Morgunblaðið - 21.12.1993, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993
63
Skiptum í þrotabúi Hafskips lokið 8 árum eftir gjaldþrotið
Forgangskröfur og hluti
veðkrafna auk 65% af al-
mennum kröfum greiddust
Fyrrum slj ó niarío r m að u r Hafskíps segir að í
raun hafi 70% skuldanna fengist greiddar
RÚMUM átta árum eftir að Hafskip hf varð gjaldþrota þann 6. desem-
ber 1985 var samþykkt frumvarp að lokaúthlutun með greiðslu 163
milljóna króna eða 15% almennra krafna úr þrotabúinu á skiptafundi
sem haldinn var á föstudag. Í júní 1989 voru forgangskröfur að upp-
hæð 32,5 miHjónir króna greiddar að fullu og rúmlega 50% sam-
þykktra almennra krafna, sem alls námu 1.071 milljón króna. Alls
greiðast því um 65% af höfuðstóli almennra krafna auk þess sem for-
gangskröfur greiðast að fullu og rúmlega 250 milljónir af um 800
milljóna veðskuldum voru greiddar utan skuldaraðar en afgangurinn
með almennum kröfum. Skiptakostnaður vegna uppgjörs Hafskips
nemur um 84 milljónum króna þar af um 8 miljónir vegna þeirra 163
milljóna sem nú hafa verið dregnar undir skiptin.
Gestur Jónsson hrl, einn skipta-
stjóra þrotabúsins, kvaðst í samtali
við Morgunblaððið efast um að
mörg dæmi væru til um að jafnmik-
ið hefði greiðst upp í kröfur úr
þrotabúum félags sem hefði orðið
gjaldþrota í fullum rekstri hér á
landi en kvaðst þó telja vafasamt
að draga þá ályktun af skiptalokun-
um um að félagið hefði verið gjald-
fært. Ragnar Kjartansson, fyrrum
stjómarformaður Hafskips, sagði í
samtali við Morgunblaðið að í raun
væri niðurstaða skiptanna enn hag-
stæðari en nafnvirði prósentu al-
mennra krafna gæfi til kynna.
Raunvirðisútreikningar sýndu
skiptaprósentu upp á um 70%.
Við fyrri úthlutun úr búinu 29.
júní 1989 reyndist verðmæti eigna
Hafskips vera um 960 milljónir
króna, þar af um 240 milljónir króna
vegna vaxtatekna. Tap Útvegs-
banka íslands sem lýst hafði um
835 milljóna króna kröfum að höf-
uðstóli nam þá 292 milljónum króna
auk vaxta og kostnaðar. Samkvæmt
því frumvarpi sem samþykkt var á
skiptafundinum á föstudag runnu
um 90 milljónir króna til viðbótar
til Útvegsbankans. Gestur Jónsson
sagði að nú væri úthlutað eignum
í formi ýmissa krafna sem inn-
heimst hefðu; höfuðstóllinn væri
50-60 milljónir króna en afgangur-
inn vextir og verðbætur.
Var Hafskip í raun gjaldþrota?
Meginhluti eigna Hafskips var
seldur sem heild til Eimskipafélags
íslands eftir gjaldþrotið og sagði
Gestur Jónsson að frá sjónarhóli
þrotabúsins væri ekki vafí á því að
um góða sölu hefði verið að ræða.
Gestur sagði aðspurður að ekki léki
vafi á að eignir seldust á lægra
verði úr gjaldþrota fyrirtæki en frá
fyrirtæki í rekstri.
Hann sagði að það væri afar
sjaldgæft í gjaldþrotameðferð að
eignir gjaldþrota fyrirtækja á ís-
landi nægðu til greiðslu jafnstórs
hluta krafna. Samt kvaðst hann
ekki telja rétt að álykta svo í ljósi
niðurstöðunnar að Hafskip hafí í
raun verið gjaldfært þegar það var
tekið til skipta. Meðal annars þyrfti
að taka tillit til þess að samþykktar
kröfur væri eitt og lýstar kröfur
annað. Þótt samþykktar almennar
kröfur næmu rúmum milljarði króna
hefði kröfum fyrir verulegar fjár-
hæðir verið hafnað þar sem þær
hefðu ekki verið studdar nægilegum
gögnum. Þar væri m.a. um að ræða
kröfur erlendis frá sem kröfuhafar
hefðu ekki haldið til streitu. Þá sagði
Gestur að í þrotabúi Hafskips kæmu
ekki fram að öllu leyti áhrif af gjald-
þrotum dótturfélaga Hafskips.
