Morgunblaðið - 12.03.1991, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
43
Endursýnum
þætti Ingímars
eftirAra Skúlason
Undanfarnar vikur hafa verið
sýndir fræðsluþættir í sjónvarpinu
undir stjórn Ingimars Ingimars-
sonar um breytingarnar í Evrópu.
Þættir þessir hafa valdið töluverðu
ijaðrafoki meðal stjórnmálamanna
og einnig hafa forsvarsmenn sjáv-
arútvegs og fiskvinnslu séð
ástæðu til þess að fetta fingur út
í efnistök Ingimars.
Ég hef unnið töluvert að þessum
málum og hef þar af leiðandi séð
alla þessa þætti. Ég á mjög erfitt
með að sjá að ásakanir um hlut-
dræg efnistök Ingimars hafi við
rök að styðjast. Mér finnst hann
hafa komið að þessu máli á annan
hátt en venjulegt er að gera hér
á landi. í stað þess að einskorða
sig við svokallaðar hættur \ sam-
bandi við aukna þátttöku Islend-
inga í samvinnu Evrópuríkja hefur
hann skoðað málið frá fleiri hliðum
og velt upp mörgum athyglisverð-
um sjónarhornum.
Mín skoðun er sú að hefðbundin
umræða um þessi mál hér á landi
sé á talsverðum villigötum. Um-
ræðan snýst eðli málsins sam-
kvæmt aðallega um fisk og sjávar-
útvegsmál, en einnig koma mjög
oft fram ýmis sjónarmið um hætt-
una á því að við missum sjálfstæð-
ið og týnumst í hinni stóru Evr-
ópu. Margir aðrir mikilvægir þætt-
ir þessa máls eru lítið ræddir.
Umræðan um Evrópumálin er
líka áð töluverðu leyti einokuð af
stjórnmálamönnum og hagsmuna-
aðilum í sjávarútvegi. Það fer ekki
hjá því að manni komi stundum
til hugar að þessir aðilar telji sig
eiga þetta mál. Enda hefur raunin
orðið sú að þegar andað er á móti
viðteknum skoðunum þessara að-
ila sem telja sig eiga málið, þá er
strax farið að tala um hlutdrægan
málflutning, skoðanakúgun
o.s.frv.
Val okkar á því hvaða afstöðu
við tökum til breytinganna í Evr-
ópu er eitthvert mikilvægasta mál
sem við þurfum að takast á við á
næstunni. Mér finnst umræðan um
þessi mál hjá okkur vera alltof lít-
il og á allt of þröngu sviði. Spurn-
ingin er hvort okkur duga sam-
þykktir Fiskiþings um að aðild að
EB komi ekki til greina eða um-
mæli forsætisráðherra um að inn-
ganga ísl'ands í EB sé það versta
sem gæti hent íslenskan þjóðarbú-
skap. Ég held að íslenskir þegnar
eigi skilið að fá ítarlegri umræðu
og betri upplýsingar um þetta
mál. Tíminn er skammur vegna
þess að innan nokkurra mánaða
verður e.t.v. búið að skrifa undir
Ari Skúlason
„Umræðan um Evrópu-
málin er líka að tölu-
verðu leyti einokuð af
stjórnmálamönnum og
hagsmunaaðilum í sjáv-
arútvegi. Það fer ekki
hjá því að manni komi
stundum til hugar að
þessir aðilar telji sig
eiga þetta mál.“
samning um svokallað Evrópskt
efnahagssvæði sem fáir vita hvað
inniheldur og við höfum ekkert of
langan tíma til þess að kynna
okkur áður en við verðum að segja
af eða á.
Ég er viss um að margir hafa
misst af þessum umdeildu þáttum
Ingimars, áhuginn á þessu máli
hefur ekki verið mjög mikill. En
vegna umrótsins um þættina hefur
áhugi vaknað og þess vegna þyrfti
helst að sýna alla þættina aftur
til þess að fleiri hafi möguleika á
því að sjá þetta áhugaverða efni.
Þá getur fólk líka sjálft tekið af-
stöðu til þess hvort hér er um svo
einhæfa málsmeðferð að ræða sem
af er látið. Ég held að íslenskir
stjórnmálamenn verði að treysta
þjóðinni til þess að sjá hlutina frá
annarri átt en þeir vilja helst að
horft sé úr. í því felst skoðanafrel-
sið einmitt.
Höfundur er hagfræðingur hjá
ASÍ.
10. leikvika - 9. mars 1991
Röðin : 211-212-X11-222
HVERVANN?
1.826.824- kr.
12 réttir: 0 raðir komu fram og fær hver: 0-kr.
11 réttir: 4 raðir komu fram og fær hver: 78.983 - kr.
10 réttir: 53 raöir komu fram og fær hver: 5.961 - kr.
Þrefaldur pottur - næst!!
ÞU FÆRÐ
FERMINGARPÖTIN
Á DRENGINN
HJÁ OKKUR
//
H6RRRRIKI
SNORRABRAUT 56
C13505
TÍDKAST ÓVÖNDUÐ
VINNUBRÖGÐ í RAFLÖGNUM?
Félag íslenskra rafvirkja heldur fund um vinnubrögð í raflögnum þriðjudaginn 12.
mars kl. 19.30 í Félagsmiðstöð rafiðnaðarmanna, Háaleitisbraut 68, 3ju hæð.
Fundurinn hefst á fyrirlestrum frá Rafmagnseftirliti, Ákvæðisvinnustofu, rafhönn-
uðum, rafverktökum og rafvirkjum.
Rafvirkjar, rafverktakar, rafhönnuðir og rafiðnaðarkennarar eru hvattir
til að mæta.