Morgunblaðið - 28.05.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ PIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1992 37
Jón Páll Bjarnason
■ HALDNIR verða jasstónleikar í
kvöld, fimmtudaginn 28. maí í veit-
ingahúsinu Jazz, Ármúla 7. Þar
leiða saman hesta sína gítarleikarinn
Jón Páll Bjarnason, Ástvaldur
Traustason píanóleikari, Þórður
Högnason bassaleikari og Einar
Valur Scheving sem leikur á
trommur. Jón Páll jassgítarleikari
kom síðast fram með Útlendinga-
hersveitinni á Rúrek jasshátíðinni
í vor, en hann hefur undanfarið
starfað erlendis að list sinni. Ást-
valdur Traustason lauk 8. stigi í
jasspíanóleik frá Tónlistarskóla
FÍH, vorið 1989 og hélt síðan til
náms við Berklee tónlistarháskól-
ann í Boston og er nýkomin þaðan
að loknu námi. Einár Valur Schev-
ing og Þórður Högnason hafa ver-
ið áberandi í jasslífmu hér undanfar-
ið. Tónleikamir hefjast kl. 21.30.
Sálin hans Jóns míns.
■ UM HELGINA hefst árleg
landsyfirreið Sálarinnar hans
Jóns mins. Sveitin mun halda
tvenna miðnæturtónleika, þá fyrri
í 1929 á Akureyri á föstudags-
kvöldið og þá seinni á laugardags-
kvöldið í Félagsheimilinu Ýdöl-
um í Aðaldal. Á báðum stöðum
mun sveitin m.a. kynna efni af
■ TÓNLEIKAR verða haldnir í
Grindavíkurkirkju í dag, 28.
maí, uppstigningardag. Þeir hefy-
ast kl 16. Margir listamenn taka
þátt í tónleikunum. Bergþór Páls-
son óperusöngvari syngur lög eft-
ir Sigvalda Kaldalóns og Robert
Schumann við píanóundirleik
Jónasar Ingimundarsonar. Blás-
arakvintett Reykjavíkur skipað-
nýrri plötu, Garg, sem er væntan-
leg innan skamms og inniheldur
nýtt og eldra efni. Sálin mun gera
víðreist á næstu vikum og þræða
velflesta firði og kjálka þessa lands
með íslenska tónlist að leiðarljósi
á þessu íslenska tónlistarsumri
sem nú gengur í garð.
(Fréttatilkynning)
ur Bernharði Wilkinssyni á
flautu, Daða Kolbeinssyni á óbó,
Einar Jóhannssyni á klarinett,
Jósef Ognibene á hom og Haf-
steini Guðmundssyni á fagott,
flytur tónlist úr ýmsum áttum
ásamt Jónasi Ingimundarsyni á
píanó.
Ættfræði og pýramída-
fræði á bókauppboði
BÓKAUPPBOÐ verður haldið á
Laugavegi 25 nk. laugardag 30.
maí kl. 14.00 stundvíslega.
Seldar verða bækur og rit af
margvíslegu tagi: Ættfræðirit, ævi-
minningar, skáldverk, ljóð, leikrit,
sögur, ljstaverkabækur, íslensk
fomrit, Islandssaga, orðabækur,
gamlar myndir frá Islandi, afmælis-
rit, blöð og tímarit, ferðabækur,
gamlar og nýjar, íslenskar þjóðsög-
ur o.fl.
Meðal einstakra bóka má t.d.
nefna: Pýramídinn mikli eftir Adam
Rutherford, um hlutverk íslands í
alheiminum út frá fræðum pýra-
mídanna, bók um hinar gömlu
byggðir á Grænlandi eftir Paul
Nörlund, gömlu útgáfuna af bréfum
Matthíasar Jochumssonar, lækn-
ingabók eftir Jónassen landlækni,
Lestrarbók handa alþýðu eftir séra
Þórarin Böðvarsson, lúksuseintak
af íslenskum sjávarháttum eftir dr.
Lúðvík Kristjánsson, öll bindin í
handbundnu skinnbandi, margar
gamlar íslenskar koparstungur frá
fyrri öldu: Frá Geysi, Eyjafjalla-
jökli, Krísuvík, úr Eyjafirði, Reykja-
hlíð og víðar.
Alls verða seld um 150 númer
bóka og tímarita. Bækurnar verða
til sýnis á Laugavegi 25 á föstudag
kl. 14-18.
