Morgunblaðið - 28.05.1992, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C
120. tbl.80. árg. FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins
NATO um sovésku kjarnavopnin:
Evrópubandalagið:
Múslímaríki fengn
enga kjarnaodda
Brussel. The Daily Telegraph.
ÖLL skammdræg kjarnavopn
Sovétríkjanna fyrrverandi hafa
nú verið flutt til Rússlands og
Svíþjóð:
Leynileg
samvinna
við NATO
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSKIR fjölmiðlar skýrðu frá
því í gær að sænska stjórnin hefði,
þrátt fyrir hlutleysisstefnu sína,
undirbúið samvinnu við Atlants-
hafsbandalagið (NATO) ef Var-
sjárbandalagið réðist á Svíþjóð.
Fréttir fjölmiðlanna herma að und-
irbúningurinn hafi meðal annars fal-
ist í því að leggja herflugvelli sem
bandarískar herþotur gætu notað og
skiptast á upplýsingum við NATO
um Varsjárbandalagsríkin. Þá hefðu
sænskar orrustuþotur notað sömu
talstöðvatíðni og herir Danmerkur
og Noregs.
Carl Bildt forsætisráðherra stað-
festi á blaðamannafundi að sænsk
stjómvöld hefðu gert ráðstafanir til
að „fá hernaðaraðstoð", en vísaði því
á bug að gerðar hefðu verið áætlan-
ir um sameiginlegar hemaðaraðgerð-
ir Svía og NATO. Hann sagði að
hlutleysi landsins hefði aldrei verið
stefnt í hættu. „Sú hætta var alltaf
fyrir hendi að hlutleysisstefna okkar
færi út um þúfur. Árás á Svíþjóð
hefði merkt að hlutleysi okkar væri
búið að vera.“
Dagblaðið Dagens Nyheter sagði
að þetta leynilega samstarf við
NATO væri augljóslega brot á hlut-
leysisstefnu Svla. Hernaðarsérfræð-
ingurinn Wilhelm Agrell sagði frétt-
irnar staðfesta það sem Sovétmenn
hefðu alltaf vitað - að Svíar hefðu
ekki verið hlutlausir í köldu stríði
stórveldanna eftir síðari heimsstyij-
öldina.
engin þeirra bárust til ríkja eins
og Irans, Iraks og Líbýu eins og
óttast var, að sögn embættis-
manna í höfuðstöðvum Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) í gær.
Richard Cheney, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, og Manfred
Wörner, framkvæmdastjóri NATO,
kváðust báðir vissir um að engir
kjarnaoddar hefðu verið seldir til
annarra ríkja. Áður höfðu borist
fregnir af því að íranir hefðu kom-
ist yfir tvo kjarnaodda og fleiri
væri saknað.
„Ég tel enga ástæðu til að ætla
að skammdræg kjarnavopn hafi
borist til annarra landa. Ég er þvert
á móti mjög ánægður með að þeir
komu vopnunum til Rússlands á
mun skemmri tíma en ég hafði tal-
ið mögulegt,“ sagði Richard Chen-
ey-
Bandaríski varnarmálaráðherr-
ann hafði áður varað við hættunni
á útbreiðslu kjarnavopna eftir hrun
Sovétríkjanna. Hann kvaðst þó I
gær enn hafa áhyggjur af því að
múslímaríki kæmust yfir upplýs-
ingar um kjarnavopn eða réðu
kjarnorkuvísindamenn frá Sovét-
ríkjunum fyrrverandi.
Keuter.
Serbar gerðu í gær grimmilega árás á fólk, sem beið eftir brauði á
göngugötu í Sarajevo í gær. Að minnsta kosti 16 manns létu lífið og
á annað hundrað særðust. Myndin var tekin af göngugötunni eftir
árásina.
Sækir Noreg-
ur um aðild
í nóvember?
Ósló, Kaupmannahöfn. Reutcr.
NORÐMENN leggja að öllum lík-
indum inn umsókn um aðild að
Evrópubandalaginu í nóvember.
Hefur dagblaðið Aftenposten
þetta eftir Gro Harlem Brundt-
land forsætisráðherra sem nú er
stödd í Aþenu.
Brundtland sagði að ef sú yrði
raunin væru líkur á að aðildarum-
sókn Norðmanna yrði tekin fyrir á
sama tíma og umsóknir Svía og
Finna. Flokksþing Verkamanna-
flokksins verður haldið I nóvember
en þegar liggur ljóst fyrir að meiri-
hluti fulltrúa á þinginu mun greiða
tillögu um aðild atkvæði sitt.
Svisslendingar sóttu I gær um
aðild að EB. Uffe Ellemann-Jensen,
utanríkisráðherra Danmerkur,
fagnaði umsókninni og sagði hana
eiga eftir að treysta hinar lýðræðis-
legu undirstöður bandalagsins.
Hann sagði Dani ætla að leggja
mikla áherslu á viðræður við þau
ríki sem sótt hafa um aðild þegar
þeir fara með forystuna innan Evr-
ópubandalagsins á fyrri helmingi
næsta árs. Hann kvaðst telja að
Svíþjóð, Finnland, Sviss og Noregur
fengju aðild að bandalaginu árið
1995.
