Morgunblaðið - 12.03.1991, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
In memoriam:
Ingebrigt Davik
Fæddur 13. apríl 1925
Dáinn 29. janúar 1991
Það var á sólbjörtum sumardegi
árið 1940 að fundum okkar Inge-
brigts bar fyrst saman á Akureyri.
Þá hafði ísland fyrir stuttu verið
hernumið af Bretum og úði allt og
grúði af hermönnum með byssu um
öxl. Þeir voru komnir hingað til
þess að vera á undan þýskum nas-
istum sem óðu yfir lönd Evrópu
með vopnavaldi eins og kunnugt
, er. Þegar Þjóðvetjar hertóku Suður-
' Noreg lögðu foreldrar Ingebrigts,
sem bjuggu í Noregi, á flótta með
börn sín og fjölskyldur þeirra til
íslands með viðkomu í Færeyjum.
Faðir Ingebrigts var skipstjóri á
eigin skipi, Koralen. Á styijaldar-
árunum var hann í flutningum fyr-
ir herinn hér á landi. Nokkru eftir
að Koralen kom til Akureyrar fengu
foreldrar Ingebrigts, ásamt bömum
sem ekki voru flutt að heiman,
ágæta íbúð hjá Hélga Pálssyni á
Spítalavegi 8. Þar bjuggu þau þar
til Þjóðvetjar töpuðu stytjöldinni
árið 1945.
Þegar við Ingebrigt kynntumst
ákváðum við að kenna hvor öðrum
* móðurmál hins, en það fór minna
fyrir norskukennslunni vegna þess
að það mátti búast við að dvalartími
hans yrði nokkur ár og því nauðsyn-
Iegt að komast inn í íslenskuna.
Tæpu ári seinna, þ.e. 1941, ákváð-
um við í sameiningu að fara í
Menntaskólann á Akureyri. Fyrst í
stað las ég með honum þau fög á
íslensku sem hann þurfti að fá til-
sögn í, einnig aðstoðaði Ingvar Gísl-
ason, síðar menntamálaráðherra,
hann þegar þess þurfti með. Inge-
.brigt var mjög fljótur að laga sig
að öllum aðstæðum í skólanum,
enda samviskusamur og ágætur
námsmaður.
Hann var músíkalskur og lék vel
á harmoníku og gítar sem hann
hafði með sér að heiman.
Árin liðu fljótt við nám og leik á
vetuma en vinnu á sumrin. Þegar
BLÓM
SEGJA ALIT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sfmi689070.
Legsteinar
Framleiðum allar
stærðir og gerðir
af legsteinum.
Veitum fúslega
upplýsingar og
ráðgjöf um gerð
og vai legsteina.
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI48. SIMI76677
við vorum að bytja í vorprófum
árið 1945 í 4. bekk í MA kom til-
kynning í útvarpi að Þjóðvetjar
væru að gefast upp og hefðu tapað
styijöldinni. Vinur minn varð eitt
sólskinsbros og lét ekki sjá sig
meira í prófunum, en kvaðst mundu
drífa sig strax til Brattvág, Ále-
sund, sem var heimili þeirra í Nor-
egi. Við þetta tafðist hann um eitt
ár í námi og lauk stúdentsprófi
1948 og kennaraprófí síðar. Fyrstu
árin eftir kennarapróf var hann að
mestu leyti við kennslu, en samtím-
is því samdi hann lög, texta og leik-
rit fyrir börn, en þekktasta leikrit
hans er Taremareby sem frumsýnt
var í Det norske teatret í Osló árið
1966 og gekk í lengri tíma. Hluti
af leikritinu var fluttur í Ríkisút-
varpinu hér.
Margar plötur og bækur hafa
verið gefnar út eftir hann og sumar
bóka hans hafa verið þýddar á önn-
ur tungumál. Ingebrigt var mjög
ánægður með íslenska þýðingu
Kristjáns frá Djúpalæk, en Kristján
var honum góður vinur.
Síðari árin vann hann hjá útvarpi
og sjónvarpi þar sem hann sá um
barnaþátt. Hann var duglegur að
skrifa vinum og kunningjum hér
heima. Ræktarsemi hans við aldr-
aða foreldra mína, meðan þeir lifðu,
sýndi hann með því að hafa reglu-
legt samband með bréfum og kort-
um þar sem hann ávarpaði þá sem
kæra foreldra sína á íslandi.
