Morgunblaðið - 10.11.1994, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1994
____________________________________________MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ASÍ kynnir nýja atvinnustefnu
Óskað eftir
víðtækri sátt
FORYSTUMENN Alþýðusam-
bands íslands og fulltrúar í at-
vinnumálanefnd ASÍ kynntu í gær
nýja atvinnustefnu Alþýðusam-
bandsins, undir yfírskriftinni: At-
vinnustefna til nýrrar aldar.
Ahersla er lögð á að mynduð verði
víðtæk sátt um mótun stefnunnar
milli verkalýðshreyfíngar, at-
vinnurekenda og stjórnvalda. „Því
verður að þróa áfram hið þríhliða
samstarf þessara aðila og skapa
því formlegri sess. Með því móti
má stuðla að aukinni samstöðu
um forgangsröðun og mat þessara
aðila á einstaka málaflokkum
þannig að þeir vinni að samræmdu
markmiði," segir í stefnuyflrlýs-
ingunni.
Blandast inn í
kjaraviðræðurnar
Benedikt Davíðsson, forseti
ASÍ, sagði á fréttamannafundi í
gær að atvinnustefnan hlyti að
blandast inn í viðræður um kom-
andi kjarasamninga og ASÍ myndi
óska mjög fljótlega eftir viðræðum
við stjómvöld og samtök vinnu-
veitenda til að kynna þeim þessa
stefnu. Forystumenn ASí sögðu
að atvinnustefnan gæti ekki komið
í staðinn fyrir kröfur um aukinn
kaupmátt í kjarasamningum en
þetta tvennt yrði að haldast í hend-
ur. Benedikt sagði að til að menn
gætu vænst þess að halda ávinn-
ingnum af hækkun launa þá dýgði
ekki eingöngu að koma á hag-
kvæmari tekjuskiptingu fyrir
launafólk heldur yrði einnig að
byggja undir þá hækkun til lengri
tíma með þeim breytingum í at-
vinnulífinu sem Alþýðusambandið
boðaði. „Við gerum okkur alveg
ljóst að hækkun launa ein er ekki
takmark út af fyrir sig nema því
aðeins að hún leiði af sér bætt
kjör,“ sagði Benedikt.
í atvinnustefnu ASÍ er áhersla
lögð á aukna verðmætasköpun
með meiri menntun og starfsþjálf-
un til að auka aðlögunarhæfni
atvinnulífsins. Markvisst þurfi að
ijölga vel launuðum störfum og
samtímis að bæta framleiðni og
afköst. ASÍ hafnar því að í fram-
tíðinni verði lögð áhersla á fram-
leiðslu vara sem byggist á lágum
launum. Framleiddar verði vörur
hér á landi með mun hærra virðis-
aukastigi en verið hefur og telja
samtökin því nauðsynlegt að gerð
verði grundvallarbreyting. á efna-
hagsstefnunni.
Gagnrýni
á stjórnvöld
Alþýðusambandið gagnrýnir
stjómvöld fyrir að hafa ekki unnið
stefnumótun í atvinnumálum.
Lagðar eru fram hugmyndir um
skiptingu atvinnulífsins í sex svið
sem leggja beri áherslu á á næstu
árum og hefur verið ákveðið að
setja niður sex samstarfshópa á
vegum ASÍ um hvert svið til að
útfæra þau og undirbúa fram-
kvæmdaáætlun.
Þessi svið eru; sjávarútvegssvið,
orkusvið, bygginga- og mann-
virkjasvið, ferðasvið, lífræn mat-
vælaframleiðsla og heilsu- og heil-
brigðistæknisvið. Þar er m.a. fjall-
að um möguleika við fullvinnslu
sjávarfangs, möguleika á að bjóða
útlendingum ýmsa heilsuþjónustu
hér á landi, aukna rannsóknar-
og þróunarstarfsemi í nýbygging-
um, möguleika á markaðssetningu
hágæðamatvæla og nýtingu þekk-
ingar í virkjun vatns- og hitaafls
til raforkuframleiðslu og húshitun-
ar, til þess að markaðssetja erlend-
is hönnun og gerð slíkra orkuvera,
svo dæmi _séu nefnd úr atvinnu-
stefnu ASÍ.
.Wij* HBiÍi
BKH 8i | j |R " WlM
t I I ‘ ' £ * ■Hj|
Reylgavíkurborg eignast
Reylgaborg við Múlaveg
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
kaup á Þvottalaugabletti VIII,
Reykjaborg við Múlaveg í Laug-
ardal, sem var í eigu Stefnis
Ólafssonar og síðan Rósu dóttur
hans að honum látum. Kaup-
verðið-er 7,2 millj. Gert er ráð
fyrir að garðyrkjudeild borgar-
innar verði falin umsjón með
eigninni fyrst um sinn.
