Morgunblaðið - 20.12.1991, Blaðsíða 28
L
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1991
T
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
PETER KAISER
Mikið úrval af töskum og hönskum.
Gjafakortin okkar eru góð,
hentug og vinsæl jólagjöf.
KRINGLUNNI,
Kringlunni 8-12, sími 68921 2.
Jólaundirbúningurinn er spennandi fyrir yngstu kynslóðina og í Blómavali fylgdist einn með pakkn-
ingu á trénu.
N orðmannsþinur virðist
vinsælasta jólatréð í ár
í Landgræðslusjóðnum var Guðbjörg Jónsdóttir að kaupa norð-
mannsþin og hafði fundið það tré, sem hún vildi. Hún sagðist
oftast kaupa norðmannsþin vegna barrheldninnar og einnig væri
það vinsælast lyá heimilisfólkinu.
NÚ ERU aðeins fjórir dagar til
jóla og er jólatréssala því í full-
um gangi og nær væntanlega
hámarki nú um helgina. Mest
seldu íslensku jólatrén eru stafa-
fura og rauðgreni en það tré sem
vinsælast virðist vera meðal
landsmanna er norðmannsþinur,
sem innflutt er frá Danmörku.
Þetta árið koma flest íslensku
trén sem fáanleg eru úr
Skorradal. Vinsældir jólatrjáa
virðast einna helst fara eftir
barrheldni þeirra og eru norð-
mannsþinur og stafafuran hvað
barrheldnust af þeim tijám, sem
boðið er upp á. Einnig er sala á
pottatrjám að færast í aukana
og nota sumir þau jafnvel innan-
dyra og planta þeim svo seinna.
í Landgræðslusjóðnum í Foss-
vogi er sala mest í norðmannsþini
og svipuð sala er í rauðgreni og
stafafuru. Að sögn Kristins Skær-
ingssonar, umsjónarmanns Land-
græðslusjóðsins, eru íslensku trén
keypt af Skógrækt ríkisins, Skóg-
ræktarfélagi Islands og nokkrum
einstaklingum. Einnig fást þar
pottatré, sem eru öll rauðgreni.
Verð á öllum jólatijám Land-
græðslusjóðsins er það sama og í
fyira.
í Blómavali hefur norðmanns-
þinur selst best að sögn Kristins
Einarssonar sölustjóra. „Norð-
mannsþinurinn fellir ekki barr og
það hefur mikið að segja þegar
fólk kaupir sér jólatré. Stafafuran
hefur einnig verið nokkuð vinsæl
en hún er lika barrheldin. Það er
yfírleitt alltaf sama fólkið, sem
kaupir furuna," segir Kristinn.
Kristinn segir rauðgrenið fella
þó nokkuð barr. „Þó má með réttri
meðferð minnka það. Til dæmis er
gott að taka aðeins neðan af stofn-
inum og setja tréð síðan í sjóðandi
vatn áður en það er sett í fótinn,
svipað og oft er gert við rósir.Einn-
ig er hægt að fá efni, sem kallast
Grenihressir, sem sett er út í vatn-
ið. Það verður jafnframt að pássa
upp á að alltaf sé vatn í fætinum."
Sala á jólatijám í pottum með
rótum er að aukast og segir Krist-
inn þau seljast einna fyrst eða í
byijun desember. Þau séu helst
notuð utandyra þó að sumir hafi
þau einnig inni og planti þeim svo
að vori.
Stefán Magnússon, jólatréssali í
Alaska við Miklatorg, segir rauð-
greni vera mjög vinsælt m.a. vegna
þess hversu ódýrt það sé í saman-
burði við önnur tré. Hann segist
jafnframt hafa orðið þess var að
sumir kaupi aðeins íslenskt og þá
skipti það ekki miklu máli hvort
tréð sé barrheldið eða ekki. Þrátt
fyrir það sé norðmannsþinurinn
mest selda tréð. í Alaska er sama
verð á jólatijám og í fyrra. Einnig
er þar hægt að fá pottatré, þó þau
séu mest keypt fyrr í mánuðinum.
Verð á jólatjám nú er mjög svip-
að og í fyrra. Af íslensku tijánum
er verð á þeim þremur stöðum sem
blaðamaður Morgunblaðsins heim-
sótti mjög svipað. Rauðgrení, sem
er á milli 151 og 175 smi hæð
er ódýrast í Alaska og kostar þar
1.800 krónur. í Landgræðslunni
kostar sama stærð af. rauðgreni
1.900 krónur og í Blómavál 1.905
krónur. Þar kostar stafafura af
sömu stærð 2.650 krónur, í Land-
græðslusjóðnum kostar hún 2.660
krónur og í Alaská 2i640 krónur.
Meiri munur er ú verði á norð-
mannsþini, þar sem Blómaval er
eini staðurinn aí þessum þremur,
sem býður hann á 25% lægra verði
en í fyrra. Þar kostar á milli 157
og 175 sm hár norðmannsþinur
2.495 krónur og í Landgræðslu-
sjóðnum kostar hann 3.4Ö0 króiiur.
í Alaska eru tveir flokkar af norð-
mannsþini í boði. Annars vegar er
úrvalsflokkur, þar sem tré af þess-
ari sömu stærð kostar 3.300 krón-
ur og hins vegar 1 .flokkur, þar sem
tréð kostar 2.400 krónur.
Halldór Halldórsson var í Alaska með börnum sínum, Elísabet
Hrönn og Siguijóni Veigari, að velja jólatré. Þau sögðust alltaf
kaupa norðmannsþin því þeim þætti hann fallegastur. Börnin
ætla svo að skreyta jólatréð sjálf fyrir jólin.