Morgunblaðið - 21.12.1993, Side 30

Morgunblaðið - 21.12.1993, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993 OECD Aukinn hagvöxt- ur 1994 París. Reuter. BÚAST má við auknum hag- vexti í flestum iðnríkjum á næsta ári, samkvæmt skýrslu sem Efnahags- og framfara- stofnunin (OECD) sendi frá sér í gær. Verulegur vöxtur verður í efnahagslífi Banda- ríkjanna og Bretlandi en nokkuð minni á meginlandi Evrópu og í Japan. Alls gera sérfræðingar OECD ráð fyrir að heimsfram- leiðsla muni aukast um 2,1% á næsta ári en hún jókst um 1,1% á þessu ári. I skýrslu sem gefin var út um mitt þetta ár spáði OECD 2,7% vexti- á næsta ári en nú er gert ráð fyrir að sú tala muni eiga við árið 1995. í skýrslunni segir að botnin- um sé nú náð í efnahagserfið- leikum flestra EVrópuríkja þó að sá efnahagsbati, sem spáð var síðasta vor, láti bíða eftir sér. í Japan sé efnahagslífið hins vegar farið að dragast saman á ný. Þá er spáð auknu atvinnu- leysi í ríkjum EB. Það var 10,7% á þessu ári en verður að mati stofnunarinnar 11,5%, sem samsyarar um 22 milljónum atvinnulausra. Reuter * Nyrup heimsækir Israela POUL Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, er nú í opinberri heimsókn í ísrael. Á myndinni kannar hann heiðursvörð ásamt Yitzhak Rabin, forsætisráðherra ísraels. Israelskir og palestínskir samninga- menn hittust í Noregi um helgina til þess að freista þess að finna leiðir til að koma sjálfstjórn Palestínumanna á Vesturbakkanum og í Jeríkó í kring og undirbúa leiðtogafund Rabins og Yassers Arafats, leiðtoga Frelsis- fylkingar Palestínumanna (PLO). Niðurstaða fékkst ekki og áformað var að halda tilraununum áfram í París í dag. Palestínskir harðlínumenn í samtökum sem kallast Fatah-uppreisnin og hefur aðsetur í Damaskus í Sýrlandi beindi í gær spjótum sínum að pílagrímum sem komnir eru til landsins helga með því að segja að ferðamenn væru ekki hultir þar um .slóðir á jólunum. Uppgangur þjóðernisöfgamanna í þingkosningunum í Rússlandi 72% hermanna kjarnorku- heraflans styðja Zhírínovskíj Moskvu. The Daily Telegraph, Reuter. MIKILL meirihluti hermanna í mörgum af mikilvægustu herdeildum Rússlands, til að mynda kjarnorkuheraflanum, kusu þjóðernisöfga- manninn Vladímír Zhírinovskíj í kosningunum 12. desember, sam- kvæmt tölum sem Moskvu-fréttir birtu um helgina. Rússneskir her- menn virðast hafa notað kosningarnar til að lýsa yfir vantrausti á Borís Jeltsín forseta og stjórn hans tveimur mánuðum eftir að hann sendi hermenn á götur Moskvu til að kveða niður uppreisn andstæð- inga hans. 72% hermannanna í kjamorku- herafla Rússlands kusu Zhír- ínovskíj, sem hótaði itrekað í kosn- ingabaráttunni að beita kjarna- vopnum gegn öðrum þjóðum. Enn- fremur var skýrt frá því að Zhír- ínovskíj nyti mikils stuðnings innan tveggja herdeilda sem kváðu niður uppreisn kommúnista og þjóðernis- sinna gegn Jeltsín í október. Zhír- ínovskíj fékk 87,4% atkvæða í Ta- manskaja-herdeildinni og 74,3% í Kantemirovskaja-herdeildinni, en þær eru báðar í nágrenni Moskvu. Zhírínovskíj nýtur ennfremur mikils stuðnings á meðal hermanna í Moskvu. Þar fékk hann 46% at- kvæðanna og kommúnistar 