um nokkurra ára skeið verið
starfrækt sem sameignarfélag. Fé-
lagið hefur staðið fyrir allumsvifa-
mikilli starfsemi á Akureyri síðustu
ár.
Helstu eignir þrotabúsins eru fas-
teign við Kleifargerði, verkstæði,
Akureyri í gærmorgun. Stjórn og
beiðni þar um á föstudag, þar sem
í skilum með skuldbindingar sínar.
tveir bílar, byggingakrani, húsnæði
við Dalsbraut 1, þar sem Álafoss var
áður með starfsemi, auk lausamuna,
véla, tækja og áhalda af ýmsu tagi.
Hjá fyrirtækinu störfuðu 12 smið-
ir og verkamenn. Unnið var að ýms-
um verkefnum hjá fyrirtækinu, m.a.
við íbúðabyggingar í Tröllagili.
Krossanesverksmiðjan:
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Að drullumalla
Þetta unga fólk af Oddeyrinni var að drullumalla af hjartans lyst
einn góðviðrisdaginn fyrir skömmu og áhorfendur létu sig ekki vanta,
en þeir fylgdust með af miklum áhuga.
Kannað hvort grundvöllur
er fyrir rækjuskelvinnslu
Vel þess virði að hefja slíka vinnslu ef hún stendur undir sér, segir framkvæmdastj óriiin
Drengnr
slasaðist
SJO ára drengur rann til og hras-
aði er hann var að koma út úr
skólabíl með þeim afleiðingum
að hann klemmdist á milli gang-
stéttarbrúnar og afturhjóls bif-
reiðarinnar. Hann meiddist lítil-
lega.
Drengurinn var að koma úr
skólabílnum við Síðuskóla við
Bugðusíðu er atburðurinn átti sér
stað. Drengurinn rann til og hras-
aði eftir að hann var kominn út úr
bílnum með fyrrgreindum afleiðing-
um. Að sögn lögreglu var hann
fluttur á slysadeild FSA, en meiðsl
hans ekki talin mikil.
-----t-f-t-
Miklar
skemmdir -
í tveimur
innbrotum
BROTIST var inn á tvo staði á
Akureyri um helgina, Barna-
skóla Ákureyrar og Skipasmiða-
stöðina Vör við Óseyri. Lítið
hafðist upp úr krafsinu, en mikl-
ar skemmdir voru unnar á báðum
stöðum.
Farið var inn í Bamaskólann
aðfaranótt laugardag og þeir sem
það gerðu sprengdu upp glugga á
suðurgafli hússins. Rótað var í
skápum kennara og ýmsu lauslegu
dreift um allt auk þess sem
skemmdir voru unnar innandyra,
m.a. á munum. Engu var stolið-í
innbrotinu.
Þá var einnig brotist inn í Skipa-
smíðastöðina Vör við Óseyri og
unnar þar miklar skemmdir. Þeir
sem þar voru á ferðinni víluðu ekki
fyrir sér að færa stóran og þungan
peningaskáp á milli hæða í húsinu.
Skápurinn var opnaður með logsuð-
utæki, en gripið var í tómt, þar sem
engir fjármunir voru í skápnum.
Að sögn varðstjóra lögreglunnar
var málið óupplýst i gær.
ÁKVÖRÐUN um livoi-t farið verður út í vinnsiu á rækjuskel hjá
Krossanesverksmiðjunni verður tekin fljótlega, en nú er verið að
skoða ýmsa þætti málsins, rekstrargrundvöll, fjármögnun og fleira.
Verksmiðjan tók á móti umtalsvert minna magni af loðnu á nýlið-
inni vertíð en áður.
Jóhann Pétur Anderssen fram-
kvæmdastjóri Krossanesverksmiðj-
unnar sagði að tekið hefði verið á
móti alls 3.900 tonnum af loðnu á
þessari vertíð. Verksmiðjan fékk
fyrir áramót um 1.200 tonn af loðn-
um og eftir ármótin bárust henni
um 2.700 tonn. „Þetta er mun
minna en við höfum fengið á síð-
ustu árum, en það þýðir samt ekki
annað en vera bjartsýnn, þetta get-
ur varla annað en lagast úr þessu,“
sagði Jóhann Pétur.
Bein er brædd í verksmiðjunni
tvo daga í viku, en að öðru leyti
vinna starfsmenn að ýmsum verk-
efnum við frágang og viðhald.
Um skeið hefur verið í athugun
hvort hagkvæmt er að hefja vinnslu
á rækjuskelmjöli og sagði Jóhann
Pétur að nú færi að styttast í að
ákvörðun yrði tekin, af eða á. Ver-
ið er að kanna rekstrargrundvöll
slíkar vinnslu, markaðsmál og fjár-
Curling-íþróttin kynnt
Aðilar frá alþjóða curling-sambandinu kynntu
íþróttina á Akureyri á dögunum, en þeir eru á
ferð í löndum þar sem þessi íþrótt hefur lítið
eða ekki verið stunduð. Hermann Sigtryggsson
íþróttafulltrúi sagði að skilyrði til að stunda
íþróttina væri ekki sérlega góð hér á landi, en
hana þyrfti helst að stunda innanhúss. Curling
er þannig, að tvö lið eru á vellinum, fjórir í
hvoru liði og hafa átta granitsteina er vega
21 kíló, sem þeir reyna að koma sem næst
ákveðnum miðpunti, en leikurinn gengur einnig
út á að koma steinum andstæðinganna sem
fjærst þessum punkti. Leikið er á svelli, en leik-
menn eru þó ekki á skautum heldur skóm. Á
myndinni eru þau Soffia Ólafsdóttir Wallace
og dr. Tomas M. Wallace frá Kanada, en Soff-
ia á ættir að rekja til íslands. I efri röð eru
Hermann Sigtryggsson, Baldvin Grétarsson,
Sigurður Magnússon, Pat Bannermann frá
Lúxemborg og Sigurgeir Haraldsson.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
mögnun, en fjárfesta þarf í nýjum
tækjabúnaði fyrir vinnsluna verði
af því að hún hefjist.
„Við vitum að þetta er engin
gullnáma, en hins vegar er að mínu
mati vel þess virði að hefja þessa
vinnslu ef hún stendur undir sér,“
sagði Jóhann Pétur, en rækjuskel-
inni hefur verið dælt í sjóinn fram
til þessa. Á milli þrjú og fjögur
þúsund tonn falla til árlega á Eyja-
fjarðarsvæðinu og sagði Jóhann
Pétur að yrði hafmn vinnsla á rækj-
uskelinni myndi það verða til bóta
fyrir unhverfíð, það yrði því já-
kvætt ef þessi vinnsla hæfist hjá
fyrirtækinu.
Verði af umræddri vinnslu þarf
að fjárfesta í nýjum tækjabúnaði
til vinnslunnar og sagði Jóhann
Pétur að verið væri að leita eftir
þeim bæði hér heima og einnig er-
lendis. Búast má við að vinnsla
geti hafist í júní gangi allt upp.
hljómflutningstæki
Gæða tæki ó góðu verði,
eins og lesa mó um í
virtum fagtímaritum.
Sendum upplýsingar
hvert ó land sem er.
HafiA samband viA
Sími (96) 23626 Glerörgötu 31, Akureyri
Jörð til sölu
Tilboð óskast í jörðina Þorbrandsstaði í Vopnafirði.
Laxveiðiréttindi í Hofsá.
Upplýsingar veittar í síma 96-21883 kl. 17-19 næstu tvær vikur.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.