Morgunblaðið - 12.03.1991, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
59
Hreindýr rétt sunnan við Djúpavog.
Morgunblaðið/Matthías G. Pétursson
Hreindýr nálægt byggð
Nokkrir tugir hreindýra voru rétt fyrir sunnan
Djúpavog á dögunum. Hreindýrin koma gjarnan í
byggð þegar harðnar á dalnum, en óvanalegt er að
sjá þau svo mörg saman á þessum slóðum á þessum
árstíma þegar veðrið er eins gott og raun ber vitni.
Dýrin voru hin rólegustu rétt við þjóðveginn og létu
umferð ekki trufla sig. Eins og sjá má var jörð alger-
lega auð.
íslands- # %
banki í nýtt
húsnæði
á Akranesi
Mánudaginn 11. mars opnaði ís-
landsbanki á Akranesi útibú í nýju
og rúmbetra húsnæði á Kirkjubraut
40.
Núverandi húsnæði bankans í
Stillholti 14 hefur um nokkurn tíma
verið talið of þröngt fyrir starfsemi
útibúsins. Nýja húsnæðið er mun
' rúmbetra og þægilegra í alla staði.
Þar verður hægt að bjóða viðskipta-
vinum bankans betri aðstöðu til að
ræða sín mál og fá ráðgjöf varð-
andi alla almenna fjármálaþjónustu.
Samfara flutningnum verður einnig
fjölgað í starfsliði útibúsins.
í íslandsbanka á Akranesi er öll
almenn fjármálaþjónusta í boði auk
þess sem hraðbanka hefur verið
komið fyrir i nýja húsnæðinu, en
enginn slíkur hefur verið til staðar
á Akranesi áður. í hraðbanka er
hægt að leggja inn, taka út, milli-
færa, skoða stöðu reikninga og
greiða reikninga og gíróseðla.
(Frcltatilkynniiig)
Framkvæmdaáætlun um jafnrétti kynjanna:
Hlutur kvenna í nefndum
og ráðum verði aukinn
JÓHANNA Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, hefur kynnt skýrslu
um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar til fjögurra ára um að-
gerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna. I áætluninni er lögð áhersla
á skyidur ráðherra og ráðuneyta til að vinna að því að jafna stöðu
kvenna og karla, hvers á sínu sérsviði.
Fyrstu lögin um jafnrétti kvenna
og karla voru sett árið 1976. Nú-
gildandi lög um jafnan rétt og jafna
stöðu kvenna og karla frá 1986 eru
mun ítarlegri en eldri lögin. Þar
voru sett fram markmið í fjórum
sviðum sem stefnt skyldi að á gild-
istíma áætlunarinnar. Þessi svið
voru atvinnu- og launamál, mennt-
un og fræðsla, trúnaðarstöður og
ábyrgð og félagsleg atriði.
Sú framkvæmdaáætlun sem nú
er lögð fram til næstu fjögurra ára
er sett upp með nokkuð öðrum
hætti en áætlunin frá 1986, en er
byggð á því sjónarmiði, sem kemur
fram í lögum frá 1976 og 1985,
um að stjómvöld beri skyldu til að
vinna að bættri stöðu kvenna í sam-
félaginu. Með lagasetningunni var
stjórnvöldum gert að sýna fordæmi
og hafa frumkvæði að aðgerðum á
þessu sviði.
Meginmarkmiðið með þessari
framkvæmdaáætlun er að setja
fram tillögur að verkefnum fyrir
ráðuneyti og/eða undirstofnanir
þeirra til að vinna að, í þeim til-
gangi að bæta stöðu kvenna.
Ahersla er m.a. lögð á eftirfarandi
þætti: Aðgerðir til að jafna stöðu
kvenna, launamál kvenna og karla,
aðgerðir til að bæta stöðu kvenna
á vinnumarkaði, aðgerðir til að
bæta sérstaklega stöðu kvenna í
dreifbýli og ýmis félagsleg réttindi.
Eitt af verkum listamannsins.
Gallerí einn einn
John Hopkins sýnir ljósmyndir
JOHN HOPKINS opnaði Ijós-
myndasýningu í Gallerí einn
einn Skólavörðustíg 4a síðast-
liðinn laugardag. Sýningin
verður opin daglega frá 14.00
og 18.00.
