Morgunblaðið - 21.12.1993, Síða 22

Morgunblaðið - 21.12.1993, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993 Hvalreki heilbrigðisstétta eftir Ragnheiði Haraldsdóttur Feng hefur rekið á fjörur heil- brigðisstétta nú í jólabókaflóðinu. Vilhjálmur Árnason heimspeking- ur hefur ritað viðamikla bók um ýmis siðferðileg vandamál, sem við er að etja í heilbrigðisþjón- ustunni. Hann varpar ljósi á hvern- ig siðfræðin getur komið að gagni við siðferðilega ákvarðanatöku á þessu sviði og leggur áherslu á hagnýtingu fræðilegrar þekking- ar. Bent er á hvemig bæta má þjónustu við sjúklinga eða skjól- stæðinga heilbrigðisþjónustunnar með aukinni þekkingu á aðferðum siðfræðinnar við leit að úrlausnum á siðferðilegum vandamálum. Vilhjálmur hefur kennt siðfræði heilbrigðisvísinda í námsbraut í hjúkrunarfræði við Háskóla ís- lands undanfarinn áratug auk þess sem hann hefur kennt á ijölda námskeiða og ritað bæklinga um svipað efni áður. Lesandi hefur ekki á tilfinningunni að bókin sé rituð í fflabeinstumi fræðimenns- kunnar, því leitast er við að varpa ljósi á ýmis erfiðustu vandamálin sem við er að etja í daglegum störfum. Bókin skiptist í sex kafla. Fyrst er gerð grein fyrir hvað átt er við með siðfræði heilbrigðisþjónustu og hvar rætur hennar liggja í sið- fræði og heimspeki. Gerð er stutt grein fyrir helstu kenningum í sið- fræði og fjallað um siðferðilega ákvarðanatöku. Þessi kafli ætti að vera skyldulesefni fyrir alla þá er starfa í heilbrigðisþjónustunni, því þekking á þessum gmnnhugtökum gefur færi á skynsamlegri siðferði- legri umræðu. Hvatinn að vaxandi umræðu um siðfræði heilbrigðis- þjónustu er fyrst og fremst hin öra tækniþróun og nú á síðari tím- um niðurskurður fjármagns til heilbrigðisþjónustu. Bókarhöfund- ur bendir á að ýmsir fræðimenn telji að örar framfarir eigi sér einn- ig stað síðustu áratugina í sið- fræði, og víst er að mikilla breyt- inga verður vart m.a. hér á landi í viðhorfum heilbrigðisstarfsfólks til viðfangsefna sinna. Annar kafli fjallar um sam- skipti sjúklinga og heilbrigðis- stétta. Þar er gerð grein fyrir siða- reglum margra starfsstétta og þeim alþjóðlegu samþykktum sem— starfað skal eftir. Þessar reglur eru skoðaðar gagnrýnið. Rætt er um sjálfræði og ábyrgð sjúklinga og kosti og galla forræðishyggju. Lagt er til að samráðsviðhorfið, sem er grundvallarstef bókarinn- ar, sé lagt til grundvallar í öllum samskiptum við sjúklinga þar sem því verður við komið. Þriðji kafli er um ákvarðanir um rannsóknir og meðferð og um hæfi einstaklinga til að taka ákvarðanir. Þetta hæfi þarf að meta hverju sinni, og sannarlega getur það reynst flókið og nær óframkvæmanlegt á stundum. Skilgreining á dauðanum hefur verið ofarlega á baugi í umræðu hér á landi undanfarin ár. Í fjórða bókarkaflanum er fjallað um dauðaskilgreiningar eða „dauðans óvissa tíma“, líffæraflutninga, líknardráp og um líknandi meðferð á ævikvöldi. Er ekki að efa að þessi kafli á eftir að verða mörgum umhugsunarefni. Sífellt berast fréttir af auknum möguleikum sem fylgja þróun „íslenskir heimspek- ingar hafa verið ötulir við að rita bækur fyrir almenning um fræði sín á undanförnum árum. Þessi bók er sannarlega góð viðbót við þann fiokk bóka, enda þótt hún sé fyrst og fremst skrifuð með heilbrigð- isstarfsfólk í huga.“ erfðafræðinnar. Síðan þessi bók var rituð hafa verið kynntar nýj- ungar á því sviði sem vekja jafn- vel enn erfiðari siðferðilegar spurningar en íjallað er um í bók- inni. Fimmti kafli er fyrst og fremst vangaveltur um siðferði- lega stöðu fósturs og reynt er með öfgalausum hætti að gera skil ýmsum sjónarmiðum í þeirri við- kvæmu deilu. í lokakaflanum er spurt hvað sé góð og réttlát heilbrigðisþjón- usta. Skynsamleg og réttlát for- gangsröðun viðfangsefna verður æ brýnni og á næstu áratugum mun almenningur, heilbrigðis- starfsfólk og stjórnmálamenn verða að taka mjög sársaukafullar ákvarðanir í þeim efnum- Siðfræði lífs og dauða er skrifuð af mikilli virðingu fyrir viðfangs- efninu og af