Morgunblaðið - 28.05.1992, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1992
55
JC-hreyfingin sendir
fulltrúa til Ríó
Frá Arnlaugi Helgasyni:
Kemur umhverfið okkur við?
JC-hreyfingin á íslandi þjálfar
ungt fólk í því að láta til sín taka
í þjóðfélaginu og að hafa áhrif á
umhverfið. Eftir að félagar hafa
gengið í gegnum JC-skólann í nokk-
ur ár og náð góðum árangri í ræðu-
mennsku, fundarsköpum og skipu-
lögðum vinnubrögðum fá þeir
gjarnan tækifæri til þess að láta til
sín taka með skipulagningu á ýmiss
konar umhverfisverkefnum eða
byggðarlagsverkefnum eins og þau
eru kölluð. Þessum verkefnum er
ætlað að leiðrétta eitthvað í okkar
nánasta umhverfí á skipulegan hátt
og má til dæmis benda á verkefni
eins og Söfnun til handa Heila-
vernd, Á eftir bolta kemur barn,
Nei við vímuefnum o.s.frv. JC er
þjálfunarhreyfing fyrir ungt fólk
sem gefur því tsekifæri á að nýta
sér þjálfunina á jákvæðan hátt.
Hvað með umhverfi íslands
JC-hreyfingin er alþjóðleg hreyf-
ing og eru mörg hundruð JC-félög
starfrækt um allan heim, nú einnig
í löndum Austur-Evrópu. Eitt af
framtíðarmarkmiðum JC Internat-
ional er að bæta og varðveita um-
hverfi jarðarinnar. Þess vegna tekur
JC-hreyfingin þátt í umhverf-
ismálaráðstefnunni sem haldin
verður í Rio De Janeiro 1-8 júní
n.k. Félagar víðs vegar ú heiminum
munu mæta til þess að hafa áhrif
á ráðstefnunni og geta miðlað 'því
sem þar kemur fram þegar heim
er komið.
JC tekur þátt
Það er því með stolti að JC hreyf-
ingin sendir einn félaga, Lilju Við-
arsdóttur, til þess að taka þátt í
þessu mikilvæga verkefni. Lilja er
mjög reyndur félagi og hefur sótt
mörg erlend þing á vegum JC ís-
land. Hún hefur gegnt flestum
störfum innan JC íslands sem fé-
lagi getur gegnt og m.a. átt sæti
í landstjórn. Lilja mun vera verðug-
ur fulltrúi okkar á þessari ráð-
stefnu.
Hvað með þig?
Umhverfið í kringum okkur
skiptir okkur öll máli og það er
löngu orðið tímabært að snúa við
blaðinu og fara hlúa að móður nátt-
Frá Helgu Bragadóttur:
Hefur þú lesandi góður einhvern
tímann hugleitt það hvaða afleið-
ingar það getur haft að hafa
óbyrgðan heitan pott í garðinum
hjá sér? Eða fá sér bolla af heitu
kaffi, með barn í fanginu? Já, eða
leyfa barninu að sitja óbundnu í
bflnum, jafnvel í framsætinu, svona
til „hátíðarbrigða"?
Þessar, og margar aðrar spurn-
ingar leita á huga minn oft á dag,
í starfi mínu sem barnahjúkrunar-
fræðingur, í leik sem móðir, frænka,
ökumaður, nágranni, — já hvaða
hlutverki sem ég gegni. Slysin gera
ekki boð á undan sér, en hætturnar
leynast víða. Sjálfsagt er aldrei
hægt að fyrirbyggja öll slys, en ljóst
er orðið að mjög má draga úr slysa-
hættu með fyrirbyggjandi aðgerð-
um. Eitt merkasta og jafnframt
þarfasta framtak í þessum efnum
hér á landi er sjálfsagt átakið „I
vörn fyrir börn“, þar sem fjölmarg-
ir ólíkir hópar hafa sameinast undir
stjórn Neytendasamtakanna og
Slysavarnafélags íslands, og sett
sér það markmið að stuðla að auk-
inni fyrirbyggingu barnaslysa hér
úru í staðinn fyrir að tortíma henni
hægt og bítandi. Ef þú, lesandi
góður, vilt hafa áhrif á umhverfi
þitt þá átt þú samleið með JC-hreyf-
ingunni. Ef þú hefur metnað til
þess að taka þátt, þá ertu velkom-
inn.
