Morgunblaðið - 21.12.1993, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 21.12.1993, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993 37 Sláturfélag Barða breytt í almennings- hlutafélag Á hluthafafundi í Sláturfélaginu Barða hf. sem haldinn var á Þing- eyri miðvikudaginn 8. desember sl. var samþykkt að breyta félaginu í almenningshlutafélag. Að tillögu stjórnar félagsins var hlutafé fært niður um 19,2 milljónir króna til að jafna tap liðinna ára. Jafn- framt var samþykkt að auka hlutaféð á móti um 30 milljónir króna, þannig að það verði 50 milljónir. Innleggjendur sauðfjárafurða hjá Barða hf. í haust greiða 15% af inn- leggi sínu í hlutafé og nautgripa- framleiðendur greiða 7,5% í sama skyni, að því er segir í frétt frá slátur- félaginu. Heita má að flestir bændur á norð- anverðum Vestfjörðum verði hluthaf- ar í hinu nýja almenningshlutafé- lagi, en aðrir eigendur Barða hf. eru Kaupfélag Dýrfírðinga og búnaðar- félög og sveitarfélög á starfssvæði félagsins ásamt Goða hf. í Reykjavík. Undanfarin ár hefur félagið rekið kjötvinnslu á ísafirði, en vegna tap- reksturs hefur félagið hætt þeirri starfsemi. Hafa Guðmundur Svan- bergsson kjötiðnaðarmaður og Óðinn Gústafsson yfirtekið reksturinn og munu þeir fyrst um sinn framleiða vörur undir merki Barða hf. Þá er fyrirhugað að hluti af þeim rekstri sem verið hefur á ísafírði verði færð- ur til Þingeyrar. Breyting á sláturfélaginu Barða í almenningshlutafélag felur í sér að einstaklingar sem kaupa hlutafé fyr- ir áramót, geta tryggt sér rúmlega 41 þúsund króna endurgreiðslu á tekjuskatti ef þeir kaupa hlutabréf fyrir 100.000 krónur. Hjón sem kaupa hlutabréf fyrir tvöfalt hærri upphæð, fá rúmlega 82.000 króna skattafslátt. Jólatré Samdráttur í sölu íslenskra tijáa vegna innflutnings SKÓGRÆKT ríkisins á Héraði veitti öllum börnum 5. beklqar grunn- skólans á Egilsstöðum sérstaka viðurkenningu í tilefni góðs árang- urs í námi og samvinnu 3. desember sl., á alþjóðardegi fatlaðra. Bekkurinn er setinn bæði fötluðum og ófötluðum börnum og fengu þau lítil jólatré að gjöf. I fréttatilkynningu frá Skógrækt ríkisins kemur fram að gjöfin sé ekki aðeins táknræn fyrir skógræktarstarf sem unnið er, hún eigi einnig að minna á hversu mikilvægt það er að landsmenn kaupi íslensk jólatré. Frá 1968 til dagsins í dag hafa verið felld um 200 þúsund jólatré, samkvæmt upplýsingum frá Skóg- rækt ríkisins, og var fjöldinn mest- ur 1986, um 12 þúsund tré. Síðan þá hefur þeim fækkað, voru um 8 þúsund 1990, 10 þúsund á slðasta ári og er gert ráð fyrir svipuðum fyölda um þessi jól. Ástæður sam- dráttarins eru aðallega raktar til aukins inngflutnings á jólatijám á undanförnum árum, einkum frá Danmörku, og nemur hann liðlega 30 þúsund tijáa árlega. Hefur verðsamkeppni milli innlendu og erlendu tijánna aukist mjög, og flytja íslendingar inn jólatré og greinar fyrir tugi milljóna króna á ári, sem hæglega er hægt að rækta hér á landi. Danir seldu jólatré fyrir um 6 