Morgunblaðið - 05.12.1992, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1992
Ný ljóðabók eftir
Kristján Karlsson
ÚT ER komin ljóðabókin Kvæði
92 eftir Kristján Karlsson og er
þetta sjounda ljóðabókin sem
hann sendir frá sér.
í kynningu útgefanda segir:
„Hver ný ljóðabók sem Kristján
sendir frá sér er í rauninni viðburð-
ur í íslenskri ljóðagerð því að þrátt
fyrir að ljóð hans beri skýr persónu-
leg einkenni er hann að því er varð-
HÓPUR manna á vegum nor-
rænu ráðherranefndarinnar er
nú í Litháen til að leiðbeina
þarlendum um orkusparnað.
Jón Ingimarsson skrifstofu-
syóri í iðnaðarráðuneytinu er
fulltrúi íslands í hópnum
Bjöm Friðfinnsson ráðuneyt-
isstjóri segir að Jón tali á ráðstefn-
um um orkuspamað í Kaunas og
Vilníus um orkuspamaðarfræðslu
ar form, efni og efnistök nýr með
hverri nýrri bók. í þessari bók em
ljóð hans opnari en áður og víða
gætir kímni sem skáldið á í ríkum
mæli þegar hún á við.“
í Kvæðum 92 leggur Kristján
„meiri áherslu á fjölbreytni en í
nokkurri af fyrri bókum sínum, allt
frá hógvæm og nákvæmu raunsæi
til óhefts hugmyndafengs" eins og
til almennings. Uppistaða erindis
hans er að sögn Bjöms starf orku-
sparnaðamefndar iðnaðarráðu-
neytisins í olíukreppunni kringum
1980. Bjöm segir fulla þörf á
þessu, hann hafi sjálfur komið til
Litháen fyrir nokkmm mánuðum
og sláandi hafi verið í hve litlum
mæli orkusparnaði var sinnt. Til
dæmis hafi mælar ekki þekkst í
íbúðum, leiðslur og hús hafi ekki
eða lítið verið einangmð.
Kristján Karlsson
segir á káputexta. Ennfremur segir
þar: „Samt Iiggur einn rauður þráð-
ur í gegnum þessa bók því að kvæði
eftir kvæði fjallar um eðli og gildi
skáldskaparins sjálfs í margskonar
myndum og ýmist í gamni eða al-
vöm. Þessi kvæði binda bókina
saman þrátt fyrir óvænt tilbrigði
forms og efnis.“
Útgefandi er Almenna bóka-
félagið. Bókin er 83 bls., alls 31
ljóð, og er prentuð í Steinholti.
Verð 1.495 kr.
Litháum leiðbeint
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 5. DESEMBER
YFIRLIT: Skammt norður af Faereyjum er 955 mb. allvíðáttumikil en minnk-
andj lægð, sem hreyfist lítið. Veður fer hægt kólnandi.
SPÁ: Allhvöss norðan- og norðaustanótt norðan- og austanlands en heldur
hægari annars staðar. Él norðan- og austanlands en bjartviðri sunnanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Áframhaldandi norðanátt, með snjókomu eða éljum
um landið norðanvert, en úrkomulaust að mestu syðra. Vægt frost víðast
hvar.
HORFUR Á MÁNUDAG: Hæglætisveður um allt iand. Dálítíl snjókoma á Vest-
ur- og Suðvesturlandi, en úrkomulítið í öðrum landshlutum. Frost 3-8 stig.
HORFUR Á ÞRIÐJUAG. Sunnan- og suðaustanátt og hlýnandi veður. Slydda
eða rigning um mest allt land, síst þó norðaustan til.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30.Svarsfmi Veðurstofu l'slands - Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
r r r * r *
r r * r
r r r r * r
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V $ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
- Þoka
dig..