13,7%. Valkostur Rússlands, helsti um- bótaflokkurinn, fékk um 10% at- kvæða að meðaltali í hersveitunum. Rússneskir umbótasinnar hafa krafist þess að Pavel Gratsjov varn- armálaráðherra verði vikið frá þar sem hann er sagður hafa verið treg- ur til að beita hernum til stuðnings Jeltsín. í ljósi þessa mikla fylgis Zhírínovskíjs í herdeildunum virðist á hinn bóginn vel af sér vikið hjá honum að hafa yfirleitt fengið her- inn til að styðja Jeltsín. Fylgi Zhírínovskíjs var 40% í flughernum, 93% í akademíu hers- ins í Moskvu og 43% í hersveitunum í Tadzhíkístan. Aðeins í Svartahafs- flotanum var fylgi hans álíka mikið og í landslistakjörinu í heild, eða 18%. Undanfarin ár hefur mikil óánægja verið innan hersins vegna húsnæðiseklu, lágra launa og óvissu í kjölfar upplausnar Sovétríkjanna fyrrverandi. Sú ákvörðun að beita rússneskum hermönnum gegn kommúnistum og þjóðernissinnum, stuðningsmönnum margra her- mannanna, virðist hafa verið kornið sem fyllti mælinn. Ráðgjafar Jeltsíns gagnrýndir Félagar í umbótaflokkunum komu saman í Moskvu um helgina til að ræða hvernig koma ætti á fót „andfasískri fylk- ingu“ gegn Zhír- ínovskíj og liðs- mönnum hans. Þeir gáfu út yfír- lýsingu þar sem þeir gagnrýndu einkum nokkra af ráðgjöfum Jeltsíns sem hafa talað um samstarf við Zhír- ínovskíj. Yfirlýsingin endurspeglar ótta á meðal umbótasinna um að Jeltsín kunni að bjóða þjóðemisöfga- mönnum nokkur ráðherraembætti. Zhírínovskíj hefur m.a. hótað að skjóta kjarnorkueldflaugum á Þýskaland og kynda undir stríði í nágrannaríkjunum. Þýska tímaritið Zhírinovskij hugsanlegt Der Spiegel birti á laugardag viðtal við Zhírínovskíj þar sem kveður við annan tón því hann reynir þar að fullvissa Þjóðveija um að þeim stafi engin hætta af honum. „Öðrum þjóðum mun aldrei aftur stafa hætta af Rússlandi," sagði hann. „Rússland verður siðmenntað Evr- ópuríki, opið fyrir umheiminum, án þrælkunarbúða, án kúgunar, án stalínisma og, ef guð lofar, án fas- isma. Aðeins lýðræðisríki“. Kjörstjórnin skýrði frá því í gær að nýja stjórnarskráin tæki form- lega gildi í dag. 54,8% rúmlega 106 milljóna atkvæðisbærra Rússa tóku þátt í þjóðaratkvæðinu um stjórnar- skrána, þar af voru 58,4% hlynnt henni en 41,6% andvíg. Kozyrev tílbúinn til sam- starfs við kommúnista ANDREI Kozyrev, utanríkisráðherra Rússlands, sagði á fundi með blaðamönnum í Moskvu fyrir síðustu helgi að hann væri tilbúinn til að ganga til samstarfs við alla flokka og hreyfingar á hinu nýja þingi Iandsins gegn þjóðernisöfgamönnum. Utanríkisráðherrann sagði að sigur Fijálslynda lýðræðisflokksins, flokks þjóðernissinnans Vladímírs Zhírínovskíjs, í þingkosningunum gæfí ekki tilefni til ótta. Hann kvaðst vonast til þess að Zhír- ínovskíj endurskoðaði þær yfírlýs- ingar sem hann lét frá sér fara í kosningabaráttunni. Utanríkisráð- herrann hvatti menn hins vegar til þess að sameinast gegn slíkum öfgahreyfingum. „Við þurfum að safna liði gegn fasisma. Á grund- velli andstöðu gegn fasisma er ég tilbúinn til samstarfs við allaíflokka og hreyfingar á nýju þingi sam- bandsríkisins og þar á meðal við kommúnista. Kommúnistar hafa alltaf verið andvígir