Morgunblaðið - 11.12.1993, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1993
Vextír verða óbreyttir hjá Landsbanka og íslandsbanka
Búnaðarbanki lækkar vexti
iiin 1,
BÚNAÐARBANKINN lækkar vexti flestra flokka óverð-
tryggðra útlána um 1,5 til 1,8% í dag. Landsbankinn og ís-
landsbanki breyta ekki vöxtum að þessu sinni en íslands-
banki mun ákveða vaxtalækkun fyrir jól. Eins og fram kom
í blaðinu í gær lækka sparisjóðirnir vexti flestra flokka óverð-
tryggðra útlána um 2% og eru sparisjóðimir nú með lægstu
vextina í flestum flokkum óverðtryggðra útlána í stað Lands-
bankans sem áður var með lægstu vextina.
Búnaðarbankinn lækkar kjör-
vexti almennra skuldabréfa úr 10,5
í 9%, sem er 1,5% lækkun og lægstu
forvexti á víxlum úr 10,75 í 9%,
eða um 1,75%. Bankinn lækkar
afurðalán sem veitt eru í krónum
um 1,75% og yfirdráttarlán um 1%
en vextir á skiptigreiðslum vegna
greiðslukorta breytast ekki.
Sparisjóðirnir lægstir
Sparisjóðimir eru með lægstu
meðalvextina í öllum helstu flokk-
um óverðtryggðra útlána eftir
vaxtabreytingamar í dag. Islands-
banki er með hæstu meðalvextina
í almennum skuldabréfaútlánum og
víxillánum en Landsbankinn er með
hæstu yfirdráttarvextina, hæstu
afurðavexina og hæstu vextina á
skiptigreiðslum greiðslukortareikn-
inga.
Búnaðarbankinn og sparisjóðim-
ir lækka einnig vexti ákveðinna
flokka innlána. Þannig lækka ýmsir
vísitölubundnir reikningar um
0,25% hjá Búnaðarbankanum.
Óverðtryggð kjör á bundnum skipti-
kjarareikningum lækka um 0,7%
og um 1% á óbundnum sérkjara-
reikningum. Óverðtryggð kjör á
bundnum skiptikjarareikningum
hjá sparisjóðunum lækka um 0,50%
og um 1% á óbundnum sérkjara-
reikningum. Nokkrir vísitölubundn-
ir reikningar lækka um 0,20-0,25%.
Viðurkenning á of miklum
mun
Stefán Pálsson, bankastjóri Bún-
aðarbankans, sagði að með ákvörð-
un sinni væri bankinn að viður-
kenna að of mikill munur hafi verið
orðinn á vöxtum óverðtryggðra og
vísitölubundinna útlána, enda verð-
bólgan mjög lítil.
Brynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbankans, sagði
að engar breytingar yrðu á vöxtum
bankans að þessu sinni. Því hefur
verið lýst yfir að bankinn muni taka
vextina til endurskoðunar í byrjun
næsta árs. Brynjólfur sagði að það
væri stefnan en staðan yrði metin
eftir helgina, þegar vaxtabreyting-
amar yrðu komnar fram. Varðandi
óverðtryggðu vextina sagði Brynj-
ólfur að munur milli vaxta óverð-
tryggðra og vísitölubundinna útlána
hefði að undanförnu verið minnstur
hjá Landsbankanum. Hann sagði
að forsendur hefðu breyst eitthvað
frá því sem gengið var út frá við
gerð vaxtaskiptasamniganna við
Seðlabankann, en þó ekki svo mikið
að það hefði áhrif á vaxtastefnu
bankans þessa dagana.
íslandsbanki hreyfir ekki vexti
sína í dag, samkvæmt upplýsingum
Vals Valssonar bankastjóra. „Við
munum hins vegar taka ákvörðun
um vaxtalækkun fyrir jól,“ sagði
Valur. Hann sagði að þótt fyrir
lægi að nafnvextir yrðu lækkaðir í
íslandsbanka fyrir jól, hefði engin
ákvörðun verið tekin um það hversu
mikið þeir yrðu lækkaðir.
Nýjar plötur
■ HEYRUM SÖNG er heiti á
nýrri geislaplötu og snældu
sem Samkór Kópavogs hefur
gefið út.
Á plötunni er að finna íslenska
og erlenda tónlist. Sérstaklega
skal bent á lög sem kórinn frum-
flutti fyrir fáum árum og koma
nú í fyrsta sinn á geislaplötu. Þau
eru í Kópavogi eftir Sigfús Hall-
dórsson og Ég sótti upp til fjall-
anna eftir stjórnanda kórsins
Stefán Guðmundsson.
