Morgunblaðið - 28.05.1992, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1992
;#------------------------------------------. *wr cam T' a-rvTrngim effg/oaBtÆmm
fclk f
fréttum
\ \(;\IIOM)A II. KKVK.IAVÍK. SÍMI („S5(><>0
Dansleikur föstudaginn
29. maí fró kl. 22-3
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur
ásamt Trausta og hinni goakunnu
Mattý Jóhanns.
Miðaverð kr. 800.
Þar sem fjörid er mest
\ skemmtir fólkið sér best.
*sa Dmslaðið er í írtiní 13 \
Jon, Torill
og Maja.
KRAFTAVERK?
Heimsins minnsta móðir
Tuttugu og átta ára gömul
norsk kona að nafni Torill
Steen, lýsir því nú yfir með
nokkru stolti, að hún sé heimsins
minnsta mamma. Ekki er það
ólíklegt, því Torill er aðeins 97
sentimetra löng, fæddur dverg-
ur. Eiginmaður hennar, Jon, er
hins vegar af eðlilegri stærð og
bamið þeirra, Maja, er það líka,
er raunar nærri hálf lengd móð-
ur sinnar nýfædd.
Torill og Jon eru í sjöunda
himni sem vonlegt er, ekki síst
vegna þess að Torill fór í fóstur-
eyðingu að læknisráði fyrir
þremur árum síðan. Læknar
töldu ekki ráðlegt að svo smá
kona gæti staðið í bameignum.
„Við Jon vildum ekki fóstur-
eyðinguna, en það var mikil
pressa á okkur og því miður þá
létum við undan. Eftirsjáin var
gífurleg og gerði okkur hálfu
ákveðnari að reyna aftur og
hlusta þá ekki á neitt raus. Þeg-
ar bamið kom í heiminn á dögun-
um, sögðu læknamir svo að
þetta væri hreint kraftaverk,"
segir Torill. Hin stolta móðir
viðurkennir þó að meðgangan
hafi verið afar erfið og þegar
hún var komin á steypirinn hefði
hún verið orðin meiri á þverveg-
inn en langveginn. Mest mældist
Torill 100 sentimetrar á breidd,
en hún er annars 97 á hæðina.
„Okkur var sagt að barnið yrði
að taka með keisaraskurði, að
hættan á fyrirburði væri mikil,
einnig að miklar líkur væm á
því að bamið yrði dvergur eins
og ég. Þá vissum við að mögu-
leikamir á alls konar fæðingarg-
öllum vom meiri heldur en þegar
konur af venjulegri hæð geta
börn. Allt lá þetta fyrir, en við
vonuðum það besta og það gekk
eftir,“ segir Torill. Hún bætir
því við að þau hjónin hafí alltaf
vakið mikla athygli, hann einn
og níutíu, hún 97 sentimetrar.
„Fólk hefur alltaf glápt á okkur,
en það hefur vanist. Ekki eigum
við von á því að það dragi úr
athyglinni nú þegar við höfum
eignast eðlilegt og heilbrigt
barn,“ segir Torill.
Um tíma var Torill meiri á
þverveginn en langveginn
MOTORHJOLASYNING
Opið fim.-lau.14-22 og sun.14-20.
Aðgangseyrir kr.450.- ókeypis fyrir ellilífeyrisþega og
börn yngri en 12 ár í fylgd með fullorðnum.
Opnunardagurinn byrjar á ökuleikni reiðhjóla, bifhjóla
og bifreiða á vegum BFÖ kl.12. Sýningin verður opnuð
formlega kl.14 með lúðrablæstri. Fjölbreytt dagskrá
alla dagana, m.a. kvikmyndasýningar, myndlistarsýning,
lifandi tónlist, undarlegir mótorhjólamenn á bás nr.8,
mótorhjól tekið upp frá A-Ö að ógleymdum tæplega 70
glæsilegum mótorhjólum sem prýða staðinn.
Foreldrar ath.börnin fá fría mótorhjólaferð í kringum
Perluna.
| Mótorhjólamenn! Hópkeyrsla frá Perlunni á Hard Rock
kl.20.30 á sunnudag.
#Vifasííg 3, sími 623137
Fimmtud. 28. maí. Opið kl. 20-01
JASSTÓNLEIKAR K. 22-01
\ Hin frábæra jasssöngkona
Æ DEBORAH DAVIS
& Jasscombo Sigurdar Flosasonar
TÓNLISTARSUMAR '92
JÁ BYLGJUNNI
Bein útsending frá k. 22-24 á Bylgunni í
boði tp*ull A é'iKur t) f
Laugavegi 35
Kl. 21-22 SÆLU-DÆLU-STUND (HAPPY-DRAFT-HOUR)
MIÐAVERÐ AÐEINS KR. 1.000,-
MISSIÐ EKKI AF FRÁBÆRUM TÓNLEIKUM!
Föstud. 29. maí. Opið kl. 20-03
Stórtónleikar Stórhljómsveitarinnar
* Kl. 21-22 Sælu-dælu-stund
/O (happy-draft-hour)
I rv\T Kynnt efni af væntanlegri
'f 1 hljómplötu
V ■■ 9 , ÁSÍÐUSTUTÓNLEIKUMJÚP-
* ITERS Á PÚLSINUM 30. APRÍL
'»'■ VAR KJAFTFULLT OG BRJÁL-
> Ta P AÐ STUÐ - PVÍ ER VISSARA
: rimm að mætatímanlegai
PULSINN
- ÞAR ER STUÐIÐ!
ANNAÐ KVOLD:
I G0ÐRI SVEIFLU!
Hljómsveitin Smellir og Ragnar Bjarnason
ásamt Evu Ásrúnu leika á alls oddi á
þessum eldfjöruga sumardansleik.
Sjáumst hress, mœtum snemma.
Aögangseyrir kr. 800,- Snyrtilegur klæönaður.
_________ Opið frá kl. 22-03.
BREYTT OG BETRA DANSHÚS