Morgunblaðið - 20.12.1991, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1991
Bankarnir tóku vel í til-
mæli um vaxtalækkanir
STEFÁN Pálsson, bankastjóri
Búnaðarbanka Islands, segir að
fulltrúar viðskiptabankanna hafi
tekið vel í tilmæli Seðlabanka ís-
„Allt frá því leitað var til okkar
frá Ólafsvík um samvinnu eða sam-
einingxi höfum við tekið jákvætt í
málið en það sem helst er verið að
kanna nú er samnýting á bátum og
skrifstofuhaldi," segir Atli Viðar
Jónsson. „Þessar viðræður eru nú í
gangi og ég tel að málið liggi ljóst
fyrir um árámótin."
í máli Atla kemúr fram að Hrað-
lands um að lækka vexti á reglu-
legum fundi viðskiptabanka og
sparisjóða með Seðlabankanum í
gær um verðlag og verðlagshorf-
frystihús Grundarfjarðar rekur nú
einn tæplega 300 tonna togara en
auk vinnslu á afla hans er húsið með
skelfiskvinnslu og lítilsháttar rækju-
vinnslu. Rekstur hússins var endur-
skipulagður árið 1989 og segir Atli
að rekstur þess í fyrra og í ár hafí
verið þokkalega góður miðað við
aðstæður.
ur, en fundurinn er haldinn mán-
aðarlega þegar ný lánskjaravísi-
tala liggur fyrir.
Á fundinum kom fram að láns-
kjaravísitala janúarmánaðar er nán-
ast óbreytt frá desember en lækkar
þó örlítið annan mánuðinn í röð.
Lánskjaravísitala desember var
3.198 en verður 3.196 í janúar.
Næsti vaxtabreytingardagur er 21.
desember og þurfa bankamir að til-
kynna um breytingar á vöxtum til
Seðlabanka íslands í dag.
Aðspurður um vaxtalækkanir
sagði Stefán að hann gerði ráð fyrir
að einhver breyting yrði á vöxtum,
alla vega hjá þeim sem hefðu verið
með hæstu vextina, en Búnaðar-
bankinn hefur um nokkurra vikna
skeið verið með lægstu óverðtryggðu
útlánsvextina, allt þar til á síðasta
vaxtabreytingardegi að sparisjóðirn-
ir lækkuðu til jafns við þá. Lands-
banki íslands og íslandsbanki hafa
verið með hærri vexti. „Við munum
skoða þessi mál mjög alvarlega og
taka ákvö.rðun fyrir hádegið," sagði
Stefán.
Hraðfrystihús Grundarfjarðar;
Tökum jákvætt í hug-
myndir um sameiningu
- segir Atli Viðar Jónsson framkvæmdastj óri
ÁFORMAÐAR eru frekari viðræður milli forráðamanna Snæfellings á
Ólafsvík og Hraðfrystihúss Grundarfjarðar. Atli Viðar Jónsson fram-
kvæmdastjóri hraðfrystihússins, segir að þeir taki jákvætt í hugmynd-
ir um sameiningu og vilji skoða það dæmi náið.
VEÐUR
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri
Reykjavik
hiti veður
+6 snjóél
■r4 skýjað
Bergen 3 rigning
Helsinki 1 snjókoma
Kaupmannahöfn 3 rigning
Narssarssuaq +16 léttskýjað
Nuuk +13 snjókoma
Ósló +2 snjókoma
Stokkhólmur 2 skýjað
Þórshðfn 5 skýjað
Algarve 18 léttskýjað
Amsterdam 10 alskýjafi
Barcelona 13 mistur
Beriín 3 rigning
Chicago vantar
Feneyjar 5 þokumóða
Frankfurt 7 rigning
Glasgow 7 skúr
Hamborg S rlgning
London 12 rigning
LosAngeles vantar
Lúxemborg 7 súkf
Madríd 3 þoka
Malaga 16 hátfskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Montreal +16 léttskýjað
NewYork vantar
Oriando vantar
París 11 aiskýjað
Madeira 17 skýjað
Róm 13 heiðskfrt
Vln 4 skýjað
Washington vantar
Winnipeg +11 skafrenningur
Hoimiid: Veðurstota Islands
(Byggt á veðurspá W, 16.151 gaar)
VEÐURHORFUR í DAG, 20. DESEMBER
YFIRLIT: Gert er ráð fyrir stormi á austurdjúpi og Færeyjadjúpi.
Skammt norðaustur af Færeyjum er 947 mb allvíðáttumikil lægð
sem hreyfist norðnorðaustur og frá henni lægðardrag vestur á
Grænlandshaf.
SPÁ: Norðlæg gola eða kaldi, en súms staðar stinningskaldi norð-
austanlands. Minnkandi él norðan- og austanlands. Frost verður
víðast á bilinu 5-8 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Austlæg átt. Slydda eða snjókoma með
köflum og hiti nálægt frostmarki um sunnanvert landið, en éljagang-
ur og 1-5 stiga frost norðanlands.
HORFUR Á SUNNUDAG: Norðanátt með éljagangi norðanlands,
en bjartviðri fyrir sunnan. Frost 4-10 stig.
Svarsfmi Veðurstofu Islands - Veðurfregnir: 990600.
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
O Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / / -/ Rignmg
i'/ / /
* / *
/"*/■* Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
Flutningabílar hafa verið í stöðugum flutningum með fisk suður
síðustu daga. Þegar myndin var tekin voru þrír flutningabílar
að leggja upp í 550 km ferð suður, en stór flutningabíll með
aftanívagni frá Ármanni Leifssyni var nýfarinn. Alls fóru um
150 tonn suður með bílum af sölu tveggja daga.
