Morgunblaðið - 11.12.1993, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ IAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1993
2i
Jón Jónsson jarðfræðingur hefur ekki áhyggjur af Lakagígum
Telur að gígarnir hafi
orðið til í þremur gosum
JÓN Jónsson jarðfræðingnr segir að alltaf hafi verið sandfok við Laka-
gíga og telur að það sé ekki meira nú en fyrir 65 árum þegar hann
kom þangað fyrst. Hann telur að Lakagígum, öðru nafni Eldborgaröð-
um, stafi meiri hætta af umferð um svæðið. Eins og fram hefur kom-
ið hafa sérfræðingar Landgræðslu og Rannsóknarstofnunar landbún-
aðarins og heimamenn lýst yfir áhyggjum vegna skemmda á Lakagíg-
um og Eldhrauni vegna sandfoks í kjölfar tíðra Skaftárhlaupa. Jón
tekur undir áhyggjur þeirra vegna Eldhrauns.
Jón er uppalinn í Landbrotinu og
kom fyrst að Lakagígum fyrir rúm-
um 65 árum. Síðustu ár hefur hann
unnið að rannsóknum á svæðinu og
komið þangað á hveiju ári. Hann
vill kalla gígana Eldborgaraðir, þeir
hafi alltaf gengið undir því nafni í
Skaftafellssýslu.
Kenningar um þijú gos
Talið hefur verið að Lakagígar
hafi orðið til í Skaftáreldum 1783
sem leiddu til Móðuharðindanna. Með
rannsóknum sínum hefur Jón komist
að þeirri niðurstöðu að gígarnir hafi
myndast í þremur gosum frá lokum
ísaldar. Fyrstu Skaftáreldar hafi orð-
ið fljótlega eftir lok ísaldar, aðrir
Skaftáreldar fyrir meira en 3.500
árum og Skaftáreldar 1783 hafi ver-
ið þeir þriðju í röðinni. Færir hann
ýmis rök fyrir kenningu sinni. Hann
nefnir dæmi af stórum svörtum gíg
sem hann segir að sé úr fyrsta gos-
inu. Austan við hann er hár og bratt-
ur hraungígur og liggur hraunið úr
honum utan í Stóra-svarti og telur
Jón að hann sé því yngri, eða úr
öðru gosinu. Opið á gígnum úr öðru
gosinu snýr í norð-austur og hefur
hraunið úr Skaftáreldum 1783 runn-
ið inn í hann.
Jón segir að sandfok hafi alltaf
verið við Laka og telur að það sé
ekki meira nú en þegar hann kom
þangað sem unglingur. Telur hann
að Eldborgaröðum stafí ekki bráð
hætta af sandinum, þetta sé hægfara
þróun. Hann nefnir þó að fyrir vest-
an Úlfarsdal sé hólasvæði að mestu
umlukið kvíslum Skaftár sem teljist
til gíganna og hafí það skemmst
mikið af sandfoki á seinni áratugum.
Meiri hætta af umferð
„Eldborgaröðum fyrir vestan Laka
stafar meiri hætta af umferð en
sandfoki. Ef farið verður í einhveijar
aðgerðir þarna verður að skoða þær
gaumgæfilega," segir Jón. Hann seg-
ir einnig að skemmdir vegna sand-
foks í Eldhrauni, meðal annars við
þjóðveginn vestan Kirkjubæjar-
klausturs, séu virkilegt alvörumál.
Kristján Jóhannsson syngur í Á Valdi örlaganna í Þjóðleikhúsinu
Fjárlaganefnd hafnaði beiðni
um 25 millj. aukafj árveitingu
FJÁRLAGANEFND hefur hafnað beiðni Þjóðleikhússins frá því í haust
um 25 miiyón kr. aukafjárveitingu vegna uppsetningar þess á óperu
með Kristjáni Jóhannssyni, tenór, á næsta ári. Á miðvikudag var geng-
ið frá samkomulagi við Kristján um að sett verði upp óperan Á valdi
örlaganna eftir Verdi, en upphaflega komu tvær aðra óperur til álita.
„Þetta bitnar á annarri starfsemi
hjá okkur. Við munum þurfa að
minnka eitthvað það sem við höfðum
ætlað okkur í leiksýningum. Þetta
þýðir hugsanlega að miðaverð á óper-
una verður hærra og að við þurfum
í versta falli að leita annarra fjáröfl-
unarleiða,“ sagði Stefán Baldursson
þjóðleikhússtjóri í samtalið við Morg-
unblaðið um synjun fjárlaganefndar.
Hann sagðist þó enn halda í vonina
um að einhver fjárveiting fengist þar
sem fjárlagafrumvarpið hefði ekki
verið afgreitt frá Alþingi.
Leikstjóri óperunnar verður
Sveinn Einarsson en ekki hefur verið
gengið frá hver muni sjá um hljóm-
sveitarstjórn að sögn Stefáns.
Svefnsófar - Skrifborósstðlar
Nýjar sending - mikið úrvai
Verð 2ja sæta 34.900 stgr. • 3ja sæta 40.000 stgr.
Mikið úrval áklæða.
Teg. Rodi Teg. Megara Teg. Parma
kr. 2.980,- stgr. |<r. 7.300,- stgr. kr. 11.300,- stgr.
Opiö sunnudag kl. 14-17
Visa-Euro raógreióslur
ciaBHacgi
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66, HAFNARFIRÐI, SÍMI 654 100
jénir rætast
9 Verð 3.490 kr.
siomr rætasí
Evi Odds á Reykialundi
Giis Guðmundsson
'arnsskórnir voru úr sauðskinni, þeim sleit hann
suður í Höfnum. Klœddur skinnstakki fór hann á
sjó og ætlaði að verða sjómaður. Hann var látinn
ganga menntaveginn og hóf lœknisnám. I miðju
læknisnámi kom áfallið mikla: hann veiktist af
berklum. Honum var ekki nóg að sigrast á eigin
veikindum, svo margir þurftu hjálp. Hagsmunir
sjúkra og öryrkja urðu honum óþrjótandi ævistarf
Kraftur, hugmyndir, fórnfýsi, bjartsýni, áræði - ótal
einkunnarorð áttu við hann. Hann beitti sér víða og
mótaði brautina: Styðjum sjúka til sjálfsbjargar.
Drengurinn á sauðskinnsskónum varð síðar
aðalhvatamaður tölvuvædds LOTTOS. Oddur
Olafsson var gœfusamur hugsjónamaður sem fékk
hugsjónir sínar til að rœtast. Það var gœfa
r
Islendinga að eiga slíkan mann.
Ævisaga afreksmanns
r
Isafold
Austurstrœti 10
Opið til 22 öll kvöld