Morgunblaðið - 21.12.1993, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.12.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993 29 Bragi þriðji á Disney-mótinu Skák Margeir Pétursson BRAGI Þorfinnsson náði frá- bærum árangri á barna- og unglingaskákmóti í Disney- garðinum í París um helgina. Bragi varð þriðji í flokki 12 ára og yngri og var sá eini sem náði að leggja sigurvegarann, Adam Horvath frá Ungverja- landi, að velli. Horvath hlaut 7V4 v. af 9 mögulegum, var hærri á stigum en Etienne Bac- rot, Frakklandi, sem hlaut jafn- marga vinninga. Bragi hlaut 7 v. Jón Viktor Gunnarsson hlaut 4 v. í flokki 13-14 ára og varð í 21. sæti. Svava Sigbertsdóttir hlaut 3 v. í flokki stúlkna 13-14 ára og varð í 23. sæti og Berta Ellertsdóttir hlaut 3'/2 v. í flokki stúlkna 12 ára og yngri og varð í 24. sæti. Tefldar voru hálftímaskákir, eða svonefndar atskákir. Farar- stjórar, þjálfarar og foreldrar fengu ekki að fyigjast með skák- unum. Þátttakendur á mótinu voru ails 117 talsins, frá rúmlega 30 löndum. Bragi Þorfinnsson, sem er 12 ára nemandi í Æfingaskóla Kennaraháskóla íslands, vann tvær fyrstu skákimar en tapaði síðan fyrir Frakkanum Etienne Bacrot, sem í sumar varð heims- meistari í flokki tíu ára og yngri. Síðan kom annað tap fyrir Le- venta frá Rúmeníu en þá virtist Bragi loksins kominn í gang og vann fimm síðustu skákir sínar, þ. á .m. Horvath í næstsíðustu umferð og tryggði sér svo þriðja sætið með því að sigra Richard Pert frá Englandi, en hann varð fjórði. Árangur Braga var metinn á 2.276 ELO-stig. Bragi er greinilega með þeim allra efnilegustu í sínum flokki, líklega hefði árangurinn orðið enn- þá betri með meiri keppnisreynslu. Það er líka við ramman reip að draga, margir keppinautanna eru þrautþjálfaðir. Sem dæmi má nefna að sá tíu ára gamli Etienne Bacrot teflir í tíu skákmótum á ári hveiju og auk þess sem alþjóð- legi meistarinn Eric Prie er einka- þjálfari hans er hann einnig í tím- um hjá Jozef Dorfman, fyrrum aðstoðarmanni Kasparovs. Að sjálfsögðu er Etienne litli líka far- inn að hagnýta sér tölvugagna- banka og öflug forrit sem tefla. Faðir hans áætlar að það kosti tæpar tvær milljónir ísl. króna á ári að veita honum þessa mögu- leika. - Á þessu sést að þótt ýmislegt sé reynt hér heima er langt í land að efnilegir unglingar og börn hér hafi jöfn tækifæri á við þau frá stórþjóðunum. í flokki drengja 13-14 ára sigr- aði Vladímír Malakov frá Rúss- landi með 7 v. Rúfat Bagirov frá Azerbajdzhan varð annar með 6V2 v. og Tifomir Dovramadijev, Búlgaríu, þriðji með jafnmarga vinninga. Þetta var afar öflugur flokkur og þótt árangur Jóns Vikt- ors hafi ollið nokkrum vonbrigðum var hann þó síst lakari en stig hans gáfu til kynna. í flokki stúlkna 13-14 ára vann Antoanetta Stefanova frá Búlgar- íu allar níu skákir sínar. Soffía Tkeshelasvíli frá Georgíu varð Bragi Þorfinnsson önnur með sjö vinninga og Iweta Radziewicz, Póllandi, þriðja með 6 v, en Mouna Daya, Frakklandi, hlaut jafnmarga vinninga. Í flokki stúlkna 12 ára og yngri sigraði Alína Tarachowicz með 8 v., Parvana Ismailova frá Az- erbajdzhan varð önnur með 7‘A v. og Regina Pokorna frá Slóveníu þriðja með 6‘/2 v. Þótt íslensku stúlkumar hafi báðar verið fýrir neðan miðju er árangur þeirra ágætur þegar litið er til þess að þær hafa litla eða enga æfingu fengið. PCA-úrtökumótið hafið Mót Atvinnumannasambands Kasparovs og Shorts hófst í Gron- ingen í Hollandi í gær. 54 skák- menn tefla um sjö sæti í áskor- endaeinvígjum PCA. Nigel Short verður áttundi þátttakandinn í keppninni um það hver verður næsti áskorandi Kasparovs. Nokkrar breytingar urðu á þátt- takendalistanum í desember. Va- silí ívantsjúk, þriðji stigahæsti skákmaður heims, hætti við þátt- töku, en þeir Agdestein, Noregi, Rússamir Khalifman og Rúban, Ljubojevic, Serbíu, 011, Eistlandi, Alterman, ísraef Lobron, Þýska- landi