Morgunblaðið - 11.12.1993, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 11.12.1993, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1993 Minning Ragnheiður Bach- mann frá Siglufirði Fædd 13. mars 1906 Dáin 4. desember 1993 Þegar undirritaður frétti lát heið- urskonunnar Rögnu Bachmann, eins og við gjaman kölluðum hana, sem gamla vinkonu frá Siglufirði, skaut ósjálfrátt upp minningum um löngu liðinn atburð, þar fyrir norðan. Það sýnir hversu mikil manneskja hún var, þegar hún tók þátt í þeirri miklu sorg og erfiðleikum, sem fjölskyldan mín lenti í og reyndist okkur svo mikil stoð og stytta í þeim erfiðieik- um. Við tvö eldri systkinin dvöld- umst hjá henni síðla vetrar 1958, en við áttum þá ekki í mörg hús að venda. Var hún okkur sem besta fóstra þessa vetrarmánuði. Fyrir þessa miklu aðstoð og umhyggju viljum við þakka Rögnu, nú þegar hún kveður hið jarðneska líf. Sam- verustundir síðustu áratugina hafa því miður verið alltof fáar. Þó höfum við ávallt haft fréttir af henni. Kynni okkar voru fyrst og fremst vegna starfa hennar við fyrirtæki föður okkar, en hún vann þar gjam- an yfir vetrarmánuðina, og er mér nú minnisstætt, hve hann hafði ávallt miklar mætur á henni fyrir dugnað, ósérhlífni, hreinskilni og drengskap. Samvinna þeirra var mjög góð og þar ríkti gagnkvæmt traust. Mér er í fersku minni stundirnar sem ég, lítill drengur, átti, þegar heimsótt var eldhúsið á Hótel Hvanneyri, gjarnan á laugardegi yfir háveturinn, en þar stóð Ragna yfir pottunum í eldhúsi hótelsins og tók þátt í undirbúningi einhverrar veislunnar. Á árunum fyrir 1960 héldu Sigl- firðingar uppi miklu menningar- og skemmtanalífi á „háu plani“, enda ekki við öðru að búast af þeim. Sigl- firðingar þess tíma voru „heims- menn“. Mikil vinna yfír sumartím- ann, mikill þénusta. Mikill fjöldi ungs fólks fór í framhaldsnám, gjarnan til Akureyrar eða Reykjavík- ur, en heimamenn notuðu veturinn til þess að stunda menningarlíf og til skemmtana. Flestir þeir, sem upplifðu þennan tíma í sögu Siglu- fjarðar eiga vafalaust flestir góðar minningar frá þessum árum. Ragna Bachmann var þátttakandi í þessu merka mannlífi. Þrátt fyrir einangr- un í svartasta skammdeginu var allt- af ljós að fínna milli brattra fjalla Siglufjarðar. Aðalstarf Rögnu á þessum árum vai starf hennar á rannsóknastofu SR, jafnframt sá hún um ljósaböðin í bamaskólanum á Siglufirði og er hún minnisstæð okkur börnunum, sem þar dvöldumst við nám og leik. Ég mun ekki fjalla um ætt hennar né lífshlaup annað, þar skortir mig þekkingu til. Við sem þekktum Rögnu, minn- umst merkrar konu með virðingu. Við sendum börnum hennar og fjöl- skyldum þeirra samúðarkveðjur. Guð blessi minningu góðrar konu með þakklæti fyrir allt og allt. M. Gíslason. Þegar við vorum litlar áttum við tvær ömmur. Ragnheiður bjó á Siglufírði og var því kölluð amma á Sigló. Hún var með fallegt hvítt bylgjað hár og þá reykti hún og var alltaf með sígarettu í öðru munnvik- inu. í þá daga var óralangt til Siglu- fjarðar, þó að ekki sé ýkja langt síð- an og við sáum ömmu því ekki oft. Það var því mikill viðburður þegar hún kom í bærinn og alltaf kom hún færandi hendi. Hún átti alltaf bijóst- sykur í veskinu sínu og oft sendi hún okkur systrunum pakka, stund- um af engu tilefni. Það var alltaf spenna í loftinu þegar pakkamir frá ömmu komu, enda kenndi þar margra grasa. Alltaf sendi hún ullar- nærboli sem klæjaði undan, vettlinga og sokka til sonardætra sinna á haustin. Þegar sú elsta okkar náði skólaaldri fékk hún að dveljast hjá ömmu í einn mánuð yfir sumartím- ann og sögumar sem hún sagði frá þeirri dvöl vom' eins og jólin stæðu í heilan mánuð. Það var því með mikilli eftirvæntingu sem við hinar biðum eftir að ná þessum aldri og fá að dveljast hjá ömmu. Og við urðum ekki fyrir