Morgunblaðið - 21.12.1993, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993
Heilsdagsskóli eða
hálfsdagsskóli?
eftir Sigríði
Sigurðardóttur
í Morgunblaðinu 14. desember
skrifar Guðrún Theódórsdóttir grein
þar sem hún fjallar um starfsdaga
og frídaga í skólum og minnist á
heilsdagsskólann sem leið til lausnar
á þessum vanda útivinnandi foreldra.
I þessu sambandi vil ég gera nokkra
grein fyrir því hvemig þessi mál eru
að þróast.
Fyrst ber að getá hver þau mark-
mið heilsdagsskólans eru sem sett
voru í upphafL.Þar ber fyrst til að
taka að bjóða foreldrum val um sam-
fellda þjónustu tengda hverfisskólan-
um, að auka öryggi í umhverfi barna
og að bjóða aukna þjónustu eins og
aðstoð við heimanám og tómstunda-
iðkun. Þetta er það sem kallast
grunnþjónusta. Það var einnig stefnt
að því að samræma betur þau tilboð
sem gmnnskólabömum standa til
boða eins og á vegum ÍTR og hins
skólar/námskeið
nudd
Muddskóli
RAFns Qeirdals
Nuddnám
l1/2 árs nám
Kennsla hefst 10. janúarnk.
Dagskóli; einnig kvöld- og
helgarskóli
Upplýsingarog skróning í
símum 676612 og 686612,
Smiðshöfða 10,
112 Reykjavfk, allo virka daga.
heilsurækt
■ Lífefli - Gestalt - líföndun
Úrvinnsla sállíkamlegra einkenna.
Innritun hafin.
Gunnar Gunnarsson,
sálfræóingur,
sfmi 641803.
Höföar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
vegar þjónustu skóladagheimila. Til-
gangurinn er einfaldlega sá að iaga
skólann að breyttum þjóðfélagsað-
stæðum.
Þessi markmið eru enn í gildi enda
ekki langt síðan heilsdagsskólinn
byijaði. Oft er það með jafn viðamik-
il verkefni og þetta að þau fæðast
ekki fullmótuð og auk þess þá þarf
hugmyndin að ná til þeirra sem eiga
að framkvæma hana og vera sam-
þykkt þar. Heilsdagsskólinn er rétt
að byija og reynslan segir svo til um
það hvað þarf að útfæra betur. Eitt
af því eru frídagar í skólum. Þetta
atriði hefur verið rætt meðal fulltrúa
í Skólamálaráði en látið ógert að
taka á því fyrsta starfsár heilsdags-
skólans vegna þess að forsvarsmenn
skólanna eiga að hafa fijálsar hend-
ur um það hvernig þeir móta þettp.
verkefni í sínum skóla.
Á fundi Skólamálaráðs 13. desem-
ber sl. var lagt fram bréf frá einum
skólastjóra hér í borginni þar sem
hann óskar eftir því að fá að hefja
tilraun með heilsársskóla þ.e. að skól-
inn verði opinn þeim sem óska að
sumri til og aðra frídaga. Síðastliðið
sumar var gerð tilraun í þessa átt í
húsnæði Foldaskóla og gafst hún
vel. Starfsfólk yrði þá ráðið á árs-
grundvelli en ekki hluta úr ári. Skóla-
málaráð tók vel í þess beiðni og ég
er ánægð með að hún kom formlega
inn á fund Skólamálaráðs frá skóla-
stjóra.
Hvað síðan gerist í skólamálum
þegar sveitarfélögin yfírtaka rekstur
skólanna alfarið er óskrifað blað
?nn. Eitt er víst að starfsfólk skól-
anna þiggur þá laun frá sama launa-
greiðanda og það eitt og sér gerir
Sigríður Sigurðardóttir
„Hvað síðan gerist í
skólamálum þegar
sveitarfélögin yfirtaka
rekstur skólanna alfar-
ið er óskrifað blað enn.
Eitt er víst að starfsfólk
skólanna þiggur þá
laun frá sama launa-
greiðanda og það eitt
og sér gerir alla, út-
færslu á vinnutilhögun
innan skólans auðveld-
ari.“
alla útfærslu á vinnutilhögun innan
skólans auðveldari. Ég fæ t.d. ekki
skilið hvers vegna allir kennarar eins
skóla, sama hvaða aldri þeir kenna,
þurfa að undirbúa starf sitt á sama
tíma. Ég fæ heldur ekki skilið þann
ljóma sem ríkir í kringum hugtakið
samfelld stundatafla. Stöðugt ráp á
milli skóla og annars staðar eins og
heimilis er óæskilegt en spurning
mín er hvort ekki sé hægt að bjóða
börnum upp á ýmis viðföng og tóm-
stundir innan skólans í svokölluðum
„götum“ á stundaskrá? Húsnæði
skólans þarf auðvitað að bjóða upp
á það að þetta sé hægt. Áður en
skólamir tóku til starfa síðastliðið
haust var gerð athugun á húsnæði
skólanna með tilliti til heilsdagsskól-
ans. Víða voru gerðar smávægilegar
breytingar og endurbætur og bætt
við lausum kennslustofum. Eflaust
má betur gera og ég minntist áðan
á þjónustu skóldagaheimila. Á síð-
asta stjórnarfundi hjá Dagvist barna
var samþykkt að Fagdeild dagvistar
gerði athugun á stöðu skóladagheim-
ila með tilliti til eftirspurnar, en hún
hefur minnkað með tilkomu heils-
dagsskólans, og hvort húsnæði skóla-
dagheimila geti nýst skólum sem við-
bót við heilsdagsskólann eða hvort
heppilegra sé að breyta þeim í leik-
skóla. Ef niðurstaða verður sú að
einhveijir skólar geti nýtt betur hús-
næði skóladagheimila þá er eðlilegt
að yfirstjómun þeirra verði færð frá
Dagvistun barna til Skólamálaráðs.
