Morgunblaðið - 20.12.1991, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1991
wciA/yff
■ ^
iz-lí
■ ■ ■ að vonast eftir hvítum
jólum.
morgunkaflinu
i
Það er rétt að maður á að tala við hlómin, en það er ekki
sama hvernig það er gert.
HÖGNI HRKKKVÍSl
» l//£> Ziöro/H EkJCI „ S</NT CXSSA6T FRA “
'/) K.\/efNF-&L/l<SGF-UNI>UMUA1./»
Þessir hringdu . ..
Meira um
bókmenntaverðlaun
Bókavinur hringdi og sagði
menn loks hafa risið upp og mót-
mælt auglýsingamennsku þeirri
sem gengi undir nafninu „ís-
lensku bókmenntaverðlaunin".
Auglýsingar í blöðum styðji þetta
rækilega með orðum eins og þess-
um: „Tilnefnd til íslensku bók-
menntaverðlaunanna sem forseti
íslands veitir." Bókavinur sagði
að honum fyndist ósmekklegt að
bendla nafn forsetans við þessi
auglýsingaverðlaun.
Silfurnæla
Silfumæla sem er eins og fjaðr-
ir í laginu og með svörtu ívafi
tapaðist fýrir rúmri viku. Tvær
leiðir koma til greina: Lauga-
vegur-Víðimelur eða Síðumúli-
Gnoðarvogur. Nælan er eigandan-
um afar kær og því er finnandi
vinsamlegast beðinn að hafa sam-
band við Önnu í síma 37893.
Gullhálsfesti
Breið gullhálsfesti t tapaðist
helgina 14.-15. "desember.
Finnandi hringi í síma 612321.
Húsaleigustyrkur
alþingismanna
Kona hringdi og sagðist hafa
heyrt Árna Johnsen vera að tala
um sjómannaafsláttinn og afnám
hans. Hún vildi benda honum og
öðrum þingmönnum á að athuga
húsaleigustyrk þeirra sjálfra. Hún
sagði alþingismenn, sem ættu lög-
heimili úti á landi og væru þar
með einbýlishús og svo í Reykja-
vík, fá húsaleigustyrk upp á krón-
ur 90 þúsund.
Kalkúnar í hlutum
Karlmaður hringdi og vildi
benda konunni, sem var að ieita
eftir hálfum kalkún, að Fuglakyn-
bótabúið í Mosfellsbæ hafí selt
kalkúna í hlutum.
Sjávarútvegsstefna
Sjálfstæðisflokksins
Gamall kjósandi Sjálfstæðis-
flokksins vildi koma með ábend-
ingu til Sverris Hermannssonar
bankastjóra vegna ummæla hans
um að Sjálfstæðisflokkurinn hefði
enga stefnu í sjávarútvegsmálum.
Hann sagðist ekki vita betur en
að forsætisráðherra, Davíð Odds-
son, hefði sett á fót nefnd þar sem
bæði sjálfstæðismenn og alþýðu-
fiokksmenn ættu sæti, og væri
henni ætlað að vinna að stefnu-
mótun í sjávarútvegsmálum.
Hann vildi því bara spyrja Sverri
hvernig flokkurinn ætti að birta
einhverja stefnu meðan nefndin
væri enn að störfum?
Lyklakippa
Lyklakippa gleymdist í ábyrgð-
ardeild pósthússins í Pósthús-
stræti. Eigandinn getur vitjað
þeirra þar.
Vasapeningar á
Kópavogshæli
Karlmaður hringdi og vildi
meina að eitthvað væri athuga-
vert við vasapeninga vistmanna á
Kópavogshæli. Hann sagðist allt-
af gefa einum vistmanni peninga
svo hann gæti farið í bró en við-
komandi fengi ekki nema 1.000
krónur r' vasapeninga á mánuði.
Hann sagðist vera búinn að at-
huga málið hjá Tryggingastofnun
og þar væri sagt að einstaklingar
sem væru vistaðir á svona stofn-
unum ættu að fá 10.000 krónur
á mánuði en þar hefði ekkert kom-
ið fram hvað væri gert við þessar
9.000 krónur sem upp á vantaði.
Hann vildi þvr að þetta mál yrði
kannað nánar og fundin skýring
á því hvert vasapeningarnir færu.
ISI verður að koma málum
skotíþróttarinnar í betra horf
Velvakandi góður.
Ég er dyggur lesandi íþróttasíðu
Morgunblaðsins og fylgist einnig
með umfjöllun annarra fjölmiðla um
íþróttir. Hafa því deilur skotmanna
í fjölmiðlum undanfarin misseri
ekki farið fram hjá mér. í fyrstu
henti maður gaman af og héit að
þessar deilur ristu ekki djúpt. Svo
er þó greinilega ekki því tilskrifín
bera þess merki að deilurnar séu
mjög hatrammar. Ýmist skrifast
einstaklingar á eða hópar og spjót-
in standa oftar en ekki á forystu
Skotsambandsins. Ætla verður að
slík stórskotaskrif og jafn þungar
ákúrur á forystuna séu ekki af
ástæðulausu.