FÆRÐA VEGUM: (Ki.i7.30ígær)
Fært er á vegum í nágrenni Reykjavíkur austur um Hellisheiði og Þrengsli og
Mosfellsheiði. Skafrenningur er á Hellisheiöi. Vegir ó Suöurlandi eru færir og
fært með Suðurströndinni austur á Austfirði. Fært er um vegi í Borgarfirði, á
Snæfellsnesi og um Heydal t Dali og þaðan í Reykhólasveit. Brattabrekka er
ófær. Laxárdalsheiði er greiðfær. Fært er frá Brjánslæk til Patreksfjarðar og
þaðan til Bíldudals. Vegur er fær um Holtavörðuheiði, en þar er hnðarveður,
og fært er til Hólmavíkur og um Steingrímsfjarðarheiði, en þar er skafrenning-
ur, til ísafjarðar og Bolungarvíkur. Frá ísafirði er fært til Þingeyrar. Fært er
um Norðurland en þar er víða skafrenningur og snjókoma. A Siglufjarðarletð
er mikill skafrenningur og má búast við ófærð þar er líður á kvöldiö. Austur
frá Akureyri er fært með ströndinni til Vopnafjarðar. Mývatns-'og Moðrudals-
ör-
æfi eru ófær. Á Austfjörðum er víða vonskuveður og eru Fagridalur, Fjarðar-
heiði og Oddskarð aðeins fær jeppum og stórum bílum og mó búast við aö
þar verði ófært er líöur á kvöldið. Breiðadalsheiði og Vatnsskarð eystra eru
ófær.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni
línu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hitl veftur
Akureyri 0 snjókoma
Reykjavlk 2 skýjað
Bergen 3 skúr
Helslnki 3 alskýjað
Kaupmannahöín 5 skýjað
Narssarssuaq +21 heiðsklrt
Nuuk +10 léttskýjaft
Osló 2 skýjað
Stokkhólmur 5 atskýjað
Þórshöfn 4 skýjað
Algarve 17 súld
Amsterdam S alskýjaö
Barceiona 16 skýjað
Berlfn 7 léttskýjað
Chicago 0 snjóél
Feneyjar 12 léttskýjað
Frankfurt 4 rigning
Glasgow 5 úrkoma
Hamborg 6 skýjað
London S skýjað
LosAngeles 12 skýjað
Lúxemborg 4 rigning
Madrid 10 súld
Malaga 17 skýjað
Mallorca 18 hálfskýjað
Montreal +6 léttskýjað
NewYork 1 skýjað
Orlando 11 léttskýjað
ParÍ8 4 skýjað
Madeira 21 skýjað
Róm 17 skýjað
Vín 10 léttskýjað
Washington 1 alskýjað
Winnipeg +17 léttskýjað
/ DAG kl. 12.00
HeimiW: Veöurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gœr)
Frumvarp um að fella niður
skyldusparnað ungs fólks
__
Aætlað að endur-
greiða 1.200-1.600
millj. á næsta ári
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þar
sem ákveðið er að fella niður skyldusparnað ungs fólks til íbúðabygg-
inga um næstu áramót. Er þetta gert í samræmi við fyrirætlanir í
fjárlagafrumvarpi og verður strax í byijun næsta árs farið að greiða
eigendum af skyldusparnaðarreikningum þeirra ef frumvarpið verð-
ur samþykkt. Áætlað er að alls 4 milljarðar standi á skyldusparnaðar-
reikningum Húsnæðisstofnunar um næstu áramót og verða innistæð-
umar greiddar út á ámnum 1993 til aldamóta. Stærstur hluti skyldu-
sparnaðarins verður greiddur út á næsta ári eða 1.200 til 1.600
milljónir króna skv. fmmvarpinu.
Reglur frumvarpsins um hvemig
útgreiðslum verði háttað gera ráð
fyrir að innistæður sem em 30
þúsund kr. eða lægri verði greiddar
eigendum án sérstakrar umsóknar
á fyrri helmingi næsta árs. Eigend-
ur hærri upphæða en 30 þúsund
kr. verði gefinn kostur á að fá inni-
stæðu sína greidda þegar þeir hafa
náð 26 ára aldri, byggt eða keypt
íbúð til eigin nota eða hafa bam á
framfæri sínu. Sama á við um 75%
öryrkja. Þá eiga þeir sem stundað
hafa nám í sex mánuði samkvæmt
vottorði skóla rétt á endurgreiðslu
skylduspamaðar síns út næsta ár
skv. frumvarpinu en ekki lengur.
Aðrar innistæður verða hins vegar
ekki greiddar eigendum fyrr en 1.
janúar árið 1990.
