Morgunblaðið - 10.11.1994, Page 45

Morgunblaðið - 10.11.1994, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1994 45 MARGT ætlar maður að gera en stundum vill það dragast, svo sem að flytja steinseljuna í potta. Hún hafði staðið í garðin- um fagurgræn síðan snemma í sumar og nú á haustdögum með grænkáli og sprotakáli (brok- koli), sem lifir góðu lífi þótt far- ið sé að kólna. Nú var spáð frosti og snjókomu og ég greip nokkr- ar blómsturpotta og smáskóflu og fór niður í matjurtagarðinn. Á stígnum niður í garð voru nokkur kindaspörð. „Héldu kind- urnar virkilega að stígurinn væri fyrir þær?“ En þær héldu meira en það, þær höfðu étið allt grænkálið og sprotakálið og kryddað með steinseljunni. Þær fengu ekkert hlýjar hugsanir frá mér. Ég hafði vaknað um nóttina við traðk á trépallinum sem umlykur húsið. „Nú, krummi er kominn á stjá,“ hugsaði ég og hallaði mér á hina hliðina og sofnaði vært. Upp úr kl. 7 dró ég gardínurnar frá svefnher- bergisglugganum, ég hélt mig væri að dreyma, um 20 lagðfal- legar kindur voru á beit milli grenitijánna fyrir utan og sumar stóðu á pallinum undir þak- skegginu. Þær átu af áfergju og voru svo hæverskar að ekki heyrðist jarm frá þeim en tóku á rás, þegar ég kveikti ljósið. „Kurteisar kindur," hugsaði ég þar til áðan að ég sá hvað þær höfðu gert í matjurtagarðinum. „Þá það.“ Ég steig inn í bílinn og ók í stórmarkaðinn þar sem ég keypti bæði sprotakál og steinselju til að setja í lamba- kjötssúpuna. Meðan súpan mall- aði bakaði ég brauð og bar með. Öðruvísi kjötsúpa 1 kg súpukjöt (ekki feitt) 2 lítrar vatn 2 tsk. salt 6-8 piparkorn 600 g sprotakól (brokkoli) væn grein fersk steinselja 1. Skerið fitu utan af kjötinu og fleygið. Matur og matgerð Kindur átu grænmetið í síðasta þætti fjallaði Kristín Gestsdóttir um grænmetið sem lifði enn góðu lífí í garði henn- ar, en það fór verr en á horfðist, nokkrar kindur úr nágrenninu komust í garðinn og átu það allt. 2. Setjið vatn, piparkorn og salt í pott og látið sjóða, setjið kjötið í pottinn og sjóðið við hægan hita í 75 mínútur. 3. Takið kjötið upp úr pottin- um, skerið af beinunum í bita heldur stærri en gúllasbita, sker- ið frá fitu og fleygið. Setjið kjöt- bitana aftur í kjötsoðið ásamt sprotakáli og sjóðið í 10 mínút- ur. Klippið laufið af steinseljunni, setjið leggina í súpuna og sjóðið með en geymið laufið. 4. Takið steinseljuleggina úr súpunni, klippið steinseljulaufið yfir hana og berið fram. Fljótbakað brauð 1 dl haframjöl 6 dl hveiti 2 tsk. púðursykur msk. fínt þurrger tsk. salt 2 msk. sesamfræ 2 msk. matarolía 1 dl köld mjólk 1 dl vel heitt vatn út krananum. mjólk til að pensla brauðið með sesamfræ til að stró yfir brauðið 1. Byrjið á að rista sesamfræ- ið á þurri pönnu. Hafið lok á pönnunni, fræið þeytist upp í loft- ið, en fylgist vel með, þetta er fljótt að brenna. 