vonbrigðum. Við fengum að ráða hvað keypt var í matinn og borðuðum vel þennan mánuð. Amma mótmælti því hástöf- um öllum fullyrðingum foreldra okk- ar um hvað við væmm matvandar. Amma átti líka alltaf kökur. Bestu smákökur í heimi vom bakaðar af ömmu. Eftir að hafa lifað í vellyst- ingum hjá ömmu í heilan mánuð var ekki einu sinni gaman að koma heim. Þegar við urðum eldri og komnar til meira vits komumst við að því að amma var kvenskömngur. Hún átti tvö böm sem hún ól upp ein. Hún kom þeim í gegnum nám og alltaf hvatti hún okkur til að vera sjálfstæðar og geta staðið á eigin fótum. Það var líka eitthvað sem börnin hennar lögðu mikla áherslu á. í huga hennar var mennt máttur og hvatti hún alltaf til náms. Amma var mjög pólitísk kona og hafði ákveðnar skoðanir á öllum hlutum og því var oft ákaflega gaman að rökræða við hana um stjórnmál og afar lærdómsríkt á okkar mótunará- mm. Amma reykti mikið framan af ævinni. En einn daginn ákvað hún að hætta því og þá hætti hún. Hún var ekki með neinar yfírlýsingar um það, bara hætti, þó að allir sem umgengust hana væra vissir um að hún gæti aldrei hætt. Viljasterk manneskja eins og hún fór létt með það, og það var jú fyrir tíma nikótín- tyggjós og -plástra. Skömmu eftir að amma fluttist til Reykjavíkur fór heilsu hennar að hraka. Hún var Alzheimer-sjúkling- ur og var átakanlegt að horfa upp á jafn skapmikla og skarpa og vilja- sterka konu beijast við sjúkdóminn. Að endingu varð hún eins og aðrir að láta í minni pokann. Elsku amma, erfiðu lífshlaupi er lokið. Þú varst fyrirmynd sem ekki gleymist og verð ég ánægð ef um mig verður sagt að ég hafi verið þó ekki væri nema örlítið lík þér, sjálf- stæð og viljasterk. Hvíl þú í friði. Ragnheiður, Sólveig og Bryndís. Sól var yfir Hólshyrnu. Sjór svart- ur af síld, sem breytt var í störf, verðmæti og gjaldeyri. Unnin nótt með degi; á flotanum, á söltun- arstöðvunum, í bræðslunum. Allir í önnum í síldarbænum; í kapphlaupi við tímann. Ekki var minnstur kraft- urinn eða þrótturinn í Ragnheiði Bachmann, Rögnu eins og hún var kölluð, sem um langt árabil starfaði á efnarannsóknastofu Síldarverk- smiðja ríkisins í Siglufirði. Atorka hennar var dæmigerð fyrir kaup- staðinn á uppgangsámm hans. Siglufjörður í önnum sfldarár- anna. Þannig er staðurinn sannastur í minningu þeirra sem lifðu síldaræv- intýrið. Ragna Bachmann í annríki þessara ára. Þannig er mynd hennar sönnust í minningu fólksins sem deildi með henni löngu liðnum Siglu- fjarðarámm. Ragnheiður Bachmann fæddist í Borgarnesi 13. marz árið 1906 og var því 87 ára að aldri þegar kallið kom. Foreldrar hennar vóm hjónin Guðnín Guðmundsdóttir og Guðjón Bachmann, vegaverkstjóri, síðar lengi búsett í Borgamesi. í Borgar- nesi átti Ragna heitin sín ungdóms- ár. Og þar verður hún kvödd og lögð til hinztu hvfldar í dag. Það mun hafa verið árið 1928 sem Ragna flyzt til Siglufjarðar. Frá Borgamesi fór hún til Akureyrar, gerði þar stuttan stanz, en sezt síð- an að á Sigló. Þar bjó hún síðan og starfaði lungann úr lífí sínu. Sjúkrahús var reist í Siglufirði árið 1928 og vígt á fullveldisdaginn 1. desember það ár. Þar hóf Ragna störf sín í Siglufirði. Atorka hennar og útsjónarsemi féll vel að þeim framfarahug, sem einkenndi Siglu- fjörð þessara ára. Þá þegar hnýttu hún og heimamenn þá hnúta gagn- kvæms trausts og vináttu, sem héldu í áratugi eða meðan ævi hennar entist. Sama ár og sjúkrahúsið var byggt var stofnuð lyfjabúð í Siglufirði. Fyrsti lyfsalinn var heiðursmaðurinn Aage Schiöth, sem víða kom við sögu í málum Siglfirðinga, sat m.a. í bæjarstjóm um árabil. Apótekið varð næsti vinnustaður Rögnu. Þar vann hún af sama dugnaði og sömu trúmennsku sem hvarvetna annars staðar þar sem hennar naut við. Síðan lá starfsleiðin til Síldarverk- smiðja ríkisins en þar vann hún um