Morgunblaðið - 21.12.1993, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993
28
Griðland?
eftir Jón Baldvin
Hannibalsson
Hildarleikurinn í fyrrum Júgó-
slavíu, kynþáttahreinsanir og ólýs-
anlegt ofbeldi gagnvart íbúum
landsins leiða hugann óhjákvæmi-
lega að glæpaverkum nasista fyrr
á öldinni. Slík ofbeldisverk hafa
neytt fólk til að flýja heimkynni
sín. Því er mikilvægt að hafa hug-
fast að mannlegar þjáningar og
mannréttindabrot gera menn nauð-
uga að pólitískum flóttamönnum.
Samkvæmt mannréttindayfirlýs-
ingu Sameinuðu þjóðanna, sem allt
mannréttindastarf er byggt á, eiga
menn rétt á að leita griðlands er-
lendis gegn ofsóknum. Aðstoð við
pólitíska flóttamenn er því alþjóðleg
skuldbinding, sem höfðar til mann-
úðar og miskunnsemi og er á vissan
hátt vísbending um menningarstig
þjóða.
„Mannúð bönnuð á íslandi“
í sögulegri blaðagrein eftir Katr-
ínu Thoroddsen lækni, sem birtist
í Þjóðviljanum 28. apríl 1939 undir
fyrirsögninni „Mannúð bönnuð á
íslandi", mótmælir hún ákvörðun
þáverandi forsætis- og dómsmála-
ráðherra um að synja hópi 3-4 ára
austurrískra gyðingabarna um hæli
hérlendis. Órlög barnanna eru
ókunn en meðhöndlun þessa máls
nagar enn samvisku íslensku þjóð-
arinnar.
Síðastliðið sumar rifjuðu íslenskir
fjölmiðlar upp raunasögu Rottberg-
er-íjölskyldunnar, sem flúði ofsókn-
ir nasista og leitaði hælis á Islandi.
Fjölskyldunni, hjónum með tvö
börn, þ. á m. ungabarn sem fætt
var hérlendis, var vísað úr landi og
hún send til Þýskalands vegna
minniháttar brota á íslenskri iðn-
löggjöf. Það vildi fjölskyldunni til
lífs að Brúarfoss átti viðdvöl í Kaup-
mannahöfn á leiðinni til Þýska-
lands. Danir veittu fjölskyldunni
griðland. Það var því mannúð og
miskunnsemi Dana en ekki íslend-
inga, sem varð fjölskyldunni til
bjargar. Raunasögu hennar var hins
vegar ekki lokið og flótti hennar
hélt áfram eftir að Danmörk var
hernumin af Þjóðveijum.
Því miður er söguleg staðreynd
að á fjórða áratugnum sýndu ís-
lensk stjórnvöld ofsóttu og hijáðu
fólki, aðallega gyðingum, ótrúlega
hörku en fólk af arískum uppruna
átti mun auðveldara með að fá hér
dvalarleyfi. íslendingar hafa aldrei
gert upp ábyrgð sína í þessum
málum. Engin markviss kennsla fer
----------♦ ♦ ♦-----
Fullveldis-
sýning í Þjóð-
skjalasafni
SÝNINGIN Fram til fullveldis er
opin þriðjudaga til laugardaga frá
kl. 14 til 18 í sýningarsal Þjóð-
skjalasafns íslands á Laugavegi
162.
Sýningin er haldin í tilefni af 75
ára afmæli fullveldis 1. desember sl.
♦ ♦-♦----
Lýst eftir
vitnum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir vitnum að árekstri á mótum
Bústaðarvegar og Litluhlíðar
föstudaginn 26. nóvember kl.
8.30.
Áreksturinn varð með þeim hætti
að tveir bílar, Toyota á leið austur
Bústaðarveg og önnur Toyota á
leið suður Litluhlíð, rákust saman
á gatnamótunum. Þeim sem kunna
að hafa séð atburðinn er bent á að
hafa samband við rannsóknardeild
lögreglunnar í Reykjavík.
fram í skólum landsins um það
kynþáttamisrétti og þá útlendinga-
andúð sem náð hefur að skjóta rót-
um hér á landi.