I erindi Hjörleifs Kvaran
borgarlögmanns til borgarráðs
segir að samkomulag hafi verið
gert við Stefni um að íbúðarhús
og útihús á erfðafestulandinu
yrðu áfram í hans eigu en að
borgarsjóður ætti kauprétt á
þeim á brunabótamati eins og
það er ákveðið á hverjum tíma
af dómkvöddum virðingar-
mönnum Húsatrygginga
Reykjavíkurborgar. Skuldbatt
Stefnir sig til að hlíta mati
þeirra við söluna til borgar-
sjóðs. Jafnframt er tekið fram
að flytji hann úr húsinu verði
kauprétturinn virkur svo og við
andlát hans.
Stefnir lést fyrr á þessu ári
og var brunabótamat eignanna
um 9,6 milljónir en að beiðni
Reykjavíkurborgar var
dómkvöddum matsmönnum fal-
ið að endurmeta eignirnar. End-
urskoðað mat er tæpar 4,8 milij.
Fram kemur að samkomulag
hafi tekist um kaup á íbúðarhús-
inu og útihúsum ásamt öllu sem
þeim fylgir fyrir 7,2 miljj. Helm-
ingur upphæðarinnar greiðist
við undirritun kaupsamnings og
afsals en eftirstöðvar 1. febrúar
1995. Með kaupunum er erfða-
festan og kaup á mannvirkjum
að fullu uppgerð og verða ekki
frekari kröfur gerðar á hendur
borgarsjóðs. Eignirnar verða
afhentar borgarsjóði við und-
irritun samningsins og er lagt
til að garðyrkjudeildinni verði
falin umsjón þeirra fyrst um
sinn.
Maður
særður
með hnífi
og barinn
ÞRÍR ungir menn réðust á 22
ára gamlan mann við undir-
göng við Reykjanesbraut í
Garðabæ snemma í gærmorg-
un, börðu hann og særðu hann
tveimur sárum með eggvopni.
Maðurinn var að koma úr
samkvæmi í Kópavoginum, lít-
illega ölvaður, og var á leið
heim til sín í Garðabæ fót-
gangandi. Á móts við undir-
göng við Reykjanesbraut réð-
ust að honum þrír menn,
lömdu hann og beittu eggvopni
á hann því hann er með
skurðsár á fæti og á síðunni.
Hann slapp undan mönnunum
og gaf sig fram á bensínstöð
í Garðabænum, þaðan sem
hringt var á lögreglu.
Gert var að sárum mannsins
á slysadeild Borgarspítalans í
gærmorgun og síðdegis gerði
hann rannsóknarlögreglu
grein fyrir því hvað hafði
gerst.
Ekki er vitað hvaða menn
voru þarna að verki og er
málið í rannsókn hjá RLR.
Ráðherrann
skoðar
skýrsluna
SIGHVATUR Björgvinsson,
heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra, fékk í gær í hendur
drög að skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um málefni ráðu-
neytisins. Ráðherrann hefur
samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins sfrest þar til
síðdegis í dag að skila athuga-
semdum við skýrsluna.
Formaður Framsóknarflokks og oddviti framsóknarmanna í borgarsljórn um úrsögn Helga Péturssonar
Á að segja af sér
trúnaðar störfum
FORMAÐUR Framsóknarflokks-
ins segir að Helgi Pétursson, einn
af fulltrúum flokksins á R-listanum
við borgarstjórnarkosningamar í
vor, formaður ferðamálanefndar
Reykjavíkur og fulltrúi í fleiri
nefndum á vegum R-listans, hljóti
að segja af sér þessum trúnaðar-
störfum í framhaldi af úrsögn úr
flokknum. Sigrún Magnúsdóttir,
borgarfulltrúi R-listans og oddviti
framsóknarmanna í borgarstjóm
Reykjavíkur, segist ekki eiga von
á að þess verði farið formlega á
leit við Helga að hann segi af sér
trúnaðarstöðum en kveðst telja það
spurningu um siðferðileg heilindi
að menn gegni ekki trúnaðarstörf-
um í skjóli samtaka sem þeir telji
sig ekki geta starfað með.
Helgi Pétursson, sem hefur sagt
sig úr Framsóknar-
flokknum en ætlar að
sitja áfram í nefndum
borgarinnar á vegum
R-listans, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær
að afstaða sín til R-listans hefði
ekki breyst við úrsögn úr Fram-
sóknarflokknum og að hann teldi
ekki ástæðu til að segja af sér
enda hefði ekkert erindi þar að
lútandi borist frá Framsóknar-
flokknum.
Halldór Ásgrímsson var spurður
hvaða augum hann liti setu Helga
í nefndum á vegum borgarinnar
eftir úrsögn hans úr flokknum.