ARNLAUGUR HELGASON
fjölmiðlafulltrúi
JC-hreyfíngarinnar.
á landi. Síðasta tölublað SVF|
Frétta er helgað þessu átaki, „í
vörn fyrir börn“.
Með skrifum þessum vil ég hvetja
alla landsmenn til þess að taka þátt
í þessu brýna átaki, — ekki endilega
með því að ganga formlega í eitt-
hvert félag, sitja fundi, ráð eða
nefndir, — heldur með því að líta í
eigin barm og haga sér og um-
hverfi sínu á þann hátt að sem
minnst hætta skapist af. Byrgjum
heitu pottana í görðunum okkar.
Leggjum barnið frá okkur á örugg-
an stað þegar við fáum okkur kaffí-
bollá. Víkjum aldrei frá þeirri reglu
að börn eiga að sitja bundin í bílum.
Fræðum meðbræður okkar og tök-
um þakklát ábendingum annarra
um það sem betur má fara í vörn
fyrir börn. Tökum öll ábyrgð. Börn-
in okkar eru ekki aðeins börn for-
eldra sinna, þau eru börnin okkar
allra. Því eins og skáldið hugprúða
ritaði:
Börn ykkar eru ekki börn ykkar.
Þau eru synir og dætur lífsins og
eiga sér sínar eigin langanir.“
(Kahlil Gibran, Spámaðurinn,
1983.)
HELGA BRAGADÓTTIR,
hjúkrunarfræðingur,
Miðskógum 13,
Bessastaðahreppi.
Yfirlýsing
Hver ber ábyrgð á
bömunum okkar?
nisf
Spar'
tstfn sem er lagðy
faðurinh nær að hiaupa ac
bn þá dregur sundur með þeim og
|ð loftlaust. Snýr svo við og labbar lotinn
'feikskólatösku aftur til baka. Fólkið á
jðinni horfir agndofa eins og á harmleik.
t?Jíonan að fara frá honum? Nestistask
/mst?
3étur Gunnarsson, Dýrðin á i
Ertn í húsgagnaleit?
Svefnsófarnir komnir
Nýsending af2ja manna svefnsófum með
rúmfatageymslu. 3gerðir. Stærð: 198x130.
Verð frá kr. 38.000,- stgr.
Armúla 8, símar: 81 22 75 og 68 53 75
Frá Magnúsi Guðmundssyni:
Að gefnu tilefni sér undirritaður
sig knúinn til að skýra sína hlið á
máli því sem Edda Sverrisdóttir
hefur höfðað gegn mér fyrir bæjar-
þingi Reykjavíkur og ítrekað var
sagt frá í fjölmiðlum í síðustu viku.
Gögnin sem Edda grundvallar máls-
höfðun sína á sá ég reyndar fyrst
síðastliðinn mánudag, 18. maí,
nokkrum dögum eftir að hún hafði
auglýst í fjölmiðlum að hún hefði
höfðað málið. Fréttaflutningur af
þessu einkamáli hefur valdið að-
standendum mínum verulegum
harmi og ég óttast að allur þorri
þess fólks, sem hefur trúað á rétt-
mæti starfsemi minnar undanfarin
ár, hafi orðið fyrir miklum von-
brigðum þegar haldið er blákalt
fram að ég hafi stundað stórfelld
svik gagnvart fyrrum samstarfs-
fólki. '
1. Edda Sverrisdóttir starfaði hjá
mér sem meðstjórnandi og klippari
við framleiðslu Lífsbjargar í Norð-
urhöfum í um eina viku árið 1985,
> um þijá mánuði árið 1986 og síð-
ast í um tvo mánuði við lokavinnslu
myndarinnar árið 1989. Fyrir þessi
störf sín fékk hún að fullu greitt
samkvæmt samningi og hefur aldr-
ei fyrr gert athugasemdir við það
uppgjör. Launin voru gefin upp til
skatts, sem greiðslur til verktaka
og hún hefur aldrei gert athuga-
semdir við það framtal. Öll þau
gögn liggja fyrir.
2. Edda hefur aldrei sent mér
neins konar reikninga eða gert aðr-
ar tilraunir til að innheimta þau
rosalegu laun, eða hátt á fimmtu
milljón, sem hún segir nú að ég
skuldi sér. Reikningar þeir sem eru
nú lagðir fram í réttinum eru ódag-
settir og fjarri nokkrum raunveru-
leika.
