Morgunblaðið - 21.12.1993, Side 54

Morgunblaðið - 21.12.1993, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993 fclk f fréttum Cecilie Leganger og Susann Goksor fagna sigri yfir Rúmeníu, en leik- urinn fór 20-19. Landsliðsþjálfarinn Sven Tore Jacobsen réð sér ekki af kæti eftir keppnina og hampar hér Cecilie. HANDBOLTI Fékk bónorðsbréf í kjölfar keppninnar Happdrætti bóka- útgefenda Vinningsnúmer dagsins í happ- drætti bókaútgefenda er 76778, en happdrættisnúmerin eru á baksíðu íslenskra bó- katíðinda. Vinningshafí getur vitjað vinnings síns, bókaút- tektar að andvirði 10 þúsund krónur, í næstu bókabúð. Nýjasta stórstjarna Noregs er hin 18 ára Cecilie Leganger, markvörður norska kvennalands- liðsins í handbolta. Hún vakti mikla athygli í nýafstaðinni heimsmeist- arakeppni, þar sem hún varði eins og berserkur, enda fór svo að hún var valin besti markmaður keppn- innar og þar með besti kvenmark- maður heims. Landslið Noregs í heildina stóð sig ekki eins frábær- lega, því það lenti í þriðja sæti. Cecilie var svotil óþekkt fyrir tveimur árum þegar hún spilaði með liðinu Lov-Ham. Hún var þó efnileg og var valin í unglinga- landsliðið og stuttu síðar í kvenna- landsliðið, þrátt fyrir ungan aldur. I nýlegu viðtali við hana í norska tímaritinu Se og hör kemur fram að hún er ekki bara snillingur í handbolta heldur er henni margt til lista lagt. Hún spilar á píanó, gítar og harmoniku, auk þess sem hún er afburðanemandi í skóla. Þegar hún er spurð hvort hún hafí tíma fyrir kærasta svarar hún að svo hafí ekki verið hingað til, en það geti svo sem breyst. Þá kveðst hún hafa fengið nokkur bónorðsbréf strax í vikunni eftir að hún kom heim frá keppninni, en er ekki viss um hvort hún á að svara þeim eða láta eins og ekkert sé. AUGLÝSING Forstjórabílar Gaf bflakaupaley fi sitt Á dögum mikillar og gagnrýn- innar umræðu um bílafríðindi ýmissa háttsettra embættis- manna og stjórnenda, gleður það hugann að lesa um að hið gagnstæða fyrirfinnst einnig. Eða fyrirfannst, alla vega - að íslendingur í sljórnunarstöðu skuli hafa gefið fyrirtækinu sem hann vann hjá þau fríðindi sem þá á dögum fólust í því að fá leyfi til bílakaupa. Það var á árunum uppúr síðara stríði að það þótti einstök gæfa að fá úthlutað leyfí til að kaupa bíl, en þá þurfti sérstakt leyfi iyrir öll- um innflutningi. Oddur Ólafsson, sem þá var yfírlæknir á Reykja- lundi, hafði fengið slíkt leyfi, og var reyndar búinn að panta og fá til landsins amerískan Hudson-eðal- vagn, árgerð 1948. En þá, eins og svo oft, var Samband íslenskra ber- klasjúkliíiga í mikilli fjárþörf, og Oddur greip því til þess ráðs að gefa happdrætti sambandsins þetta leyfí sem hann hafði sjálfur fengið úthlutað. Því má svo við bæta að einmitt þetta hapþdrætti varð SIBS mesta tekjulind allra á þessum árum. Um þetta og margt fleira má lesa í bókinni ÞEGAR HUG- SJÓNIR RÆTAST, ÆVI ODDS Á REYKJALUNDI. En eftir stend- ur reyndar áleitin spurning: Skyldu einhverjir hugsjónamenn eins og Oddur Ölafsson enn skipa stjórnun- arstöður, eða eru þeir allir á dýrind- is jeppum þrátt fyrir erfíða stöðu fyrirtækjanna? ísafold gefur bókina út og kostar hún 3.490 krónur. 