2. Setjið haframjöl, hveiti, púð- ursykur, þurrger, salt og sesam- fræ í skál. Setjið matarolíu út í. 3. Blandið saman kaldri mjólk og heitu vatni, þetta á að vera fingurvolgt, alls ekki heitara. Setjið vökvann í deigið og hrærið saman með sleif eða í hrærivél. Mótið síðan tvö aflöng mjó brauð. Setjið á bökunarpappír á bökunarplötu. Penslið með mjólk og stráið sesamfræi yfir. Leggið stykki yfir brauðin, látið standa á eldavélinni meðan ofninn er að hitna. Gott er að brauðin lyfti sér nokkuð lengi allt að klukkutíma. 4. Hitið bakaraofninn í 200°C, skerið raufar í brauðin með beitt- um hnífi, setjið í miðjan ofninn og bakið í um 20 mínútur. Athugið: Ef vökvinn er mátu- lega heitur (fingurvolgur) og brauðdeigið frekar lint, heppnast brauðið alltaf. BRIPS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni SPILAÐUR var tvímenningur fimmtu- daginn 3. nóv. og mættu nítján pör og spilað var í tveim riðlum. A-riðill, 10 pör: Ragnar Halldórsson - Vilhjálmur Guðmundss. 131 Ingibjörg Stefánsdóttir - Fróði B. Pálsson 129 Margrét Bjömsson - Guðrún Guðjónsdóttir 123 ÞórarinnAmason-BergurÞorvaldsson 122 B-riðill, 9 pör, yfirseta: Elin Jónsdóttir - Lilja Guðnadóttir 126 Ásta Erlingsdóttir - Gunnþómnn Erlingsdóttir 116 Sigurleifur Guðjónsson - Eysteinn Einarsson 115 Eyjólfur Halldórsson - Þórólfur Meyvantsson 113 Meðalskor í báðum riðlum 108. Sunnudaginn 6. nóv. spiluðu nítján pör í tveim riðlum. A-riðill, 10 pör: Karl Adolfsson - Eggert Einarsson 130 Ingunn Bemburg - Halla Ólafsdóttir 128 Betgur Þorvaldsson - Bragi Salomonsson 118 Ingibjörg Stefánsdóttir - Helga Helgadóttir 115 B-riðill, 9 pör, yfirseta: Ásta Erlingsdóttir - Gunnþórunn Erlingsd. 122 Sigurleifur Guðjónsson - Eysteinn Einarss. 115 Hannes Ingibergsson - Láras Amórsson 114 Þórhildur Magnúsdóttir - Sigurður Páisson 110 Meðalskor í báðum riðlum 108. Bridsfélag Sauðárkróks Sl. mánudag var spilaður eins kvölds tvímenningur. Efstu pör: Þórdís Þormóðsdóttir - Elísabet Kemp 104 Einar Svavarsson - Guðmundur Bjömsson 95 Guðni Kristjánsson - Einar Oddsson 94 SigurgeirAngantýsson-BirgirRafnsson 91 14. nóvember hefst 3 kvölda Butl- er. Skráning annast Kristján, s. 36146 -og Silló, s. 35576. Bridsfélag Reyðarfjarðar og Eskifjarðar Missagt var í þættinum í síðustu viku að aðaltvímenningnum væri lok- ið. Þegar 5 kvöldum af 6 var lokið höfðu Aðalsteinn Jónsson og Gísli Stefánsson tekið forystuna á ný með 188 stig en röð efstu para er annars þessi: Ásgeir Methúsalemsson - Kristján Kristjánsson 166 Þorbergur Hauksson - Ámi Guðmundsson 116 Auðbergur Jónsson - Hafsteinn Larsen 112 Svala Vignisdóttir - Ragna Hreinsdóttir 89 Hæsta skor síðasta spiiakvöld: Aðalsteinn - Gísli 36 Árni Guðmundsson - Þorbergur Hauksson 32 BjamiGarðarsson-HörðurÞórhallsson 25 Næsta mót verður tveggja kvölda hraðsveitakeppni. Fiskbúð Óska eftir fiskbúð eða hentugu húsnæði undir fiskbúð til leigu á Reykjavíkursvæðinu eða í Kópavogi. Upplýsingar leggist inn á afgreiðslu Mbl., merktar: „Fiskbúð - 7602“. