Morgunblaðið - 21.12.1993, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 21.12.1993, Qupperneq 62
62 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993 Fjárhagsáætlun Garðabæjar Tekjur bæjarsjóðs rúmar 695 milljónir TEKJUR bæjarsjóðs Garðabæjar eru áætlaðar 695,4 milljónir króna fyrir árið 1994 samkvæmt fjárhagsáætlun bæjarins sem lögð hefur verið fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Aðaltekju- stofn bæjarsjóðs eru útsvör og eru þau áætluð 252,2 millj. eða 75,75% af sameiginlegum tekjum. í frumvarpinu er gert ráð fyr- ir óbreyttu útsvari, eða um 7%, en með fyrirvara um endalega álagningu vegna frumvarps ríkisstjórnarinnar um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir að heildarrekstrr arútgjöld bæjarsjóðs verði 550,4 millj. sem er um 17 millj. hækkun miðað við áætlun ársins 1993. Mest hækka útgjöld til félagsmála eða um 10 millj. og til fræðslumála um 6 millj. Er áætlað að veita samtals 20% af rekstrargjöldum til fræðslu- mála sem eru 114 millj. samtals. Til félagsmála verður varið 16,2% af rekstrargjöldum sem er 89,1 millj. samtals: Til æskulýðs- og íþróttamála verður varið 13,5%, eða 74,1 millj. samtals. í frétt frá bæjar- ritara kemur einnig fram að rekstr- arafgangur nemur 145 millj., eða 20,9% af sameiginlegum tekjum, eða 18 millj. minna miðað við árið 1993. Fasteignagjöld lækka Þá er gert ráð fyrir að fasteigna- gjöld lækki um 16 millj. vegna lækkunar á álagningu vegna hol- ræsa úr 0,15% í 0,07%. í forsendum frumvarpsins er gert ráð fyrir að launaliðir hækki um 2,5% á árinu og að almenn rekstrargjöld hækki um 3,6% á árinu. Bæjarstjórn vísaði frumvarpinu til bæjarráðs og til síðari umræðu í bæjarstjóm sem fyrirhuguð er 20. janúar árið 1994. Jólabasar í gamla miðbænum TIL að koma til móts við sérþarfir þess fjölmenna hóps sem forð- ast að fara út fyrir gamla miðbæinn, þ.e. svæðið sem afmarkast Laf Aðalstræti til vesturs og Frakkastíg til austurs, hefur verið opnaður jólamarkaður á Hverfisgötu 6, gegnt Arnarhóli. Þar sem forráðamönnum jólabas- arsins er ljóst að hagsýni er aðals- merki þessa ákveðna markhóps var ákveðið að höfða til hans með vand- aðri vöru á hagstæðu verði. Auk tískufatnaðar úr hrásilki og bama- fata úr baðmull em á basarnum , iólatré og fjölbreytt úrval af öðmm jolavömm, leikföng, rafmagnsvara, skartgripir, sportvara, sælgæti, kaffi og krydd, svo fátt eitt sé nefnt. Þá er basarinn eini verslunarstaður borgarinnar, svo vitað sé, þar sem á bpðstólum em gamlar hljómplöt- ur, en þær njóta sem kunnugt er sívaxandi vinsælda meðal safnara. Jólabasarinn á Hverfísgötu 6 verður opinn til jóla á sama tíma og aðrar sölubúðir. og Milljónamæringarnip ásamt Páli Óskari Hjálmtýssyni, halda dúndurdansleik á Café Bóhem frákb 00:30. ♦Vv / * VI ’ • *** 'A' Fordrykkur, snakk, hattar pg knöll innifaiið í miðaverði> Miðaverð kr. 1.800,- í forsölu, en kr. 2.200,- við inngang. \\ láf ílapálai '&Mjti/"' ¥w$0$:$$iétöéMm í^iInriÉSfSi. I f « • V Skemmtistaður Vitastíg 3 ■ Sími 628585 Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akranesi. Sjálfstæðisflokkurinn á Akranesi Ellefu gefa kost á sér Akranesi. FRAMBOÐSFRESTUR vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins á Akra- nesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar er runninn út og gefa ellefu kost á sér. Listinn var kynntur á fundi fulltrúaráðs flokksins á Akranesi á dögunum. Prófkjörið fer fram 29. janúar nk. Þeir sem gefíð hafa kost á sér em trésmiður, Gunnar Sigurðsson, úti- þessir: