Morgunblaðið - 12.03.1991, Blaðsíða 57
ro.> r vqMji c t qtir»/ n iT Aicíyí mriA'iíTiAiirvQnM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
'57
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
llf K6TII i~l i Mflf 'U U
Þessir hringdu
Góð grein
Jóhann hringdi:
„Ég vil þakka fyrir greinina
Yfírbyggingin er of stór sem birt-
ist í Velvakanda fyrir nokkru og
taka undir hvert orð sem þar er
sagt. Er það ekki helsta þjóðar-
mein okkar íslendinga hversu
mikið hefur verið búið til af allst
konar fínum stöðum og embætt-
lim, þar sem stjórar og stýrur
hafa komið sér vel fyrir en gera
sáralítið gagn - eru kannski oftar
en ekki til óþurftar. Það ætti að
fækka þingmönnum um helming
og gera landið að einu kjördæmi.
Með því móti fengist skilvirkari
stjórnun."
Snjósleðar til óþæginda
María hringdi:
„Ég fer oft á gönguskfði upp í
Bláfjöll en aðstaða gönguskíða-
fólks hefur versnað að mun þar
Yfirbyggingin er of stóil
Til Vclvakanda.
Á ýmsum sviðum mætti spara
stórar fúlgur, og verður að gera
innan tíðar, ætlum við okkur að
komast sæmilega af. Þar er ofar-
lega á blaði hin fyrirhyggjulausa
yfirbygging hins isl. þjóðfélags og
fjáraustur hins opinbera í óarðbæra
hluti, oft og tíðum eins og mönnum
sé ekki sjálfrátt.
Þetta fámenna þjóðfélag, aðeins
fjórðungur milljónar, sem telst
varla meira en stijálbýll útkjálki,
og er raunar varla meira, á heims-
mælikvarða, verður að gæta hófs
í hvívetna, og haga seglum eftir
Rússneski bjöminn réttir upp
hramminn, og hveiju orkar einn
maður, þótt voldugur sé, þegar
kerfið allt rfs upp á móti honum,
og jafnvel nánustu samstarfsmenn
flýja af hólmi.
Það cr næsta hastarlegt að lesa
I ísl. blaði hnjóðsyrði um Gorb-
atsjov, þann manninn sem — er
fram líða stundir, verður talinn
maður tuttugustu aldarinnar, einn
af mikilmcnnum sögunnar. Það var
hann sem hjó á hnútinn svo jám-
tjaldið féll, sameinaði Þýskaland
og nýfijálsu löndin handan jám-
hvað á þá þjóðin að una, ef aðri
vinna nauðsynjaverkin?
Kerfið er orðið svo rotið oj
blekkjandi, að starfandi fólk sæki
í ýmsa tilgangslitla þjónustugeira
fæst ekki til að vinna hin þjóðný^
störf. Kaupgreiðslum er hagað sv-
fávíslega, að lægsta kauþið c
greitt þeim sem erfiðust vinn;
verkin við frumgreinamar, sem e
þó undirstaðan undir allri tilurð oj
velmegun þjóðarinnar. Eigum vi<
öll að vinna við verslun og við
skipti, bankastarfsemi og aðra
þjónustugreinar, og skeytum litli
vegna þess hver mikið er þar af
snjósleðum og stórum jeppum á
ferð. Maður er síhræddur um að
snjósleðarnir bruni á mann og
verður alltaf að vera á verði. Það
þyrfti að vera meira eftirlit þarna
og banna snjósleða og jeppa nema
á tilteknum svæðum.“
Páfagaukur
Lítill blár páfagaukur tapaðist
út um glugga á húsi við Birting-
akvísl. Vinsamlegast hafið sam-
band í síma 673085 ef hann hefui
einhvers staðar komið fram.
Bílnúmer
Bílnúmer, R-80088, voru tekin
af bíl við Hávallagötu aðfaranótt
sunnudagsins 3. mars. Þetta er
mjög bagalegt fyrir bíleigandann
og er fólk beðið að koma númer-
unum til lögreglunnar ef þau
finnast einhvers staðar.
