Morgunblaðið - 11.12.1993, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1993
Fallið frá kröfu um magn-
takmarkanir á innflutningi
SAMKOMULAG hefur tekist í rikisstjórn um að falla frá kröfu um
magntakmarkanir á innflutningi á landbúnaðarafurðum í tilboði ís-
lands vegna þeirra viðræðna sem nú standa yfir um GATT-samning.
Það þýðir, komist GATT-samningurinn í höfn, að takmarkanir á
innflutningi á búvörum falla niður af öðrum ástæðum en vegna
heilbrigðistakmarkana. Um málið var fjallað á ríkisstjórnarfundi í
gærmorgun og á Alþingi síðdegis.
Tilboðið var sent út um miðjan
nóvembermánuð eftir viðræður ut-
anríkis- og landbúnaðarráðherra.
Stærstu vinning-
amir hjá HHÍ
5 millj. af
45 gengu út
DREGIÐ var um einn 25 milljóna
króna trompvinning og fjóra 5
milljóna króna vinninga auk fjölda
minni vinninga í desemberút-
drætti flokkahappdrættis Happ-
drættis Háskóla Islands í gær. Af
stærstu vinningunum gekk aðeins
út einn 5 milljóna króna vinning-
ur, hinir miðarnir eru í eigu happ-
drættisins.
Fimm milljónimar fóru á
Hvammstanga og tveggja milljóna
króna vinningur fór á Homafjörð.
Að sögn Jóns Bergsteinssonar, skrif-
stofustjóra Happdrættis Háskóla ís-
lands, vora þetta einu stóra vinning-
amir sem gengu út í gær. Hlutfallið
yfír árið í heild hafí hins vegar verið
mun hærra.
Að sögn Ragnars Ingimarssonar,
forstjóra HHÍ, er vinningshlutfall
flokkahappdrættisins um 70% sem
þýðir að fyrir hveijar hundrað krónur
sem komi inn fari 70 krónur út aftur
í formi vinninga. Hlutfall seldra miða
er hins vegar 30%.
Ljóst var þá að afar erfítt yrði að
ná fram kröfu um magntakmarkan-
ir og í þeim viðræðum sem átt hafa
sér stað síðan hefur niðurstaðan
orðið sú að þær þjóðir sem héldu
fast við kröfur um magntakmark-
anir myndu þurfa að kaupa það
hærra verði í magni leyfðs lág-
marksinnflutnings.
Halldór Blöndal sagði á Alþingi
í gær að til boða hefðu staðið magn-
takmarkanir á innflutningi í sex ár,
en gegn mjög ströngum skilyrðum.
„Fresturnarvalkosturinn sem gjam-
an er kenndur við Japan felur í sér,
eins og fastanefnd íslands hefur
áður skýrt frá, að beita megi magn-
takmörkunum í sex ár en þá gegn
því að heimila aukinn lágmarksað-
gang á lágum tollum fyrir viðkom-
andi vörur sem væru 4% í upphafí
í 8% við lok aðlögunartímans í stað
3% og 5% eins og áður hefur verið
talað um. Hvaðeina sem gerist þar
á eftir miðast við að viðhaida þeim
lágmarksaðgangi 8% sem þannig
hefur verið veittur,“ sagði Halldór.
Hann sagði að talið væri að S-
Kórea væri hlynnt þessari leið og
ef til vill Japan og einnig Sviss, en
Norðmenn væru andvígir. „Við höf-
um talið og ég hygg að um það
séum við í landbúnaðarráðuneytinu
sammála bændasamtökunum að
höfuðhættan sem við stöndum
frammi fyrir nú er lágmarksað-
gangur og af þeim sökum höfum
við látið í ljósi þá skoðun og látið
tilkynna það að við munum ekki
nýta okkur það að fá heimild til
magntakmarkana í sex ár. Það hef-
ði í för með sér varanlega aukningu
á lágmarksaðgangi," sagði Halldór.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Skemmdirnar
skoðaðar
GAUTUR Hansson skoðar
skemmdirnar á stefni Sverris
BA, en Gautur á Kóna dró
Sverri til hafnar í fyrrakvöld.