Raunskiptaprósenta nær 70%
Ragnar Kjartansson fyrrum
stjórnarformaður Hafskips sagði að
niðurstaða skiptanna væri í raun
hagstæðari en strípuð prósetna af
greiðslu almennra krafna gæfí til
kynna. í fyrsta lagi þyrfti að hafa
í huga að forgangskröfur hefði
greiðst að fullu og veðkröfur utan
skuldaraðar að verulegu leyti. Hann
sagði að niðurstaða raunhæfra en
flókinna útreikninga dæminu sýndi
að raunskiptaprósenta væri tæplega
70% þrátt fyrir að um eignir þrota-
bús en ekki fyrirtækis í rekstri væri
að ræða. Þeir útreikningar byggðust
t.d. á því að líta til víðtækari viðmið-
unar en lánskjaravísitölu gagnvart
kröfum og m.a. tekið mið af kröfum
í erlendri mynt og gengisþróun.
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNIMAR í REYKJAVÍK:
Ölvunarháttsemi fólks lagast
lítið þó nær dragi jólum. Þannig
þurfti lögreglan á tímabilinu að
hafa afskipti af 72 einstaklingum
vegna þess að þeir kunnu ekki
lengur fótum sínum forráð sökum
ölvunar, auk annarra þeirra sem
komu við sögu slysamála, ölvuna-
raksturs, líkamsmeiðinga,
skemmdarverka og rúðubrota.
Nauðsynlegt reyndist að vista 52
þeirra í fangageymslunum.
Mjög lítið bar á líkamsmeiðing-
um þessa helgi. Einungis var til-
kynnt um tvær slíkar til lögreglu.
Báðar áttu þær sér stað aðfara-
nótt laugardags og voru minni
háttar. Önnur varð í heimahúsi og
hin á vínveitingastað.
Fáir voru á ferli í miðborginni
á föstudagskvöld, aðfaranótt laug-
ardags, laugardagskvöld og að-
faranótt sunnudags. Þar sáust 8
unglingar undir 16 ára aldri og
voru þeir allir vistaðir í unglinga-
athvarfinu og síðan sóttir af for-
eldrum sínum. Lítið bar á ungling-
um í einstökum hverfum og svo
virðist sem lítið sé af landa í um-
ferð. Aðfaranótt laugardags voru
tveir piltar þó handteknir eftir að
vitnast hafði að þeir hefðu verið
að reyna að selja landa úr bifreið
í Ármúla. Á næstu dögum verður
gengið enn harðar í að ná í þá fáu
einstaklinga, ssem enn eru að
framleiða slíkan vökva eða hafa
hann til sölu á höfuðborgarsvæð-
inu. Foreldrar ættu að hvetja börn
sín eindregið til þess að hafna með
öllu landa og öðru áfengi. Slíkt
kemur öllum til góða þegar upp
er staðið.
Á föstudagskvöld náðist í pilt,
sem hafði ásamt þremur félögum
sínum gert sér það að leik að rispa
mannlausar bifreiðar við Stakka-
hlíð. Á honum fannst svonefndur
„butterfly-hnífur“, en slíka hnífa
er bannað að flytja inn og eiga
hér á landi.
Á föstudagsnóttina var tilkynnt
um fjögur innbrot og þijá bifreiða-
þjófnaði. Allar bifreiðarnar kom-
ust í leitimar áður en nóttin var
öll. Tveir einstaklingar er komu
við sögu tveggja þjófnaðanna voru
handteknir.
Á laugardag var brotist inn í
söluturn í austurborginni. Virtist
eina markmiðið að bijótast inn í
spilakassa, sem þar var. Innbrot
í söluturna með slíka spilakassa
eru svo til daglegur viðburður.