milljarða króna Árið 1991 hjuggu Danir um 10 milljónir ræktaðra jólatijáa og seldu um 8,5 milljónir til annarra landa, ásamt um 33 þúsund tonnum af greinum, samkvæmt upplýsingum frá Skógrækt ríkisis. Nam útflutn- ingsverðmæti jólatijáa og greina um 610 milljónum danskra króna það ár, eða um 6 milljarða islenskra króna. Jólatijáræktun hófst hérlendis um 1950 og er nú stunduð sem hliðargrein við almenna skógrækt. Er hún orðin mikilvægur tekjustofn ýmsra skógræktarfélaga, en helstu framleiðendur íslenskra jólatijáa eru Skógrækt ríkisins, Skógræktar- félaga Eyjafjarðar, Skógræktarfé- lag Húsavíkur o.fl. Morgunblaðið/Árni LISTAKAFFI — NÝIR aðilar hafa tekið við rekstri kaffistof- unnar Listakaffí í iisthúsinu í Laugardal, Engjateigi 17-19. Boðið verður upp á heita og kalda rétti og kökur með kaffinu í þægilegu umhverfi, segir í fréttatilkynningu. Listakaffi býður einnig til leigu 30 manna sal sem hentar fyrir minni veislur og fjölskylduboð. Opið er sex daga vikunnar frá kl. 10.00-18.00 en á sunnudögum er opið kl. 14.00-18.00. Á myndinni eru aðstandendur Listakaffís, þau Sigur- jón Gunnarsson, matreiðslumeistari, Svava Siguijónsdóttir, Helena Sif Þórðardóttir og Þorbjörg Bernhard. Handsmíðoðir islenskir skartgripir wt ■ ■ Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. J Kopavogi, sími 571800 ^ Hyundai Pony GLSi '92, rauður, sjálfsk., ek. 23 þ., rafm. í rúðum, o.fl. Sem nýr. Toyota Double Cap diesel '92, grásans, 5 g., ek. 65 þ. Toppeintak. V. 1640 þús., sk. á ód. Nissan Sunny SLX '91, 3 dyra, blár, sjálfsk., ek. 18 þ., rafm. í rúðum o.fl. V. 860 þús. Ford Orion CLX '92, hvítur, 5 g., ek. 35 þ. V. 870 þús. Toyota Corolla Sl '93, 5 g., ek. 7 þ., 3ja dyra, svartur, rafm. í rúðum, spoiler o.fl. V. 1260 þús., sk. á ód. Toyota Corolla XL '89, 4 g., ek. 92 þ., 3ja dyra, rauður, álfelgur, spoiler. V. 590 þús., sk. á ód. Skoda Favorite LS '91, 5 g., ek. 45 þ. Tilboðsverð: 320 þús. Citroen BX 14 '88, 5 g., ek. 91 þ. V. 390 þús. Suzuki Swift GA '89, 3ja dyra, 5 g., ek. 70 þ. V. 390 þús. Fiat Uno 45s '88, 5 g., ek. 62 þ. V. 190 þús. Fiat Uno turbo '90, 5 g., ek. 72 þ., sól- lúga, rafm. í rúðum, álfelgur o.fl. V. 690 þús. Mazda 626 GLX '91, sjálfsk., ek. 51 þ. V. 1190 þús., sk. á ód. M. Benz 190E '88, sjálfsk., m/öllu, ek. 90 þ. V. 1690 þús. Subaru Justy J-10 '86, 5 g., ek. 76 þ. Gott eintak. V. 290 þús. VW Goif GL '87, sjálfsk., ek. 87 þ., sól- lúga o.fl. V. 530 þús. Nissan Terrano V-6 '93,4ra dyra, sjálfsk., ek. 12 þ., sóllúga, álfelgur o.fl. Sem nýr. V. 2950 þús. Range Rover '84, 4ra dyra, sjálfsk., ek. 108 þ. V. 980 þús., skipti. MMC L-300 Minibus 4x4 '88, grásans, 5 g., ek. 87 þ. Gott eintak. V. 1090 þús. ERTU í VANDRÆÐUM MED GJÖF =ei TIL ELSKUNNAR ? ^&eV HVERNIG LIST ÞER 0Ne Á FALLEGT LISTAVERK FRÁ OKKUR ? OPIÐ Á AÐFANGADAG KL. 9.00 ■ 12.00 Hringur Jóhanne9son Sara Vilbergsdótfe '% I A R T GALlERVl AUSTURSTRÆTI 3 S í M I 1 0 4 0 0 Bragi Ásgeirsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.