Stefni
Svems
brotið
TRILLAN Sverrir BA frá
Tálknafírði sem strandaði á
Hróaskeri við Ólafsvík í fyrra-
dag var í gær tekinn á land í
Uppsátrinu í Ólafsvík og
skemmdir kannaðar. Kom í ljós
að báturinn er talsvert
skemmdur. Stefni hans er brot-
ið og lekur inn í lúkar. Þá er
stjómborðssíðan dælduð og
skemmdir á skrúfu og stýri.
Siglingaleiðin til hafnar í Ólafs-
vík liggur skammt frá Hróa-
skeri og þar hafa bátar oft
strandað. Síðast strandaði trilla
þar í lok maí á síðasta ári.
Manninum var bjargað í land
en trillan sökk þegar hún vár
dregin út af skerinu.
Kaupmannasamtökin lýsa miklum áhyggjum af lækkun vsk. á matvæli
Alþingi hvatt til að stöðva
áform um tvö skattþrep
Segja forustumenn launþega reiðubúna að ræða aðrar jafngildar aðgerðir
Kaupmannasamtökin skora á
efnahags- og viðskiptanefnd Al-
þingis að beita sér fyrir því að
fallið verði frá áformum um tvö
þrep í virðisaukaskatti. Þess í
stað verði nýtt það endur-
greiðslukerfi innan skattsins sem
nú nær til flestra mjólkurvara,
Verkfall sjómanna boðað
Morgunblaðið/Sverrir
FULLTRÚAR sjómanna gengu á fund útgerðarmanna
í gær og afhentu þeim boðun um verkfall sem hefst
eftir áramót. Á myndinni eru taldir frá vinstri Bene-
dikt Valsson og Guðjón A. Kristjánsson, hjá Far-
manna- og fiskimannasambandinu, Jónas Haraldsson,
lögfræðingur Landssambands íslenskra útvegsmanna,
Óskar Vigfússon, formaður Sjómannasambands ís-
lands, Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags ís-
lands, og Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjó-
mannasambands íslands.
Sjá af innlendum vettvangi bls. 40-41.
kindakjöts, fisks og grænmetis
og það verði látið taka til alls
innlends matvöruhráefnis. Að
auki verði fjármunum varið til
skattalegra breytinga sem komi
launafólki betur en lækkun virð-
isaukaskatts á matvöru. í
greinargerð segja Kaupmanna-
samtökin að rætt hafi verið við
forustumenn þeirra samtaka
launafólks, sem tengjast þessu
máli. „Þeim eru Ijósir þeir miklu
annmarkar sem eru á fyrirhug-
aðri breytingu og hafa þeir Ijáð
sig reiðubúna til að leggja að
jöfnu aðrar þær breytingar sem
jafngildar geta talist fyrir launa-
fólk,“ segir í greinargerðinni.
Lækka á virðisaukaskatt á mat-
væli úr 24,5% í 14% um áramótin
í samræmi við yfírlýsingu ríkis-
stjómarinnar vegna almennu kjara-
samninganna í vor og er lagafram-
varp um breytingar á skattalögum
nú til meðferðar hjá efnahags- og
viðskiptanefnd Alþingis. í greinar-
gerð til nefndarinnar lýsa kaupmenn
yfír miklum áhyggjum af fram-
kvæmd þessarar breytingar, einkum
vegna þess að skammur tími hafí
verið gefínn til undirbúnings. Ekk-
ert hafi verið hugað að breyttri
framkvæmd við innheimtu skattsins
í verslunum og sé fullljóst að ómögu-
í dag
i MgNNING ■ - — ,.K
^Ljúfur og fallegui — logandi sái r r
Grafarvogskirkja
Fyrrí áfangi Grafarvogskirkju
vígður á sunnudag 27
MK 20 ára
Skólameistari Menntaskólans í
Kópavogi horfir um öxl 28
Vaxtabreytingar
Búnaðarbanki lækkar vexti um
1,5% 30
Leiðari
Friðarframlag de Klerks og Mand-
ela 32
Menning/Listir
► Milan Kundera - Roy Lichten-
stein - Lucian Freud - Einar Már
- Ijóð Hannesar, Guðmundar Inga
og Eysteins - tónleikar kammer-
sveitar og blásarakvintetts
Ráðherraráð EB stað-
festír EES á mánudag
UTANRÍKISRÁÐHERRA segir að nú liggi Ijóst fyrir að samning-
urinn um Evrópska efnahagssvæðið taki gildi um áramótin og samn-
ingurinn verði formlega staðfestur í ráðherraráði Evrópubandalags-
ins á mánudag. Tilraunir ákveðinna aðildarríkja EB til að koma í
veg fyrir að tollalækkunarákvæði samningsins taki gildi fyrstu tvö
samningsárin hefðu ekki tekist.
