Morgunblaðið - 21.12.1993, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993
11
er fylgt til grafar, sem einnig er á
þessum mörkum; það sama má segja
um fæðingu barns sem kunningja-
kona Blooms elur; og smám saman
rennur upp fyrir manni að þetta er
eðli hversdagsins: að vera á mörkum
þess að vera venjulegur og sérstak-
ur.
Af sál og líkama
Sé sagan lesin sem einskonar fag-
urfræði hversdagsins, hefur Joyce
verið mjög forspár um aldarhátt
okkar er hann lét aðalpersónu sína
vera auglýsingasafnara. Bloom er
hagsýnn náungi sem skynjar um-
hverfi sitt meðal annars frá sjón-
arhorni hins nútímalega fjölmiðla-
manns. Hvað er hversdagur nútíma-
fólks ef ekki fjölmiðlar og auglýsing-
ar? Að sumu leyti er Stephen í and-
stöðu við þann heim; hann er hið
rómantíska en jafnframt kaldhæðna
skáld sem leitast við að lesa veruleik-
ann að baki hinu blekkjandi yfir-
borði.
Fyrsti hluti sögunnar er helgaður
Stephen, og einkum þriðji kaflinn
birtir okkur skáldið sem vill upp-
hefja efnið; lesa í veruleikanum
ummerki dulúðar og andlegs ævin-
týrs. „Ineluctable modality of the
visible: at least that if no more, tho-
ught through my eyes. Signatures
of all things 1 am here to read, se-
aspawn and seawreck, the nearing
tide, that rusty boot.“ Þetta fræga
upphaf 3. kafla verður fullstirt í
þýðingu: „Óumflýjanlegur háttur
þess sem sýnilegt er: alténd þetta,
þó ekki væri annað, hugsað fyrir
atbeina augnanna. Ég er hér kominn
til að lesa teikn allra hluta, sjávar-
gróðurs og sjávarseiða, aðfallsins
sem nálgast, þessa ryðbrúna báts.“
(I, 37; „boot“ hefur hér mislesist sem
,,boat“). Raunar finnst mér Sigurði
láta síst að þýða textann þegar hann
verður í senn ljóðrænn og knappur,
eins og þegar Stephen hugsar til
dvalar sinnar í annarri borg: „Paris
rawly waking, crude sunlight on her
lemon streets. Moist pith of farls of
bread, the froggreen wormwood, her
matin incense, court the air.“ „Paríg
í hráslagalegum svefnrofum með
klúrt sólskin á sítrónugulum stræt-
um. Rakur mergur hafrasnúða,
froskgrænt malurtarbrennivín og
morgunilmur borgarinnar biðla til
loftsins." (I, 42).
En þessi texti stendur þó fyrir
sínu, og um leið og Joyce tekur að
láta gamminn geysa fylgir Sigurður
honum vel eftir um öll þau stíllegu
hamskipti sem einkenna verkið. Þau
verða einkum eftir að Bloom kemur
til skjalanna, enda er hann mikið
meira en auglýsingasafnari. Hann
er forvitinn um allt og ekkert og
skynjar allt umhverfi sitt á mjög lík-
amlegan og mér liggur við að segja
fjölþreifinn hátt. Á sama hátt virðist
ekkert í máli og stíl vera Joyce óvið-
komandi, hann þarf að fara með
okkur út um allt og Sigurður býr
yfir þeirri orðgnótt og íjölhæfni sem
þarf til að endurskapa þessa reynslu
á íslensku.
Ódysseifur íjallar að nokkru leyti
um það hvernig þeir „feðgar" Bloom
og Stephen fara hvor sinna ferða í
Dyflinni og hvernig leiðir þeirra
liggja að lokum saman. Sagan lætur
ekkert uppi um það hvort þeir hafi
stofnað til framtíðarvináttu, en þeir
sameinast að minnsta kosti í einni
andlegri og líkamlegri seremóníu -
þegar þeir standa saman og-kasta
af sér vatni þessa hversdags - og
stílspaugarinn Joyce hljómar vel í
meðförum Sigurðar:
„Þögðu síðan báðir?
Þeir þögðu, og hvor virti hinn
fyrir sér í báðum speglunum á hins-
andliti gagnkvæms holds þeirrahan-
sekkihans.
Voru þeir aðgerðalausir um
óákveðinn tíma?
Að tillögu Stephens, að áeggjan
Blooms köstuðu þeir báðir af sér
vatni, fyrst Stephen, síðan Bloom, í
hálfskugga, hvor við hlið hins, og
skýldu hvorutveggja þvaglátslíffær-
inu með bogadreginni handaryf-
irlagningu, en augnatillit þeirra,
fyrst Blooms, síðan Stephens, beind-
ist uppávið að framvörpuðum björt-
um og hálfbjörtum skugga." (II,
,296-7).
NÝÁRSKVÖÉD
: .
GfÆSIIEG NÝÁRSHÁTÍÐ
Strengjakvartett skipaður Guðnýju Guðmundsdóttur á fiðlu,
Marteini Frewer á fiðlu, Helgu Þórarinsdóttur
á víólu og Richard Talkowsky á selló
leikur ljúfa kvöldverðartóna fyrir matargesti.
Signý Sæmundsdóttir og hljóðfæraleikarar úr
Sinfóníuhljómsveit fslands flytja Vínartónlist.
Glæsileg danssýning undir stjóm Hermanns
Hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit íslands leika fyrir dimsi
Vínarvalsaog polka eftir Strauss og I.ehár.
Hljómsveitarstjóri er Páll Pampichler Pálsson. /
Veislustjóri er Hermann Ragnar Stefánsson.
Húsið opnað kl. 19. Tekið á móti gestum með kampavíni.
Verð kr. 5.800,-
Fyrir aðra en matargesti eftir kl. 23 kr. 1.800,-
Athugið! Verð á veitingum óbreytt.
Dansað til kl. 4.
'7®
HOTEL TATAND
Miðasala og borðapantanir daglcga
kl. 10-17. Sími 687111.
Gisting: Við bjóðum sérstakt
nýárstilboð á gistingu.
4.500 krónur
fyrir tveggja manna herbergi
á nótt með morgunmat.
Matseðill:
Freyðivinstónuð humarsúpa
með tjómatopp og kavíar.
Nautalundir með
koníakssveppasósu,
smjörgljáðum jarðeplum og
léttsteiktu grœnmeti.
Hátfðarterta með rótnanojfsósu
ogferskum ávöxtum.
AUKAHLUTIR UM JOUN
TOYOTA _
GOTT ER BLESSAÐ
VERDIÐ!
Ef ástkær maki þinn eöa elskulegir foreldrar eru
hópi þeirra fjölmörgu sem hafa mikið dálæti á
Toyotunni sinni (þaö minntist enginn á bíladellu)
geturöu hætt að brjóta heilann um hvað þú eigir
aö gefa þeim í jólagjöf.
• Ljóskastarasett frá.kr.4.312
• Drullutjakkar.......kr.5.782
• Verkfæratöskur 100 stk. ...frá kr.6.988
• Dráttartóg...............frá kr.1.441
• Armbandsúr...frá kr. 1.470-5.488
• Lyklakippur..........frá kr.372
• Leikfangabílar........kr.998
• Húddhlífar...............frá kr.4.675
• Ljósahlífar....frá kr. 4.635
Aukahlutur - aðalgjöfin handa
T oyotaeigandanum!
® TOYOTA
Aukahlutir
NÝBÝLAVEGI 6-8 KÓP. SÍMI 634400