Morgunblaðið - 21.12.1993, Side 21

Morgunblaðið - 21.12.1993, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993 21 JólatónleikarSinfóníu- hljómsveitar Islands \ Tónlist____________________ Ragnar Björnsson í Háskólabíói, með salinn þétt- setinn af yngstu hlustendum sin- fónískrar tónlistar, andaði móti manni jóla- og ævintýrailmi löngu áður en ævintýrið á hljómleikapall- inum hófst. Sverrir Guðjónsson kontratenór gekk fram á sviðið og byijaði að kynna okkur hljómsveit- ina, stjórnanda hennar á þessum tónleikum svo og einsöngvarann. Síðan hóf Sverrir að segja söguna Snjókarlinn eftir Howard Blake og hljómsveitin að flytja tónlistina um snjókarlinn eftir þann hinn sama Howard Blake, undir stjórn ungs hljómsveitarstjóra, Gunnsteins 01- afssonar, en hinn bráðungi Jóhann Ari Lárusson söng einsönginn í ævintýrinu. Allt rann þetta fallega í gegn, Jóhann söng fallega um flug sitt með snjókarlinum og náði meira að segja að túlka efnið tölu- vert. Þessi langa saga hélt athygli barnanna til loka og er það merki þess að vel hafði tekist. Gunnsteinn Ólafsson er að stíga sín fyrstu spor sem hljómsveitarstjóri. Á þessum tónleikum reyndi kannske ekki svo mjög á hann sem slíkan. Töfraflautuforleikurinn er þó tón- list sem hljómsveitarstjórar eru gjarnan prófaðir á og þá fyrst og fremst byijun forleiksins. Sagt er gjarnan að ef stjórnandi kemst í gegnum þessa byijun og út í alle- groið áfallalaust án æfingar, þá kunn’i hann þegar nokkuð fyrir sér. Ekki fylgdi taktslag hans al- veg því sem öruggast er talið og venjulegast er hjá þýskumælandi þjóðum og hinar löngu þagnir í byijuninni skyldi maður ekki slá svo áberandi. En hljómsveitar- stjórn er vitanlega fleira en þetta. Undirritaður hefur ráðlagt þeim, sem hugsa til þessa starfs í alvöru, að koma sér beint út í hinn stóra heim og beijast þar og bíða ekki eftir skipbrotinu hér heima. Von- andi þarf þetta þó ekki að verða lögmál og Gunnsteini skal óskað heilla hvar sem hann verður. Ung- ur flautuleikari lék Söng Dimma- limm, eftir Atla Heimi. Stefán Ragnar Höskuldsson heitir pessi ungi maður sem á fallegan tón á flatuna. Þá kom Jóhann, 12 ára, aftur fram á sviðið og söng Panis angelicus með hljómsveitinni, en það söng hann með Karlakór Reykjavíkur á tónleikum fyrir nokkrum dögum. í lokin sungu barna- og unglingakórar jólasálma með hljómsveitinni. Kórarnir voru frá Grandaskóla, Hamraskóla, Melaskóla, Selásskóla og Vestur- bæjarskóla, samtals líklega um 150 nemendur. Milli jólasálmanna las Elsa María Blöndal jólaguð- spjallið. Gunnsteinn hélt þessu öllu vel saman, og raunar var aðdáun- arvert hvað krakkarnir sungu hreint. Síðasti sálmurinn var Heims um ból, og var ætlast til að allir í salnum tækju undir, sem varð nokkuð hljoðlátur söngur og minnti mig á Pál ísólfsson sem alltaf sagðist taka þátt í morgun- leikfimi útvarpsins, það er að segja, hlustaði á útsendinguna liggjandi í rúminu. VANDAÐAR KREYTINGAR FYRIRALLA Kerta- skreyting Verð frá 795,- Leiðisskreyting m/útikerti Kr. 1.295,- Hýjasintu- skreyting Verð frá 595,- -e -e Einstæður bókaflokkur Lærdómsrit Bókmenntafélagsins 30 sígild rit Fást í bókaverslunum, verð flestra bóka aðeins kr. 1927r. Hringdu og við sendum þér bókina. s&. / F / / f’Jr ÞEOHlASTOfi Manngerölr suwu wwwtí'i' v t >•* uúMMnr aí»>;«wt.Kfi tA»»m STEPHEN W. HAWKING Saga tímans SAMUEL JOHtíSON Vandræöaskáldl ’ ' /vi'; .(»> tjía totvavvofíf .v> t)(! IslLH'v íiÓKMfiíiXTAlítlAC ÖKS ; OtOROt OftWtU Dýrabœr MID aiiKÍKA »6sU»K tAPÍAJU. ÍACM ö ftMSUr kÓKH*MKJ*J*lAíiVlX 1 mamcos TOuiwc cfccaO Um ellína ntS illtKX BÖXNJ»»)TAIÍ»6tQ MAncusmuuacíCBfto Um vináttuna 1.1 k* • □ ARISTÓTELES: Um skáldskaparlistina □ NOAM CHOMSKY: Mál og mannshugur □ MARCUS TULLIUS CICERO: Um vináttuna □ MARCÚS TÚLLÍUS CÍCERÓ: Um ellina □ FRANK FRASER DARLING: Óbyggð og allsnægtir □ RENÉ DESCARTES: Orðræða um aðferð □ ALBERT EINSTEIN: Afstæðiskenningin □ ERASMUS FRÁ ROTTERDAM: Lof heimskunnar □ GOTTLOB FREGE: Undirstöður reikningslistarmnar □ SIGMUND FREUD: Umsálgreiningu □ KARL VON FRISCH: Bera bý □ JOHN KENNETH GALBRAITH: Iðnríki okkar daga □ GODFREY HAROLD HARDY: Málsvörn stærðfræðings □ STEPHEN W. HAWKING: Saga tímans (ný útg. 1993) □ DAVID HUME: Rannsókn á skilningsgáfunni □ DAVID HUME: Samræður um trúarbrögðin (UPPSELD) □ SAMUEL JOHNSON: Vandræðaskáld □ JOHN LOCKE: Ritgerð um ríkisvald □ JOHN STUART MILL: Frelsið □ GEORGE ORWELL: Dýrabær □ PLATON: Ríkið (tvö bindi kr. 5.990,- ) □ PLATÓN: Gorgías (ný útgáfa 1991) □ PLATÓN: Menón □ PLATÓN: Síðustu dagar Sókratesar □ CHARLES PERCY SNOW: Valdstjórn og vísindi □ HUGH TREVOR ROPER: Galdrafárið í Evrópu □ VOLTAIRE: Birtíngur (UPPSELD) □ MAX WEBER: Mennt og máttur □ ÞEÓFRASTOS: Manngerðir □ ÞORLEIFUR HALLDORSSON: Lof lyginnar HIÐ ÍSLENSKA BÓKMENNTAFÉLAG SÍÐUMÚLA 21-108 REYKJAVÍK- SÍMI91-679060 • FAX 91-6790 95 %irk^ Óbreytt verð á jólabókum !

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.