fasisma. Skipt- ar skoðanir eru um fortíð kommún- ismans en ekki er unnt að draga í efa baráttu kommúnista gegn fas- istum í heimsstyijöldinni síðar,“ sagði Kozyrev. Utanríkisráðherrann sagðisttelja að stuðningur sá sem Zhírínovskíj fékk í kosningunum væri fyrst og fremst til marks um óánægju og að hluti almennings hefði með þess- um hætti viljað mótmæla ríkjandi stjórnarstefnu. Klofningur hefði og verið ríkjandi í röðum umbótasinna. Kozyrev kvaðst telja að stöðug- leika í Rússlandi væri ekki ógnað og vísaði til þess valds sem Borís Jeltsín nyti samkvæmt stjómar- skránni nýju. Á hinn bóginn kom fram í máli ráðherrans að hann hefði áhyggjur af viðbrögðum er- lendis við ummælum rússneskra þjóðemissinna. „Verði slíkar ræður fluttar á þingi munu þær spilla fyr- ir hagsmunum rússneska ríkisins. Þetta myndi gefa Úkraínumönnum tilefni til að vilja halda eftir kjarna- vopnum sem þar em staðsett og löndum Austur-Evrópu tilefni til að sækja um aðild að Atlantshafs- bandalaginu (NATO),“ sagði Koz- Taka SS- 24 flaugar niður ÚKRAÍNUMENN sögðust í gær hafa tekið 17 SS-24 kjarnaflaugar af skotpöllum en þetta vom fullkomnustu kjarnavopn Sovétríkjanna fyrr- verandi. Verða 20 eftir um ára- mótin. Bandaríkjamenn sömdu um helgina um að greiða Úkra- ínumönnum bætur fyrir að láta af höndum 1.600 kjarnavopn sem voru í landinu við hrun Sovétríkjanna. Hommamorð- ingi dæmdur BRESKUR maður, Colin Ire- land, var dæmdur í fimmfalt lífstíðarfangelsi í gær fyrir morð á fimm hommum í Lond- on fyrr á þessu ári. Vatikanið við- urkennir Israel SÆTTIR hafa tekist með Páfa- garði og ísraelskum yfirvöld- um. Mun Vatikanið viðurkenna ísrael fyrir áramót en með því getur langþráður draumur Jó- hannesar Páls páfa um að heimsækja landið helga ræst. Reynt að bana bróður Esco- bars ROBERTO Escobar, bróður eit- urlyfjakóngsins Pablo Escobar, var sýnt banatilræði í fangelsi í Medellin á laugardag. Sprakk bréfasprengja í höndunum á honum og var talið að ekki tækist að bjarga sjón hans. Ráðherra myrtur MIHAILO Ljesar, aðstoðarfor- sætisráðherra Svartíjallalands, var myrtur í skrifstofu sinni í gær. Fjármálastjóri flutninga- fyrirtækis framdi verkið og stytti sér síðan aldur. Donald Trump kvænist DONALD Trump, sem frægur er fyrir rekstur hótela og spila- víta, kvæntist Marla Maples, unnustu sinni til margra ára. Brúðkaupið fór fram á Plaza- hótelinu í New York. Auka greind Kínverja KÍNVERSK stjórnvöld hafa ákveðið að beitt verði fóstur- eyðingum og ófijósemisaðgerð- um til að koma í veg fyrir að undirmálsbörn fæðist. Með þessu ætla yfirvöld að stuðla að aukinni greind Kínveija. Lagafrumvarp þess efnis hefur verið lagt fram á þingi. Kvennalög- reglustöð í Japan OPNUÐ hefur verið lögreglu- stöð í Tókýó sem eingöngu er mönnuð konum. Sex lögreglu- konur sinna hverfinu sem er eitt af betri hverfum borgarinn- ar. Konurnar eru allar með svart belti í júdó, aikido eða öðrum sjálfsvarnarlistum og munu auk þess bera skambyss- ur eins og aðrir lögregluþjónar í Tókýó. Er það von lögregluyf- irvalda að kvennastöðin verði til að bæta ímynd lögreglunnar í bqrginnj.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.