I greinargerð frumvarpsins segir
að sá hugsunarháttur, sem býr að
baki skylduspamaðinum, hafi geng-
ið sér til húðar og bent á að eðli-
legra væri að leggja unga fólkinu
þær lífsreglur að sparnaður sé sjálf-
sagður og eðlilegur þáttur í nútíma
lífsmáta í stað þess að þvinga þann
spamað fram með lögum. Þá muni
þetta draga úr kostnaði hjá Hús-
næðisstofnun. Ætla megi að a.m.k.
15 ársstörf liggi í umsýslu skyldu-
spamaðar með tilheyrandi rekstrar-
Þormóður rammi
Hlutabréfin skráð
kostnaði og kostnaður stofnunar-
innar nemi a.m.k. 50 milljónum
króna.
------♦ ♦ ♦
Kærði móður-
bróður fyrir
tilrauntil
nauðgunar
SEXTÁN ára stúlka kærði móð-
urbróður sinn fyrir tilraun til
nauðgunar í fyrrinótt. Stúlkan
segir atburðinn hafa átt sér stað
á heimili mannsins í Reylqavík.
Stúlkunni segist svo frá, að hún
hafi fengið að gista hjá manninum,
sem er á sextugsaldri, í heimsókn
sinni til höfuðborgarinnar, en hún
býr á landsbyggðinni. Hún hafi sof-
ið í stofunni en vaknað við það að
maðurinn, sem var dmkkinn, var
að þukla á henni. Hún náði að kom-
ast undan honum eftir nokkur átök,
áður en hann náði að koma fram
vilja sínum.
Kæra stúlkunnar er til rannsókn-
ar hjá lögreglu.
á Verðbréfaþingi
50 milljóna hlutafjárútboði lokið
HLUTABRÉF í sjávarútvegsfyrirtækinu Þormóði ramma á Siglu-
firði voru skráð á Verðbréfaþingi íslands í gær og eru þá 10 hlutafé-
lög skráð á þinginu. Jafnframt lauk í gær hlutabréfaútboði fyrirtæk-
isins en boðin voru út bréf að nafnvirði 50 milljónir króna. Þar af
voru 30 miiyónir seldar á almennum markaði en 20 milljónum var
ráðstafað vegna kaupa Þormóðs ramma á 52% hlutafjár í sjávarút-
vegsfyrirtækinu Skildi hf. á Sauðárkróki.
Hlutabréfín vom seld á genginu
2,30 þannig að heildarsöluverð á
því hlutafé sem fór á almennan
markað var alls 69 milljónir. Að
sögn Svanbjörns Thoroddsen, for-
stöðumanns hjá Verðbréfamarkaði
íslandsbanka, voru það fyrst og
fremst lífeyrissjóðir og fyrirtæki
sem keyptu bréfin. Með hlutafjár-
aukningunni hækkar hlutafé Þor-
móðs ramma úr 240 milljónum í
290 milijónir eða um 21%.
Verðbréfaþing hefur einnig sam-
þykkt til skráningar hlutabréf
Granda hf. frá og með 15. desem-
ber nk. Hlutafélög sem hljóta skrán-
iggu á Verðbréfaþingi þurfa að hlíta
reglum þingsins um upplýsinga-
skyldu jafnframt því að uppfylla
ákveðnar kröfur um stærð, fjölda
hluthafa o.fl.
Kammersveit Reykjavíkur
Árlegir jólatónleikar
ARLEGIR jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur verða í
Áskirkju á morgun, sunnudaginn 6. desember, og hefjast kl.
17. Flutt verða verk frá barokktímabilinu í tónlist.
Einleikarar á tónleikunum
verða Bijánn Ingason, fagottleik-
ari, Eiríkur Om Pálsson, trompet-
leikari, Hólmfríður Þóroddsdóttir,
óbóleikari, og Rut Ingólfsdóttir,
fiðluleikari. Hólmfríður þreytir
frumraun sína á Lónleikunum. Á
efnisskránni verða verk eftir Per-
golesi, Fasch, Albinoni, Vivaldi og
Corelli.
Miðasala á tónleika Kammer-
sveitar Reykjavíkur verður í bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar í
Austurstræti og Japis í Kringlunni
í dag. Ennfremur verða seldir
miðar við inngang Áskirkju fyrir
tónleikana á morgun.
Sjá einnig bls. B4.