Morgunblaðið - 21.12.1993, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993
39
Hulínn ástarkraftur
*
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Öld sakleysisins („The Age of
Innocence“). Sýnd í Stjörnubíói.
Leikstjóri: Martin Scorsese.
Handrit: Jay Cocks og Scorsese
upp úr sögu Edith Wharton.
Aðalhlutverk: Daniel Day-Lew-
is, Michelle Pfeiffer, Winona
Ryder, Richard E. Grant, Alec
McCowen, Geraldine Chaplin,
Mary Beth Hurt, Stuart Wilson,
Jonathan Pryce, Robert Sean
Leonard.
Martin Scorsese er enginn nítj-
ándu aldar maður. Myndir hans
eru sprottnar úr öngstrætum New
York samtímans. Þær eru
raunsæjar og myrkar stórborgar-
myndir fullar af æstum smák-
rimmum, firrtum leigubílstjórum,
ofbeldisfullum boxurum og
grimmum mafíugæjum sem eru
hans tæki til að segja fullkomlega
órómantískar sögur af skuggahlið-
um borgarmenningar þar sem of-
beldi og morð leika alltaf stór hlút-
verk og skilja eftir hnút í maga
áhorfandans í gegnum einstæðan
frásagnarhátt.
En kannski einmitt þess vegna
er fyrsta nítjándu aldar mynd
hans, Öld sakleysisins, sem hann
gerir eftir samnefndri bók banda-
ríska rithöfundarins Edith Whar-
ton, svona stórkostleg. Hver annar
hefði getað sýnt okkur inn í horfna
veröld ástarsögu sem gerist fyrir
120 árum með slíkri snilld að það
er eins og hún hafi gerst í gær
og talar til áhorfandans á jafn
áhrifamikinn hátt og bestu myndir
hans úr samtímanum?
Enda er yrkisefnið þegar til
kemur ekki ólíkt því sem Scorsese
hefur fengist við á sínum ferli;
hann hefur tíðum fjallað um sam-
félög sem lúta sínum eigin siðalög-
málum og hefur sínar eigin reglur
og lifir og deyr eftir þeim. í Öld
sakleysisins hefur þetta fólk að-
eins færst aftur í tíma og á miklu,
miklu hærra plan í samfélagsstig-
anum; góðu gæjarnir hér er háað-
allinn í New York á áttunda ára-
tug síðustu aldar en lögmálin eru
jafn málamiðlunarlaus og þótt of-
beldið sé ekki sýnilegt er það til
staðar á andlega planinu, falið
undir glæsilegu yfirborði snobbs-
ins, hræsninnar, þess sem aldrei
er sagt en allir vita og þeirrar
fullvissu að ef maður misstígur
þig er maður útlægur að fullu.
Scorsese hefur fengið afburða-
góðan hóp breskra leikara til að
fara með hlutverk meðlima háað-
alsins og fær út úr því ósvikinn
broddborgaraskap. Daniel Day-
Pessi
geysivinsæla og
fjölhæfa hiærivél er
alveg ómissandi við
allan bakstur.
Hún býðst nú
ásérstöku
jólatilboðsverði!
• Allt í einum armi
Andri sem unnast; Day-Lewis og Pfeiffer í mynd Scorsese.
Lewis leikur ungan mann trúlofað-
an Winonu Ryder en kynnist og
verður ástfanginn af frænku henn-
ar, Michelle Pfeiffer. Staða hans,
stolt og drengskapur getur ekki
leyst hann úr þeim viðjum sem
trúlofunin er orðin og engin leið
virðist fær úr klemmunni án þess
að valda hneyksli og útskúfun
þeirra. Þetta er ástarsaga sem
hefur áður verið sögð en Scorsese
býr henni slíkt umhverfi upp úr
frásögn Wharton að hún virkar
eins og ný og einkar spennandi.