■ TVÆR sýningar eru eftir á
leikritinu Elín, Helga, Guðríður
eftir Þórunni Sigurðardóttur.
Leikritið verður ekki tekið aftur
til sýningar í haust. Elín, Helga,
Guðríður er saga þriggja kvenna
sem harðir hælar dómsvalds og
grimmdar hafa elt í gegnum lífið.
Sögunar lifna ein af annarri, flétt-
ast saman, kveikja minningar og
persónur. í hlutverki Elínar eru
Kristbjörg Kjeld og Halldóra
Björnsdóttir, Edda Heiðrún
Backman leikur Helgu og Ólafía
Hrönn Jónsdóttir Guðríði. Meðal
annarra leikarara eru Egill Ólafs-
son, Ingvar E.
Sigurðsson,
Helgi Björns-
son, Pálmi
Gestsson og
Lilja Guðrún
Þorvaldsdóttir.
Leikstjóri er
Þórunn
Sigurðardótt-
ir. Næstsíðasta
sýning á leikrit-
inu verður
föstudaginn 29.
maí en allra síðasta sýning á verk-
inu verður 8. júní.
Li(ja Guðrún Þor-
valdsdóttir í hlutverki
Sesse(ju, systur Helgu.
Kanntu að vélrita?
Vélritun er undirstaða tölvu-
vinnslu. Kennum blindskrift og
alm. uppsetningar á nýjar, full-
komnar rafeindavélar.
Sfðustu námskeið á þessu vori
byrja 4. júní.
Innritun f s. 28040 og 36112.
Ath.: VR og BSRB styrkja félaga
sína á námskeiðum skólans.
Vélritunarskólinn.
í dag kl. 16.00 (ath. breyttan
tíma) er almenn samkoma í
Þríbúðum, Hverfisgötu 42. Söfn-
uðurinn f Kirkjulœkjarkoti ann-
ast samkomuna með fjölbreytt-
um söng, vitnisburðum og
ávörpum. Stjórnandi: Hinrik
Þorsteinsson.
Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir. Samhjálp.
Orð lífsins,
Grensásvegi8
Almenn samkoma f kvöld
kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
HfíH’uií ft+ð
ÚTIVIST
Hallveigarstíg 1, sfmi 614330
Ferðir um hvítasunnu
5.-8. júní
1. Öræfajökull, gengið á
Hvannadalshnjúk.
2. Skaftafell-Oræfasveit.
3. Fimmvörðuháls-Eyjafja|lajök-
ull frá Básum.
4. Básar, skipulagðar gönguferðir
um Mörkina og Goðalandið.
Nánari upplýsingar og miðasala
á skrifstofu Útivistar.
Sjáumstl Útivist.
FERÐAFÉIAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Helgarferðir 29.-31. maí
Vestmannaeyjar. Siglt með
Herjólfi. Gönguferðir um Heima-
ey og sigling kringum eyjuna.
Gist f svefnpokaplássi. Brottför
föstud. kl. 19.30.
Þórsmörk - Langidalur. Nú
hefjast Þórsmerkurferðir af full-
um krafti. Það er hvergi betra
að dvelja í Mörkinni, en í Skag-
fjörðsskála Langadal, miðsvæð-
is í Þórsmörk. Gönguferðir við
allra hæfi. Brottför kl. 20. Við
minnum á ódýru sumardvölina.
Dagsferðir f immtudag
(uppstigningardag) 28.maí
1. Kl. 10.30 Trana - Mó-
skarðshnúkar. Gengið frá
Svínaskarði.
2. Kl. 13.00 Nesjavallavegur -
Háhryggur. Margar skemmtl-
legar gönguleiðir er hægt að
fara frá nýja Nesjavallavegin-
um og er þetta ein af þeim,
létt og forvitnileg, um svæði
sem margir hafa séð úr fjarska.
Missið ekki af hvítasunnu-
ferðunum 5.-8. júní
1. Afmælisferð á Snæfellsnes
og Snæfellsjökul. 60 ár frá
fyrstu Snæfellsnesferð Fi. Gist
að Görðum.
2. Öræfajökull - Kristfnartind-
ur - Morsáralur. Ganga á
Hvannadalshnjúk. Gist að Hofi,
hús eða tjöld.
