Morgunblaðið - 19.10.1994, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1994 5
DJÓÐIN DARF ABIICA BÆIUR!
Gatt bókasafn er lykill að framfarum ag velmegun
Stúdentarvið Háskóla Islands hafa
blásið til þjóðarátaks til að efla hið
nýja þjóðbókasafn sem opnar í
Þjóðarbókhlöðunni 1. desember, við
sameiningu Landsbókasafns og
Háskólabókasafns.
Athugun hefur leitt í Ijós að
Háskólabókasafnið, helsta vísinda-
bókasafn þjóðarinnar hefur helmingi minna
fjármagn til kaupa á vísindaritum en
háskólabókasöfn á Norðurlöndum.*
FVLLUm
BÓKHLÖÐUHfl!
Gott bókasafn er lykill að framförum á sviði
vísinda og fræðimennsku og með það í
huga heita stúdentar á landsmenn,
einstaklinga og fyrirtæki að láta fé af
hendi rakna í Þjóðbókasjóð stúdenta.
Hann verður nýttur til kaupa á nýjum
vísindaritum í öllum fræðigreinum fyrir
þjóðbókasafn íslendinga.
* Niðurstöður athugunar á útgjöldum 20 háskólabókasafna I Evrópu til
ritakaupa á árinu 1993. Háskólabókasafn íslands varði 39 milljónum króna
til ritakaupa en meðalútgjöld hinna 20 safna voru 83 milljónir króna.
Hvernig geturðu lagt þitt af mörkum?
Reikningsnúmer þjóðbókasjóðs stúdenta er
112 9 4
í Landsbanka íslands, Vesturbæjarútibúi.
Tekið er við frjálsum framlögum.
Með því að kaupa skafmiðann
Skólaþrennuna í næstu sjoppu
eða bensínstöð áttu kost á
glæsilegum vinningum auk þess
sem hagnaður af sölu miða rennur
beint í þjóðbókasjóðinn.
Landsbanki
íslands
SHÍ
Stúdentaráð Háskóla íslands
®BÚNAÐARBANKINN
-Tmuslur banki