Morgunblaðið - 20.12.1991, Side 33

Morgunblaðið - 20.12.1991, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1991 33 Reuter Konan frá Júpíter fram á sjónarsviðið Patricia Bowman, þrítug kona frá bænum Jupiter í Florida, sem kærði William Kennedy Smith fyrir nauðgun kom fram í banda- rískum sjónvarpsþætti i gær. Kennedy Smith var sýknaður en til að hlífa meintu fórnarlambi við réttarhöldunum, sem var sjónvarpað um allan heim, var reynt að halda nafni Bowmans leyndu og andlit hennar ekki sýnt á skjánum. Kreppa og þrálátt atvinnu- leysi urðu Hawke að falli Canberra, Sydney, London. Reuter. BOB Hawke, forsætisráðherra Astralíu, beið ósigur fyrir Paul Keating er kosið var um leiðtoga í Verkamannaflokknum í gær. Atkvæði féllu 56-51. Hawke hefur verið leiðtogi síðan 1983 og leitt flokkinn til sigurs í fjórum þing- kosningum í röð. Efnahagsástand hefur verið slæmt í landinu síð- ustu tvö árin og gengið erfiðlega að ráða bót á því. Keating var lengi fjármálaráðherra í stjórn Hawke en sagði af sér eftir að hafa tapað fyrir honum í leiðtoga- lqöri fyrr á árinu. Hawke er 62 ára gamall og hefur notið mikilla persónulegra vinsælda en þær hafa dvínað vegna versnandi lífskjara og efnahagskreppu. At- vinnuleysi er 10.5% eða meira en nokkru sinni síðan í heimskreppunni á fjórða áratugnum. Vextir eru hærri en í nokkru öðru landi og hagvöxtur hefur enginn verið í hálft annað ár. Skoðanakannanir sýndu nýlega að- eins um 31% stuðning við Hawke en 57% fylgdu John Hewson, leiðtoga Fijálslynda flokksins, sem er nú í bandalagi við íhaldsflokkinn. Flokk- arnir tveir boða m.a. lækkun á tekju- skatti miðstéttarfólks, nýjan neyslu- skatt og einkaframtak í heilbrigði- skerfinu. Stjórnmálaskýrendur telja að staða stjórnarflokksins sé orðin harla vonlítil, hvort sem Hawke eða Keating verði við stjórn sé ljóst að Fijálslyndir muni sigra í næstu kosn- ingum sem verða ekki seinna en í maí 1993. Stjórnarandstöðuflokk- arnir hafa 21% meira fylgi en Verka- mannaflokkurinn í síðustu könnun- um. Hawke varð skjótt vinsæll af al- þýðu, hann er áhugasamur um íþrótt- ir eins og flestir Astralir, gengst við því að hann hafi átt við áfengisvanda að stríða og viðurkenndi eitt sinn tárfellandi í sjónvarpinu að hann hefði haldið fram hjá konunni. Hann er menntaður í Oxford, starfaði árum saman hjá verkalýðshreyfingunni en sannfærðist um að flokkurinn yrði að flytja sig nær miðju og boða markaðslausnir í ríkari mæli en áður ef hann ætti að ná völdum. Ástralir hafa þó ekki gengið jafn langt í þeim efnum og grannamir á Nýja-Sjálandi sem umbyltu ein- hveiju háþróað- asta velferðarkerfi heims á fáeinum árum undir stjóm jafnaðarmanna. Hawke er góðvinur Johns Majors, fór- sætisráðherra Breta, er sendi honum samúðar- kveðjur í gær en einnig heillaóska- skeyti til Keatings. Þrátt fyrir ósigur- inn sagðist Hawke ekki hættur í Bob Hawke stjórnmálum, hann óskaði Keating brosandi til hamingju með sigurinn og hét honum fullum stuðningi. Paul Keating varð fjármálaráð- herra 1983 og er talinn afar snjall en höfðar mun síður til almenning sen foiverinn. Hann er 47 ára gam- all, af alþýðuættum og varð þing- maður 1969. Keating þykir afar harðskeyttur, enginn er sagður hon- um fremri í að auðmýkja andstæð- inga sína. Sagt er að erfitt sé að átta sig á því hvaða mann hann hafi að geyma. Keating er