20 BÍLA-HAPPDRÆTTI S. I. B. S. ATHUGIÐ, að drætti verður ekki frestað. Þessar litlu Renault-bifreiðar voru keyptar til landsins af SÍBS án innflutningsleyfís, til að nota sem vinn- inga í happdrætti sambandsins árið 1947. Voru [þær geymdar vestur í bæ, þar sem heitir Hagi. Sökum þess og smæðarinnar voru bifreiðamar nefndar hagamýs, er þær fóru að verða áberandi á götum Reykjavíkur. Sala happ- drættismiða fyrir 2. drátt er hafin. ★ Næst verður dregið 15. nóvember. 3. dráttur fer fram 15. febr. 1948. ★ 4. og síðasti dráttur fer fram 15. maí 1948, og þá dregið aðeins úr seldum miðum. / Morgunblaðið/Lmda K. Ragnarsdóttir Yngri nemendur sýndu helgileik. F.v. Ólafur Már Ólafsson, Snorri Snorrason, Elísabet Jóhannesdóttir, James Ragnar Bond, Tanja Björk Ómarsdóttir, Styrmir Snorrason, Ásta Björk Sigþórsdóttir, Astrid Harðardóttir, Harpa Þórðardóttir og Tinna Pétursdóttir. LUXEMBORG Helgileikur og tónlist í aðventuguðsþjónustu Félag íslendinga í Lúxemborg stóð fyrir aðventuguðsþjónustu fyrir nokkru. Jólaboðskapinn flutti sr. Jón A. Baldvinsson sendiráðsprestur í London. í fylgd með sr. Jóni var kór skipaður Sigrúnu Ingu Garðarsdótt- ur, Svanhildi Óskarsdóttur, • Bimi Jónssyni, Þóru Einarsdóttur og Tóm- asi Tómassyni. Flutti kórinn nokkur lög auk þess sem þau þrjú síðastt- öldu sungu einsöng við undirleik Aagot Óskarsdóttur, en hún annaðist einnig kórstjórn. Auk söngsins fluttu nemendur í íslenskukennslunni í Lúxemborg tvö jólaatriði. Elstu nemamir lásu upp ljóð og höfðu fengið aðstoð Fríðu Ingvarsdóttur. Yngri nemendumir sýndu helgileik og sungu undir hand- leiðslu Matthildar Kristjánsdóttur og Lindu K. Ragnarsdóttur. Að aflokinni skemmtidagskrá voru á boðstólum veitingar og sat fólk við kaffídrykkju og spjall frameftir degi. SJONVARP Einn „strandvarðanna“ líkist Tom Hanks Tom McTique sá sitt óvænna þeg- ar hann fékk hlutverk lífvarðar- ins Harveys Millers í sjónvarpsþátt- unum Strandvörðunum og dreif sig í megmn. „Ég gat ekki hugsað mér að milljónir sjónvarpsáhorfenda sæju mig eins og ég var. Það hjálpaði mér að losna við þessi 15 aukakíló sem ég bar,“ sagði Tom fyrir stuttu. Starfíð missti hann að vísu í sum- ar þegar hann lenti í slysi, en hann lætur það ekki á sig fá og segist vera ánægður með að vera heimavið. Hann er ekki giftur en segir að þijár Leikarinn Tom McTique hefur oft lent í því að vera álitinn Tom Hanks, enda eru þeir ekki ólíkir. konur hafí beðið sín. „Ég verð að vanda valið, því ég ætla að bara að gifta mig einu sinni,“ segir kappinn og vísar í skilnað foreldrar sinna. Tom reyndi fyrst fyrir sér í Holly- wood fýrir sex ámm og hefur geng- ið ágætlega að vinna fyrir sér, en störfín snúast þó aðallega um leik í auglýsingamyndum og sjónvarps- þáttum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.