Efast ég ekki um að deilur þess-
ar standa skotíþróttinni fyrir þrifum
og meðan deiiumar eru jafn harðar
og raun ber vitni verður það trauðla
til að laða menn til forystu þar á
bæ. Þarf stjórnin að gera virkilega
hreint fyrir sínum dyrum og kapp-
kosta að lægja öldur.
Reyndar tel ég að forysta
Iþróttasambands íslands hafi hér
ákveðnum skyldum að gegna og
ætti að stuðla að því að sættir tak-
ist meðal skotmanna. Deilurnar
skaða ekki einungis skotíþróttina
að mínu mati. Þær eru til þess falln-
ar að rýra álit allra forystumanna
og leiðtoga, hver sem íþróttagrein
þeirra er. Þess vegna ber forystu
ISÍ að láta málið til sín taka og
koma málum skotíþróttarinnar í
betra horf.
-----» ♦ ♦-----
Af sýningum
Þegar lýkur lýðsins svengd
í list frá skáldum stöðum,
eru þau hvert af öðru hengd
upp á Kjarvalsstöðum.
Ólafur á Neðrabæ
Víkverji skrifar
Hraðinn einkennir þjóðfélag
nútímans, heyrist oft sagt,
og eflaust er sitthvað til í því. •
Víkveiji efaðist hins vegar innilega
um þessa fullyrðingu þar sem
hann sat í langferðabifreið Kynnis-
ferða fyrir utan Flugstöð Leifs
Eiríkssonar og starði æ þung-
brýnni á úrið sitt, í von um að
andsk... rútan færi að silast af
stað til Reykjavíkur. Flugið frá
Stokkhólmi hafði verið einkar
ánægjulegt, þjónustan um borð í
vél Flugleiða var óaðfinnanleg og
þotan renndi upp að Leifsstöð
nákvæmlega á áður tilkynntum
komutíma. Víkveiji sniðgekk
kaupæðið í Fríhöfninni af því að
hann var að flýta _sér og hraðaði
sér út í rútuna. Á öllum öðrum
alþjóðlegum flugvöllum, sem Vík-
veiji hefur komið á, nema á
Álandseyjum og í Moskvu, er
hægt að treysta á fljótan og ör-
uggan flutning frá flugvelli til
miðborgar. í Keflavík liðu sextíu
og átta mínútur frá því að Flug-
leiðavélin lenti og þar til lang-
ferðabíilinn lagði af stað til
Reykjavíkur. Dýrmætur tími var
tapaður.
Hefði Víkveiji vitað að biðin
yrði svona löng, hefði hann
auðvitað tekið leigubíl í bæinn.
Starfsmaður Kynnisferða hafði
hins vegar fullvissað Víkveija og
ferðafélaga hans um að rútan
myndi leggja af stað tuttugu mín-
útum eftir að þeir stigu upp í hana.
Mínútumar urðu hins vegar hátt
í fimmtíu. Rútan virtist ekki fara
eftir neinni áætlun, heldur var
bara beðið eftir því að misdrukkn-
ir farþegar með fríhafnarpokana
sína væru búnir að fylla hana.
Yfirbragðið á starfsfóiki Kynnis-
ferða fór líka í taugarnar á Vík-
veija. Þrír eða fjórir menn í úlpum
héngu upp við flugstöðvarvegginn
í hrókasamræðum og reyktu.
Stundum tóku þeir eftir því að
farþegar væru að koma út í bíl-
inn, fleygðu þá sígarettustúfnum
á stéttina og komu til að hjálpa
til. Víkveiji er þeirrar skoðunar
að Kynnisferðir verði að taka sig
á. Stundvísi og þjónusta Flugleiða
fer síbatnandi. Fyrirtækið, sem
tekur við Flugleiðafarþegunum,
sem vilja fara vel með tíma sinn,
verður að fylgja kröfum dagsins.
Skrifari varð fyrir því óhappi á
dögunum að renna í sturt-
unni, beija höfðinu við vegginn
og fá skurð á hnakkann. Leiðin
lá náttúrlega á slysadeild Borgar-
spítalans, þangað sem Víkveiji
hafði ekki komið síðan einhvern
tímann í barnæsku. Hann kveið
því hálfpartinn að andrúmsloftið
yrði fjandsamlegt og farið yrði um
hann ómjúkum höndum, en það
var nú öðru nær. Á móti honum
tóku tveir ungir menn, hjúkr-
unarfræðingur og læknir. Báðir
voru einstaklega elskulegir í við-
móti og að því er virtist ágætlega
skólaðir í manniegum samskipt-
um. Eftir að hnakkinn á Víkverja
hafði verið saumaður saman fékk
hann ýtarlega læknisskoðun. Síð-
an var honum afhent dálítið spjald
með leiðbeiningum fyrir fólk, sem
hefur fengið höfuðhögg, um það
hvað beri að varast og hvaða ein-
kenni geti bent til alvarlegra eft-
irkasta. Svona þjónusta er sannar-
lega til fyrirmyndar.