Morgunblaðið - 12.03.1991, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
49
jafnaðargeði. Hann fékk sér upp-
tökutæki og talaði inn á hljómbönd
og geymast nokkrir þættir í þeim
búningi. Þegar svona var komið
fékk Kjartan inni á dagvistarheimil-
inu við Dalbraut og naut þar góðr-
ar aðhlynningar starfsfólks og fé-
iagsskapar margra gesta er víða
voru að komnir. Þeir voru margir,
vinir og kunningjar, sem styttu
honum daginn, og ber þar sérstak-
lega að geta Árna Björnssonar hús-
asmiðs, granna hans og nema, og
konu hans sem reyndust honum
hjálpsöm á marga lund.
Þótt Kjartan færi að heiman 19
ára gamall og væri búsettur á
Reykjavíkurmölinni í nær sex ára-
tugi, var hugur hans bundinn sterk-
um böndum við átthagana norður
í Þistilfirði og þangað lagði hann
leið sína hvenær sem hann gat kom-
ið því við. Hann fylgdist grannt
með mannlífi þar nyrðra, sveitung-
um sínum, skyldfólki og afkomend-
um þeirra og var engu líkara en
hann hefði aldrei farið að heiman
svo nátengdur var hann sveit sinni
og fólki. Um hann má segja eins
og Þorlák afa hans að römm er sú
taug.
A þessari skilnaðarstund færum
við Kjartani Ólafssyni hugheilar
þakkir fyrir samfylgdina, liðsinni
hans i mörgu og fræðin fróðu.
Jón Guðnason
Kristín Halldórs-
dóttír - Kveðjuorð
Fædd 20. nóvember 1913
Dáin 22. febrúar 1991
Vinkona mín, Kristín Halldórs-
dóttir, var jarðsungin frá Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði sl. þriðjudag.
Þótt aldursmunur væri nokkur varð
vinskapur okkar góður strax við
fyrstu kynni. Sjálf sagði hún ein-
hvern tíma við mig að hún ætti
ekki auðvelt með að kynnast fólki.
Ég svaraði því til að okkar kynni
hefðu tekist fljótt og vel. „Það er
ekkert að marka þig, ég þekkti þig
áður en ég kynntist þér“, svaraði
hún þá. Mér þótti þetta gott og
skemmtilegt svar, en þarna vísaði
hún til tengdadóttur sinnar og son-
ar en í gegnum þau vissum við
hvor af annarri áður en við hitt-
umst. Kristín var sterk persóna,
mikil fjölskyldumanneskja og mikill
vinur vina sinna. Sá sem var svo
heppinn að verða vinur hennat'
þurfti ekkert að velkjast í vafa,
hann gat verið öruggur um vináttu
hennar og tryggð.
Aldrei heyrðist hún kvarta eða
Skrifstofutækni
Fyrir aðeins kr. 4750' á mánuði.
Námið kemur að góðum notum í atvinnuleit. Einungis
eru kenndar námsgreinar sem nýtast þegar út á
vinnumarkaðinn er komið. Til dæmis:
Bókfærsla
Tölvubókhald
Ritvinnsla
Tollskýrslugerð
Verslunarreikningur
*
Verðið miðast við skuldabréf til tveggja ára. ^
Tölvuskóli Islands
Sími: 67 14 66, opið til kl. 22
_Dale .
Carnegie
þjálfun
Ræðumennska og mannleg samskipti.
Kynningarfundur
Verður haldinn fimmtudagskvöld kl. 20:30 að
Sogavegi 69, gengið inn að norðanverðu.
Námskeiðið getur hjálpað þér að verða betri
ræðumaður og þjálfað þig í mannlegum sam-
skiptum. Lífskrafturinn verður meiri og þú
heldur áhyggjunum í skefjum og byggir upp
meira öryggi. Allir velkomnir.
Fjárfesting í menntun
skilar þér arði ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma: 82411
0
STJORIMUIMARSKÓLIIMIM
Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie námskeiðin"
Þá sagðist hún vonast til að mál
skipuðust þannig að hún gæti sjálf
ráðið sinni kaffikönnu. Það fór líka
svo, að allt til loka bjó hún á eigin
heimili. Hún átti stóra og góða fjöl-
skyldu sem henni þótti ákaflega
vænt um og víst er að fjölskyldan
bæði elskaði hana og virti. Það var
gott að koma til Kristínar, lundin
var létt, viðmótið hlýtt, já manni
var alltaf tekið opnum örmum í
bókstaflegri merkingu. Hún var
umburðarlynd, dæmdi ekki og
reyndi að finna jákvæðu hliðarnar
á hveiju máli og gleðjast yfir því
sem gott var. Síðustu misseri hefur
verið æði skammt milli kveðju-
stunda fólks sem maður hefur
þekkt, þótt vænt um og verið sam-
ferða megnið af sínu lífi. Sú hugsun
er býsna áleitin að manni beri að
hlúa betur að mannlegum sam-
skiptum og gefa tíma meðan tími
er til. Ég sakna Kristínar minnar
og kveð hana með virðingu og þökk.
Elsa Óskarsdóttir
Blömastofa
FriÖjinns
Suöurlandsbraut 10
108 Reykjavtk. Sími 31099
Opið öllkvöld
til kl.22,-einnigum helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
vera með svartsýnistal, jafnvel ekki
í þeirri óvissu sem. þau stóðu
frammi fyrir þegar gaus í Eyjum.
Jitargtiit*
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
Gtugga-
grindur
^ úr fúm
með færanlegum rimluin
HURÐIR HF
Skeifan 13 •108 Reykjavík-Sími 681655
FLUGLEIDIR
Aðalfundur Flugleiða hf.
Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn fimmtudaginn 21. mars 1991 í
Höfða, Hótel Loftleiðum, og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf. skv. 10. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Tillaga um breytingu á 4. gr. samþykkta félagsins um heimild
til stjórnar til að hækka hlutafé með sölu nýrra hluta.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar
í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins, munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á aðalskrif-
stofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli, hlutabréfadeild á 2. hæð, frá og
með 13. mars nk. frá kl. 09:00 til 17:00 og fundardag til kl. 12:00.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna sinna fyrir
kl. 12:00 á fundardegi.
Stjórn Flugleiða hf.