langt árabil á efnarannsóknastofu fyrirtækisins. Efnafræðingur, sem þar starfaði, hafði á orði, að Ragna væri „besti sjálfmenntaði efnafræð- ingurinn" sem hann hefði kynnst um dagana. Reyndar var starf hennar tvíþætt á seinni hluta starfsferils hennar í Siglufirði. Á summm starfaði hún hjá efnarannsóknastofu Sfldarverk- smiðja ríkisins en á vetmm hjá Bamaskóla Siglufjarðar; sá þar einkum um ljósböð fyrir ungviðið í svartasta skammdeginu. Það er tvennt sem einkenndi Rögnu öðmm fremur. Það fyrra speglaðist í öllum störfum, sem hún vann, og var samofið úr atorku, samvizkusemi og trúmennsku. Það síðara var umhyggja hennar fyrir börnunum sínur tveimur, dóttur og syni. Helga Bachmann er kennari; maki hennar er Haraldur Hjartarson bifreiðastjóri og dætumar em þijár. Gunnar Bachmann er rafvirki og kennari við Iðnskólann í Reykjavík; maki hans er Bára Ragnarsdóttir. Þau eiga og þijár dætur. Barna- bamabömin em þijú. Undirritaður kynntist Rögnu í sameiginlegu starfi innan Sjálfstæð- isflokksins í Siglufirði. Dugnaður hennar, glöggskyggni og góðhugur naut sín þar sem annars staðar. Það var svo sannarlega hvetjandi og orkugefandi að hafa fólk af hennar gerð að samheijum á þeim vettvangi. Ég kveð Rögnu með þakklæti og virðingu. Ég veit að ég mæli fyrir munn Siglfirðinga, heima og heiman, þeg- ar ég sendi Helgu og Gunnari inni- legustu samúðarkveðjur. Stefán Friðbjarnarson. t Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, HLÍF ALFOLDÍNA SCHIÖTH LÁRUSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 62, Reykjavik, lést þann 8. desember sl. í Borgarspít- alanum. Útförin auglýst síðar. Þorleifur Jónsson, Baldur Þorleifsson, Lárus Þorleifsson, Örn Þorleifsson, Lovisa Þorleifsdóttir, Ásbjörn Þorleifsson, Brynja Þorleifsdóttir, Helgi Þorleifsson, Björk Þorleifsdóttir. t INGIBERGUR ÁRNASON, dvalarheimilinu Höfða, andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 9. þessa mánaðar. Þórður Árnason og aðrir aðstandendur. t Elskulegur faðir minn og afi, JÓNAS BJARNASON, Bárugötu 10, Reykjavík, andaðist í Borgarspítalanum 9. desember. Jarðarför auglýst síðar. Jóhanna Jónasdóttir, Jónas Guðmundsson. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGURBORG BJÖRNSDÓTTIR, Skúlagötu 64, Reykjavík, áður til heimilis á Fjólugötu 11, Vestmannaeyjum, lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans 9. desember. Útförin auglýst síðar. Ólafur Runólfsson, Petra Ólafsdóttir, Jóhannes Kristinsson, Ester Ólafsdóttir, Einar Bjarnason, Birgir Ólafsson, Anna Lind Borgþórsdóttir og barnabörn. t Eiginkona mín, ÞÓRA EYJÓLFSDÓTTIR, lést á vistheimilinu Seljahlíð þriðjudaginn 9. desember. Fyrir hönd barna okkar og fjölskyldna þeirra, Sigurður Sveinsson. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, stjúpmóðir og amma, KRISTÍN RÍKEY BÚADÓTTIR frá Ferstiklu, lést í Landspítalanum þriðjudaginn 30. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristján Ólafsson, Gréta Fanney Guðlaugsdóttir, Eiríkur Baldursson, Jón Búi Guðlaugsson, Jóna Kristbjörnsdóttir, Einar Guðlaugsson, Jónfna M. Snorradóttir, Vilhjálmur Guðlaugsson, Edda G. Guðmundsdóttir, Hlynur Guðlaugsson, stjúpbörn og barnabörn. t Útför GUÐMUNDAR JÓHANNSSONAR, sem andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 5. desember, fer fram frá Garðakirkju mánudaginn 13. desember kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Björgvin Kjartansson. t Bróðir okkar, SIGTRYGGUR SIGURJÓNSSON, Túngötu 7, Húsavik, sem lést mánudaginn 6. desember sl., verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju þriðjudaginn 14. desember kl. 14.00. Þurfður Sigurjónsdóttir, Helga Sigurjónsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Stefán Pétur Sigurjónsson, Hreiðar Sigurjónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.