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði Aðalfundarboð Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæóisfélaganna í Hafnarfirði boðar til aðal- fundar fimmtudaginn 17. nóvember nk. Fundurinn verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu 29, og • hefst ki. 20.00. Stjórn fulltrúaráðsins. Félags sjálfstæðismanna í Árbæ, Selási og Ártúnsholti Aðalfundur félagsins verður haldinn í kvöld, fimmtudaginn 10. nóvem- ber, kl. 20.30 í húsnæði félagsins, Hraunbæ 102B. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Lagabreytingar. 3. Gestur fundarins Pétur H. Blöndal. Stjórnin. auglýsingar I.O.O.F. 11 = 17611108'/2 = 9.0 I.O.O.F. 5 = 1761110872 = 9.0 Pýramídinn - andleg miðstöð Opiðhús I dag, fimmtudaginn 10. nóv., kl. 20 verður oplð hús með Derek Coker og öðru starf sfólki Pýramfdans. Allir velkomnir. Ókeypis aðgangur. Pýramídinn, Dugguvogi 2, símar 881415 og 882526. \v-—7/ KFUM V Aðaldeild KFUM, Holtavegi Fundur í kvöld kl. 20.30 við Holtaveg. Víngarðsmennirnir, Matt. 20:1-16. Biblíulestur í umsjón dr. Einars Sigurbjörns- sonar. Allir karlmenn velkomnir. ÉHjálpræðis- herinn y Kirkjuitræti 2 Lofgjörðarsamkoma kl. 20.30. Erlingur Nielsson og Sven Fossi stjórna og tala. Ath.: Fjölskyldupartý á laugar- dag fellur niður. Orð lífsins, Grensásvegi8 Almenn samkoma kl. 20.30. Allir velkomnir! Ann Coupe miöill, heldur kennslu- og fræðslufund í sal Sjálfsbjarg- ar, Hátúni 12, frá kl. 11-16 laugardaginn 12. nóvember. Skyggnilýsingafundur verður á sama^ stað kl. 20. Nánari upplýsirigar i síma 29832. Hvítasunnukirkjan Völfufelli Almenn samkoma kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Frá Sálar- rannsókna- félagi íslands Frá Sálar- rannsókna- félagi íslands Kristalheilun - námskeið - einkatímar Hinn fjölhæfi miöill, Colin Kings- hot, verður með námskeið i kristalheilun laugardaginn 12. nóvember. Einnig býður hann upp á einkatíma í áruteikn- ingu/lestri, kristalheilun og heil- un með hljóðbylgjum. Bókanir í einkatíma og námskeið eru f símum 18130 og 618130. Stjórnin. Þórunn Maggý - Opið hús Opið hús verður með Þórunni Maggý í kvöld, fimmtudags- kvöldið 10. nóv- ember, á Soga- vegi 69 kl. 20.30. Húsið opnað kl. 20.00. Pórunn Maggý mun tala vitt og breitt um draumaheiminn, sálf- arir og fleira. Og eins og áður býður hún uppá einkafundi hjá félaginu. Upplýsingar og bókanir eru í símum 18130 og 618130. Stjórnin. Volkstrauertag 1994 Kæru landar! Þýska sendiráðið býður ykkur til þess að minnast látinna her- manna Volkstrauertag sunnu- daginn 13.11. 1994. Við munum hittast á bifreiða- stæðinu við Fossvogskirkju kl. 10.45. Þýska sendiráöið. Volkstrauertag 1994 Liebe Landsleute, die Deutsche Botschaft ládt Sie herzlich ein, am diesjáhrigen. Volkstrauertag am Sonntag, den 13.11.1994, teilzunehmen. Wir treffen uns auf dem Park- platz des Friedhofes Fossvogur um 10.45 Uhr. Ihre Botschaft.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.