Skemmdir eru unnar á húsnæði
og á kössunum sjálfum, en þjóf-
amirhafa venjulega lítið af pening-
um upp úr krafsinu. Hér er um
að ræða umhugsunarvert
áhyggjuefni fyrir eigendur sölut-
urna og spilakassa.
Að sögn lögreglumanna á
stjómstöð og færenda dagbókar
var fólk óvenjuskapstirt um helg-
ina, sérstaklega þeir sem vom
undir áhrifum áfengis. Þannig
grýtti einn viðskiptavinur pylsu
með öllu í pylsusala eftir að honum
hafði orðið það á að setja remol-
aði ofan á kjötmetið í stað þess
að setja það undir, eins og víð-
skiptavinurinn hafði óskað eftir.
Annar viðskiptavinur neitaði að
greiða leigubíl þar sem leigubíl-
stjórinn hefði neitað að aka gegn
einstefnu og stytta sér þannig leið
inn í götuna heim hjá honum. Sá
þriðji neitaði að sleppa stein-
steyptu blómakeri, sem hann hafði
í eftirdragi í nálægð við miðborg-
ina. Taldi hann sig greiða það
mikla skatta og það mikil gjöld til
samfélagsins að hann ætti þetta
allt meira og minna hvort sem er.
Alls vom 28 ökumenn kærðir
fyrir að aka of hratt í eða við
borgina. Sumir virtust vera að
flýta sér meira en aðrir. Þannig
sáust tölur allt að 129 km/hraða
á klst. Ekki er vitað til þess að
meiðsli hafí orðið á fólki í þeim
24 umferðaróhöppum sem tilkynnt
vom. í einu af 13 ölvunarakstur-
smálum helgarinnar var ökumað-
urinn stöðvaður eftir að hafa
mælst á 111 km/hraða innanbæj-
ar, sjö ökumenn voru kærir fyrir
að aka á móti rauðu ljósi og 28
ökumenn aðrir vom kærðir eða
áminntir fyrir hin ýmsu umferðar-
lagabrot.
Hnupl eykst er jólahátíðin nálg-
ast. Um helgina var tilkynnt um
tíu slík tilvik. Þannig var t.d. reynt
að hnupla bók í bókaverslun, sæl-
gæti í matvömverslun, varasalva
í matvöruverslun, geisladisk í
hljómplötuverslun og sælgæti í
stórmarkaði. Atvikin voru í öllum
tilvikum kærð.
Draga þurfti íslenska fánann
niður framan við veitingasal í
Borgartúni snemma á laugardags-
morgun, en óheimilt var að hafa
hann að hún á þeim tíma.
Lögreglan í Reykjavík óskar
landsmönnum öllum friðar um
jólahátíðina og minnir jafnframt á
að því minna áfengi sem dmkkið
er um hátíðina því betra fyrir alla.
Eitt af skipum Hafskips.
Slysavarnafélagið varar við jólastjöriiuin
Dæmi um að böm hafi
borðað blöð plöntunnar
SLYSAVARNAFÉLAG. íslands varar við jólastjörnu í blaðinu s.l.
laugardag og bendir fólki á að hafa hana þar sem börn ná ekki til.
Læknar á lyfjadeild Borgarspítalans sögðust kannast við tilfelli þar
sem börn hefðu borðað blöð plöntunnar en engin nýleg.
Helga Ágústa Siguijónsdóttir
læknir sagði að ýmsar plöntur væru
hættulegar og þyrfti fólk almennt
að passa að börn væru ekki að
borða þær. Hún sagðist hafa heyrt
frá dagmæðrum að sum börn fengju
astmakennda öndun þegar jóla-
stjömur væm komnar í umhverfí
þeirra en þekkti sjálf ekkert tilfelli
slíks. Trúlega væri þar um ræða
böm sem væru viðkvæm fyrir í
öndunarfæram.