Við opnun sýningarinnar lék
Elías Davíðsson steinaspil með:
íslensku basalt grjóti. Listamað-
urinn og Magnea Jónsdóttir munu
gangast fyrir uppákomu á sýning-
unni næstkomandi laugardag.
Uppákomuna nefna þau „The kiss:
a personal dialogue.“
Sýningunni lýkur 21. mars næst-
korp_andi. ____________
Á næstu fjórum árum er lögð
áhersla á að hlutur kvenna í nefnd-
um og ráðum á vegum ríkisins verði
aukinn verulega. „Við erum þar
tnjög miklir eftirbátar nágranna-
þjóða okkar,“ sagði félagsmálaráð-
herra. „í áætlun sem jafnréttisráð
hefur gert fyrir árið 1985 og 1987
kom fram að hlutur kvenna í nefnd-
um, stjórnum og ráðum á vegum
ríkisins er ekki nema ellefu pró-
sent, sem er mjög lágt.“ Markmiðið
er að ná þessu hlutfalli upp í 25%
í lok gildistíma áætlunarinnar. Hér
er-um að ræða heildarþátttöku í
nefndum á vegum ríkisins en ekki
miðað við 25% í hverri nefnd.
Lagt er til að á árunum 1991
og 1992 verði valdar fimm stórar
ríkisstofnanir, t.d. á heilbrigðis- og
skólasviði, og athuguð kjör karla
og kvenna, þ.e. laun, aðrar greiðsl-
ur og fríðindi. Verkefnið verði unn-
ið í samráði við verkefnisstjóra
norræna launaverkefnisins á ís-
landi.
Meiri menntun kvenna á undan-
förnum árum virðist ekki hafa skil-
að sér í auknu launajafnrétti í at-
vinnulífinu. Konur voru helmingur
launþega árið 1986, en hluturþeirra
í heildaratvinnutekjum var rétt um
33%. Heildartekjur kvenna í fullu
starfí hafa verið um 60% af heildar-
tekjum karla í fullu starfí. Þessu
hlutfalli þarf að breyta samkvæmt
framkvæmdaáætlun ríkisstjómar-
innar um jafnrétti kynjanna.
♦ ♦ ♦
Yitm vantar
Slysarannsóknardeild lögregl-
unnar í Reykjavík lýsir eftir vitn-
um að árekstri , sem varð á
mótum Réttarholtsvegar og
Sogavegar þann 27. febrúar síð-
astliðinn, klukkan 14.43.
Þar rákust saman Suzuki-bíll,
sem ekið var norður Réttarholtsveg
og beygt áleiðis vestur Sogaveg og
Galant-bíll, sem ekið var suður
Réttarholtsveg. Annar ökumann-
anna kveðst hafa verið að reyna
að forðast áresktur við rauðan
sendibíl þegar áreksturinn við Gal-
antinn varð.
___E_ru_vitni_að árekstrinum beðin
að hafa tal af lögreglu.
Bók um stam
eftir Elmar
Þórðarson
Akranesi
ÚT ER komin bókin Stam — upp-
lýsingar um stam og þá sem
stama, eftir Elmar Þórðarson
talmeinafræðing og talkennara.
1 bókinni eru upplýsingar sem
ekki hafa verið til opinberlega á
íslensku um þetta talmein. Bækl-
ingur um stam skólabarna var
gefinn út af Námsgagnastofnun
1987.
Efnið í bókinni er komið úr mis-
munandi áttum, en mest af heimild-
unum eru frá ísiandi og öðrum
Norðurlöndum. í bókinni eru rædd-
ar ýmsar spurningar eins og hvað
er stam, breytist stam, hvað veldur
stami og er hægt að „lækna“ stam.
Einn kaflinn fjallar um ráð til for-
eldra sem eiga börn sem stama.
Margir aðilar hafa lagt til efni
og aðstoðað við þýðingu og eins
hefur Kiwanisklúbburinn Þyrill á
Akranesi styrkt útgáfu bókarinnar.
Þá hefur höfundur fengið mikla
hvatningu frá Heyrnar- og talmein-
astöð íslands sem jafnframt mun
hafa bókina til sölu.
I bókinni er sett fram sú tilgáta
að aukin þekking á stami fækki
þeim sem stama. Hvort sem það
er rétt eða ekki er bókin upplýs-
andi og þarft rit um þetta talmein.
JG
ö
INNLENT
devfar
\/-þ>ýsk;
gæöavara
PeynsL^
puói
MUSTA
pEKK'NG
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SÍMI 84670