Morgunblaðið - 21.12.1993, Síða 27

Morgunblaðið - 21.12.1993, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993 27 JMorgunDiaoio/bvernr Miklar annir MIKLAR annir eru í öllum pósthúsum landsins síðustu dagana fyrir jólin. Vel gengur að bera út 3 milljónir jólakveðja Ekkert að óttast verði veðurguðirnir hliðhollir „PÓSTÚTBURÐURINN hefur gengið mjög vel. Við hreinsum hér upp á hverju kvöldi og ef veðurguðirnir verða okkur hliðhollir er ekkert að óttast.,“ sagði Björn Björnsson, umdæmisstjóri pósts á Stór-Reykjavíkursvæðinu, þegar rætt var við hann. Hann sagði að miðað við bestu veðurskilyrði yrði hægt að koma jólakveðjum, sem færu í póst daginn fyrir Þorláksmessu, til skila út um landið fyrir jól. Innanbæjar væri stefnt að því að koma til skila kveðjum, sem bærust fyrir kl. 16.30 á Þorláksmessu, áður en hátíðin gengi í garð. Aætlað er að um 3 milljónir jólakveðja verði bornar út fyrir jólin eða svipaður fjöldi og undanfarin ár. Björn sagði að bögglar í sjópóst hefðu borist allan mánuðinn tveim- ur vikum hefði fólk almennt farið að senda jólakort innanlands. Kveðjurnar hefðu borist nokkuð jafnt og þétt enda hefði ekki verið auglýstur sérstakur lokadagur og útburðurinn hefði hingað til gengið ágætlega. Til þess sagði Björn að leitað hefði verið aðstoðar um 400 manns, mest skólafólks, við útburð- inn og reiknaði hann með að bréf- berar á Stór-Reykjavíkursvæðinu væru nú um 500 talsins. 30 kort á heimili Hvað magn varðaði sagðist Björn halda að svipaður fjöldi jólakveðja hefði verið borinn út og í fyrra. Fólk sendi yfirleitt jólakortin nokk- uð tímanlega. Fyrir hina má hins vegar geta þess að ef veður helst gott ætti að vera óhætt að setja jólakveðjur út á landi í póst daginn fyrir Þorláksmessu. Jólakort innan Reykjavíkur ættu að berast í tæka tíð ef þau eru sett í póst fyrir 16.30 á Þorláksmessu. Hins vegar gildir sú regla fyrir þá sem vilja vera öruggir með að kveðjur þeirra ber- ist viðtakanda að því fyrr sem þær eru settar í póst því betra. Algengt er að um 3 milljónir jóla- korta séu borin út til og frá um 90.000 heimilum og 10.000 fyrir- tækjum í landinu í desember. Fyrir jólin í fyrra nam heildarþungi jóla- pakka og kveðja um 700 tonnum. Magnús Oddsson ráð- inn fer ðamálastj ór i HALLDOR Blöndal samgönguráð- herra hefur ráðið Magnús Odds- son í starf ferðamálastjóra frá 1. janúar 1994 til 31. desember 1997. Magnús Oddsson var einn um- sækjandi um stöðu ferðamálastjóra sem auglýst var hinn 8. október sl. Ferðamálaráð íslands samþykkti samhljóða á fundi sínum hinn 3. desember að mæla með því við sam- gönguráðherra að Magnús yrði ráð- inn í stöðuna, en samkvæmt lögum um skipulag ferðamála ber ráðinu að veita umsögn um umsækjendur um starf ferðamálastjóra. Magnús hefur verið markaðsstjóri Ferðamáiaráðs Islands síðan í apríl- mánuði 1990. Hann var jafnframt settur ferðamálastjóri frá aprílmán- uði 1990 til aprílmánaðar 1991 og frá 1. september sl. til áramóta. Magnús sat í Ferðamálaráði íslands frá 1984 til 1990 og í framkvæmda- stjórn ráðsins 1985 til 1990. Hann hefur átt sæti í fjölmörgum nefndum og stjórnun á vettvangi ferðamála þ. á m. í stjórn Upplýsingamiðstöðv- ar ferðamála á Islandi og í stjórn Magnús Oddsson ferðamálanefndar Vestur-Norður- landa. Hann var varaformaður stjórnar Ráðstefnuskrifstofu íslands 1992 til 1993 og er nú stjórnarfor- maður. Magnús er kvæntur Ingibjörgu Kristinsdóttur og eiga þau einn son. V eðurstofustj óra- skipti um áramót PALL Bergþórsson veðurstofu- stjóri lætur af störfum sakir ald- urs 31. desember nk. Páll hefur gegnt stöðu veðurstofustjóra frá 1. október 1989. Hann hóf störf á Veðurstofu íslands sem veður- fræðingur árið 1949 og hefur því starfað í 44 ár. Magnús Jónsson veðurfræðingur hefur verið skipaður verðurstofu- stjóri frá og með 1. janúar 1994. Magnús starfaði á Veðurstofu ís- lands sem veðurfræðingur á árunum 1980 til 1982, en hóf þar aftur störf 1985 og hefur starfað þar síðan. Páll Bergþórsson Magnús Jónsson Magnús er fæddur 2. júlí 1948 á Sauðárkróki. Eiginkona hans er Katrín R. Sigurðardóttir. »#• 40 DEN tvcRA 40 DEN LvcRA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.