ákveðinni auðmýkt andspænis þeim áleitnu, erfiðu spurningum sem brenna á höf- undi. Lesanda finnst að hér sé ekki eingöngu um að ræða kalt fræðirit þar sem tínd eru til helstu Ragnheiður Haraldsdóttir álitamálin og þau skoðuð í ljósi fræðanna, heldur reyni höfundur af einlægni að setja sig í spor allra þeirra, er hlut eiga að máli. Þessi aðferð gefur bókinni aukið gildi og gerir það líka að verkum að hún á erindi til allra þeirra er áhuga hafa á þessu sviði. Hún er lifandi lestur og er á stundum beinlínis, skemmtilesning vegna þessarar nálgunar höfundar. Helsti gallinn er sá að samráðs- viðhorfinu, sem höfundur leggur til grundvallar í allri umíjöllun, er ekki gerð nægilega góð skil. Mjög margir af starfsmönnum heil- brigðisþjónustu geta vissulega fallist á að þessi leið sé bæði rétt og gagnleg. En jafnframt fylgja henni vandamál eða gallar sem Kjörnýting auðlinda eftir Kristjón Kolbeins Um fátt eru jafn hatrammar deilur í þjóðfélaginu og fískveiði- stefnuna. Hyldýpi virðist á milli deiluaðila og litlar sættir í sjón- máli. Fiskveiðar, sem byggja á nýt- ingu takmarkaðrar, sameiginlegr- ar, endumýjanlegrar auðlindar, hafa af þeim sökum sérstöðu í ís- lensku atvinnulífi og verður hvorki líkt við vinnslu jarðefna né virkjun fallvatna. Gijótnám má líta á sem ótakmarkaða auðlind. Því er ekki neitt sem mælir með að á það skuli settar hömlur nema e.t.v. vegna umhverfissjónarmiða þar eð námuvinnsla eins skerðir á engan hátt vinnslu annars. Aukið fram- boð gæti haft í för með sér lækk- andi verð á gijóti og þannig skert hag framleiðenda en bætt hag neytenda. Meðan framleiðslugeta virkjana er mun meiri en notkun raforku er heldur ekki ástæða að takmarka rafmagnsnotkun. Hvetja ætti til notkunar vatnsorku á kostnað annara orkugjafa þar sem þess er nokkur kostur. Sér- stakur skattur á raforku þjónar því engum tilgangi meðan líta má á hana sem ótakmarkaða auðlind þar sem virkjun á einum stað ætti ekki að hafa áhrif á orkufram- leiðslu þeirra virkjana sem fyrir eru. Auk þess hefir raforkufram- leiðsla ekki yfirburðarstöðu gagn- vart öðrum atvinnugreinum í land- inu. Öðru máli gegnir um sjávarút- veg, sem vel rekinn ætti að bera höfuð og herðar yfir aðrar at- vinnugreinar. Þar eð hann byggist á nýtingu takmarkaðrar sameigin- legrar, endurnýjanlegrar auðlind- ar er sú hætta ávallt fyrir hendi að þeim mikla arði sem auðlindin 0 0.2 0.4 0.6 getur gefið af sér sé sóað í óþarfa kostnað. Fyrir tæpum tveimur ára- tugum lýsti Norðvestur-Atlants- hafsfískveiðinefndin því yfír að draga mætti úr sókn í íslenska þorskstofninn um allt að fjórum fímmtu hlutum. Á þeim tíma var þorskafli útlendinga um tveir fímmtu af heildaþorskafla við ís- land og íslendinga sjálfra um þrír fímmtu. Samkvæmt nýjustu skýrslu Hafrannsóknarstofnunar, sem hefír allt of litla umfjöllun fengið, fjölrit nr. 34 um nytjastofna sjávar 1992/93 og aflahorfur fískveiðiár- ið 1993/94 er staða nýtingar helstu nytjastofna sjávar nú þann- ig þegar rýnt er í línuritin í skýrsl- unni að sókn í humar er jöfn kjör- sókn, kolmunnastofninn er örlítið vannýttur, æskilegt væri að draga úr sókn í íslenska sumargotssíldar- stofninn um einn þriðja, sókn í ufsa og grálúðu mætti að ósekju 0.8 1 1.2 1.4 F minnka um helming, draga ætti úr sókn í ýsustofninn um sextíu af hundraði og um sjötíu og fímm af hundraði í þorskstofninn eins og fram kemur á meðfylgjandi mynd úr skýrslu Hafrannsóknar- stofnunar þar sem fískveiðidán- arstuðull þorsks er 0,8 en kjörsókn er við 0,2. Fyrir liggur því að veið- ar undanfarinna tveggja áratuga hafa ekki stuðlað að hámarksaf- rakstri greinarinnar. Framangreindar tölur tákna ekki að fímmti hluti núverandi þorskveiðiflota nægi til að nýta þorskstofninn. Nær lagi er í ljósi reynslunnar að reikna með að 40% minnkun afkastagetu flota sé möguleg án þess að slíkt hefði áhrif á heildarafla allra nytjafiska þegar til lengri tíma er litið. í henni fælist sparnaður, sem næmi 4% af vergri þjóðarframleiðslu eða 15 milljörðum króna, sem eru um 58 þúsund krónur á íbúa, sam- Kristjón Kolbeins „Gjaldtaka af sjávarút- vegi er ekki nýtt fyrir- brigði.