3. Skaftafell- öræfasveft. Gist
að Hofi. Göngu- og skoðunar-
ferðir.
4. Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs-
skála. Gönguferðir.
Brottför í allar ferðir kl. 20.
Pantið tímanlega.
Göngudagur Ferðafélags-
ins 1992
verður sunnudaginn 31. maí og
nú tileinkum við þennan árlega
göngudag flutningi skrifstofu FÍ
f nýja félagsheimilið, Mörkinni
6, en félagið flutti þangað f sl.
viku. Brottför frá Mörkinni 6.
1. Kl. 11Heiðmörk - Mörkin.
Um 10 km ganga.
2. Kl. 13 Fjölskylduganga um
Elliðaárdal. Ekkert þátttöku-
gjald. Fjölmennið.
Verið velkomin að lita inn á
nýja skrifstofu Ferðafálagsins
í Mörkinni 6 (austast v/Suður-
landsbraut).
Ný númer: Sfmi 682533,
fax 683635.
Við minnum á allar skemmti-
legu sumarleyfisferðirnar.
Upplýsingar á skrifstofunni og
f ferðaáætlun 1992.
Gerist félagar f Ff.
Ferðafélag fslands.
HÚTIVIST
Hallveigarstfg 1, síml 614330.
Dagsferðir ó uppstigning-
ardag 28. mai
Kl. 10.30 Krísuvfkurberg.
Kl. 13.00 Austurengjahver-
Geitahlíð. Verð kr. 1200/1300.
Brottför frá BSl bensínsölu. Frftt
fyrir börn 15 ára og yngri í fylgd
með fullorðnum.
Dagsferðir sunnud. 31. mai
Kl. 9.15 Kirkjugangan 11.
áfangi: Garðar.
Kl. 10.30 Kræklingafjöruferð
í Hvalfjörð.
Sjáumstl Útivist.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30 í umsjón Ungs fólks.
Munið vorferðina í Þórsmörk á
morgun kl. 9.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustrcti 2
Hátfðarsamkoma f kvöld upp-
stigningardag, kl. 20.30. Gestir
frá Akureyri og Noregi syngja,
vitna og tala. Allir hjartanlega
velkomnir.
RAÐAUGIYSINGAR
Sendibíll + leyfi
Mitsubishi Canter turbo sendibíll, árgerð
'88, með 18 rúmmetra kassa, lyftu, talstöð,
gjaldmæli og síma. Akstursleyfi á Sendibíla-
stöð Hafnarfjarðar.
Upplýsingar í síma 50333.
Notaður skrifstofubúnaður
til sölu
Vegna stofnunar Nýherja fer fram sala á
notuðum skrifstofubúnaði í Skaftahlíð 24,
1. hæð (gegnt Tónabæ).
Salan stendur yfir laugardaginn 30. maí og
mánudaginn 1. júní kl. 10-18 báða dagana.
Seldar verða tölvur, prentarar, ritvélar,
skermveggir og ýmislegt fleira.
<JH> NÝHERJI
Garðplöntusala
ísleifs Sumarliðasonar, Bjarkarholti 2, Mos-
fellsbæ, auglýsir tré, runna, rósir, garðskála-
plöntur, skógarplöntur, og fjölærar plöntur.
Verðdæmi: Sumarblóm kr.'40.
Tilboðsverð á Blátoppi frá kr. 175.
Opið daglega frá kl. 10-20. Sími 66 73 15.
Málverkauppboð
Móttaka er hafin á verkum inn á næsta list-
munaupboð sem haldið verður 4. júní nk.
Síðustu forvöð á að koma verkum inn á upp-
boðið er mánudagurinn 1. júní.
BORG
Borgarnes
íbúðarhúsnæði með tveimur íbúðum, önnur
má vera lítil einstaklingsíbúð, óskast í skipt-
um fyrir 128 m2 neðri hæð í góðu ástandi
við Kveldúlfsgötu í Borgarnesi.
Allar nánari upplýsingar gefur undirritaður.
Gísli Kjartansson hdl.,
Borgarbraut 61,
Borgarnesi, sími 71700.
Umhverfismálanefnd
Sjálfstæðisflokksins
Fundur veróur haldinn i umhverfismálanefnd Sjálfstæðisflokksins
föstudaginn 29. maí kl. 16.00 í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
LISTMUNIR-SYNINGAR-UPPBOÐ
Formaður.