Ingebrigt kvæntist Marit Lange
f. Kjellesvig árið 1965. Þau eignuð-
ust einn son, Kjell Inge, og tvær
dætur, Inger Johanne og Siri. Mar-
it er listfeng kona og hefur haldið
málverkasýningar víðsvegar um
Noreg.
Þegar við hjónin heimsóttum þau
á þeirra fallega heimili í Osló í aprfl
á síðasta ári var Ingebrigt farinn
að hressast mikið eftir hjartaaðgerð
sem gerð hafði verið á honum
nokkrum mánuðum áður. Við sát-
um yfir kræsingum og rifjuðum upp
skemmtileg atvik frá skólaárunum
og lék Ingebrigt þá á als oddi, en
ég fann að orkan var ekki í líkingu
við það sem hún hafði verið.
Þegar dóttir mín, Margrét Rósa,
hringdi frá Osló og tilkynnti mér
andlát Ingebrigts setti mig hljóðan
og ljúfar minningar, sem ekki
gleymast, komu upp í hugann.
Fjölskylda mín, bekkjarsystkini
og aðrir vinir á íslandi senda Marit
og börnunum hugheilar samúðar-
kveðjur.
Grímur M. Björnsson
Látinn er í heimaborg sinni, Osló,
Ingebrigt Davik, barnabókahöfund-
ur og útvarps- og sjónvarpsmaður,
gagnfræðingur frá Menntaskóian-
um á Akureyri 1944, vinur og fé-
lagi okkar margra sem með honum
voru á þeirri tíð. Hann andaðist
29. f.m. og var jarðsettur 7. febrú-
ar.
Þótt liðið sé langt á fimmta tug
ára síðan leiðir skildi með Ingebrigt
og okkur fornvinum hans á Akur-
eyri vorið 1945, um það bil sem
fjórði bekkur var að ljúka prófum,
verður allt eins og í gær að rifja
upp þá daga og ánægjulega sam-
veru í skólanum vetur eftir vetur.
Síst var nýlunda, að Menntaskól-
inn á Akureyri drægi að sér nem-
endur af öllum landshornum og
hristi saman í hópa sem aldrei hafa
sundrast með öllu, þótt hver gengi
sína leið að lokum. En fátítt var
að útlendingar kæmu þar við sögu
og samlöguðust eins og skólinn
hafði lag á að koma til leiðar um
samlanda, sem auðvitað var enginn
merkjanlegur upprunamunur á,
þótt víðsvegar væru af landinu,
Ingebrigt Davik átti sér annað
heimaland, hann var sýnu lengra
að kominn, unglingur úr sjávar-
plássi á Vesturlandinu norska, ekki
ljarri Álasundi. Hann bar að landi
á Akureyri með óvenjulegum hætti
á tímum heimsstyijaldar. Faðir
hans var skipstjóri og eigandi
myndarlegs fiskibáts, kannske
70-80 lesta. Hann tók það til ráðs,
gamli Davik, þegar Þjóðveijar
höfðu hernumið Noreg að pakka
öllu sínu fólki um borð í Koralen
(en svo hét skipið) og hélt í sam-
floti við annað skið og aðrar fjöl-
skyldur út til hafs, fyrst hafði ver-
ið fyrirhugað að fara til Norður-
Noregs, en þeirri ákvörðun breytt
og stefnt til Færeyja, þar sem hafst
var við nokkra mánuði, en þaðan
til íslands, þar sem þessar norsku
sjómannafjölskyldur áttu hæli til
stríðsloka.
Foreldrar Ingebrigts komu sér
allvel fyrir í íbúð í húsi Helga Páls-
sonar við Spítalaveg, en yfirleitt
urðu Norðmennirnir að gera sér
þröngbýli að góðu. Karlamir voru
annars á sjó, því að skipin voru
leigð hernámsliði Breta og Banda-
ríkjamanna til flutninga í hers
þágu.