Öll myndin er ein undiralda hulin
glæsilegu og ríkmannlegu um-
hverfi, stórkostlegum íburði í mikl-
um húsakynnum, 13 rétta matar-
boðum, kjólfötum og stórkostleg-
um kjólum, vindlum og koníaki,
málverkum á veggjum, viktorí-
önskum setustofum og danssölum
auðvaldsins. Scorsese hefur til-
finningadansinum í myndinni á
fullkomlega lágstemmdum, fínleg-
um nótum sem hylur það sem
raunverulega kraumar undir; allt
er á einhvern hátt þvingað án
þess maður taki svo eftir því nema
í gegnum Day-Lewis, sem finnur
hvernig þessi heimur fullur af tví-
skinnungi lokast um hann og læs-
ir hann loks inni í sér eins og fang-
elsi; við sjáum það í sorgmæddu
andlitinu að hann mun aldrei
bijóta siðalögmálin.
Þetta er heimur þar sem enginn
segir neitt sem máli skiptir og all-
ar samræður snúast um einskis-
verða hluti en allir vita allt sem
vita þarf um náungann. Leikararn-
ir fara á kostum. Day- Lewis vinn-
ur enn einn leiksigur og sýnir að
öll hlutverk eru örugg í höndum
hans; Pfeiffer er glimrandi sem
veraldarvön heimskona og Ryder
er góð sem hin viðkvæma and-
stæða hennar. Aðrir leikarar eins
og Stuart Wilson (Nonni og
Mánni) henta einkar vel í hlutverk-
in. En það er Scorsese sem er í
aðalhlutverkinu og mannskapur
hans á bak við myndavélarnar:
Michael Ballhaus tekur myndina
óaðfinnanlega, myndavélin hrein-
lega dansar í höndunum á honum
og er alltaf á réttum stað; Thelma
Schoonmaker klippir af alkunnri
drift; Dante Ferretti sér um stór-
kostlega leikmyndina og Elmer
Bernstein semur tónlistina.
Scorsese hefur gert besta bún-
ingadrama síðan annar raunsæis-
maður, Stephen Frears, gerði
„Dangerous Liasions“, einnig með
Pfeiffer. Öld sakleysisins er sann-
arlega ein af bestu myndum árs-
ins. Með henni undirstrikar Scor-
sese að hann er konungur kvik-
myndanna.
1 Blandari og grænmetiskvöm fylgja með
• Hrærir, þeytir, linoðar, blandar, brytjar, rífur og sker
* íslenskur leiðarvísir og uppskriftahefti
Hún er elskuð og
dáð aföllum!
Verð aðeins kr. 13.900,- (afb.verð)
kr. 13.205, - (staðgr.verð)
UMBOÐSMENN OKKAR ERU:
Akranes:
Rafjjjónusta Sigurdórs
Borgarnes;
Glitnir
Borgarfjörðun
Rafstofan Hvítárskála
Hellissandur.
Blómsturvellir
Grundarfjörðun
Guðni Hallgrímsson
Stykkishólmur:
Skipavík
Búðardalur
Asubúð
isafíörðun
Póllinn
Blönduós:
Hjörleifur Júlíusson
Sauðárkrókun
Rafsjá
Siglufjöröur:
Torgið
Akureyrí:
Ljósgjafinn
Húsavflc
Öryggi
Þórshöfn:
Norðurraf
Neskaupstaðun
Rafalda
ð
Egilsstaðir:
Sveinn Guðmundsson
Breiðdalsvik:
Stefán N. Stefánsson
leyðarfjörður.
lafvélaverkst. Áma E.
HÖfn í Hornafirði:
Kristall
Vestmannaeyjan
Tréverk
Hvolsvöllun
Kaupfélag Rangæinga
Selfoss:
Árvirkinn
Garður.
Raftækjav. Sig. Ingvarss.
Keflavík:
Ljósboginn
Viljir þú endingu og gæði - velur þú SIEMENS.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍM
628300
_
S i m t a I er odýrara en þig gru nar
Hringt um
hátíðar
10 mínútna símtal frá Reykjavík til
Akureyrar um hátíðarnar kostar aðeins
„34,50
PÓSTUR OG SÍMI
Sjá nánar í símaskránni bls. 9.