Blóðbað í Sarajevo:
Gamalt fólk og börn tætt í
sundur í sprengjuárás Serba
EB-ríkin ná samkomulagi um viðskiptabann á Serbíu og Svartfjallaland
Belgrad. Reuter.
AÐ minnsta kosti 16 manns létu
lífið og á annað hundrað særðust
þegar Serbar réðust með
Reuter
Kommúnist-
ar sameinist!
Jegor Lígatsjov, fyrr-
verandi hugmynda-
fræðingur sovéska
kommúnistaflokksins,
hvatti I gær kommún-
ista til að sameinast og
endurvekja Sovétríkin.
Lígatsjov er orðinn 71
árs gamall og kvaðst
ekki stefna sjálfur að
frekari frama I stjórn-
málunum. Hann sakaði
Mikhaíl Gorbatsjov um
að hafa svikið komm-
únistaflokkinn og ofur-
selt sig vestrænum kap-
ítalistum. Á myndinni
kynnir Lígatsjov nýút-
komna bók sína, „Ráð-
gátuna um Gorbatsjov".
sprengjukasti að fólki, sem beið
eftir brauði í Sarajevo, höfuðborg
Bosníu-Herzegovínu, í gær. Er
þetta eitt mesta grimmdarverkið
í stríðinu í landinu til þessa en
vitni segja, að strætið hafi verið
þakið sundurtættum líkum og
særðu fólki eftir árásina. Aðildar-
ríki Evrópubandalagsins sam-
þykktu í gær að setja viðskipta-
bann á Serbíu og Svartfjallaland
og ákváðu að beita sér fyrir því
að Sameinuðu þjóðirnar gerðu hið
sama og bönnuðu einnig olíusölu
þangað.
„Blóð og líkamshlutar eru um alla
götuna. Ég hef aldrei upplifað annan
eins hrylling," sagði Ijósmyndarinn
Danilo Krstanovic I viðtali við Reut-
ers-fréttastofuna en háskólasjúkra-
húsið I Sarajevo hafði tekið við 16
líkum, en vitað er að farið var með
látið fólk og slasað I aðrar sjúkra-
stöðvar. Tölurnar eiga því líklega
eftir að hækka. „Handa-, höfuð- og
fótalaus lík voru flutt burt með bíl-
um, aðallega aldrað fólk en einnig
ung böm,“ sagði Pamela Grdic, sem
varð vitni að atburðinum, en I út-
varpinu I borginni sagði, að eftir
blóðbaðið hefðu serbneskar leyni-
skyttur skotið á sjúkrabílana.
Bosníska forsætisráðið var hvatt
saman til skyndifundar til að ræða
árásina og er haft eftir heimildum,
að hugsanlega verði öllum viðræðum
við Serba hætt. Auk þessa hafa þeir
gengið á bak orða sinna um að opna
flugvöllinn I Sarajevo fyrir flutning-
um með vistir og lyf.
Fulltrúar Evrópubandalagsins
náðu I gær samkomulagi um við-
skiptabann á Serbíu og Svartfjalla-
land en ákvörðun um olíubann var
skotið til Sameinuðu þjóðanna. Gert
er ráð fyrir að utanríkisráðherrar
aðildarríkjanna undirriti samkomu-
lagið á næstu dögum. Bannið öðlast,
að öllum líkindum gildi snemma í
næstu viku.
Stjómarerindrekar I Bmssel
sögðu að bankareikningum Júgó-
slavíu yrði ekki lokað og íþróttasam-
skipti ekki bönnuð. Hins vegar yrði
allri vísinda- og tæknisamvinnu
hætt, auk þess sem viðskipti, önnur
en olíusala, yrðu bönnuð. Helmingur
alls útflutnings frá Serbíu og Svart-
fjallalandi fer til EB-ríkja.
Stjórnin I Belgrad hefur sent Bo-
utros Boutros-Ghali, framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna, bréf þar
sem hún heitir að „gera allt“ til að
koma á friði I Bosníu og greiða fyr-
ir hjálparstarfi en margir líta á bréf-
ið, sem tilraun til að vinna tíma og
draga úr líkum á refsiaðgerðum.
Fjögurra
kílóa forfað-
ir manna
Lundúnum. The Daily Telegraph-
ÞRJÁR steingerðar tennur
úr elsta þekkta forföður
manna og apa, sem lifði fyrir
50 milljónum ára, hafa fund-
ist í eyðimörkinni í Alsír.
Franski prófessorinn Jean-
Jacques Jaeger, sem fann tenn-
urnar, sagði að þessi forfaðir
manna hefði líkst smávöxnum
apa, haft langan hala og vegið
um fjögur kíló. „Hann hafði
þróast gífurlega frá því risaeðl-
urnar urðu útdauðar fyrir 66
milljónum ára, en þá voru for-
feður hans enn smærri skepn-
ur, líkastir rottum, og iifðu
aðallega á skordýrum."