Þótt Ingebrigt væri með sanni
af víkingum kominn ætlaði hann
t
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
ANNA ÁSTVEIG BJARNADÓTTIR,
Njörvasundi 9,
lést þann 9. mars sl. Jarðarförin auglýst síðar.
Karl Sveinsson og börn.
Þetta er minningarkort
Slysavarnarfélags íslands
Skrifstofan sendir þau bæði
innanlands og utan.
'Þau fást með enskum, dönskum eða
þýskum texta.
Sími SVFÍ er 27000.
Gjaldið er innheimt með gíró.
sér annað hlutskipti en faðir hans,
bræður og mágar. Hann vildi ekki
láta aðstæður koma í veg fyrir að
hann kæmist í menntaskóla. Þegar
hann hafði náð sæmilegum tökum
á íslensku hóf hann nám í MA
haustið 1941 og varð að lokum svo
fær í málinu að það var honum
ekki til hindrunar, enda að upplagi
góður námsmaður og eftir því
ástundunarsamur. í okkar hópi skar
hann sig ekki úr um annað en það
sem honum var betur gefið en
ýmsum öðrum, að vera listrænn og
músíkalskur. Hitt er annað að ís-
landsdvölin var honum ekki sú
hvatning eða stoð á því sviði sem
hann hefði kosið sér. Ég man að
hann sagði stundum við mig þegar
ég var að pæla með honum í gegn-
um erfiða íslenska texta og oftast
forna og ekki síður þegar hann
neyddist til að skrifa íslenska og
danska stíla, að hann hefði áhyggj-
ur af því að fara á mis við formlegt
norskunám á þessum mótunarárum
sem æskuskeiðið er, því að hann
fann þá þegar hjá sér köllun til að
verða meira en sendibréfsfær á
móðurmáli sínu eða sæmilega
mæltur til daglegs brúks. Hann var
skapandi listamaður í sér og skáld.
Að öðru leyti gagnaðist honum ver-
an í MA ágætlega. íslandsdvölin
veitti honum auk þess lífsreynslu
sem hann kunni vel að meta þá og
síðar og var síst hversdagsleg.
Ingebrigt lauk gagnfræðaprófi
vorið 1944 og settist í fjórða bekk
um haustið. Námið stundaði hann
fram á vor, en því augljósara sem
það varð að styrjöldinni var að ljúka
og Noregur yrði bráðlega fijáls
missti hann alla eirð til að lesa
undir bekkjarpróf — sem var ann-
ars ólíkt honum — og mig minnir
að hann lyki því ekki, enda héldu
fólki hans nú engin bönd að kom-
ast heim. Koralen lagði í haf eins
og hann hafði gert fimm árum fyrr
og nú heim til Brattvág. Þetta hafði
verið löng útilega.
Ingebrigt hélt áfram mennta-
skkólanámi eftir að heim kom, tók
stúdentspróf frá nýmáladeild, en
lauk síðar kennaraprófi. Hann nam
auk þess leiklist og starfaði nokkuð
við Ieikhús, en kennsla var lengst
af hans aðalstarf. Hann fór snemma
að semja sögur, söngvísur, lög og
leikrit handa börnum og gerði þætti
sem hann flutti sjálfur í barnatím-
um í útvarpi og sjónvarpi, og varð
af þessum verkum þjóðkunnur í
heimalandi sínu. Ýmis verk hans
hafa verið þýdd á önnur tungumál,
þ. á m. íslensku. Sjálfur hefur hann
komið fram í bamatímum Ríkisút-
varpsins, þegar hann hefur verið
hér á ferð, og mun ýmislegt eftir
Ingebrigt vera til í fórnum útvarps-
ins. Frægasta barnaleikrit Inge-
brigts Daviks er Taremareby, sem
fór frægðarför um Noreg og reynd-
ar nágrannalöndin, þótt það væri
aldrei flutt í fullri lengd á íslandi,
heldur í styttri gerð í barnatímum
útvarpsins undir nafninu Marar-
þaraborg. Hulda Valtýsdóttir átti
mestan hlut að þessum íslenska
flutningi, en Kristján frá Djúpalæk
þýddi söngtextana með mikilli
prýði. Var Ingebrigt afar þakklátur
Huldu og Kristjáni fyrir framlag
þeirra til kynningar á verkum hans.