Gudbrand
Erik Mogen 2380 Brumunddal
í Noregi hafði samband:
„Mér hefur ekki tekist að hafa
uppá Gudbrand frænda mínum á
íslandi í gegnum Norska sendi-
ráðið í Reykjavík. Ég hef fengið
nýtt símanúmer, 65-55595, og bið
hann hafa samband við mig sem
fyrst."
Gullkross
Gullkross fannst fyrir í lok
janúar fyrir utan Sundlaugarnar
í Laugardal. Upplýsingar í síma
675067.
Greenpeace með bjálka í auganu?
Eins og þér lesandi góður ætti
að vera kunnugt um sendu Green-
peace-samtökin á íslandi fyrir stuttu
frá sér kynningarrit um baráttumál
félagsins. Þar var greinilega stefnt
að því að hafa þau áhrif á fólk að
það léti í sér heyra og hefði ef til
vill samband við samtökin.
Ég hef ákveðið að láta í mér heyra
ekki aðallega vegna áhuga á félag-
inu sjálfu heldur vegna þess sem
stakk mig í augun er ég lagði ritið
niður á borðið fyrir framan mig. Hér
á eftir fer eitt af baráttumálum sam-
takanna samkvæmt riti þessu orð-
rétt:
Markmið eiturefnabaráttu Green-
peace eru:
* að stöðva bleikingu pappírs með
hjálp klórsambanda. Ennfremur að
fræða almenning um það hvernig
komast megi hjá pappírssóun með
endurnýtingu og reka áróður fyrir
nýjum aðferðum í stjórnun auðlinda
til að koma í veg fyrir eyðingu skóga.
Eflaust hefur þetta rit vakið upp
„kvöldmatarumræður" á mörgum
heimilum og hlutverk þess skilað sér
fyllilega. Nú þegar hafa eflaust ein-
hveijir haft samband við samtökin
og óskað eftir því að fá að gerast
meðlimir. En þeir gleggstu hafa
ekki verið særðir með þessu áróðurs-
vopni samtakanna því vopn þetta
snerist í höndum þeirra og særði
samtökin lýtandi sári. Ef þú lesandi
góður hefur enn ekki komið auga á
sár þetta á andliti samtakanna fer
hér á eftir útskýring á því.
Ofangreint baráttumál samtak-
anna var í fáum orðum það að stuðla
að verndun skóga og stöðva bleik-
ingu pappírs. Eftir því sem ég best
veit er pappírinn í riti félagsins hvít-
ur, þ.e. bleiktur og óendurunninn.
Sem þýðir mengun af völdum bleik-
ingarefna og rýrnun skóga þar sem
pappír er unnin úr tijám. Þetta stríð-
ir gegn ofangreindu baráttumáli í
alla staði. Með þessu riti valda sam-
tökin eflaust meiri umhverfisspjöll-
um en stuðlun að verndun umhverf-
is þar sem fjöldi meðlima eykst
eflaust ekki nóg til að vinna upp það
tjón sem samtökin hafa valdið. Þetta
rit var sent inn á hvert heimili lands-
ins sem eru um 86.000 ef reiknað
er með um þremur einstaklingum á
heimili að meðaltali. Ritið er saman-
sett úr þremur A4 blöðum og til
glöggvunar eru þetta um 240 þús-
und A4 blöð sem fóru m.a. í að
auglýsa landann um að samtökin
beiti sér fyrir því að fræða almenn-
ing um það hvernig megi komast
hjá pappírssóun.
Hér með óska ég ekki eftir því
að gerast meðlimur í samtökunum.
Menntaskólanemi
Síðasta hraðlestrarnámskeiðið...
Síðasta námskeið vetrarins hefst næsta
fimmtudag, 14. mars.
Viljir þú margfalda lestrarhraðann, hvort heldur er til
að bjarga næstu prófum með glæsibrag eða til að njóta
þess að lesa meira af góðum bókum, ættir þú að skrá
þig strax á næsta námskeið.
Lestrarhraði nemenda meira en þrefaldast að jafnaði,
hvort heldur er í erfiðu eða léttu lesefni.
Skráning alla daga í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKOLINN
m 10 ára
Vinningstölur laugardaginn 9- rnars 1991
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 v 0 2.843.704
2. aTÆ 5 98.849
3. 4af 5 99 8.611
4. 3af5 3.797 523
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
6.176.269 kr.
UPPLÝSINGAR: SlMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
<