og Serper, Usbekistan, bætt- ust við. Jóhann Hjartarson byijaði vel er hann gerði jafntefli með svörtu við Búlgarann Kiril Georgiev, sjötta stigahæsta þátttakandann á mótinu. Fátt varð um óvænt úrslit í fyrstu umferðinni: Agdestein — Anand 0-1, Kramnik — Ribli, 1-0, I. Sokolov — Shirov 0-1, Topalov — Granda V2, M. Gurevich — Barejev 0-1, Kir. Georgiev — Jóhann V2, Hubner — Kamsky V2, Khalifman — Lutz Vi, Polugajevskí — Kaidanov 0—1, Smirin — Vyzmanavín V2, Yermol- insky — Beljavskí 0-1, Gulko — Júdasín V2, Akopjan — Malanjúk V2, Tivjakov — Rozentalis 1-0, Tukmakov — Adams V2, Azmaipa- rasvhvili — Ljubojevic 1-0, Oll — Dolmatov V2, Júdit Polgar — Curt Hansen V2, Piket — Hodgson 1-0, Illescas — Rúban V2, Alterman — Kortsnoj V2, Nikolic — Van Wely 1-0, Wolff — Benjamin 0—1, Ehlvest — Lobron V2, Serper — Chernin 1-0, Romanishin — Nijboer 1-0, Zsuzsa Polgar — Vaganjan V2. I annarri umferðinni í gær átti Jóhann Hjartarson að tefla við annan Búlgara, unga og efnilega skákmanninn Veselin Topalov, 18 ára. Borgarspítalinn * _________________________ Alagstím- inn fyrr en venjulega MIKIÐ álag var á bráðavakt á Borgarspítalanum sl. helgi. Að sögn Haraldar Briem læknis er greinilega meira álag á spitalan- um en allajafna þótt oft sé það mikið á þessum árstima. Óhætt sé að fullyrða að álagstíminn sé fyrr á ferðinni í ár en yfirleitt áður. Haraldur segir að inflúensa hafi áhrif á álagið nánast á hverju ári og greinilegt sé að inflúensa hafi áhrif núna. Haraldur segir að álagið sé yfir- leitt mest í janúar og febrúar þann- ig að það sé um mánuði fýrr á ferð- inni nú en venjulega. Haraldur segir að 32 sjúklingar hafí komið inn á bráðavaktina á laugardag og sunnudag og tveir að auki sem hafi verið sendir heim. Hann segir að þegar horft sé yfir bráðabirgðasjúkdómsgreiningar virðist sem 6 af þessum 34 sjúkling- um hafi verið með inflúensuein- * kenni. Haraldur segir að fullorðið fólk geti fengið lungnabólgu í kjölfarið á inflúensu og geti flensan orðið ansi svæsin í gömlu fólki. ----» ♦.♦---- Lýst eft- ir bifreið LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir bifreiðinni R 37722. Henni var stolið frá Skeiðarvogi 69 15. desember sl. Bifreiðin er drapplituð fjögurra dyra af MMC Lancer gerð. Fólk sem hefur séð hana er beðið um að láta rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík vita. |_ Lykill að Hótel Örk X í boði eru @ mismunandi lyklar SÆLU 1 nótt(2 dagar) alla dága vikunnar kr. 11.000,- fyrirtvo. hvunAags 2 nætuí (3 dagar) í miðri viku kr. 17.800,- fýrir tvo. HELGAR 2 nætur (3 dagár) lösuul. til sunnnd. kr. 21.800,- fyrir tvo. 'SPARI 4 nætnr (5 dagar) í miðri viku kr. 29.800,- fyrir tvo. Innifalið í lyklum: Gisting, morgunverður af hlaðborði og þríréttaður veislukvöldverður auk aðgangs að öllum þægindum hótelsins svo sem jarðgufubaði, útisundlaug, heitum pottum, þrekæfingasal, tennisvelli, mu holu golfvelli o.fl. Einnig stcndur til boða ýmis sérþjónusta svo sem snyrti- og hárgreiðslustofa, nuddstofa, hestaleiga, bílaleiga, stangveiði og margt fleira. Gjafalyklantir eru til sölu í Jólagjafaltúsi okkar í Kringlunni, Borgarkringlunni eða í síma 98-34700 og þú færð lykilinn sendan heim. Sendum í póstkröfu. Visa - Euro raðgreiðslur Gjafalyklamir gilda allt árið 1994 HÓTEL ÖQK HVF.RAOEROl - SÍMI 98-34700 - FAX 98-34775 Islenskt hugvit oq handverk GULLSMIÐJA ÖNNU MARIU Vesturgata 3 sími 20376 Þýskur gæða fatnaður frá Dino Valiano. Glæsilegur franskur jóla- og nýársfatnaður. Hlýjar góðar vetrakápur frá Vernisage. Veríð velkomin. Greiðsluskilmálar. Pósthússtræti 13, sími 23050. MÓTORVINDINGAR og aðrar rafvélaviðgerðir á vel búnu verkstæði. RAFLAGNAÞJÓNUSTA í skipum, verksmiðjum og hjá einstaklingum. VANIR MENN vönduð vinna, áratuga reynsla. Vatnagörðum 10 • Reykjavík 7T 685854 / 685855 • Fax: 689974 Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.