Metsala á fiskmark-
aðinum á ísafirði
ísafirði.
TÆPLEGA 200 tonn af fiski voru seld á. fiskmarkaðinum á
Isafirði á mánudag og þriðjudag og er það Iangmesti afli sem
þar hefur verið seldur til þessa. Meðalverð var fremur lágt, eða
um 78 kr. kg af þorski, en að sögn Karls Ágústs Gunnarssonar,
verksljóra hjá markaðinum, er það ekki óeðlilegt miðað við árs-
tíma, en nú eru flest fyrirtæki að búa sig undir jólafrí.
Um tólf tonn fóru í gám til
útflutnings en 3/4 afgangsins
voru sendir suður með bílum, en
fjórðungur fór til vinnslu á ísafírði
og í nágrannasveitarfélögum.
Fiskurinn kemur ýmist af físki-
skipum sem landa á ísafirði, eða
að aflanum er landað í nágranna-
sveitarfélögunum. Vöruflutningar
Ármanns Leifssonar í Bolungar-
vík sækir aflann til þorpanna og
flytur síðan áfram til vinnslu-
stöðva sunnanlands. Vegna þessa
mikla afla varð að leigja fjölda
gámaflutningabíla til að flytja
aflann sem fór á Snæfellsnes til
Suðumesja og í Hafnarfjörð.
Að sögn Einars Garðars Hjalta-
sonar, sem rekur fískmarkaðinn,
hefur verið ákveðinn stígandi í
sölunni frá því þeir byijuðu um
miðjan júlí. Fyrstu vikurnar seld-
ust 30-50 tonn á viku, en núorðið
á bilinu 60-120 tonn. Auk þess
að selja fískinn sér markaðurinn
um slægingu og frágang á afla
eftir þörfum.
Kostnaður við flutningana suð-
ur er 9 krónur á kíló og virðist
það ekki draga.úr mönnum syðra,
því yfírleitt er verð hér sambæri-
legt við markaðina syðrá ef tekið
er tillit til að hér er yfírleitt smærri
fískur í sölu,
Aukning hefur orðið ;á rekstri
smáfyrirtækja í fiskiðnaði með
tilkomu markaðarins að sögn Ein-
ars Garðars og meðal annarra
keypti bóndi í Öndundarfírði tonn
af ýsu, sem hann ætlaði til herslu.
- Úlfar
ísafjörður:
Fimm ára fangelsi fyr-
ir manndrápstilraun
29 ÁRA gamall maður, Sölvi Amar Arnórsson, hefur í sakadómi ísa-
fjarðar verið dæmdur til 5 ára fangelsisvistar fyrir tilraun til mann-
dráps en maðurinn játaði að hafa aðfaranótt 31. maí á þessu ári stung-
ið sofandi mann í kviðinn með eldhúshnífi. Hinn dæmdi játaði að á
þeirri stundu hefði það vakað fyrir sér að verða manni þessum að bana.'
Hinn dæmdi var mjög ölvaður
þessa nótt og fór að heimili fyrrum
sambýliskonu sinnar og bamsmóður
tveggja bama sinna í þeim tilgangi
að komast að hvort ákveðinn maður
væri þar hjá konunni. Hann spennti
upp glugga á íbúð hennar með að-
stoð vinar síns og klifraði inn um
hann. í framburði sínum sagðist
maðurinn hafa tryllst þegar hann sá
umræddan mann liggja sofandi við
hlið konunnar. Hann hafi því sótt
hníf og lagt til hans í því skyni að
drepa hann. Maðurinn vaknaði við
stunguna og eftir átök komst hann
undan og leitaði aðstoðar í næsta
húsi.
Lögregla og sjúkralið komu á stað-
inn. Hinn slasaði var fluttur á sjúkra-
hús og síðan með sjúkraflugi til
Reykjavíkur til aðgerðar. Hann
komst til heilsu á skömmum tíma
og hinn dæmdi greiddi honum fyrir
skömmu 700 þúsund króna skaða-
bætur vegna þessa atburðar.
Hinn dæmdi hafði hreinan sakar-
feril og geðrannsókn þótti ekki leiða
í ljós persónuleikatruflanir eða óeðli-
legar ofbeldishugmyndir.
í niðurstöðum dómarans, Jónasar
Jóhannssonar héraðsdómara á Vest-
íjörðum, segir að með hliðsjón af
játningu mannsins teljist hann sekur
um tilraun til manndráps. Dómarinn
segir að þótt vissulega megi hafa
samúð með ákærða vegna verknað-
arins, sem framinn hafí verið í mik-
illi reiði og geðshræringu, verði ekki
talið að refsilækkunarástæður séu
til staðar, þvert á móti, enda hafí
maðurinn brotist ölvaður og án nokk-
urs erindis inn á heimili konunnar
meðan fólk var í fastasvefni og lagt
þar til manns í þeim tilgangi að ráða
hann af dögum. Þó var tekið tillit
til hreinskilnislegrar játningar og
þess að hinn dæmdi hafði greitt þær
bætur sem krafíst var.
Maðurinn var dæmdur til greiðslu
alls sakarkostnaðar.
------» ♦ ♦-----
Launavísi-
tala óbreytt
HAGSTOFAN hefur reiknað
launavísitölu desembermánaðar
1991 miðað við meðallaun í nóv-
ember síðastliðinum. Vísitalan
reyndist vera 127,8 stig eða
óbreytt frá fyrra mánuði.
Þá segir í frétt frá Hagstofunni,
að samsvarandi launavísitala, sem
gildir við útreikning greiðslumarks
fasteignaveðlána, sé einnig óbreytt
0g er því 2,795 stig í janúar 1992.