Morgunblaðið - 21.12.1993, Síða 26
Morgunblaðið/Trausti Þorsteinsson
Nýr Baldur til heimahafnar
NÝR rækjutogari, Baldur EA, kom til heimahafnar á Dalvík um
helgina, en hann er í eigu Snorra Snorrasonar útgerðarmanns.
Nýr rækjutogari bætist
í skipaflota Dalvíkinga
BALDUR EA-108, nýr rækjutog-
ari í eigu Snorra Snorrasonar út-
gerðarmanns á Dalvík, kom til
heimahafnar á Dalvík um helgina.
Skipið er 475 rúmlestir að stærð,
45,3 metrar að lengd og var það
smíðað í Noregi árið 1978. í því er
1500 hestafla aðalvél og um borð
er búnaður til vinnslu og frystingar
á rækju.
Snorri seldi annan togara með
sama nafni, Baldur EA-71, úr landi
til Nýja-Sjálands. Nýi Baldur var
gerður út frá Grænlandi áður.
Starfsmönnum Kísiliðjunnar við Mývatn sagt upp um áramót
Viðvarandi samdrátt-
ur í sölu og framleiðslu
ÖLLUM starfsmönnum Kisiliðjunnar við Mývatn, 55 að tölu, verður
sagt upp störfum frá og með næstu áramótum. Áformað er að fækka
um allt að 13 stöðugildi hjá félaginu. Mikill samdráttur hefur verið
hjá Kísiliðjunni undanfarin 3 ár og hefur framleiðsla þannig dregist
saman um 25% á þessu ári miðað við nokkur fyrri ár.
Ákveðið var á stjórnarfundi Kísil-
iðjunnar í haust að láta fara fram
úttekt og endurskoðun á rekstri og
starfsmannahaldi félagins og er
fyrsta hluta endurskoðunar á rekstri
og starfsmannahaldi lokið, en þar
er stefnt að allt að 15% lækkun á
heildarrekstrargjöldum félagins.
Fækkað um 13 stöðugildi
í framhaldi af því hefur verið
ákveðið að segja upp öllum starfs-
mönnum félagins, 55 talsins, frá og
með næstu áramótum, en uppsagna-
frestur flestra er 3 mánuðir. Áform-
að er að fækka um allt að 13 stöð-
ugidli hjá félaginu og er stefnt að
því að fækka vöktum, breyta vakta-
fyrirkomulagi og fækka dagvinnu-
mönnum. Gengið verður frá endur-
ráðningu þeirra sem boðin verður
endurráðning í byijun næsta árs.
Annar kostnaður verður einnig
lækkaður og er stefnt að því að
semja við helstu birgja félagsins um
kostnaðarlækkun, en það á m.a. við
um flutningsaðila og orkusala.
í frétt frá Kísiliðjunni segir að
mikill samdráttur hafi verið í sölu
og framleiðslu hjá fyrirtækinu und-
anfarin 3 ár, þannig hafi fram-
leiðsla dregist saman um 25% sam-
anborið við meðaltal áranna 1987
til 1991. Viðvarandi samdrátt í
framleiðslu og sölu megi fyrst og
fremst rekja til efnahagskreppu í
Evrópu og hærri framleiðslukostn-
aðar hjá Kísiliðjunni samanborið við
samkeppnisaðila sem veikt hafí
stöðu fyrirtækisins í alþjóðlegri
samkeppni. Þessi samdráttur hafi
léitt til þess að halli hafí verið af
reglulegri starfsemi undanfarin 3
ár og sé nauðsynlegt að aðlaga
reksturinn breyttum markaðsað-
stæðum.
Á þessu ári voru framleidd 17.740
tonn af kísilgúr sem er tæplega 10%
samdráttur frá síðasta ári. Fram-
leiðsla hefst að nýju í byijun janúar
á næsta ári og er áætlað að fram-
leiða um 19.000 tonn á árinu 1994.
Útlit er fyrir heldur meiri sölu á
þessu ári en var í fyrra' eða 19.650
tonn og er það rúmlega 5% aukning
frá fyrra ári. Birgðir hafa minnkað
verulega á þessu ári. Salan í ár er
hins vegar um 16% minni en var
að meðaltali áranna 1987-1991, en
á næsta ári er áætlað að selja um
19.000 tonn.
Róttækar aðgerðir í tíma
„Stjórn Kísiliðjunnar telur því
rétt að grípa til róttækra aðgerða í
tíma, meðan efnahagur félagsins er
traustur. Engar langtímaskuldir
hvíla á félaginu og skammtíma-
skuldir eru litlar. Eiginfjárstaðan
er traust. Það er hins vegar talið
mikið ábyrgðarleysi og í raun ófull-
nægjandi fyrir eigendur og starfs-
menn þegar til lengri tíma er litið
að það skuli ekki vera hagnaður af
reglulegri starfsemi," segir í frétt
frá Kísiliðjunni.
------» » ♦
■ JÓLASVEINARNIR Stúfur og
Þvörusleikir hafa ákveðið að
vera til taks á aðfangadag og
bera út pakka til þeirra sem þess
óska. Þeir sem hafa áhuga á að
nýta sér þessa þjónustu geta haft
samband við félaga þeirra, Sig-
urþór Albert Heimisson í Ása-
byggð 13, í síma 26179.
Létt og
spennandi,
beint úr
tslensku
umhverfi
Hvaö gerist þegar
heillandi „au-pair“
stúlka frá Flórída í
Bandaríkjunum kemur
inn á heimili íslenskra
hjóna? Hún heitir
Michelle.18 ára, falleg.
Sonurinn hrífst af
Michelle en fellur hún
fyrir honum? Lendir
hún kannski í „tungu“-
málaerfiöleikum? "
i _______
Helgi Jónsson hefur áður
sent frá sér nokkrar
unglingabækur, þ.á.m. Nótt í
borginni og Myrkur í maí.
Engin
veröheekkun
milli &ra
| Skjaddborg
Armúla 23
Sími 91-67 24 00
Bónus íhugar að taka
við greiðslukortum
SIGURÐUR Guðmundsson verslunarstjóri Bónusverslunarinnar á Akur-
eyri, segir að ekki sé útilokað að taka upp greiðslukortaviðskipti í
versluninni. Málið hafi verið skoðað vandlega en endanleg ákvörðun
liggi ekki fyrir.
„Ef af þessu yrði þá lítum við svo
á að um tilraun yrði að ræða hér
fyrir norðan,“ sagði Sigurður, en í
verslunum Bónuss hefur eingöngu
venð um staðgreiðsluviðskipti.
í verslun KEA-Nettó, sem er aðal-
keppinautur Bónuss á matvörumark-
aðnum á Akureyri, er tekið við
greiðslukortum. Sigurður sagði að á
Akureyri væri hlutfallslega meira um
greiðslukortanotkun í matvöruversl-
un en í Reykjavík og þá fyndi hann
einnig fyrir því að kaupgeta norðan-
manna væri minni en á höfuðborgar-
svæðinu.
Verði af því að greiðslukortavið-
skipti verði tekin upp í Bónusverslun-
inni á Akureyri sagði Sigurður að
þau myndu ekki bitna á þeim sem
staðgreiða og hefði verið rætt um
að þeir sem notuðu greiðslukort í
versluninni greiddu 1% meira en þeir
sem staðgreiddu vörur.
BLÓM AHÚSIÐ
Hafnarsræti 26, Akureyri, sími 96-22551
Glæsileg glervam á einstöku verði
Fœst í Blómahúsinu á Akureyri
eins og margt annaÖ fallegt