Bjarki Jóhannesson, fram- bússtjóri, Guðmundur Guðjónsson, kvæmdastjóri, Elínbjörg Magnús- framkvæmdstjóri, Hjörtur Gunnars- dóttir, fiskverkakona, Guðjón Ge- son, tæknifræðingur, Jóhannes Finn- orgsson, rafvirki, Gunnar Olafsson, ur Halldórsson, skrifstofustjóri, Pét- 1 profkjor ur Ottesen, verslunarmaður, Sigríður Guðmundsdóttir, framkvæmdastj óri, og Þórður Þórðarson, bifvélavirki. Sjálfstæðisflokkurinn á Akranesi hefur nú tvo bæjarfulltrúa, þau Benedikt Jónmundsson og Sigur- björgu Ragnarsdóttur. Hvomgt mun gefa kost á sér á lista flokksins að þessu sinni. - J.G. Sex félög taka höndum saman í Fríkirkjunni í kvöld Samkoma tíl að biðja fyrir heimsfriði FRIÐARSTUND á vegum sex samtaka sem vinna öll að andlegri uppbyggingu einstaklingsins verður haldin í Frikirkjunni í Reykja- vík ld. 20.30 í kvöld. Þeir hópar sem standa að athöfninni eru Frí- kirkjusöfnuðurinn í Reykjavík, en friðarstundin er unnin undir handleiðslu prests safnaðarins, Cecil Haraldssonar, Lífssýn, Nýald- arsamtökin, Ljósheimar/íslenska heilunarfélagið, Jógastöðin Heims- Ijós, Snæfellsás og Bahaí-samfélagið. Einnig munu Iistamennirnir Gísli Helgason, flautuleikari, Sigríður Beinteinsdóttir, söngkona, Pálmi Gunnarsson, söngvari og hljóðfæraleikararnir Jón Kjell Selje- seth, Friðrik Karlsson og Halli Júlli annast söng og tónlistarflutn- ing ásamt orgelleikara kirkjunnar, Pavel Smid. Samkomunni verður útvarpað á ingar em skráðir í félög þau og Bylgjunni en dagskráin er rúmlega klukkustundar löng. Fmmkvæði að friðarstundinni átti Guðlaugur Bergmann frá Nýaldarsamtökun- um og leitaði hann til hinna þát- tökuaðilana um samstarf. Fyrsta samkoma af þessum toga var hald- in í Fríkirkjunni í september sl. og að sögn Sigurðar Jónssonar frá Bahaí-samfélaginu sem á sæti í undirbúningsnefnd friðarstundar- innar, þótti hún takast svo vel að ákveðið hafí verið að efna til hiið- stæðra samkoma fjómm sinnum á ári. Rúmlega eitt þúsund einstakl- hópa sem að friðarstundinni standa, og um fimm þúsund manns em skráðir í Fríkirkjusöfnuðinn. Tími trúardeiina liðinn Sigurður Jónsson kveðst vona að fleiri trúarhópar og andlega þenkjandi samtök eigi eftir að koma til liðs við samkomur samtak- anna sex. „Það gekk svo vel að stilla saman strengi okkar að við ákváðum að halda áfram. Þegar fólk horfir á andlega þætti og hættir að skoða þetta veraldlega vafstur, sér það hvað við eigum öll sameiginlegt og er meira virði en það sem við eigum ekki sameig- inlegt," segir Sigurður. „Tími trú- ardeilna og átaka milli andlegra leitenda á að vera liðinn vegna þess að einangrun hugans og nei- kvæð hugsun leiðir til stöðnunar og erfiðleika. Á hinn bóginn leiðir samvinna og opinn hugur til fram- fara, skilnings, friðar og rósemi. Með þeim hætti getum við fundið Iausnir á hinum mýmörgu vanda- málum mannkynsins. Þannig lítum við á samstarf okkar sem leið til að opna skilning okkar og vonandi fleiri á því sem er svo mikilvægt, þ.e. að einangrast ekki því þá get- um við fátt gert til að hjálpa þeim sem minna mega sín.“ Hann segir tilgang friðarstund- arinnar að mynda nokkurs konar mótvægi við ófrið þann, öngþveiti og ringulreið sem ríki í heiminum. „Hvert okkar getur lagt tár á vog- arskálina sem mun þannig verða að ómældu úthafi með tárum þeirra sem þjást,“ segir Sigurður. SIEMENS 'ö m Heimilistœkinfrá SIEMENS eru heimsþekkt fyrir hönnun, gceði oggóða endingu. Gefðu vandaðajölagjöf- gefðu SIEMENS heimilistœkl SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.