„Geymist þar sem börn ná ekki
til“
Samkvæmt upplýsingum úr
eiturefnatölvu Borgarspítalans get-
ur snerting við blöð plöntunnar
valdið húðbólgu, roða og jafnvel
blöðrum. Ef blöðin era borðuð veld-
ur það hrattvaxandi bólgu í vörum,
munni og hálsi með meltingarfæra-
ertingu. í alvarlegustu tilfellum,
sem greint er frá í bókum, er lýst
uppköstum, verkum í kviðarholi,
niðurgangi, krömpum, óráði,
lungnabjúg, meðvitundarleysi og
dauða. Helga segir að svo alvarleg
tilfelli hafi aldrei komið upp hér-
lendis, enda séu ræktaðar plöntur
minna eitraðar en þær sem vaxi
villtar. Helga bendir fólki á að skola
húð éftir snertingu við plöntuna og
leita læknis ef frekari einkenni geri
vart við sig.
Helga vildi koma á framfæri
áskomn til foreldra að passa að
börn þeirra borði ekki plöntur, lyf,
þvottaefni eða annað það sem þau
eiga ekki að innbyrða því á hveijum
degi fengi spítalinn margar fyrir-
spurnir vegna slíks.
Jólastjarna ekki jólarós
í auglýsingu SVFÍ er talað um
jólarós en að sögn Kristins Einars-
sonar, sölustjóra í Blómavali, er
örugglega átt við jólastjörnu, sem
er það pottablóm sem margir hafa
inni fyrir jólin, því jólarós væri úti-
planta.
Kristinn sagðist aldrei hafa heyrt
að jólastjama væri hættuleg en að
hún væri af eforbíuætt og sumar
plöntur af þeirri ættu væra eitrað-
ar. Kristinn sagði að foreldrar
ungra barna sem vildu fá upplýs-
ingar um skaðsemi pottaplantna
fengju þær að sjálfsögðu í verslun-
inni. Hins vegar væm plöntur ekki
merktar sérstaklega, enda ekki gert
ráð fyrir því að þær væm borðað-
ar. Kristinn sagði að það kæmi fyr-
ir að foreldrar hringdu í Blómaval
eftir að börn þeirra hefðu borðað
pottaplöntur. Ef plantan væri á lista
yfír plöntur með eitraðan safa þá
væri fólki alltaf bent á að hafa
samband við lækni, starfsfólkv '
Blómavals tæki enga ábyrgð á því
að leiðbeina fólki. Þá hringdu lækn-
ar einnig stundum í verslunina til
að fá latnesk heiti pottaplantna því
oft væri fólk ekki visst í sinni sök
um hvaða plöntur væri að ræða.
SKÓGARHLÍÐ 10 - SÍMI 20720
50. leikvika , 18. dcs. 1993
Nr. Leiktir:_____________Röðin:
1. Blackbum - Man. Gty 1 - -
2. Coventry - Oldhain - X -
3. Everton - Ncwcastle - - 2
4. Ipswich - Norwich 1 - -
5. Lecds - Arsenal 1 - -
6. Sheff. Wed - West Ham 1 - -
7. Swindon - Southampton 1 - -
8. Tottenham - Liverpool - X -
9. Wimbledon - Sheff. Utd 1 - -
10. Birmingham - Chariton 1 - -
11. Bolton - Grimsby - X -
12. Bristol C. - Wolvcs 1 - -
13. Sunderland - Derby 1 - -
Heildarvinningsupphæðin:
117 milljón krónur
13 réttir: 302.590 | kr.
12 réttir: 8.620 |kr.
11 réttir: 810 | kr.
10 réttir: 250 Jkr.
ITALS&ír*m
\ 4^1
^EOLTINN
50. leikvika , 19. des. 1993
Nr. Leikur: Röðirt:
1. Atalanta - Genoa i - -
2. Crcmonese - Udinese - X -
3. Foggia - Torino 1 - .
4. Juvcntus - Piacensa 1 - -
5. Lecce - Lazio - - 2
6. Milan - Cagliari 1 - -
7. Parma - Napoli - - 2
8. Sampdoria - Reggiana 1 - -
9. Ancona - Ascoli 1 - -
10. Fiorentina - Verona 1 - -
11. Modcna - Pcscara - X -
12. Pisa - Ccscna - X -
13. Venezia - Bresda 1 - -
Heildarvinningsupphæðin:
15 milljónir króna
13 réttir: 68.760 | kr
12 rcttir: 2.470 | kr.
11 réttir: 0 | kr.
10 réttir: 0 u.