“ kvæmt október/nóvemberhefti OECD Observer í ár. Staða Norð- manna er enn verri. Þeim er óhætt að minnka flota sinn um tvo þriðju og gætu samt veitt sama magn og áður. í fersku minni er sú að- ferð þeirra að úrelda fískiskip með því að sökkva þeim ef annarra kosta er ekki völ. Því er ekki furða þótt framleiðni í sjávarútvegi sé meiri á Islandi en í Noregi og að hægt sé að fá þaðan fískiskip á verði, sem innlend skipasmíði get- ur ekki keppt við. Ljóst má því vera að engin ís- lensk atvinnugrein getur skilað gera það að verkum að hún er minna notuð en skyldi. Það hefði styrkt bókina að gera betur grein fyrir þessum vanda í daglegum störfum við núverandi starfsskipu- lag. Islenskir heimspekingar hafa verið ötulir við að rita bækur fyrir almenning um fræði sín á undan- förnum árum. Þessi bók er sannar- lega góð viðbót við þann flokk bóka, enda þótt hún sé fyrst og fremst skrifuð með heilbrigðis- starfsfólk í huga. í inngangskafla bókarinnar ger- ir höfundur grein fyrir ástæðum skrifanna svona: „Takmark mitt hefur verið að bókin legði þann samræðugrunn sem nauðsynlegur er þegarleiða þarf mikilvæg úr- lausnarefni til lykta.“ Þessum megintilgangi hefur verið náð og verður forvitnilegt að fylgjast með hvemig bókin verður nýtt á kom- andi árum. Bókin er rituð á þægi- legu máli og áhersla lögð á að gefa lesandanum skýrar skilgrein- ingar og viðmið, þannig að áhuga- fólk um þetta efni getur vel notið lestursins. í lok hvers kafla eru góðir heimildalistar og bent er á frekara lesefni og atriðisorðaskrá eða vísir í bókarlok. Tilvitnanir eru fjölmargar og sérstaka athygli vekur hve vel höfundur nýtir sér framlag íslenskra penna. Mikill fjöldi dæma er settur fram, að hætti fagsins. Flest eru vel til þess fallin að vekja erfíðar spurn- ingar og er lesanda látið eftir að reyna að svara þeim. Það eykur gildi bókarinnar að mörg þessara dæma eru íslensk og oft fengin úr samræðum höfundar við starfs- fólk heilbrigðisþjónustu á liðnum árum. Vönduð útgáfa bókarinnar ber hinni ungu Siðfræðistofnun gott vitni. Höfundur er hjúkrunarfrœðingur. slíkum arði sem vel rekinn sjávar- útvegur. Sú staðreynd er höfuð- röksemd þess að greinin greiði fyrir aðgang að takmarkaðri auð- lind. í raun er sú gjaldtaka jafn sjálfsögð og eðlileg og sérstakt gjald af þeirri grein verslunar, sem í skjóli einokunar ber hærri álagn- ingu en aðrar greinar, þ.e. sala áfengis og tóbaks. Uppi yrði fótur og fit ef ákveðnum hópi væri af- hent einkasala þessara vara án þess að sérstakt gjald kæmi fyrir. Gjaldtaka af sjávarútvegi er ekki nýtt fyrirbrigði. Líta má þannig á að áður en fískverð var gefíð fijálst og almennir innflutn- ingstollar lækkaðir hafí sjávarút- vegurinn greitt veiðileyfagjald þar eða hann varð að búa í raun við hærra gengi og lægri tekjur í ís- lenskum krónum en þær greinar sem voru verndaðar að einhveiju leyti með háum aðflutningsgjöld- um. Vart verður séð að fijálst fís- kverð hafí komið sjávarútveginum í heild til góða. Skýtur nokkuð skökku við að í þeim fjórðungi landsins þar sem atvinnutekjur eru hæstar, er hann kominn að fótum fram ef marka má ummæli heima- manna. Bág rekstrarstaða sjávarútvegs nú á sér tvímælalaust skýringu í því hvemig sókninni í helstu físk- stofna okkar hefír verið háttað. Talið er að útflutningsverðmæti greinarinnar sé um 70 milljarðar króna, eignir 150 milljarðar en skuldir 110 milljarðar. Álrangt er því sem haldið er fram að greinin hafi alla tíð verið mergsogin og ekki getað myndað neitt eigið fé. Ofnýting fískstofna er alheims vandamál. Matvælastofnun Sam- einuðu þjóðanna metur ástandið þannig að vegna óskynsamlegra veiða glati heimsbyggðin árlega einni til tveimur billjónum króna og ríki Evrópubandalagsins tapi af sömu sökum tvöhundruð millj- örðum króna. Slíkur rekstur er síst til eftirbreytni. Höfundur er viðskiptafræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.