kennt um há- vaxtastefnuna sem hann varði af hörku í ráðherratíð sinni. Fyrr á ár- inu gaf hann í skyn að kreppan væri nauðsynleg hrossalækning sem Ástralir yrðu að umbera. Eftir að hann hvarf úr stjórninni hefur hann gagnrýnt stefnu Hawke, meira að segja rætt um nauðsyn vaxtalækk- unar og fyrir nokkru fóru nokkrir forystumenn flokksins á fund Hawke til að segja honum að hann yrði að víkja. Hann þráaðist þó við en í gær tók þingflokkurinn af honum ráðin. STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Gjafakortin okkar eru góö, hentug og vinsæl jólagjöf. Mikið úrval af hönskum og töskum. 5% staðgreiðsluafsláttur. Póstsendum. DOMUS MEDICA, Egilsgötu 3, sími 18519. KRINGLUNNI, Kringlunni 8-12, sími 689212. TOPPSKORINN, Veltusundi 1, sími 21212. Friðarviðræðurnar í Washington: Annarri lotunni lýkur án verulegs árangurs Washington. Reuter. ANNARRI lotu friðarviðræðna ísraela og araba lauk í Washington í fyrrakvöld án þess að samkomulag næðist um hvar þeim skyldi haldið áfram. ísraelar og arabar sökuðu hvor- ir aðra um að hafa reynt að rang- túlka reglur sem Bandaríkjastjórn setti um tilhögun viðræðnanna áður en þær hófust í Madrid í október. „Enginn árangur hefur náðst á þessum tveimur vikum. Eina ástæðan er að ísraelar eru staðráðnir í að skapa hindranir,“ sagði Mowaffaq Allaf, sem fer fyrir sýrlensku sendinefndinni. „Það er öldungis ljóst að ísraelum er ekki umhugað að ná samkomu- lagi. Þeir vilja aðeins vinna tíma,“ sagði Hanan Ashrawi, talsmaður palestínsku fulltrúanna. Samn- ingamenn ísraels sögðu hins vegar að náðst hefði nokkur árangur í öllum þeim málaflokkum sem voru ■ FRANKFURT - Þýski seðlabankinn tilkynnti um hádeg- isbil í gær að hann mundi hækka vexti á skammtímalánum frá og með deginum í dag úr 9,25 í 9,75% og millibankavexti frá sama tíma úr 7,5 í 8%. Um það bil hálftíma síðar féll dollarinn svo í verði á gjaldeyrismörkuðum í Evrópu. Í tilkynningu þýska seðlabankans sagði að vaxtahækkunin væri staðfesting á því að bankinn ætl- aði að fylgja fram strangri stefnu í peningamálum og einnig hefði verið tekið tillit til vaxandi verð- bólguhættu. til umræðu í viðræðunum. Gert er ráð fyrir að ísraelar ræði næst við samninganefnd Pa- lestínumanna og Jórdana 7. jan- úar, Líbana 8. janúar og Sýrlend- inga eftir 13. janúar. Ekki náðist samkomulag um fundarstaðinn, því ísraelar vilja enn að viðræðurn- ar fari fram í Miðausturlöndum en arabar að þeim verði haldið áfram í Washington. Kútsnetsov á leið til Kolaskaga Nýtt, sovéskt flugvélamóðurskip, Kútsnetsov flotaforingi, var á miðvikudag á siglingu austur af íslandi á leið til heimahafnar á Kolaskaga í Norður-Rússlandi. Skipið, sem upprunalega var nefnt Tbilisi, er um 67.000 tonn að stærð og er talið geta borið allt að 60 flugvélar. Það er hið fyrsta af sinni tegund í flota Sovétríkjanna, risaveldinu sem nú er að yfirgefa vettvang sögunnar. Kútsnetsov var smíðað í skipasmíða- stöð við Svartahaf og hafin er vinna við tvö önnur af sömu gerð. Tundurspillir er í fylgd með skipinu. Níu ára valdaferli lýkur í Astralíu: SIEMENS Litlu raftœkin frá gleöja augaö! SIEMENS Kaffivélar, hrœrivélar, brauðristar, vöffiujárn, strokjárn, handþeytarar, eggjaseyðar, hraðsuðukönnur, áleggshnífar, veggklukkur, vekjaraklukkur, djúpstelklngarpottar o.m.fl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.