Þetta kom fram í umræðu á AI-
þingi í gær í kjölfar þess að Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir alþingis-
maður lýsti yfír efasemdum um að
Alþingi væri nægilega vel í stakk
búið til að íjalla um tilskipanir Evr-
ópubandalagsins og hafa eftirlit með
samningaviðræðum aðila að Evr-
ópska efnahagssvæðinu eftir að
samningurinn um EES tekur gildi.
Fram kom hjá Hjörleifi Guttorms-
syni alþingismanni að á fjórða
hundrað samþykktir Evrópubanda-
lagsins hefðu safnast upp frá miðju
ári 1991 sem ósamið vætj um hvort
myndu gilda á Evrópska efnahags-
svæðinu.
Bjöm Bjamason formaður utan-
ríkismálanefndar Alþingis sagði að
á mánudaginn yrðu lögð fram gögn
frá skrifstofu Alþingis sem yrðu
grundvöllur viðræðna milli þing-
flokka um það hvemig haga skuli
aðild Alþingis að framgangi mála
eftir að EES-samningurinn tekur
gildi.
legt sé að koma breytingunni í fram-
kvæmd á þeim tíma sem sé til
stefnu. Þá muni breytingin ekki
koma neytendum til góða að því
marki sem talið var í fyrstu. í fijálsri
samkeppni leiði breyting skatta ekki
einhlítt til verðbreytingar og aukinn
kostnaður við framkvæmd hljóti að
hækka vöruverð.
Breytingin til tjóns
Þá lýsa Kaupmannasamtök ís-
lands þeirri skoðun að með eins
þrepa virðisaukaskatti verði inn-
heimta skattsins skilvirkust og
kostnaður verslunarinnar við inn-
heimtuna lægstur. Hins vegar séu
marvíslegir annmarkar á tveggja
þrepa skatti. Sú breyting verði til
tjóns fyrir hagsmuni almennings óg
valdi auknum kostnaði hjá versl-
unum við innheimtu skattsins.
Vitnað er til að forustumenn
stjómmálaflokka, bæði í stjóm og
stjómarandstöðu, og formaður
efnahags^ og viðskiptanefndar,
Halldór Ásgrímsson, hafi lýst efa-
semdum um þessar breytingar eða
gagnrýnt þær. Því skora Kaup-
mannasamtökin á efnahags- og við-
skiptanefnd Alþingis að beita sér
fyrir breytingum á lagafrumvarp-
inu.
Endurgreiðslur
Leggja kaupmenn til að 4-500
milljónum verði varið til endur-
greiðslna á skatti af innlendu mat-
vömhráefni en sú leið hafi sömu
áhrif á verð matvöru úr innlendu
hráefni og lækkun virðisaukaskatts-
ins. Alls er áætlað að lækkun virðis-
aukaskattsins á matvæli kosti ríkis-
sjóð 2.500 milljónir króna og leggja
kaupmenn til að mismuninum verði
varið til skattalegra breytinga, svo
sem hækkunar persónuafsláttar og
hækkunar bamabota og bóta tryg-
ingakerfisins. Einnig sé lækkun al-
menna virðisaukaskatthlutfallsins
betri kostur en að lækka þrepið á
fáum vörutegundum.
LESBOK
H ® ® ® ® M11E
Lesbók Morgunblaðsins fylg-
ir ekki blaðinu í dag. Jólales-
bókin kemur út í jólavikunni.