Mig hefur alltaf undrað og aldrei
skilið hvers vegna Mararþaraborg
var ekki tekin til flutnings í íslensk-
um leikhúsum. Þar hefði það þó
notið sín, þar sem sögusviðið er
eins íslenskt sem það er norskt,
sjálft lífríki netlaganna og gmnn-
miðanna gert að ævintýraheimi.
Ingebrigt sleit aldrei þráðinn við
ísland, einkum að því leyti sem
hann var í mjög nánu sambandi við
bekkjarbróður sinn, Grím Björns-
son, og náið vinafólk á Akureyri.
Það var líka nokkuð seigt í kynnum
okkar Ingebrigts eftir því sem rækt-
arsemi mín gat hrokkið til. Síðast
fékk ég frá honum línu um jólin
og kvartaði hann þá undan veikind-
um, sem höfðu bagað hann í meira
en ár, hafði fengið hjartaáfall. Ekki
gmnaði mig samt að Grímur ætti
eftir að segja mér andlát hans, því
að satt að segja var ég að bíða eft-
ir bréfí frá honum að gefnu sér-
stöku tilefni frá mér, þótt ekki
væri það mikils háttar.
Ingebrigt Davik var fæddur í
Brattvág 13. apríl 1925. Eins og
áður segir var faðir hans skipstjóri
og útgerðarmaður á fiskiskipi.
Fiskimenn í Brattavogi vom vanir
löngum útilegum á sjó, sóttu veiðar
allt til Grænlands, stunduðu síld-
veiði við ísland og nýttu jafnvel
fisktegundir í Atlantshafi sem Is-
lendingar hefðu kallað tros. Þetta
vora hugaðir og framtakssamir
menn, en háðu býsna harða lífsbar-
áttu. Þótt Ingebrigt kysi sér annan
starfsvettvang átti hann rætur í
þessu sérstæða menningarsamfé-
lagi sjómanna í útilegubátum. Þess-
ir menn voru að vísu langtímum
saman að heiman, en eigi að síður
heimakærir og reglusamir. Inge-
brigt var einnig heimakær í eðli
sínu og reglusamur að upplagi, en
hafði í sér heilmikið af náttúm
trúbadúrsins sem nýtur þess að
ferðast og syngja eigin vísur undir
fmmsömdum lögum við undirspil
lútu sinnar. Það er í rauninni hin
eina frambærilega skáldatilvera.
Kannske var það þess vegna að
hann kvæntist fremur seint, en
hjónaband hans, þegar þar að kom,
og barnalánið á fallegu heimili við
Munkemdsásen 26 í Osló í einu af
þessum hlýlegu, norsku timburhús-
um frá fyrri hluta aldarinnar, var
þó sú tilvera sem hæfði sviðsmann-
inum Ingebrigt Davik best, enda
kunni hann sér ekki læti í því hlut-
verki.
Við gömlu skólafélagamir á Ak-
ureyri minnumst Ingebrigts með
hlýju, fráfall hans vekur söknuð
eftir góðan vin og eftirsjá eftir
æskutíðinni. Við þökkum honum
fornan félagsskap, sem er að vísu
löngu liðinn, en reynist dijúgur í
minningunni. Eftirlifandi eiginkonu
hans, Marit Lange Davik, og börn-
um þeirra þremur em færðar inni-
legustu samúðarkveðjur íslenskra
vina.
Ingvar Gíslason
t
Ástkær eiginmaður minn,
ÞÓRÐURPÁLMASON
fyrrv. kaupfélagsstjóri, Borgarnesi,
til heimilis á Kvisthaga 17,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum aðfaranótt 10. mars. Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Geirlaug Jónsdóttir.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÁSTA VALDIMARSDÓTTIR,
Grænukinn 28,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju fimmtudaginn 14. mars
kl. 13.30.
Reynir V. Dagbjartsson,
Fjóla V. Reynisdóttir, Erlendur Ingvaldsson,
Guðiaug Reynisdóttir, Guðbjartur Heiðar Reynisson,
Bryndís Reynisdóttir, Eiríkur Haraldsson,
Sverrir Reynisson, Soffía Matthíasdóttir
og barnabörn.