3. Jafnframt gerir hún kröfu um
að vera ein titluð sem stjórnandi
kvikmyndarinnar, sem fæli í sér
fulla ábyrgð á kvikmyndinni og efni
hennar. Hún hefur hafnað að bera
nokkra ábyrgð á myndinni og því
er óhugsandi að skrá hana eina sem
stjórnanda hennar, enda var hún
það ekki. Þess er rétt að geta að
ég hef aldrei gert neinar kröfur á
hendur henni fyrir kostnaðarsaman
málarekstur vegna myndarinnar,
þótt hún með réttu sem meðstjórn-
andi beri jafna ábyrgð og ég.
4. Edda gerir dómskröfu um að
fá upplýsingar um dreifingu mynd-
arinnar um heiminn. Það hefði ver-
ið ódýrara að hringja og spytja mig
um þetta. Hún hefur aldrei borið
sig eftir þessum upplýsingum fyrr.
5. Mér vitanlega skulda ég Eddu
Sverrisdóttur ekkert, hvorki pen-
inga né annað. Það er ekkert leynd-
armál að Lífsbjörg í Norðurhöfum
og eftirleikur myndarinnar hefur
verið kostnaðarsamt fyrirtæki og
það hefur síður en svo verið auð-
velt að standa straum af því. Hins
vegar hefur það ávallt haft algjöran
forgang hjá mér í minni starfsemi
að greiða samstarfsfólki laun,
hvemig sem fjárhagur minn hefur
annars verið hvetju sinni.
Ég veit ekki hvaða hvatir liggja
að baki þessari málshöfðun, það
mun væntanlega koma í ljós í réttin-
um. Ég mun ekki fjalla meira um
þennan óvinafagnað í fjölmiðlum,
enda verður málið varið fyrir bæjar-
þingi Reykjavíkur, þar sem sann-
leikurinn mun vonandi koma í ljós.
MAGNÚS GUÐMUNDSSON
Klapparstíg 25, Reykjavík.
LEIÐRÉTTING
Stimpilklukku-
lækningar
í grein Auðólfs Gunnarssonar
læknis í Morgunblaðinu í gær:
„Hugleiðingar um íslenskt heil-
brigðiskerfí", féll niður síðari hluti
orðs á einum stað í aftasta dálkin-
um. Þar stóð bara stimpilklukka,
en í greininni átti að standa: „Áður
en miklu er hér um breytt, m.a.
með upptöku stimpilklukkulækn-
inga, held ég að endinn skuli í upp-
hafi skoða.“
ÁRÉTTING
Douglas C-47
Vegna fyrirspurna sem Morgun-
blaðinu liafa borist vegna fréttar
sem birtist í blaðinu í gær um fyrsta
landgræðsluflug sumarsins á
áburðarflugvél Landgræðslu ríkis-
ins, Páli Sveinssyni, skal áréttað
að flugvélin er af gerðinni Douglas
C-47, sem er hernaðargerð Douglas
DC-3 flugvéla sem Bandaríkjaher
festi kaup á í síðari heimsstyijöld-
inni. Fullt tegundarheiti flugvélar-
innar er C-47A-60-DL, en hún kom
hingað til lands síðari hluta ársins
1943 og var notuð við margvísleg
flutningastörf á vegum hersins.
Flugfélag íslands keypti vélina af
herliði Bandaríkjamanna á íslandi
árið 1946 og hlaut hún nafnið „Gljá-
faxi“, en árið 1972 ákvað stjórn
félagsins að gefa Landgræðslu rík-
isins vélina til landgræðslustarfa.
■ Barnaheill
í samvinnu við
SOTHEBV?S
FOUNDED 1744
heldur listaverkauppboð
á Hótel Sögu
sunnudaginn 31. maí
kl. 20.30.
Listaverkin verða til sýnis
í Ráðhúsinu
dagana fram að uppboði:
Uppstigningardag frá kl. 12—18
Föstudaginn 29. maí frá kl. 8-22
Laugardaginn 30. maí frá kl. 12-18
Sunnudaginn 31. maí frá kl. 12-18
Hægt er að gera fyrirframboð í verkin á sýningunni
í Ráðhúsinu eða með símbréfi 620437.
Uppboðshaldari verður hinn kunni
Michael Bing frá Sotheby’s
Allur ágóði af uppboðinu mun renna
í rannsóknasjóð barna, sem eiga
undir högg að sækja.