Ef húsnæði skóladagheimila getur
ekki nýst skólum en geti komið til
móts við þarfir leikskólabarna Iít ég
svo á að það eigi að leigja slík hús
einstaklingum eða öðrum undir
einkarekinn leikskóla.
Heilsdagsskólinn þarf ekki ein-
göngu að mótast betur með þarfir
útivinnandi foreldra í huga, heldur
verður einnig að móta betur það starf
sem börnunum er boðið upp á innan
hans. Þá þarf einnig að skoða stöðu
fatlaðra barna en það stendur einnig
til að færa málefni fatlaðra frá ríki
til sveitarfélaga.
Heilsdagsskólinn er að byija að
mótast og það hefur verið ánægju-
legt að taka þátt í þeirri vinnu og
þar er nauðsynlegt að halda vel á
spöðunum í framtíðinni til þess að
vel takist til.
Höfundur er varaborgarfulltrúi
og stjómarmaður í Dagvist barna
og Skólamólaráði Reykavíkur.
WtAW>AUGL YSINGAR
Lögfræðingur
Fyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða lögfræðing
til starfa. Starfsreynsla ónauðsynleg, þannig
að viðkomandi má koma beint úr skóla.
Upplýsingar í síma 679696.
Húsvörður
Staða húsvarðar í Hafnarborg, menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar, er laus til
umsóknar. Um er að ræða fullt starf.
Laun samkvæmt kjarasamningum Starfs-
mannafélags Hafnarfjarðar.
Upplýsingar um starfið eru veittar á skifstofu
Hafnarborgar eða í síma 50080 virka daga
frá kl. 13-15.
Umsóknir berist stjórn Hafnarborgar fyrir 31.
desember 1993.
Pizza ’67
óskar að ráða vant starfsfólk í símaþjónustu
á aldrinum 20-40 ára. Aðeins ábyrgt og kurt-
eist fólk kemur til greina.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist til auglýsinga-
deildar Mbl. merktar: „P67-671515".
Óska eftir að kaupa
eftirlitsmyndavélar og skjái, notaðar.
Upplýsingar í síma 677733 á milli kl. 9 og
17 alla virka daga.
Vestmannaeyjaflutningar
Mjólkursamsalan óskar eftir tilboðum í flutn-
inga á söluvörum til Vestmannaeyja og dreif-
ingu þeirra til viðskiptamanna í Eyjum frá
og með 1. febrúar 1994. Vörumagn er um
80 tonn á mánuði og skulu flutningar og
dreifing fara fram alla virka daga vikunnar.
Tilboð þurfa að berast fyrir 10. janúar nk.
Allar nánari upplýsingar fást hjá Þórði Jó-
hannssyni, dreifingarstjóra, í síma 692200.
Til viðskiptavina
Iðntæknistofnunar
Lokað verður vegna jólaleyfa frá og með
23. desember til áramóta.
Gleðileg jól.
lóntæknistof nun I ■
IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS
Keldnaholti, 112 Reykjavík,
sími 68 7000.
Tilkynning um innlausnar-
frest þegar seldra
Happaþrennumiða
Happaþrennumiðar með eftirfarandi flokks-
númerum eru þegar uppseldir:
100 kr. miðar
flokkar nr. 17 og 18.
50 kr. miðar
flokkar nr. 01, 02, 03, 04, 05, 06, og 07.
Frestur til að innleysa vinningsmiða með
ofangreindum flokksnúmerum rennur út
1. júlí 1994.
Reykjavík, 15. desember 1993.
Happdrætti Háskóla íslands,
Tjarnargötu 4,
101 Reykjavík.
SltlÚ auglýsingar
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Áramótaferð
til Þórsmerkur
Brottför kl. 08 30. des. og til
baka verður komið 2. jan. 94.
Fararstjórar: Þórunn Óskars-
dóttir, Dúi Landmark, Birna
Júlíusdóttir og Sigrfður Jóns-
dóttir. Áramótabrenna, kvöld-
vökur, gönguferðir og margt
fleira sem gaman er að upplifa.
Áramót í óbyggðum eru einstök.
Nokkur sæti laus. Sækið frá-
tekna miöa fyrir jól.
Ferðafélagið óskar öllum farþeg-
um og velunnurum gleðilegra
jóla!
Ferðafélag Islands.