Einsöngvarar á plötunni eru
þau Katrín Sigurðardóttir, sópr-
an, og Sigurður Skagfjörð Stein-
grímsson, bariton. Um undirleik
sér Ólafur Vignir Albertsson.
Upptökur fóru fram í Víði-
staðakirkju og stóðu yfir á
annan vetur. Um upptökur sá
Halldór Víkingsson.
Aðstandendur krabbameinssjúkra barna
Fullar umönnunarbæt-
ur fyrstu sex mánuðina
Utlánavextir banka og sparisjóða
frá 10. desember 1993
Almenn skuldabréfalán, Víxillán,
(óverðtryggð) meðalvextir meðalforvextir
13,7%
12,8%
11,9%
11,4%
13,6%
13,0%
TRYGGINGARÁÐ samþykkti á fundi í gær að krabbameinssjúk
börn fái framvegis í öllum tilfellum fullar umönnunarbætur fyrstu
sex mánuðina eftir að sjúkdómurinn greinist. Að sögn Jóns Sæmund-
ar Sigurjónssonar formanns Tryggingaráðs eru umönnunabætur
samkvæmt efsta flokki nú tæplega 50 þúsund krónur á mánuði og
er þá miðað við 175 tíma umönnun. Að loknum sex mánuðum fer
síðan fram endurmat á viðkomandi börnum og eru þá greiddar
umönnunarbætur samkvæmt gildandi reglugerð.
í Morgunblaðinu birtist nýlega
opið bréf til íslenskra stjórnmála-
manna frá fulltrúum norrænna
styrktarfélaga krabbameinssjúkra
bama þar sem skorað er á sérhvem
íslenskan stjómmálamann og jafn-
framt á stjórnmálaflokkana í heild
að gera þegar í stað ráðstafanir til
að breyta og betmmbæta þjóðfé-
lagslegan fjárstuðning við aðstand-
endur krabbameinssjúkra barna.
Að sögn Jóns Sæmundar Sigur-
jónssonar hefur það verið krafa
aðstandenda krabbameinssjúkra
barna að þau fengju alltaf fullar
umönnunarbætur. Læknar Trygg-
ingastofnunar hefðu hins vegar
verið tvístígandi yfir því og þá sér-
staklega vegna þess að reglugerð
gerði ráð fyrir því að ef sjúk böm,
hversu erfiðan sjúkdóm sem þau
væra með, þyrftu að nota þjónustu
utan heimilis þá reiknaðist það frá
umönnunarbótunum. Spurningin
væri síðan hvers vegna ætti að
meðhöndla krabbameinssjúk börn
öðravísi en önnur böm. Hann sagði
læknana hafa tekið upp þá reglu
sem staðfest hefði verið á fundi
Tryggingaráðs í gærmorgun að
greiða öllum krabbameinssjúkum
börnum sjálfkrafa bætur sam-
kvæmt efsta flokki í sex mánuði
frá því sjúkdómurinn staðfestist.
„Þetta er það sem við höfum
bragðist við að svo stöddu, en ef
miðað er við það fínasta og besta
sem Norðurlöndin hafa þá má auð-
vitað nefna eitt og annað sem við
erum ekki með eins fullkomið hvað
snertir þjónustu velferðarríkisins
gagnvart þessum hópi, en það er
þá sama þjónusta og allir aðrir fá,“
sagði Jón Sæmundur.