Mannúð eða miskunnarleysi
Þrátt fyrir að flóttamannavand-
inn hafi ekki verið meiri í Evrópu
frá lokum seinni heimsstyijaldar-
innar, hefur ísland enn ekki tekið
á móti einum einasta pólitískum
flóttamanni frá ríkjum fyrrverandi
Júgóslavíu. Enginn flóttamaður
kom til íslands árið 1992 og einung-
is þrír Víetnamar hafa fengið póli-
tískt hæli hér á landi í ár. Á sama
tíma hafa aðrar Norðurlandaþjóðir
„Það er löngu orðið
tímabært að íslensk
stjórnvöld marki mann-
úðlega heildarstefnu
um móttöku pólitískra
flóttamanna og taki
ákvörðun um móttöku
árlegs kvóta flótta-
manna í samráði við
Flóttamannastofnun
Sameinuðu þjóðanna.“
axlað þungar byrðar. Þær raddir
hafa heyrst hérlendis að nú líti ríki
öfundaraugum til íslands, sem hafi
lokað dyrunum gagnvart þessu
vandamáli. Sannleikurinn er sá að
sú þjóð er ekki öfundsverð sem
skorast undan alþjóðlegri ábyrgð
og sýnir ekki þeim sem eiga um
sárt að binda mannúð í verki.
Það er löngu orðið tímabært að
íslensk stjórnvöld marki mannúð-
lega heildarstefnu um móttöku póli-
tískra ílóttamanna og taki ákvörð-
un um móttöku árlegs kvóta flótta-
manna í samráði við Flóttamanna-
stofnun Sameinuðu þjóðanna. Ljóst
er að ísland getur ekki lengur not-
ið fjarlægðarverndar, beitt megin-
reglunni um fyrsta griðland og tek-
ið þátt í kvótasamstarfi eftir eigin
geðþótta.
Stigið var skref í rétta átt þegar
ríkisstjórnin samþykkti nýlega til-
lögu mína um skipan nefndar, sem
er ætlað það verkefni að semja til-
lögur um heildarstefnu í málefnum
pólitískra flóttamanna á Islandi.
Höfundur er utanríkisráðherra og
formaður Alþýðuflokksins,
Jafnaðarmannaflokks íslands.
eðo ó
PEI4TWJIA
RtÞOV
Með því að kaupa vöru með staðgreiðslusamningi
færð þú vöruna á staðgreiðsluverði og getur
skipt greiðslum á allt að 24 mánuði.
ff fyt
Uppgefið verð í þessari auglýsingu miðast jj - ^4, Ij
við staðgreiðslusamning Glitnis og mánaðar- <C;/",7-sÝ
legar greiðslur í 24 mánuði. Heildarverð fyrir
tölvuna og prentarann er kr. 124.800. Innifalið í afborgunar-
verðinu eru vextir og allur kostnaður. ||^
Ambra sprinta II, 486 SX, 25 MHz, 130 MB diskur, 4 MB minni, Local Bus, laust
sæti fyrir Pentium örgjörva, Vesa skjástýring, MS DOS 6.0 stýrikerfi, Windows 3.1,
14" SVGA/LR litaskjár, lyklaborð og mús.
Við minnum á
§3 liMJkei
í verslun Nýherja
Við minnum á 63 hörkugóð tilboð á fjölbreyttum
búnaði í verslun okkar þar sem afsláttur nemur allt að
tugum þúsunda á sumum hlutum. Líttu við í verslun
Nýherja í Skaftahlíð 24 - það borgar sig örugglega!
STAR LC-100, 9 nála litaprentari, 10 þumlunga vals, 180
stafir/sek, er með einblaðamatara og pappírsdraga fyrir
tölvupappír, arkamatari fyrir 50 laus blöð fáanlegur.
Litaprentari fyrir heimilið, skólann og í vinnuna.
Þú mátt velja þér
Íéfapðim
Allir viðskiptavinir Nýherja sem
kaupa PC-tölvu fyrir jól mega
velja sér vænan jólapakka
undan jólatrénu í verslun
Nýherja - óvæntan
glaðning frá
Nýherja!
•é.ií
NYHERJI
SKAFTAHlIð 24 - SlMI 69 77 O
Alltaf skrefi á undan
NÝHERJI/GP