„Helgi Pétursson er kjörinn til
þessara starfa á vegum Framsókn-
arflokksins. Ef maður segir sig úr
flokki hlýtur hann að fara úr þeim
trúnaðarstörfum sem hann gegnir
á vegum flokksins. Helgi var full-
trúi Framsóknarflokksins á R-list-
anum í borgarstjómarkosningun-
um. Síðan fóru fram samningar á
milli flokkanna um skiptingu sæta
í nefndum og ráðum og
Helgi fór í þær á vegum
Framsóknarflokksins.
Ég tel að það sé nú ekki
mikið siðferði í stjórn-
málum að segja sig úr
flokki og vílja svo starfa á vegum
hans f trúnaðarstöðum.“
- Gerir þú kröfu um að hann
segi af sér?
„Það er ekki mitt að ákveða
það, þetta er mín almenna skoðun.
Ég get ekkert við því sagt þó að
maður segi sig úr mínum flokki
en mér fínnst það hið eðlilega að
hann fari þá úr þeim störfum sem
hann hefur tekið að sér á vegum
flokksins."
Helgi færir það m.a. fram sem
rök fyrir úrsögn sinni úr Fram-
sóknarflokknum að hann telji um-
ræður um veiðileyfagjald athyglis-
verðar en búist ekki við því að slíkt
ætti upp á pallborðið hjá Fram-
sóknarflokknum. „Það hefur alltaf
verið málfrelsi í Framsókn-
arflokknum. Helgi Pétursson hefur
setið sem varamaður í landsstjórn.
Ég man ekki eftir því að hann
hafí tekið þetta mál upp þar. Það
er hins vegar rétt að það hefur
ekki verið hljómgrunnur fyrir því
í Framsóknarflokknum að leggja
sérstakan skatt á sjávarútveginn.
Það kemur mér mjög á óvart að
maður sem hefur unnið fyrst og
fremst að borgarmálefnum skuli
vilja fara úr flokknum og væntan-
lega hverfa þá frá starfí sínu á
vettvangi borgarmála vegna um-
ræðu um veiðileyfagjald.
Ég bendi á að það eru mikilvæg-
ustu verkefni íslensks sjávarútvegs
að byggja upp þorskstofninn og
greiða niður skuldir sínar og skapa
svigrúm til að afla nýrra markaða
og koma af stað nýjungum í at-
vinnulífinu. Það gerist ekki með
skattpíningu," segir Halldór.
Sigrún Magnúsdóttir sagði að
mál Helga væri ekki einsdæmi inn-
an R-listans og umræða á þessum
nótum hefði verið þar í gangi eftir
úrsögn Ólínu Þorvarðardóttur,
stjómarmanns í SVR, úr
Alþýðuflokknum og
Gerðar Steinþórsdóttur,
sem sæti á í jafnréttis-
nefnd, úr Framsóknar-
flokknum. „Helgi er
varaborgarfulltrúi Reykjavíkurlist-
ans en hann er formaður í ferða-
málanefnd og situr í menninga-
málanefnd borgarinnar út á kvóta
Framsóknarflokksins. Það er
kannski svolítið sérkennilegt að
menn hafí geð í sér til að sitja í
slíkum valdastólum fyrir hönd
flokks sem þeir hafa sagt skilið
við. Þannig að mér fínnst siðferði-
lega ekki rétt að hann sitji en ég
er sannfærð um að Helgi starfar
vel fyrir Reykjavíkurlistann þótt
hann sé hættur í framsókn,“ sagði
Sigrún. Hún nefndi fyrrgreind mál
Ólínu og Gerðar og sagðist telja
að þar ætti það sama við og um
Helga. „í þessum málum vil ég
höfða til réttlætiskenndar hvers
og eins. Ef menn telja útilokað að
starfa lengur með flokki sem þeir
hafa starfað með í mörg ár sem
góðir liðsmenn geta þeir þá rétt-
lætt það fyrir sjálfum sér að starfa
áfram í nafni þeirra í trúnaðar-
störfum hvort sem er innan R-list-
ans eða annars staðar?“ sagði Sig-
rún Magnúsdóttir. Hún kvaðst ekki
eiga von á að þess yrði formlega
óskað að Helgi segði af sér.
„Ég var á framboðslista R-list-
ans og var kjörinn sem slíkur og
ég veit ekki til að R-listanum hafí
borist erindi frá Fram-
sóknarflokknum um að
ég víki,“ sagði Helgi
Pétursson. „Ég hef ekki
breytt um afstöðu til
R-listans. Ég er dyggur
stuðningsmaður R-listans og ekki
genginn til liðs við andstæðinga
hans. Mér finnst það vera megin-
atriði.“
Aðspurður hvort ekki væri eðli-
legt að hann viki þar sem hann
hefði verið tilnefndur til setu á
R-listanum eftir forval innan
Framsóknar sagði Helgi: „Miðað
við þá sameiningarumræðu og það
samstarf sem við buðum R-listann
fram í tel ég ekki að svo sé.“
Kjörinn á
vegum Fram-
sóknar
Mál Helga
er ekkl
einsdæmi
.
i
j