Nýtt 18 radda orgel vígt í Áskirkju á morgun
Sérsmíðað í Danmörku
fyrir 18 milljónir króna
NÝTT 18 radda orgel verður vígt í Áskirkju á morgun, sunnu-
dag, en þá fagnar kirkjan því að tíu ár eru liðin frá vígslu henn-
ar. Orgelið er sérsmíðað fyrir Áskirkju af virtri danskri orgel-
smiðju, P. Bruhn & Sön. og kostar um 18 milljónir króna. Krist-
ján Sigtyggsson, orgelleikari kirkjunnar, segir að fyrirtækið
hafi sett orgelið upp fyrir skömmu og hafi forstjóri fyrirtækis-
ins, Karl August Bruhn, komið hingað til lands og raddstillt
hljóðfærið. Lauk því verki fyrir rúmri viku. Orgelið verður lyfti-
stöng fyrir allt sem að tónlist lýtur og því sem orgelið er notað
við hér í kirkjunni,“ segir Kristján. „Fyrir hefðbundið safnaðar-
starf, s.s. guðþjónustur, á það eftir að hljóma í hugum manna
þannig að um ótvíræðan ávinning sé að ræða. Þeir sem eru
búnir að heyra I hljóðfærinu fullfrágengnu og spila á það eru
ákaflega ánægðir.“
Kristján segir að langþráður
draumur rætist nú þegar kirkjan
eignast hið nýja orgel. „Við byijuð-
um hér upphaflega með stofuorgel,
harmóníum, og 1985 fengum við
fjögurra radda orgel sem er pípu-
orgel og hefur þjónað vel, en síðan
hefur maður látið sig dreyma um
það sem nú er orðið að veruleika,"
segir Kristján. „Við erum búnir að
njóta mjög mikils velviija fjölda tón-
listarmanna, það er búið að halda
hér tvenna tónleika til styrktar org-
elkaupum þar sem m.a. komu fram
Kristinn Sigmundsson, Jónas Ingi-
\ mundarson og Ingibjörg Marteins-
dóttir, auk þess sem við héldum
aðra tónleika þar sem um fimmtán
söngvarar og hljóðfæraleikarar
komu fram. Einnig hefur fólkið hér
í sókninni og kannski víðar stutt
dyggilega við þennan draum, og á
miklar þakkir skyldar fyrir sitt
framlag. “
Skattur of stór hluti kaupverðs
Kristján segir að verð hljóðfæris-
ins sé vissulega geypilega hátt, en
það eigi að geta enst langt fram á
næstu öld með góðri meðferð, eins
og gerist með góð hljóðfæri erlend-
is. „Við tjöldum ekki til einnar
nætur,“ segir Kristján, „og reynd-
um að velja hljóðfærið með það í
huga að hægt sé að spila sem allra
flest á það og ég álít að það sé
afar vel heppnað að því leyti að
hver rödd er sjálfstæð og hefur sitt
einkenni. Það er því fjölbreytt í
hljómavali og hljómurinn er mjög
fallegur. Hins vegar með kostnað-
inn, þá vildi maður gjarnan að ríkið
styddi betur að menningarmálum
en í 18 milljóna kr. kaupverði er
24,5% virðisaukaskattur sem verður
að borga ríkinu fyrir að mega kaupa
hljóðfæri, eða rúmar 4 milljónir kr.
Þetta er breyting frá sem var fyrir
nokkram áram, og er alltof stór
hluti þegar verið er að kaupa svo
dýrt hljóðfæri.“
Kristján segir að orgelið sé að
miklu leyti ógreitt þar sem fjármun-
ir safnaðarins hafi verið varið til
byggingu kirkju og safnaðarheimil-
is á seinustu tíu áram, og muni
Áskirkja halda áfram að safna pen-
ingum fyrir orgelið með góðra
manna hjálp.
Orgelið vígl
Dagskrá afmælisins og orgel-
Morgunblaðið/Þorkell
Nýtt orgel í Áskirkju
SR. ÁRNI B. Sigurbjömsson og Krislján Sigtryggsson með nýja átj-
án radda orgelið í Áskirkju í baksýn, en það verður vígt á morgun
þegar kirkjan fagnar 10 ára vígsluafmæli sínu.
vígslunnar verður með þeim hætti
að við barnaguðþjónustu kl. 11 fá
börnin forsmekk að nýja hljóðfær-
inu, kl. 13 hefst orgelleikur og kór-
söngur, kl. 13.25 verður leikið á
öll þijú orgel kirkjunnar og síðan
hefst guðþjónusta með klukkna-
hringingum og forspili á tvö orgel.
„Þetta er eins konar kveðja til þeirra
orgela sem hafa þjónað okkur
dyggilega, ásamt því að við leyfum
söfnuðinum að heyra muninn á
þeim og nýja orgelinu sem við vígj-
um nú,“ segir Kristján. Sr. Jónas
Gíslason, vígslubiskup, vígir orgelið
á morgun, einsöngvari verður Ingi-
björg Marteinsdóttir og Haukur
Guðlaugsson, söngmálastjóri Þjóð-
kirkjunna, kynnir kirkjugestum
orgelið með einleik. Einnig syngur
kirkjukór Áskirkju undir stjóm
Kristjáns Sigtryggssonar og sr.
Árni Bergur Sigurbjömsson, sókn-
arprestur, þjónar fyrir altari. At-
höfninni lýkur með ávarpi Björns
Kristmundssonar sóknarnefndar-
formanns. Um kvöldið verður að-
ventusamkoma í Áskirkju kl. 20.30
þar sem herra Ólafur Skúlason,
biskup íslands, er ræðumaður
kvöldsins. Inga Backman syngur
einsöng og Hörður Áskelsson, org-
anisti, leikur einleik á nýja orgelið,
auk þess að leika með Kammer-
sveit Reykjavíkur sem flytur Adagio
eftir Albioni. Eftir almennanm söng
lýkur samkomunni með ávarpi
sóknarprests.